Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur það er líka slæmt að bíða.

Það væri gott að einhver benti Steingrími á eftirfarandi staðreyndir:

  • Hér á landi er gjaldmiðill sem kallast "króna" Hún hefur m.a þann eiginleika að gengi hennar síðustu ár og áratugi hefur ekki verið raungengi. Heldur hefur hún blásið hér út neyslubólu og lána bólu þar sem að gengi hennar var mun hærra en það átti að vera. Genginu var haldið uppi með stöðugu offramboðið af erlendu lánsfé og stórframkvæmdum.
  • Hér á landi eru í raun 2 myntir. Óverðtryggð króna og svo verðtryggð króna sem flestum sem taka lán er gert að nota í þeim viðskiptum. Vegna verðtryggingar virkuðu ekki neinar þekktar aðferðir til að hamla útlánum, neyslu og þessháttar. Og því varð hér aukin þensla sem orsakaði aukna verðbólgu sem jók á verðtryggðu lánin. Og þetta varð til þess að bankar fóru að bjóða fólki erlend lán með lægri vöxtum. Þessi lán voru svo aftur gengistryggð náttúrulega og því voru þau háð þessu falska gengi krónunnar og hækkuðu því um helming við fall krónunnar.
  • Við eru 330 þúsund manna þjóð að reyna að skapa okkur velmegun með viðskiptum við aðrar þjóðir sem flestar eru í ESB með Evru eða Pund. Þetta eru myntir sem hafa verið stöðugar en við þurft að búa við að í viðskipum við þessar þjóðir geta viðskiptasamningar dregist saman um helming við svona sveiflur í krónunni.
  • Steingrímur ætti líka að horfa til þeirra þjóða sem lent hafa í bankakrísum hingað til í næsta nágreni við okkur. Bæði Finnar og Svíar ákváðu að það væri nauðsynlegt fyrir þá til að komast úr úr kreppunni að ganga í ESB bæði til að verða samkeppnishæfari sem og að ná jafnvægi í efnahag landana.
  • Nú eru bæði Danir og Svíar að huga að því að taka upp evru.
  • Með inngöngu í ESB kæmumst við inn í marga samninga ESB við ríki utan ESB eins og Kína og fleiri lönd.
  • Eins væri gott fyrir Steingrím að átta sig á að við inngöngu í ESB værum við skuldbundin til að koma á hér reglu og jafnvægi í fjármálalífinu.
  • Með inngöngu í ESB værum við komin að borðinu í öflugu sambandi sjálfstæðra ríkja. ESB er með öflugustu samtökum í heimi.
  • Ýmsir tolla á fullunum vörum frá okkur mundu falla niður í viðskipum við þjóðir innan ESB
  • Við inngöngu í ESB væri kominn hvati fyrir erlenda aðila að fjárfesta hér. T.d. erlendir bankar, tryggingarfélög, olíufélög, verslunarkeðjur og iðnaður. Sem mundi skapa hér samkeppni og lækka verð til neytenda. Það má reikna með lækkun á neysluvörum m.a. matvörum upp á kannski 25 til 30%. Sem kæmi skuldugum heimilum vel.
  • Sjávarútvegur fengi aðgang að fjárfestum sem kæmi sér vel fyrir stórskuldugan atvinnuveg.
  • Landbúnaður fengi jafnvel hærri styrki en hann færi í dag. Hann yrði ekki framleiðslutengdur þannig að bændur gætu hagað framleiðslu sinni á hagkvæmari hátt. Og með meiri fjölbreytni.
  • Ekkert land innan ESB hefur sýnt nokkurn áhuga á að komast þaðan út. Það segir sína sögu.
  • Það hefur verið bent á að nú í dag uppfyllum við ekki EES samninginn vegna gjaldeyrishafta og ef það lagast ekki gæti okkur verið vísað út úr EES og við það kæmu aftur tollar á allar okkar útflutning. Þá færi fyrst að syrta í álin hjá okkur

Það er nauðsynlegt að við förum í samningaviðræður við ESB og fáum á hreint hvort að við fáum ekki ásættanlegan samning.


mbl.is Áherslan á ESB lýsir taugaveiklun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki að skilja Framsókn

Ætli að Sigmundur hafi hugsað út í hvað svona yfirlýsingar eins og hann kom með í gær gæti kostað í samningum við erlenda lánadrottna? Og ef að Sigmundur er að byggja á einhverju vafasamri túlkun á minnisblaði á þessu mati á lánasöfnum bankana þá gæti...

Gleymir Sigmundur ekki einhverju?

Nú síðustu mánuði hafa stjórnvöld talað um að nýju bankarnir yrðu mun minni en áður hafi verið áætlað. Þetta er væntanlega afleiðingar af því að ekki voru eins miklar eignir í gömlu bönkunum eins og reiknað var með í upphafi. Og eins þá vekur það furðu...

Svandís þú verður bara að trúa því!

Annar væri nú rétt að snú þessu við! Ég held Svandís að það væri nú gáfulegra að fara í samningaviðræður við ESB og koma heim með afraksturinn og bera hann undir þjóðina! Það er ekki gáfulegt að bera undir þjóðina mál án þess að það hafi verið...

32 þúsund fjölskyldur??????

Eru þau að halda því fram að um 100 þúsund manns hafi beinan hag af sjávarútvegi? Held að þau verði að skoða þetta betur. Og hvaða félag er þetta með leyfi? Er þetta dótturfélag Sjálfstæðisflokksins? Smá viðbót. Þetta er stjórn félagins. Allir helbláir...

Ég undirritaður lýsi hér með yfir!

Ég undirritaður félagi í Samfylkingunni í Kópavogi lýsi því hér með yfir að fari Samfylking í stjórn eftir kosningar án þess að í stjórnarsáttmála þeirrar stjórnar sé ákvæði um aðildarviðræður og inngöngu í ESB þá segi ég mig úr flokknum og mun aldrei...

Þetta er sorglegt!

Engin viðskipti með krónu! Og svo eru hér enn stórir hópar fólks sem halda að krónan verði okkar framtíðar gjaldmiðill. Það breytist hljóðið í fólki þegar við verðum búin með allan gjaldeyrisforða okkar. Svo er vert að benda á eitt enn. Það eru líkur á...

Þar fóru auglýsingar upp á milljónir út um gluggann!

Þetta kennir Sjálfstæðismönnum að nú á tímum síma og netsins er nú rétt að vera ekki að reyna að slá einhverju upp án þess að geta rökstutt það. Þeir hefðu kannski átt að ræða við AGS eða ESB áður en þeir fóru út í að kaupa þessar auglýsingar....

54% Vestmanneyinga telja Árna Johnsen hæfastann til að stjórna Íslandi

Var að kýkja á þessa könnun og það sem vekur athygli mína er að 54% Vestmanneyinga telur að Árni Johnsen sé hæfastur til að stjórn hér á landi!

Já takk!

Auðvita er þetta rétt hjá Jóhönnu. Það á að hefja ESB viðræður strax eftir kosningar. Það á ekki að leyfa einhverjum afdalamönnum hér að halda utan við samfélag Evrópu þjóða. Ef þessi afturhalds öfl fá að ráða verða engar breytingar á stöðumála hér. Við...

Nú eru sjálfstæðismenn farnir að örvænta

Björn Bjarnason er alveg ótrúlegur í þessari grein. Hann er að reyna að plata þann stóra hóp sem hefur yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn inn aftur í flokk sem var að hafna ESB. Nú eiga menn að koma í flokkinn og berjast við Björn og Co til að breyta stefnu...

Kosningabarátta - Góðir hlutir og slæmir

Framsókn má eiga það að þeir eru frumlegir í kosningabaráttu sinni. Þeir fara mikinn í að kynna 20% leiðina sína og svo t.d. þetta með alþjóðaveislu. Eins var frumlegt að sjá Þráinn Bertelsson upp á kassa fyrir Borgarahreyfinguna. Þá má segja að Vg hafi...

Rétt og rangt um Evrópusambandið

Bendi fólki á að lesa þessa samantekt um ESB þar sem tekið er á öllum hræðsluáróðri sem andstæðingar ESB hafa haldið að þjóðinni: Þar stendur m.a. Þetta er sagt: Ísland missir fullveldi sitt við aðild að ESB. Rétt er: ESB er samband fullvalda og...

Gleymdi Ástþór að ýta á "refresh"

Ég get nú ekki betur séð en að þarna sé tengill á Lýðræðishreyfingunna og þarna eru listarnir líka en ruv.is var í vandræðum með þá þar sem að efstu menn eru ekki tilgreindir þar. Og aðeins eru birtir 10 efstu af hverjum lista. Því eru þarna fyrir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband