Leita í fréttum mbl.is

Var verið að tala um sóðalega kosningabaráttu hjá Sjálfsstæðisflokknum?

Lesið þá þetta

ruv.is

  • Fyrst birt: 30.10.2006 07:58
  • Sóðaleg kosningabarátta vestra

    Þingkosningar eru í Bandaríkjunum eftir viku og útlit er fyrir stórsigur Demókrataflokksins. Repúblikanar eru á barmi algjörrar örvæntingar segir Independent í dag og beita ómálefnalegum og sóðalegum kosningaáróðri í varnarbaráttu sinni.

    Sjónvarpsauglýsingar eru sem fyrr helsta vopnið í kosningabaráttunni vestan hafs. Þar eru þingmannsefni demókrata borin þungum sökum af andstæðingum sínum. Einn er sagður vilja gefa börnum fóstureyðingartöflur, öðrum er borið á brýn að hringja í klámlínur, sá þriðji er sagður vilja eyða fóstrum blökkumanna, sá fjórði er sagður vinur barnanauðgara, og svo framvegis. Yfirstjórn Repúblikanaflokksins er sögð verja 90% fjárins í kosningasjóði flokksins í auglýsingar í þessum dúr.

Það er náttúrulega ekkert eðlilegt við aðferðir Repúblikanaflokksins sem er systurflokkur Sjálfsstæðisflokksins


Hvernig væri nú að stórveldin spöruðu við sig hernað og vopnakaup og snéru sér að þessu

Ég á ekki til orð nema að við eins og aðrir eyðum frekar hundruð milljóna til að komast inn í Öryggisráð SÞ frekar en að eyða þeim í draga úr þessu vandamáli.

Frétt af mbl.is

  Heiminum að mistakast í baráttunni við hungursneyð
Erlent | mbl.is | 30.10.2006 | 21:02
Norður-kóresk börn borða mat sem Matvæla- og... Lítið hefur áunnist í baráttunni við hungursneyð í heiminum þrátt fyrir skuldbindingar leiðtoga heimsins um að fækka hinum vannærðu í heiminum um helming, en þetta segir Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Værum við ekki sáttari við skattana okkar ef við vissum að kannski 1 til 2% af þeim færu í raunverulega þróunaraðstoð, ekki NATÓ verkefni heldur raunverluega aðstoð við þjóðir eins og mataraðstoð, uppbyggingu á þeirra forsendum (ekki verið að reyna að gera þau eins og vestrænt ríki). Ég væri minnstakosti sáttari við skattana mína ef þeir færu í þetta.


mbl.is Lítið hefur áunnist í baráttunni við hungursneyð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Njósnir og hleranir og furðulegir hlutir

Eftirfarandi frétt fann ég inn á www.morgunhaninn.is  En það er þáttur Jóhanns Haukssonar á útvarpi Sögu. Þessi þættir oft ágætir hjá honum. En hér kemur fréttin:

Forsetinn beittur þrýstingi?

30.október 2006 - kl. 10:24
Ritari Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Íslands, óskaði eftir því 1984 að ekkert yrði sagt frá móttöku á Bessastöðum sem forsetinn hélt friðarráðstefnugestum síðsumars það ár. Jafnframt var þess farið á leit að ekki yrðu birtar myndir frá móttökunni. - Þetta kom fram í viðtali Morgunhanans við Vigfús Geirdal, sagnfræðing, í morgun. Vigfús var á þessum tíma virkur herstöðvarandstæðingur og tók þátt í að undirbúa alþjóðlega ráðstefnu frjálsra friðarhreyfinga hér á landi. Vigfús segir svo frá að á mánudagsmorgni, eftir að ráðstefnan var haldin, hafi forsetaritari hringt í sig og beðið sig um að hafa móttökuna í þagnargildi. Hið undarlega hefði gerst í miðju samtalinu, að inn á símalínuna hefði komið þriðji aðili, María Þorsteinsdóttir, sem þá var ábyrgðarmaður frétta frá Sovétríkjunum. Vigfús kveðst hvorki hafa skýringar á erindi og beiðni Halldórs Reynissonar, forsetaritara, né heldur hvers vegna samtalið rofnaði með áðurgreindum hætti. - Vigfús rifjaði jafnframt upp þau atvik þegar Jón Múli Árnason, Stefán Ögmundsson og fleiri fengu dóm og voru sviptir kjörgengi og kosningarétti eftir róstur á Austurvelli árið 1949 við inngönguna í NATO. Stuðningsmenn, sem vildu færa þeim borgaraleg réttindi sín aftur, söfnuðu 27 þúsund undirskriftum og afhentu stjórnvöldum. Vigfús telur víst að þessar undirskriftir hafi allar komist í hendur bandarískra stjórnvalda. Þar hefðu bæði móðir hans og móðursystir verið á skrá, sem báðar höfðu tekið þátt í undirskriftasöfnuninni, þótt ekki teldust þær vinstrimenn. Bróðir þeirra systra hefði nánast þurft að sverja af sér tengsl við þær þegar hann fór um þetta leyti erinda til Bandaríkjanna.
Á www.morgunhaninn.is er hægt að hlusta á viðtalið við Vigfús Geirdal í heild.

Er Guð í verki með Bush í Írak

Bush1Samkvæmt því sem ég best veit er Bush heittrúaður og frelsaður kristinn maður. Hann hefur lýst því yfir að hann sé í góðu sambandi við Guð og sæki ráðleggingar sínar þangað. Því er ég að velta fyrir mér er það Guð hans sem vill að ástandið þarna sé eins og það er? Ætli það sé Guð sem vill fljúga með menn til Gunatanamo og halda þeim þar jafnvel saklausum án dóms og laga? Ætli það sé Guð sem segir honum að berjast fyrir því að sem flestir Bandaríkjamenn eigi byssur og að þar deyji börn og saklaust fólk í umvörpum í skotárástum? Ætlir það sé á Guðsvegum sem Bandaríkin fara um heiminn ógnandi ríkjum og arðrænandi þau?bush2

Ef ekki afhverju heyrist þá ekki frá sannkristnum? Þar sem þeir mótmæla því að þetta sé Guðsvilji.

Og hver er þess umkominn að segja að þetta sé ekki akkúrat það sem Guð vill. Kannski er Bush enn ein spámaðurinn að breyta skilningi ykkar trúuðu á Biblíunni.

 bush3

 

Kross

Bara svona pæling dagsins.


Arngrímur að kaupa aftur hluta af Avion

Atlanta sem breytti um  varð að Avion með kaupum á fleiri flugfélögum og var síðan selt er nú að hluta til á leið aftur til fyrri eiganda. Þ.e. hluti þess. Er nema von að maður sé hættur að skilja nokkuð í þessu. Arngrímur selur með hagnaði, Avion selur með hagnaði og Arngrímur kaupir aftur.

Af ruv.is

Verðmæti Avion Aircraft Trading byggir fyrst og fremst á samningum um kaup á flugvélum sem afhendast á næstu árum. Kaupendur eru Hafþór Hafsteinsson, stjórnarformaður Avion Airvcraft Trading, og Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Air Atlanta, ásamt lykilstjórnendum félagsins. Þeir kaupa 51% hlutafjár í félaginu. Hafþór lætur af störfum sem forstjóri flugþjónustusviðs Avion Group samhliða kaupunum.

 

Þetta er svipað og þegar Iceland air var selt því breytt í FL grup og það selt. Síðan er Iceland Air selt út úr FL grup með 25 milljarða hagnaði. Það er ekki nokkur leið til að skilja hvaðn allir þessir milljarðar koma inn í þessi dæmi. Þessi fyrirtæki skila ekki nema hugsanlega að meðaltali um milljarði í hagnað á ári skv. uppgjörum þannig að maður undrast hvar fjárfestar fá fjármagn til að standa undir öllum lántökunum sem hljóta að fylgja þessu. Eru það kannski peningarnir sem skatturinn sér ekki og Ekstrablaðið er að tala um


Afhverju segja menn að ímynd sjálfstæðisflokksins hafi mýkst?

Var að lesa á ruv.is:

Ímynd Sjálfstæðisflokksins mýkist

Stjórnmálafræðingur segir að ímynd sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi mýkst verulega eftir prófkjör flokksins í borginni. Hann segir að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi styrkt sig í sessi.
Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri segir að veruleg endurnýjun hafi orðið á lista sjálfstæðismanna. Nýtt fólk hafi komið inn á listann og það mýki ásýnd yfirbragði listans. Hann segir að það hljóti að hafa orðið mikil vonbrigði fyrir Björn Bjarnason að tapa öðru sætinu fyrir Guðlaugi Þór Þórðarsyni.

Birgir telur að formaður Sjálfstæðisflokksins komi mjög sterkur út úr prófkjörinu og styrkt stöðu sína sem formaður flokksins.

 

Ég er ekki alveg að skilja þetta. Það sem hefur í raun breyst er að Sólveig Péturs og Guðmundur Hallvarðs eru að hætta, Davíð er hættur, aðrir eru áfram. En í staðinn fyrir þau sem hætta kemur Illugi sem var nú aðstoðamaður Davíðs, Guðfinna sem hefur verið Rektor HR sem er dæmigert hægra vígi í háskólaflóru Íslands. Og svo er komin í 10 sæti hún Sigríður sem má segja um að fólk gerist varla meira til hægri en hún. Hvernig er hægt að segja að þessi listi sé eitthvað mýkri en fyrri listi.


Bloggfærslur 30. október 2006

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband