Leita í fréttum mbl.is

Jæja nú þarf bara að finna þá sem brutu hurðir og glugga á Hverfisgötu?

Ekki er ég sáttur við að þurfa að greiða þessar skemmdir af mínum sköttum. Minni á að þjóðin á þetta hús og þarf að greiða allar skemmdir á því. Hélt að fólk væri að mótmæla því að við þyrftum að borga fyrir aðra óráðsíumenn 

Finnst út í hött hjá fólki að kvarta yfir framgöngu lögreglu. Þegar að fólk hefur brotið hurð og ryðst inn í Lögreglustöð er ósköp eðlilegt að lögregla bregðist við.

Og það að foreldrar séu þar með 16 ára unglinga í fremstu röð er náttúrulega út í hött.

Síðan þau rök að allt hefði verið í þessu fína ef að lögreglan hefði komið út og rætt við fólkið. Kjaftæði. Þeir lögreglumenn hefðu verið í stórhættu. Fólk sem brýtur hurðir og glugga hefði ekki verið treystandi til að henda ekki gjóti eða öðru í lögregluna. Fólk verður að athuga að hér er réttarríki og ef fólki finnst á sér brotið þá kærir það. Barn sem er komið inn í anddyr lögreglustöðvar með óðum skríl það á það á hættu að verða fyrir piparúða. Og má kannski þakka fyrir að hafa ekki orðið fyrir reiðum skrílnum og og eða grjót, eða höggum.

Svona mótmæli eru fólkinu sem tók þátt í því til skammar.


mbl.is Var ekki látinn vita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningar til þeirra sem vilja kosningar strax!

Ég er einn af þeim sem er óánægður með stjórn mála nú að undanförnu. Ég er ekki sáttur við hversu mjög þjóðin og jafnvel Alþingi hafa verið höfð lítið með í ráðum. Ég er á því að fljótlega eiga fara fram kosningar t.d. næsta vetur. En ég hef verið að velta fyrir mér hvað fólk sem er að boða stjórnina burt strax er að fara.

  • Hvað vill fólk fá í staðinn?
  • Nú þegar er einn nýr flokkur sem er að komast á koppinn. Og fyrir honum stendur Sturla Jónsson vörubílstjóri með fleirum. Eru það mennirnir sem fólk vill til að bjarga landinu út úr kreppunni
  • Er það framsókn sem það vill að komi hér að málum? En var framsókn ekki við völd hér frá 1994 þangað til í fyrra og kom að sölu banka og stjórn mála hér sem hefur haft þessar afleiðingar.
  • Er fólk að láta sig dreyma að prófkjör og val á fólki á lista flokka taki bara smá stund? Og verða það ekki flestir þeir sem voru í efstu sætum síðast? Þarf ekki að gefa nýju fólki tíma til að kynna sig og sinn málstað og vinna sér fylgi.
  • Hvaða bull er þetta í fólki með IMF lánið. Það er talað eins og það lán eigi að borga næstu áratugi. Veit fólk ekki að þetta fé á að reyna að nýta sem minnst og á að vera að fullu greitt 2015 til baka.?
  • Hvað á fólk við þegar það segir það undirlægjuhátt að semja um IceSave? Hverskonar hugsunarháttur er það að við ein þjóða ætlum að túlka EES reglur þannig að við þurfum ekkert að borga þeim sem lögðu fé inn í Íslenska banka. Hvað hefði þetta fólk sagt ef að ríkisstjórn hefði neitað líka að borga íslendingum sínar innistæður í bönkunum?
  • Finnst að fólk ætti áður en það boðar byltingu og moka fólki út að koma með raunhæfar tillögur um hvað það vill að taki þegar að búið er að bola stjórni frá. Það þarf nefnilega að stjórna landinu á meðan og tillögur um breytingar þurfa því að vera fullmótaðar.
  • Hér eru menn með hugmyndir um: Ekkert lán frá IMF. Ætla menn þá að taka á þessu eins og Finnar sem spöruðu með því að loka skólum og fólk gat ekki keypt mat. 20% atvinnuleysi á meðan við erum að spara fyrir skuldum?
  • Hér eru aðrir sem tala um að taka upp dollara! Hvernig ætla menn þá að greiða 400 til 500 milljarða sem liggja hér í krónubréfum. Kannski að taka dollarann upp á genginu 150 krónur. Sem mundi þýða alveg gríðarlega kaupmáttarrýrnun.
  • Hér eru aðrir sem tala um að taka upp norskar krónur. En norski seðlabankinn þvertekur fyrir það. Enda gæti þetta þýtt fall norskukrónunnar þar sem við erum svo skuldug.
  • Og svona væri hægt að halda áfram.

Væri ekki nær að fólk færi að koma með lausnir frekar að því hvað við eigum að gera í framtíðinni? Björk og Háskólinn í Reykjavík eru byrjuð og fullt af hugmyndum frá aðilum hér og erlendis.

Það þarf að taka til hér. Hér þarf að ráða þjónustu okkar m.a. Seðlabanka mann sem nýtur virðingar fyrir þekkingu sína á efnahagsmálum. Síðan þarf að styðja við allar hugmyndir sem skapa störf til lengdar. Og eins þarf að vinna að áætlun sem gerir Ísland að landi sem fólk vill og nýtur þess að búa í. Og getur óhrætt gert hér áætlanir án þess að allt hrynji í hausinn á þeim.

Minn draumur er að við stefnum hratt í átt að inngöngu í ESB og tökum upp evru.


mbl.is Íslendingar láti ekki kúga sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á Ingibjörg við?

Hvað er eiginlega að gerast í þessum flokki: Hvernig dettur Ingibjörgu að segja þetta: Segir hún að ekki verði efnt til kosninga í miðjum björgunarleiðangri. Gerir hún sé ekki grein fyrir að í öllum ríkjum öðrum verður fólk að sæta ábyrgð. Hún er að...

Ert þú að gleyma nokkrum atriðum Geir?

Er Geir eitthvað hissa á því að ráðherrar og þingmenn Samfylkingar séu að biðja um kosningar? Hefur Geir ekki heyrt að fólkið í landinu er orðið brjálað af því að: Það er engin látin sæta ábyrgð! Það eru t.d. sama fólkið áfram í bönkunum og það sakað um...

Þetta er nú vafasamt.

Manni finnst að alhliðaniðurfærsla á skuldum fyrirtækja sé gróf mismunun á skuldurum nema að tilkomi allsherjar niðurfærsla á skuldum heimila líka. Og ósk Viðskiptaráðs um breytingar á gjaldþrotalögum sem fæli í sér að dregið yrði úr bóta- og refsiábyrgð...

Og hér er ályktun frá Samfylkingunni í Kópavogi

Ég verð að segja að ég tek heilshugar undir með Samfylkingarfélögunum í Garðabæ og Kópavogi. En svona er ályktunin frá Samfylkingarfélaginu í Kópavogi 20.11.2008 | 05:36 Ályktun frá Stjórn Samfylkingarfélagsins í Kópavogi Stjórn Samfylkingarinnar í...

Ekkert betra eða verra en maður reiknaði með

Hér má sjá fréttatilkynningu IMF í heild. Aðalatriðin eins og okkur var sagt að. Koma fótum undir krónuna og skapa traust á peningamálum okkar í viðskiptaheiminum. Endurreisa bankakerfið. Og verja og koma í verð eignum gömlu bankana. Og síðan að vinna að...

Ingibjörg gættu að þér!

Held að ef á allt er litið þá sé stjórnkænska eða hvað það nú heitir aðferðir sem Ingibjörg og Samfylkingin eru að beita núna ekki að vinna með flokknum eða málstað hans. Þjóðin er hér á suðupunkti og all flest sem flokkurinn vill gera að segja er hann...

Maður er nú að fá gjörsamlega nóg af þessum nefndum og vinnuhópum

Það er alveg makalaust að nú þegar áríðandi er koma á friði milli stjórnarflokkana og fara að gera upp mál hér þá er öllu frestað eða komið í einhverjar nefndir. Hvað getur verið svona flókið við að færa verkefni FME undir Seðlabanka. FME var jú...

Það er eitthvað bölvað plott í gangi!!

Ég hef nú varið Samfylkinguna hér á blogginu hægri og vinstri. En nú síðustu daga hefur mér bara alls ekki líkað við þessi vinnubrögð sem hún ástundar. Það er ljóst miðað við það sem Össur sagði eftir þennan fund um að hann væri mjög ósáttur við stjórn...

Hefur Steingrímur spáð í hvða IceSave peningarnir fóru í?

Ef við skoðum það að bankarnir hafa nú í á annað ár átt erfitt með að fá lán. Og að Landbanki kaus að hafa IceSave skráð hér, þá hafa peningarnir streymt frá Breskum innistæðueigendum hingað og m.a. fjármagnað byggingar hér, yfirdrætti og kreditlán....

Sjálfsagt að biðja um þetta Steingrímur - En hafðir þú einhverjar aðrar lausnir?

Ég er orðinn þreyttur á þessu ástandi. Hér er fólk í umvörpum að huga að því að flytja til annarra landa. Við erum illa upplýst og ekkert gert til að að hafa samráð um lausnir. Hér koma svo menn og deila á þær lausnir sem eru komnar en hafa ekkert annað...

Loksins

En samt er furðulegt að ekki sé búið að áætla eignir og skuldir betur. En vona að okkur takist að varðveita eigninr Landsbankans gamla og þær dugi sem mest fyrir þessu. Nú held ég að leiðin geti bara legið upp á við úr þessu. En ég ákalla ríkisstjórnina...

Ætla vona að rannsóknir séu nú þegar hafnar á bankahruni- Hrikalegar sögur farnar af stað!

Við ferð um netið í dag hef ég rekist á hrikalegar greinar og fréttir um Ísland og bankakerfið. Á www.this.is/nei má m.a. lesa þetta: Innan alþjóðastjórnsýslunnar ganga skýrslur um að æðstu embættismenn og eigendur banka hittist í óformlegum kaffiboðum,...

Auðvita eigum við að leyfa erlendurm kröfuhöfum að umbreyta skuldum í hlutafé

Við erum að tala um sterkustu banka í heimi m.a. sem hafa lánað bönkunum Svo við eigum auðvita að gefa þeim tækifæri á að umbreyta skuldum bankan yfir í hlutafé. Þar með eru bankarnir komnir með sterka bakhjarla. Við komin með erlenda banka í lykilstöðu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband