Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju félagshyggjufólk og vinstra fólk á Íslandi!


Nú hefur okkur tekist að koma helmingaskiptaflokkunum til valda á ný. Og nærri því án þess að þeir þyrftu að gera neitt.  Þetta er árangur 4 ára þar sem að hver höndin hefur verið upp á móti annarri í þessum hóp.
  • Þingmenn hafa jú farið þar fremstir í hópi. Hlaupið undan merkjum vegna t.d. ESB umsóknar sem þó alltaf stóð til að þjóðinn tæki ákvörðun um.  Eins þá hafa þeir beilað undan erfiðum verkum á ákvörðunum og frekar hlaupið úr flokkunum.
  • Stuðningsmenn Vg og Samfylkingar hafa eins verið eins og ég veit ekki hvað. Áhrifaríkir álitsgjafar, bloggarar og aðrir hafa verið hnýtandi í ríkisstjórnina vegna einhverja atriða sem bæði ríkisstjónr réð ekki við og eins vegan mála sem skiptu ekki svo miklu máli.
  • Svo þessi árátta félagshyggju manna að stofna heilu framboðin um sín séráhugamál sem áttu ekki hljómgrun eða aðrir flokkar voru þegar að bjóða upp á.  Þetta skilaði hvað um 15% af dauðum atkvæðum sem nýttust Framsókn og Sjálfstæðismönnum.
  • Nær allir utanaðkomandi sem telja að miðað við aðstæður hafi stjónvöld hér staðið sig mjög vel síðustu 4 ár. En nú þegar að loks sá til sólar þá tóku vinstri- og félagshyggjufólk hana af lífi og færðu Framsóknarmönnum og Sjálfstæðismönnum árangurinn til að leika sér með. 
  • Menn hafa ekki getað leyft stjórninni að njóta neins af þeim afrekum sem hún vann. Menn hirtu ekki einu sinni um að verja góðuverkin, heldur horfðu á stjórnvöld rægð, niðurlægð og rangfærð án þess að lifta hendi til að verja hana. Ekki einu sinni Alþingismenn flokkana sumir skiptu sér almennilega af því. 
  • Ætla ekki að minnast á ríkisstjónina sjálfa og hvernig hún hefur á köflum ekki borið við að verja sig. 
  • Svo þessi smákóngaháttur og sundrung og "vita betur" tilhneigin skapaði um 8 til 9 flokka á þessum væng sem sköpuðu um 15% af dauðum atkvæðum. 
Svo nú fær Íslenska þjóðin það sem hún á skilið og sérstaklega félagshyggjufólk. Nú geta kannski menn andskotast skoða vinnubrögð sín næstu árin til að þetta komi aldrei aftur fyrir. Það þarf að sameigna flokksbrotin og ná saman um stærstu málin og stefnu og svo afgreiða hvernig þau mál sem menn eru ósammála um eru afgreidd. Svo verður þessi foringjadýrkun að hverfa. Það eru flokksmenn sem eiga að ráða en ekki fá einhverja tilbúna pakka frá forystunni. Stefnan á að ráðast af félögum í flokknum og engar ákvarðanir á að taka stórar án þess að flokksmenn séu spurðir. 

Er svona að velta fyrir mér í ljósi þessara kosninga og væntanlega nýrri B-D stjórn:

Er svona að velta fyrir mér hvað fólk kemur til með að hafa mikið langlundageð gagnvart nýju stjónrvöldum.
Báðir stóru flokkarnir hafa boðað:
- Lækkun lána fólks
- Lækkun skatta
- Afnám verðtrygginar
- Lækkun óverðtryggðra vaxta
- Hækkun bóta/ afnám skerðinga.
- Fullt af hálaunastörfum
- Aðstoð við þá sem eru að leigja
- Fullt af framkvæmdum
- Hækkun launa á sjúkarhúsum og þá væntanlega hjá öllum opinberum starfsmönnum.
- Ný tæki á sjúkarhúsin
- Aukinni þjónustu á sjúkrahúsum út um landið.
- Háhraðatengingu um allt land
- Af nám gjaldeyrishafta
Reyndar er ég að velta fyrir mér ef að það hefjast hér stórframkvæmdir og hér verða til hálaunastörf, þurfum við þá ekki að hefja hingað aftur innflutning á starfsmönnum frá Evrópu. Því að fólk á atvinnuleysiskrá eru ekki svo margir og þeir neita að vinna á þeim lágmarkslaunum sem eru í boði t.d. hjá ríki og borg í umönnunar stéttum.
En samt sem áður nú er bara að byrja strax að heimta að þessi loforð öll séu uppfyllt og það sem fyrst. Held að flokkarnir fái örugglega ekki meira en ár til að klára þetta. Því a.m.k. annar formaðurinn sagði að þetta væri ekkert mál.

mbl.is Geta myndað stjórn með 51% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingja hjá Framsókn og Sjálfstæðismönnum.

Sýnist að þarna sé sönn ást á milli manna. Og grunar að milli þeirra sé fyrir löngu búið að skipa stjórn. Enda þarf að sækja ýmsa banka og fyrirtæki sem félagar þeirra og flokkseigendur hafa óvart misst úr höndunum síðustu...

Spá um þingmenn eftir flokkum

Hér er spáinn fyrir fyrir kvöldið. Byggð á minni yfirgripsmiklu þekkingu. Nú geta menn bara slökkt á sjónvarpinu og farið að sofa. Engin ástæða til að bíða eftir raunverulegum tölum.

Halló þjóð ætlið þið að kjósa þetta yfir okkur?

Í júlílok á síðsta ári sagði Bjarni Ben: Að það væri veruleikafyrring hjá Guðbjarti Velferðarráðherra að neita að skera meira niður í velferðaþjónustu. Hvernig heldur fólk að Sjálfstæðismenn ætli að sækja þá peninga sem tapast við alla skattafslættina...

Erlendir fjölmiðlar um kosningarnar!

Tekð af ruv.is Erlendir fjölmiðlar fylgjast grannt með Alþingiskosningunum á Íslandi. Þar velta menn vöngum yfir hugsanlegum ástæðum þess af hverju sú ríkisstjórn, sem komst til valda eftir hrun, gjaldi mögulega afhroð þegar úrslit liggja fyrir í...

Rétt að minna fólk á þetta. Setið þetta í samband við það sem Framsókn og Sjálfstæðismenn boða.

Þetta er mjög athyglisvert videó. Setið þetta í samband við allar sér leiðirnar hans Sigmundar og tillögur Sjálfstæðismanna. Þ.e. að við séu með hefðum getað notað sér Íslenskar leiðir. Útlendingar sem skilja það ekki eru bara "Asnar" t.d. eins og þegar...

Já hvaða breytingar vill Bjarni og Sigmundur Davíð!

Í fréttinni segir: En aðalatriðið er að við náum nægjanlegum styrk í þessum kosningum til þess að mynda hér traustan meirihluta um ríkisstjórnarstefnu sem tryggir breytingar,“ segir hann. Ætli þetta snúist ekki um að finna einhver hundurð þúsunda...

Um málflutning Sigmundar Davíðs - Ekki er hann alvega sannleikanum samkvæmur

Hér svarar Gunnar Tómsson málflutingi Sigmundar Davíðs: Leiðrétting heimilisskulda Í umræðuþætti á Stöð2 í gær lét Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að því liggja að gagnrýni mín á tillögu XB um leiðréttingu á heimilisskuldum sem “endemis rugl”...

Til athugunar fyrir þá sem hafa fallir fyrir tillögum Framsóknar um lækkun skulda!

Ég verð var við að margir kjósendur telja að með sýknudómi ESA í Icesave málinu hafi hundruð milljarða skuldir horfið út af borðum almennings samkvæmt formúlunni: „Við greiðum ekki skuldir óreiðumanna“. Svo einfalt er þetta ekki. 1:...

Svona í ljósi þessarar myndar - Hvaða heimilum á að hjálpa?

Skv. þessari mynd er meðalheimili á Íslandi með veðskuldir upp á um helming af fasteignarmati. Eins og Sigmundur Davíð talar gæti maður haldið að öll heimili séu að kafna í skuldum en svo er ekki. Á þá að lækka skuldir hjá öllum heimilum, bara þeim sem...

Jóhönnu þakkað fyrir gott starf með rósum!

Fyrst að Mogginn ætlar ekki að flýta sér að segja frá því þá er rétt að benda á að klukkan 16:00 í dag mættu yfir þúsund manns við Stjórnaráðið og færðu Jóhönnu eina rós hver fyrir vel unnin störf. Þessi hópur spratt upp á facebook og sagði svo á síðu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband