Leita í fréttum mbl.is

Af hverju er ég svo ákafur að við náum samningum um aðild að ESB!

  • Fyrir það fyrst þá horfði ég í það í löngu fyrir hrun að við höfum þrátt fyrir um 80 ára tilraunir ekki náð neinum tökum á krónunni eða á nokkurn hátt stöðugleika hér nema örstutt tímabil sem síðan hafa reynst vera innistæðulaus.
  • Við erum bundin af því að þurfa alltaf að vera hér með nokkur hundruð miljarða í gjaldeyrir í sjóðum til að geta keypt nauðsynjar frá útlöndum og því líklegt síðan í hruni að við verðum þá um áraraðir í gjaldeyrishöftum því aðrar þjóðir skipta ekki við okkur í krónum.
  • Allar aðrar þjóðir í næsta nágreni okkar hafa brugðist við kreppu með því að ganga í ESB og hefur vegnað vel. Sbr. Svíþjóð og Finnland. Og áður Danmörk.
  • Varðandi framtíðar hagvöxt tel ég okkur nauðsyn að geta gert meiri verðmæti úr auðlindum okkar. En í dag þá verðum við að flytja allt hráefni út óunnið eða lítið unnið því annars lendir það í fullum tollum og er ekki samkeppnisfært á mörkuðum. Sbr. fisk, landbúnaðarvöru og fleira.
  • Eins og krónan er í dag og höftin þá er líklegt að sífellt verði auknar líkur á að fyrirtæki hér flyti höfuðstöðvarnar sínar erlendis þar sem þau endast ekki lengi hér innan hafta.
  • Síðan held ég að við hefðum ekkert nema hag af því að auka samstarf okkar við Evrópu.

Það er búið að gera ESB að einhverri "Grýlu" hér á landi. En ég furða mig á því að ef þetta er rétt að engin þjóð er þá á leiðinni þaðan út. Jú það er röflað um það í nokkrum löndum en þegar viðkomandi flokkar komast til valda þá kemur í ljós að allir telja hag ríkjana betur borgið innan ESB.  

Engin að segja að ESB sé lausn á öllu. Enda sjáum við það í Grikklandi og fleiri löndum. En úps ESB er ekki samveldi. Þ.e. að hver þjóð verður að huga að sínum málum. Og þau eins og við geta komið sér í efnahagsklúður. 

En sem komið er hefur engin hér komið með framtíðarsýn fyrir Ísland sem er betri en ég sé fyrir mér með inngöngu í ESB. 

Hér hafa verið hrun:

1968 til 1971 sem við brugðumst við með að ganga í EFTA og þá loks fórum við að fikra okkur upp frá því að vera með fátækustu þjóðum í Evrópu.

Um 1985 man ég að fólk var að sligast undan verðtryggðum lánum og hér var óðaverðbólga næstu árin. 

1988 til 1992 sem við brugðumst við með að ganga í EES. Eftir það tókum við stökk upp alla lífkjaralista

1999 eða 2000 varð hér hrun sem var tæklað með frjálshyggju og gríðarlegum lántökum og stórframkvæmdum sem héldu upp fölskum lífskjörum. 

2008 varð hér hrun sem sendur enn yfir og eins og horfir í dag virðast stjórnvöld ætla að reyna að varpa skuldum vegna þess yfir á börn og barnabörn okkar. 

Ég leyfi mér að kenna örhagkerfi okkar um þessar stöðugu sveiflur sé vegna krónunnar. Og okkur hefur marg verið sagt að örhagkerfi verða alltaf hávaxtasvæði.


Bara svona að velta fyrir mér höfundi þessarar fréttar.

Er það virkilega í lagi að blað sem vill láta taka sig alvarlega láti fréttamann sem er fyrrum stjórnarmaður í Heimssýn skirfa næstum allar fréttir og fréttaskýringar varðandi ESB og aðildarviðræður. Bara svona að velta þessu fyrir mér. Og eins þá er ég að velta fyrir mér varðandi yfirstjórn fiskveiða. Ef þetta er eins og þarna stendur að viðkomandi ríki sem hafa ein nýtingu á fiskistofnum ráði veiðinni og kvótanum. Hvaða máli skiptir það þá okkur að þurfa að bera það undir ESB. Nú eru engir aðrir sem fá að veiða þennan fisk. Útgerðamenn óánægðir á hverju ári með úthlutun. Og gera svo allt sitt til að við fáum ekki of mikð af arðinum af þessum veiðum sínum.
mbl.is Valdið hjá Evrópusambandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er Gunnar Bragi orðinn ábyrgur fyrir ýmsu sem gæti gerst næstu árin:

Smá hugleiðing í framhaldi af orðum og gerðum Gunnars Braga í Brussel í dag. Númer 1. Nú er Gunnar Bragi orðinn persónulega ábyrgur fyrir næsta hruni krónunnar! Og þar með vöxtum og skuldum heimilanna til lengri tíma. Númer 2. Nú er Gunnar Bragi orðinn...

Þeir geta ekki látið eins og þeir hafi ekki vitað að staða ríkissjóðs var viðkvæm!

Nú þegar að Bjarni litli og Simmi fluttu okkur „ömurlega stöðu ríkisins" í Þjóðmenningarhúsinu áðan fannst mér þeir gleyma einni lausn. Af hverju ekki bara að stofna sjóð kalla hann kannski leiðréttingarsjóð. Setja í hann kannski 300 milljarða eða...

Varðandi þessar njósnir!

Ég er með teljara á þessari bloggsíðu minni. Gerði mér það að leik einhverntíma, finn það ekki núna að skrifa nafn eins og Al - Qaeda Afganistan og Osama bin Laden minnir mig og viti menn að á teljaranum sá ég 2x fljótlega á eftir að á síðuna höfðu...

Icesave ekki næstum lokið

Athyglisverður pistill Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu í dag. Þar segir hann m.a. Fyrst er að líta til þess að í kröfuhafahópi gamla bankans sitja á fleti fyrir ríkisstjórnir Bretlands og Hollands vegna Icesave-skuldarinnar. Með öðrum orðum: Það mál...

Nokkur stórfurðuleg atriði úr fréttum í byrjun nýrrar stjónrar Framsóknar og Sjálfstæðismanna

Sigurður Ingi í Bændablaðinu „ Ertu þá að segja að í framtíðinni verði umhverfisráðuneytið óþarft, vegna þess að málaflokkurinn hafi verið tekinn inn í öll önnur ráðuneyti? Sigurður Ingi: „ Já, það má í raun segja að það gæti verið ein...

Framkvæmdastjórn ESB tekur ekki undir orð forsetans: Íslandi standa allar dyr opnar

Hvernig væri að Bjarni Ben, Ólafur Ragnar og Sigmundur Davíð mundu biðjast afsökunar að hafa reynt að ljúga að þjóðinni í fréttum í kvöld og á Alþingi í gær. Auðvita vita ESB menn að viðræðurnar eru á leið í frost eða slit en það er óþarfi fyrir þessa...

Fyrsta skipti sem forseti tekur afstöðu gegn hluta kjósenda!

Þá er það klárt að Ólafur Ragnar er sannarlega ekki forseti minn. Það getur vel verið rétt hjá honum varðandi vilja ESB en það er ekki hægt að treysta hans mati eingöngu þar sem hann hefur alltaf verið á móti ESB. Og hvað átti Ólafur við að við hefðum...

Maður verður líka stundum að hrósa!

Ég hrósa stjórnvöldum ef þau ætla að standa við það sem stendur í þingsköpum og gefa stjórnarandstöðunni kost á að stýra einhverjum af nefndum þingsins. Þetta er til fyrirmyndar og lofar vonandi góðu. Smá viðbót. Björn Valur minnir á að þetta hafi verið...

Nú er eiginlega nauðsynlegt að upplýst sé hverjir þetta voru?

Með hverjum var Sigmundur Davíð að funda í tómu atvinnuhúsnæði og kjallaraíbúðum? Af hverju þurftu þessir fundir að fara svona leynt? Af hverju var hann að kvarta yfir leynd hjá stjórnvöldum ef hann var sjálfum í reykfylltum bakherbergjum að plotta? Og...

Þessi frétt hefði ekki birtst á mbl.is fyrir kosningar!

Það eru nokkur atrið sem menn voru ekki að tala mikið um fyrir kosningar þegar að lækkun lána voru aðalmálið og áttu m.a. að koma markaðnum á fullt. En sorry ef fólk hefur ekki tekjur til þess þá fær það ekki óverðtryggð lán nema að það geti sýnt fram á...

Ætli hann vilji þá að stjórnarandstaðan taki hann og félaga hans til fyrirmyndar?

Væri ekki við hæfi að núverandi stjórnaranstaða mundi grandskoða framkomu Einas K Guðfinnsonar og félaga hans síðasta kjörtímabil og hagaði sér skv. því út þetta kjörtímabil! Ef að hann ætlast til einhverrar ákveðinar framkomu þá hlýtur hann að hafa...

Allur þessi tími og plagg sem samþykkt er af hunduð manna og samt stendur þar:

Sem sagt að öll flokksráð Framsóknar og Sjálfstæðisflokks samþykktu stjórnarsáttmála sem segir: leggja áherslu á aðgerðir gegn fjármálalæsi í grunn- og framhaldskólum! Hefði ekki verið betra fyrir þá að borða aðeins minna af þjóðrembingi og vinna vinnuna...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband