Leita í fréttum mbl.is

Töluvert kynningar starf eftir hjá framsókn

Ég veit ekki með aðra en ég þekki hvorki haus né sporð af þessu fólki nema maður þekkir til Sigmundar náttúrulega.

Sé að þarna er formaður Hagsmunasamtaka heimilina. Skv. lögum félagsins er það óháð stjórnmálaflokkum. Varla er hægt að segja það þegar að formaður þeirra er í framboði fyrir stjónrmálaflokk.

Held að fólk viti lítið hvað þetta fólk stendur fyrir í pólitík.


mbl.is Sigmundur í Reykjavík norður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg spurning?

Hverskonar vitleysa er það að spyrja kjósendur annarra flokka hvaða formann það villji í Samfylkingunni?  Af hverju spurðu þau þá ekki leiðinni hvort að fólk vildi frekar einhvern annan en Bjarna Ben og svo framvegis?  Held að fólki sem ekki kýs Samfylkinguna komi það bara alls ekki við hvern hún velur sem formann. Af hverju var ekki spurt hvort að fólk vildi heldur Guðjón Arnar eða Guðna sem formenn Frjálslyndra?

Held að fréttin í þessu sé samt að

Ingibjörg Sólrún með yfirburði meðal kjósenda Samfylkingarinnar

Sé eingöngu litið til þeirra sem sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum kemur í ljós að 68,2% sögðust heldur vilja að Ingibjörg Sólrún gegndi formannsembættinu, 12,7% sögðust heldur vilja að Jón Baldvin yrði formaður og 19,1% sögðust vilja hvorugt þeirra.

Þannig að öll sú óánægja sem fjölmiðlar vilja að sé ríkjandi í garð Ingibjargar meðal kjósenda Samfylkingar er eins og margt annað,- Kjaftæði


mbl.is Tæp 46% vilja hvorugan frambjóðandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgir Ármannsson skammastu þín!

Alveg er þetta makalaust með Sjálfstæðisflokkinn. Það er eins og hann hafi ekki verið hér í desember og janúar. Stórhluti þjóðarinnar er búin að fá nóg. Alþingi hefur nú hengslast með Stjórnarskrá okkar í 60 ár án þess að gera á henni nauðsynlegar...

Það er sama hvað gert er alltaf getur fólk kvartað!

Fólk hefur síðustu mánuði verið að kvarta yfir því að stjórnvöld kynni ekki aðgerðir til hjápar fólki í landinu. Nú í dag er verið að afgreiða held ég 100% niðurfellingu á virðisauka vegna byggingarframkvæmda. Sem hvetur fólk til að fara í framkvæmdir...

Jæja þá geta þeir sem hafa galað mest um landráð og stjórnarskrá slakað á.

Finnst að þau sem hafa farið hér hamförum í fjölmiðlum varðandi ráðningu Seðlabankastjóra frá Noregi hafi orðið sér til skammar. Nú er ljóst að nýr seðlabankastjóri verður ráðinn í maí. Þessu fólki hefði verið nær að horfa til þess að hér á landi er ekki...

Skil þetta ekki alveg!

Er þetta þá svona?: Sonur þessarar konu fer að kalla einhvern polla af því að hann nær ekki upp í loft. Sá sem var kallaður "polli" verður reiður og ríkur í þann sem var að uppnefna hann og meiðir. En þá daginn eftir koma einhverjir aðrir 2 og berja þann...

Tek undir með ASÍ

Undir þetta þessi orð Gylfa Arnbjörnssonar. Það sem okkur vantar er framtíðarsýn. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að horfa ekki bara vandamálin sem eru akkúrat núna heldur verðum við að huga að öruggara umhverfi fyrir okkur í framtíðinni. M.a. evru! Ekki...

Alltaf einhver sem þarf að slá um sig með svona lýsingum án þess að kynna sér málið

Spurning hvað þessi maður hafði kynnt sér okkar mál áður en hann fullyrti þetta. Hann gleymir því t.d. að við höfðum ekki banka hér til þrautarvara. Þ.e. að seðlabanki Íslands átti lítinn gjaldeyrisvarasjóð og eins að gengið féll með tilheyrandi hækkun á...

Engin binding án undirbúnings að aðildarviðræðum vð ESB

Það væri frábært ef hér yrði félagaáhyggjustjórn eftir næstu kosningar. En Samfylkingin getur ekki myndað enn eina stjórn eða kosningabandalag án þess að undirbúningur að aðildarviðræðum sé frágengin í því samkomulagi. Það er með öllu óásættanlegt að...

Þessu verður að breyta strax takk fyrir!

Þetta nær ekki nokkurri átt. Það þarf að dreifa þessum skatti á 8 mánuði. Það er ómögulegt fyrir fólk nú á þessum síðustu tímum að þurfa að punga út í ágúst 17.200 kr. Ef þessu yrði dreift frá ágúst fram í apríl þá erum við að tala um 2. þúsund á mánuði....

Jón hefði kannski átt að lesa þessa frétt af visir.is

Eins og ég er sammála Jóni varðandi að framtíð Íslands sé best borgið með aðild að ESB, þá fer þessi grein hans mikið í taugarnar á mér. Hann er gjörsamlega lokaður fyrir þvi að álit manna á okkur íslendingum er gjörsamlega fallið í skítinn og traust hér...

Menn héldu þvi fram að ég væri að rugla þegar ég tjáði mig um hugsanlegar hvalveiðar okkar.

Menn töluðu um að það mundi engin skipta sér að þessu og bentu á að þessar nokkru hrefnur og langreiðar hefðu ekki haft áhrif. En auðvita finna umhverfissamtök inn á veika stöðu okkar til baráttu sem og þann þjösnaskap að bíða ekki eftir niðurstöðu...

Afskirftir skulda fyrirtækja!

Finnst vanta í umræðunna þegar að afskriftir skulda eru skoðaðar t.d. varðandi Árvakur, það er að ef að Árvakur hefði verið látinn fara í gjaldþrot þá hefðu væntanlega um 2 til 300 manns misst vinnuna. Og þá hefði fylgt fjöldi manna á atvinnuleysisskrá...

Vissulega er ástandi grafalvarlegt en passið ykkur fjölmiðlafólk.

"Gríðarleg fjölgun umsókna eftir aðstoð" og "í febrúar fjölgaði umsóknum um 300%" Þegar ég las byrjunina á þessari frétt sá ég fyrir mér mörg þúsund umsóknir eftir aðstoð. EN þegar maður les fréttina þá er aukningin milli ár frá 139 upp í 410. Þetta er...

Alþingi! Brettið upp ermarnar og takið til óspilltra mála!

Kæru alþingismenn! Ef þið hafið ekki tekið eftir þvi þá bíður þjóðin eftir að þið- Já þið ekki ríkisstjórn takið til óspilltra mála nú þegar. Það er búið að leggja fram held ég 8 eða 9 frumvörp sem eiga að taka á erfiðleikum sem að okkur steðja. Nú er...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband