Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarleiðin ófær?

Hér setur Gunnar Tómasson fram athugasemdir sínar varðandi leið Framsóknar að ná í fullt af peningum til kröfuhafa og deila þeim á fólk sem keypti íbúðir fyrir 2008. Hann sýnir fram á að við eigum nú ekki á vísan að róa og engir ókeypis peningar þar. Helst að um nærri beina peningaprentun yrði að ræða:

En peningahagfræði er flókin og erfitt að rökstyðja fræðilega afstöðu í málum sem þessu þannig að gagn sé að fyrir allan almenning.

Mér datt því í hug að setja upp einfalt dæmi þar sem kjarni málsins ætti að vera flestum skiljanlegur.

1. Íslenzk stjórnvöld boða lækkun verðtryggðra húsnæðisskulda um 400 milljarða.

2. Erlendir kröfuhafar eiga eftirfarandi eignir:

a. Tvo viðskiptabanka, 200 milljarðar.

b. Kröfur á Íbúðalánasjóð, 100 milljarðar.

c. Ríkisvíxla, 100 milljarðar.

d. Bankainnstæður, 100 milljarðar.

e. Gjaldeyrir utan Íslands 2.000 milljarðar.

3. Yfirtaka stjórnvalda á lið a. án endurgjalds eykur ríkiseignir í mynd hlutafélaga um 200 milljarða.

4. Yfirtaka stjórnvalda á liðum b. og c. og d. bætir hreina skuldastöðu ríkissjóðs um samtals 300 milljarða.

5. Tilraun stjórnvalda til yfirtöku á e. býður heim langvarandi dómsmálum innanlands og utan.

6. Yfirtaka b. og c. skilar engu reiðufé í ríkiskassann.

7. Yfirtaka d. skilar 100 milljörðum í ríkiskassann en hefur engin áhrif á peningamagn í umferð.

8. Notkun andvirðis d. til skuldaleiðréttingar eykur peningamagn í umferð um 100 milljarða.

9. Notkun andvirðis d. er því jafngildi peningaprentunar af hálfu Seðlabanka Íslands.

10. Um áhrif sölu tveggja banka á fjárhagslegan og greiðslujafnaðar stöðugleika fer eftir atvikum.

11. Innlendar eignir kröfuhafa upp á 500 milljarða (a.-d.) skapa 100 milljarða „svigrúm“.

12. „Svigrúm“ sem Seðlabanki Íslands getur skapað með pennastriki/peningaprentun.

Það er ábyrgðarhlutur að (a) vinna kosningar með endemis rugli, og (b) hafa skuldsett heimili landsins að ginningarfíflum í kjölfarið. Sjá hér

 


Er Sigurðu Ingi uppvís að lygum?

Úr frétt á ruv.is um þessar alvarlegu athugasemdir sem 2 sveitarfélög áttu að hafa komið með:

Í Morgunútvarpinu á Rás tvö kom fram að Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindarráðherra, hafi frestað friðlýsingu Þjórsárvera. Hann sagði alvarlegar athugasemdir hafa komið frá tveimur sveitarfélögum ásamt Landsvirkjun. Sveitarfélögin eru Rangárþing Ytra og Skagafjörður.

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti Ragnárþings Ytra segist hins vegar ekki hafa gert athugasemdir við friðlýsinguna. „Nei, ég get ekki útskýrt það, ekki nema ráðherrann eigi við örlitlar ábendingar sem sveitarstjóri okkar sendi til hans,“ sagði Guðmundur.

Þær ábendingar snerust um að sveitarstjórnin tæki enga afstöðu til Norðlingaölduveitu en friðlýsing hefði þýtt að þær fyrirætlanir væru úr sögunni. Guðmundi Inga þykir ekki gott að talað sé um þessa litlu ábendingu sem athugasemd við friðlýsinguna, og segir að það byggist líklega á því að hún hafi misskilist.

Í fundargerð sveitarstjórnar Skagafjarðar frá því í maí kemur fram að stækkun Þjórsárvera og friðlýsingarskilmálar hafi verið samþykktir með níu atkvæðum sveitarstjórnarmeðlima. Bjarni Jónsson oddviti segir að einu ábendingarnar sem sveitarstjórn Skagafjarðar hafi sent ráðuneytinu lúti að ferlinu sjálfu en breyti ekki afstöðu sveitarfélagsins til friðlýsingar svæðisins. 


Nú er að verða liðnir 2 mánuðir frá kosningum og hvað hefur breyst?

Svona miðað við væntingar og loforð hefði maður haldið að nú væru hafnar hér á landi stórkostlegar breytingar. En nei ósköp lítið hefur enn gerst. Sigmundur Davíð eyddi jú drjúgum tíma til að mynda nýja stórn. Niðurstaðan var jú eins og allir reikuðu með...

Gætu menn verið meiri klaufar?

Að hætta við undirskrift samninga um friðlandið í Þjórsárverum daginn sem átti að undirskrifa þá er náttúrulega bara kaufagangur í hæstu hæðum. Og að tala um Landsvirkjun sem eitthvað batterí sem ríkið hafi ekkert með að gera er náttúrulega furðulegt....

Nokkur ummæli núverandi stjórnarþingmanna og ráðherra um undirskriftasafnanir.

Sá þetta á facebook áðan. Verður gaman að sjá hvort að þessir aðilar hér fyrir neðan hafa breytt um skoðun á t.d. að svona þátttaka eins og er þeirri sem er í gangi á veidigjald.is sýni gjá milli Stjónvalda og fólksins í landinu. "Það er verið að safna...

Ekki er þetta Viðskiptablaðinu til framdráttar

´Svona vinna menn með fjölmiðla. Ekki til framdráttar hægri fjölmiðli eins og Viðskiptablaðið er að vera að mylja undir Sigmund Davíð með því að sverta Jóhönnu með einhverri tilbúinni sögu. „Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra...

Mesta kauplækkun á Íslandi af öllum Evrópulöndum.

Út frétt á dv.is Minna hefur hins vegar verið gert í því að tala um efnahagsástandið hjá löndunum í norðanverðri Evrópu. Má þar nefna lönd eins og Austurríki, Danmörku, Bretland, Finnland, Holland, Lúxemborg, Þýskaland og Svíþjóð. Þó má segja að þetta...

Er Ísland meira fullvalda en t.d. Þýskaland?

Nú eru að verða liðnir 2 mánuðir frá kosningum er það ekki um 4% af kjörtímabilinu og miðað við hvað lá á að koma öllum breytingum á fyrir kosningar þá finnst mér þær allar í skötulíki og helst þær sem fólk vill ekki sjá. Helst að maður lesi um að allir...

Nokkuð ljóst að við verðum illa samkeppnisfær ef að fríverslun ESB og USA kemst á

Ég hef marg oft bent á að við inngöngu í ESB þá falla niður tolla á nær öll vöru- og þjónustuviðskiptum milli landa inna ESB. Við gerð fríverslunarsamninga gerist það líka á þeim liðum sem samið er um. Ef að þessi samningur kemst á þá lendum við í...

Enn á ný um meintar auknar tekjur með lækkun veiðileyfagjaldsins, aukna fjárfestingu og aukin hagvöxt.

Menn keppast við að segja okkur að hagvöxtur og tekjur ríkisins eigi eftir að hækka við lækkun veiðigjalda. En lesið þetta Fjárfestingar Sú fullyrðing að veiðigjöld muni draga úr æskilegri fjárfestingu er vægast sagt undarleg frá hagfræðlegu og...

Ég hef verið kallaður landráðamaður og ég veit ekki hvað! En ........

Það væri gaman að vita hve margir af þeim sem boða hér "Íslandi allt" og hatast við okkur sem viljum aukna samvinnu við aðrar þjóðir, hafi flaggað í dag? Það gerði ég

Jón Sigurðsson forseti með skilaboð til okkar um ESB?

Úr grein Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu í dag:

Nokkrar spurningar varðandi aukna fjárfestingu í sjávarútvegi:

1. Nú er held ég allur kvóti veiddur. Og allur fiskur sem er veiddur er seldur erlendis. Hvernig mun aukin fjárfesting skila okkur meiri gjaldeyrir? 2. Fjárfesting í nýjum skipum. Hvernig kemur hún til með að skila okkur auknum gjaldeyrir næstu árin? Nú...

Stjórnin sem allir misskilja og snúa út úr fyrir.

Nokkrar tilvitnanir sem Sigmundur Davíð segir að við séum bara að misskilja: Fyrir kosningar sagði Sigmundur á facebook Og í dag sagði hann um viðtal við Össur: Svona talar hann um andstæðinga. Svona mæltist Bjarna Ben í þjóðmenningarhúsinu sem svo allir...

Er dálítið hugsi yfir þeim sem skrifa athugsemdir við blogg svona almennt hér á blog.is

Nú hef ég bloggað í nokkuð langan tíma. Það er skýrt tekið fram á forsíðunni hér hjá mér að þetta eru mín skrif og mínar skoðanir. En hér þurfa alltaf reglulega að birtast í athugasemdum menn sem eru svo miklir besservissar að þeir telja sig þess umkomna...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband