Leita í fréttum mbl.is

Veit ekki alveg hvaða herferð er í gangi nú. En held að sjálfstæðismenn séu að eyða peningum í vitleysu!

Nú síðustu vikurnar streyma út bækur sem skrifaðar eru af sjálfstæðismönnum eða gefnar út af stjálfstæðismönnum nema hvoru tveggja sér. Þetta eru bækur eins og Bylting - og hvað svo og núna bókin hans Eggerts And­er­senskjöl­in, rann­sókn­ir eða of­sókn­ir? þar sem kerfisbundið er unnið að því að skíta út alla sem komu að málum hér í og fyrir hrun.

Þetta er svo augljóslega tilraun til að skrifa söguna upp á nýtt og ótal atriði sem strax hafa verið hrakin sem þarna koma fram. En það sem undrar mig er að menn séu tilbúnir að eyða í þetta peningum að koma út þegar að fólk nú til dags getur googlað þetta og komist að því strax að upplýsingar þarna séu í besta falli vafasamar. Þetta er auðssjáanleag skipulögð herferð sem er í gangi og má reikna með að hún magnist næstu misseri.  Ekki viss um að þetta gagnist þeim neitt. Guðlaugi Þór tóks nú ekki að nýta sér stríðið sem hann fór í við Gunnar Andersen. Jú hann náði að hrekja hann í grípa til aðgerða sem síðoan hröktu hann frá starfinu en Guðlaugur er áfram bara lítill sjallastrákur sem hefur ekkert vægi.

En ef þetta er byrjunin á einhverju flóði frá peningaköllunum í sjálfstæðisflokknum til að endurrita söguna þá verða þeir að kaupa google.com og loka því. Nú í dag geta allir kannað mest af sögunni sjálft og menn komast ekki upp með að endurskrifa hana.


mbl.is Skýrslur „peninga- og tímaeyðsla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá fróðleikur um launakröfur og kjaradeilur!

Samtök atvinnulífsins og Ríkisstjórnin hamra á að 300 þúsundkrónu laun eftir 3 ár setji hér allt á hausinn.

  • Fyrir það fyrsta man ég ekki eftir þeim kjaradeilum sem ekki hafa endað á að enginn fekk allt sem hann fór fram á. Það er yfirleitt samið sem þýðir að allir slá af kröfum þegar samninga nálgast en þó þannig að ákveðin markmið nást.
  • Ríkið hefur einmitt oft komið að svona deilum með tilboð um skattabreytingar eða annan stuðning þannig að hægt væri að koma á móts við kröfur sérstaklega um þá sem standa lægst.
  • Yfirleitt hefðu kjaradeilurnar átt að vera komnar á stig þríhliða viðræðna fyrir löngu síðan en ríkisstjórnin magnaði upp þessar deilur t.d. þegar Sigmundur Davíð fagnaði kröfum um krónutöluhækkanir en er síðan að tala um allt annað. Svo sagði Bjarni allt annað.
  • Nú svo má ekki gleyma að BHM er nú þegar búið að standa í verkföllum í nærri mánuð og ríkisstjórninni er nákvæmlega sama.

mbl.is Rúmlega 10 þúsund í verkfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhamingju ríkisstjórnarinnar verður allt að vopni

Þessi fyrirsögn hér að ofan er fengin að láni frá bloggara hér á blog.is. Hann heitir J ón Baldur Lorange og hefur verið öflugur á blogginu og klárlega mikill stuðningsmaður stjórnarinnar eins og hann segir á bloggi sínu. Rakst á þessa færslu eftir hann...

Á tímum google borgar sig ekki að ljúga Bjarni Ben

Þegar Bjarni Ben segir að hann hafi talið fulla þörf á að rannsaka erlenda áhrifavalda hrunsins og þessvegna samið við Félagsvísindastofnun um að taka að sér verkið, gleymir hann því að auðvelt er að googla aðdragandan að þessu verki. En hann er svona:...

Er ekki kominn tími á að ríkistjórnin vakni og taki forystu að leysa kjaradeilurnar!

Væri ekki rétt núna að kalla alla aðila að borðinu svona eins og eina helgi og skoða: Hvað getur ríkið boðið raunverulega til að koma á móts við kröfur um bæta sérstaklega hag þeirra sem eru lægst launaðir. T.d. skattleysismörk, húsnæðisbætur og fleira....

Ef við værum í ESB núna!

Þá væri ljóst að verðbólguáhrif sæmilegra leiðréttinga á lægstu launin mundu ekki hafa nein áhrif á gengi Evrunar. Kjarasamningur myndu ekki hafa verðbólguáhrif á lán heimila þó þeir væru ríflegir. Reynda gæti verið aukið atvinnuleysi tímabundið. Það...

Ef við værum með stjórnvöld sem hefðu smá hugsun!

Þá væru þau ekki standandi á hliðarlínunni að bíða eftir að hér verði allsherjarverkföll. Þau hefðu verið fyrir löngu búin að kalla saman bæði aðila atvinnulífsins, stéttarfélaga bæði á almennamarkaðnum og opinbera. Og á þeim fundum væri sest niður og...

Smá ráðlegging til Sigmundar Davíðs! Ekki vera svona takktlaus!

Svona fyrir það fyrsta! Þú með alla þína ráðgjafa reynið nú að hugsa aðeins áður en þið talið. Ekki bara sambandi við Sjúkrahúsið heldur allt hitt. Á einum degi tókst þér Sigmundur að forklúðra fullt af málum. Kíkjum á nokkur: Á meðan að fólk hér emjar...

Hefur Karl ekki áhyggjur af Framsókn?

Sýnist skv. könnunum að Karl sé í flokki sem muni missa allt að 2/3 þingmanna í næstu kosningum! Þannig að sæti hans er mjög ótryggt. Veit að honum sveið að Össur væri að tjá sig um Framsókn! En þar sem Karl er óvart í öðrum flokki þá held ég að hann...

Ólafur Ragnar talar tungum tveimur. Fréttir af ræðu í Litháen!

Vek athygli á þessar frásögn af ræðu Ólafs Ragnar í Litháen: Skemmst er frá því að segja, að inntakið í ræðu forsetans var að bera lof á leiðtoga Litháa fyrir þá framsýni þeirra og raunsæi að hafa fest nýfengið sjálfstæði í sessi með inngöngu í...

Svona í ljósi vitleysunnar sem ríkisstjórnin býður upp á þessa dagana!

Númer 1 þá er ég salla rólegur! Það eru komin nú um 6 ár frá hruni og skv. venju er þá að styttast í næsta hrun hjá okkur. Það þarf ekki að verða nema aflabrestur eða veruleg hækkun á olíu til að verðbólgan fari aftur á stað eða fella verður gengið. Nú...

Aðeins um ferðaþjónustu fatlaðra

Finnst að í umræðu síðustu daga hafi gleymst að: Feðarþjónusta fatlaðra sem rekin er nú af strætó er samstarfsverkefni allra sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðinu ekki bara Reykjavík. Ég efast ekki eina mínútu um að mistök hafa átt sér stað í hinum...

Kristnir söfnuðir og tvöfeldni þeirra!

Nú er menn að tjá sig mikið um hversu óánægðir múslimar eru með að menn séu að teikna grínmyndir af Múhameð! Er að velta fyrir mér hvort að kristnir menn hafi ekki lesið Biblíuna eða hvað? Í hverrir kirkju eru myndir af einhverjum manni hangandi á kross!...

Sennilega bý ég bara ekki í sama landi og Sigmundur Davíð!

Vissulega er verðbólga mjög lág! Reyndar svo lág að grípa þarf væntanlega til aðgerða til að örva hana þar sem hún nálgast að vera verðhjöðnun! Hef ekki persónulega fundið fyrir öllum þessum skattalækkunum sem Sigmundur Davíð talar um. Síðustu fjárlög...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband