Leita í fréttum mbl.is

Þjóðarsátt???????

Mér sýnist að hér á landi sé andskoti langt í að náist einhver þjóðarsátt.

 Hér eru hópar m.a. skuldara sem fynst ósanngjarnt að að innistæðueigendur hafi ekki tapað peningum. Á meðan að þeir vilja að ríkið greiði niður skuldir þeirra á móti. Þeir tala alltaf eins og að fjármagnseigendur séu einhverjir "millar". Þeir gleyma þvi að flestir fjármagnseigendur eru ellilífeyrisþegar sem og í bönkunum er ævisparnaður þeirra. Þeir eiga líka íbúðir og hugsanlegar skuldir.

Þessi sami hópur talar alltaf eins og ríkið sé eitthvað annað en þjóðin. Fólk gleymir að það sem fer út af tekjum ríkisins þarf að koma inn á öðrum stöðum eða skera niður. Nú þegar er ljóst að tekjur ríkisins koma til með að lækka um 25 til 30% á þessu ári.

Það er nokkuð ljóst að við afskriftir lána almennt um 20% þá þarf að bæta nýju bönkunum það. Því að íbúðarlán eru hluti af eignum nýju bankana.

Síðan er ljóst að 20% lækkun lána hjálpar fólki ekki svo mikið. Ef fólk skuldar 30 milljónir nú eftir hækkun þá greiðir það kannski 150 þúsund af þessum lánum. 20% lækkun gerir það að verkum að lánið verður 24 milljónir og fólk greiðir um 125 þúsund af því. Þetta eru ekki nema 25 þúsund. ´

Og líkur á því að ríkið sem er að skera niður og reyna að auka tekjurnar verður þess í stað að leita peninga til að aðstoða marga sem 20 niðurfelling dugar ekki. Auk þess sem ríkið þarf að skaffa tekjur til að standa undir auknum skuldum erlendis eins og vaxtargreiðslum og fleira.

Menn tala alltaf eins og erlendir kröfuhafar séu asnar. Þeir heimta að engar eignir séu teknar úr gömlubönkunum án þess að þær séu metnar niður í smá atriði. Hvert lán jafnvel. Annars héti það þjófnaður. Um afskriftir lána verður að semja.

En hér tala bara allir eins og þetta sé ekkert mál. Við bara afskrifum lánin hjá nýju bönkunum sem bitnar svo á eignum í gömlubönkunum sem helvítis asnarnir í útlöndum þurfa svo að bera að lokum.

Ég spyr halda menn að það væru líkur á því að einhver þessa helvíti asna í útlöndum mundi nokkurn tíma lána okkur nokkurn skapaðan hlut ef þeir upplifðu það að við hefðum bara notað þeirra fé í húsnæðiskerfi okkar og neituðum svo að borga. Held ekki.

Held að það sé algjört lámark að semja fyrst við erlenda kröfuhafa, sjá til hvernig við stöndum á næsta ári og þá ættum við líka orðið öll þessi erlendu skuldir og gætum ráðstafað þeim eins og við vildum.

Allir sem þess óskuðu ættu að fá frystingu á lánum í næstu 18 mánuði og það gæfi kost á að finna bestur lausni til frambúðar.

Eins bendi ég á að 20% lausn dugar ekki fyrir þá sem tóku gengistryggð lán. Þau lán hafa hækkað um 100%

 


mbl.is Þjóðarsátt í þröngum hópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef áhyggjur af minnisleysi þingmannsins!

Finnst að fólk sé nú full fljótt að gleyma. Eygló segir:

Þetta er flokkurinn sem samdi frá okkur Icesave-skuldbindingarnar. Allt í þeirri von að Evrópusambandið myndi hugsa vel til okkar seinna meir

Maður svona veltir fyrir sér hvort að þessi þingmaður muni ekkert stundinni lengur. Málið var að hér var lokað á Ísland! Það var allur okkar gjaldeyrir erlendis frosinn þar og fékkst ekki afgreiddur. IMF neitaði að semja við okkur sem og allar aðrar þjóðir vegna þess að þær settu skilyrði um að við gengum í að semja um þessi mál m.a. IceSave. Held að ástandið væri hér enn verra ef við værum í þessu frosti enn í dag. Þá væri m.a. ekkert flutt hingað inn og ekkert út því að engin peningur fengist hingað til lands.

ESB bauðst til að leita sátta um leiðir en eins og Eygló ætti að vita þá hefur enginn samningur verð gerður ennþá.

Finnst að Eygló sé nú reglulega farin að blása um mál sem hún annað hvort veit ekkert um eða mál sem snúast í hönunum á henni og beinast að lokum gegn framsókn


mbl.is „Óskaplega aumingjalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá ábending til Svanbergs

Fyrst af öllu þá er þetta ekki glæsileg staða sem þessi maður er í. En maður veltir fyrir sér eftirfarandi: Hefur hann farið í lánastofnunina og kannað eftirfarandi: Það eiga að vera úrræði hjá öllum lánastofnunum sem ganga út á Frystingu lána að öllu...

Nú er mér að verða nóg boðið!

Ég vill fá að sjá lista yfir alla sem sagt er að séu að hugsa um að hætta að borga! Allir fjölmiðlar lepja upp þessa yfirlýsingu athugasemdalaust og tala um að þetta sé rætt af miklum fjölda í samfélaginu. Í hádeginu var rætt við mann sem átti 2 íbúðir...

Þá er ekkert eftir! Förum af stað i aðildarviðræður

Á heimasíðu fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi er þetta sagt í styttra máli Af www.esb.is " Joe Borg svarar spurningu fréttamanns um Ísland og sjávarútvegsstefnu ESB Á blaðamannafundi 22. apríl þar sem grænbók framkvæmdastjórnarinnar um...

Bullið það lekur út úr Evrópu andstæðingum þessa dagana

Nú eru menn að hengja sig í í að við höfum ekkert við ESB að tala vegna þess að stækkunarstjórinn Ole Rehn hafi sagt að við fengjum engar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB. Til að byrja með hvað halda menn eiginlega að fulltrúi aðila sem yrði...

Leyndardómar Landsvirkjunar!

Við lestur þessarar fréttar vakna nú eftirfarandi vangaveltur: Manni finnst þú að Friðrik fari nokkuð frjálslega með eftirfarandi: Hann segir: "Friðrik segir að eigendur Landsvirkjunar hafi verið upplýstir um verð og forsendur." Þarna er hann að gleyma...

Til umhugsunar fyrir ESB andstæðinga!

Þegar þjóði lendir í svona hremmingum eins og við erum í er rétt að horfa til hvað aðrar þjóðir líkar okkur hafa gert. Í þessu sambandi er rétt að líta t.d. til Finna. Hér um daginn var á landinu finnskur sérfærðingur í fjármálaráðuneyti þeirra Ilkka...

Þetta gengur náttúrulega ekki mikið lengur!

Þó að það sé nóg að gera nú hjá Vg og Samfylkingu við að koma á nýjum stjórnarsáttmála þá er þessi frétt skýrt merki um að hér þurfa að verða breytingar fljótt. Að hér skuli líða virkur dagur án þess að nein viðskipti séu á gjaldeyrismarkaði eru...

Og hvað veit þessi maður um það?

Hann heldur því fram í þessari frétt að við séum bara einhverjir aukaaðilar að EES: „ EES-samningurinn er í öllum aðalatriðum samkomulag Noregs og ESB . Það þarf án efa að breyta uppbyggingunni eitthvað en samningurinn sjálfur er ekki í hættu....

Hugsa út fyrir kassann!

Var að fá eftirfarandi hugmynd: Köllum saman alla okkar færustu sérfræðinga. Látum þá finna bestu lausnina fyrir Ísland til að komast út úr þessari kreppu. Þeir væru látnir finna bestu leiðir varðandi: Nýja peningamálastefnu Endurreisn bankana Varðandi...

Þetta er nú furðuleg skýring hjá Ragnheiði

Þó hún sé ný í þessu kjördæmi, þá hlýtur hún að skilja að það að Samfylking fái 3 þingmenn, framsókn 2 og Borgarhreyfingin 1 er til marks um að fylgjendur aðildarviðræðna eru í meirihluta þingmanna í Suðurkjördæmi. Og það í kjördæmi sem byggir mikið á...

Á ekki að spyrja Ragnar Arnalds líka?

Hvað héldu menn að Hjörleifur mundi segja? Hann er á móti ESB en er líka löngu hættur í stjórnmálum og hefur engin áhrif. Meiri andskotans vitleysa í fjölmiðlum að leita uppi einhverja vita valdalausa menn til að reyna að koma á einhverjum deilum. Þarf...

Ísland í ESB

Það liggur við að maður bresti í söng: Ísland í ESB Ísland í ESB Ísland í ESB og krónuna burt! Hægt að endurnýta lagið "Ísland

Eru menn hissa á því að Frjálslindir eru að þurrkast út?

Ekki ég! Eftir að ég las þetta á heimasíðu Magnúsar Þórs: ef landráðaskríll Samfylkingarinnar... ... nær völdum í þessu landi þá er ég farinn í stríð! Held að þarna sé vandi flokksins að kristallast.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband