Leita í fréttum mbl.is

Tapað - fundið1,7 milljarður í forvarnarstarf gegn eiturlyfjurm - hvar lentu þeir peningar?

Skoðið þessa frétt hér fyrir neðan. Skemmtilega málefnalegur eða hitt þó heldur hann Guðni Ágústsson og eins þá findist mér fróðlegt að einhver fjölmiðill færi út í að athuga í hvað þessi 1.7 ,milljarður (sem Sæunn talar um að hafi verið ráðstafað í þennan málaflokk) hefur farið:

Af ruv.is

Alþingi: Meint svik Framsóknar rædd

Framsóknarflokkurinn bar af sér sakir á Alþingi í dag um að hafa svikið loforð um miljarðs framlag til fíkniefnaforvarna á kjörtímabilinu. Kveikjan að umræðunni voru ummæli Björgvins G. Sigurðssonar Samfylkingu sem sakar Framsóknarflokkinn um svik. Landbúnaðaráðherra sagði Björgvin ljúga og það gengi ekki á Suðurlandi þar sem stjórnmálamönnum væri kennt að segja sannleikann.

Björgvin hefur að undanförnu fullyrt að mjög hafi skort á átak gegn fíkniefnavandanum sem Framsóknarflokkurinn auglýsti fyrir síðustu kosningar til að gera Ísland fíkniefnalaust meðan vandinn hafi vaxið. Sæunn Stefánsdóttir, Framsókn, tók málið upp og fór yfir framlög til fíkniefnamála hjá öllum ráðuneytum og komast að því að samanlagt næmu þau hærri fjárhæð en lofað var eða 1,7 miljarði króna og taldi hún málefnafátækt einkenna málflutning Björgvins.

Björgvin sagði nálgun Sæunnar útúrsnúninga og talnaleiki sem væri til lítils meðan sprenging væri í neyslu ólöglegra fíkniefna. Landbúnaðarráðherra sagði málflutning Björgvins alls ekki ganga upp á Suðurlandi því þar hafi menn tamið sér að segja satt og kennt stjórnmálamönnum það.

 


Enn segir af Árna Johnsen

Hann segir í viðtali á ruv að hann hafi gert tæknileg mistök en síðan kemur skítin klausa og væri gaman ef einhver gætir svarað því hverjir hinir eru sem hann segir að hafi sloppið við sakfellingu í þessu máli.

„Tæknileg mistök ”segir Árni Johnsen

Árni Johnsen, verðandi alþingismaður, segist iðrast og biðst fyrirgefningar á mistökum sínum, annars væri hann gerður úr steini. Hann segist hafa gert tæknileg mistök sem enginn hafi tapað á. Margir hafi gert mistök í því máli en enginn hafi sem betur fer verið sóttur til saka nema hann. (leturbreyting maggi B)

Æ góðu bestu það trúir ykkur enginn.

Nema kannski einhverjir á trúarofstækisstöðinni Omega

Shomrat sagði eftir fund sinn með Valgerði í dag að Ísraelar séu mjög slegnir vegna atburðanna í Beit Hanoun. Það hafi ekki verið ætlun Ísraela að skaða palestínska borgara.

Þetta er skritin skýring frá þjóð sem er búin að drepa Palestínumenn í tugum þúsunda. Í nærri hverri árás þeirra eru myrt eða slösuð börn og konur. Þeir bera fyrir sig árástir Palestínumanna en mér skilst að tölfræðin síðustu ár sé að á móti hverjum Ísraela sem hefur orðið fyrir árás séum milli 30 og 40 palestínumenn myrtir af Ísraelsher.

Svo segir hún í viðtali við visir.is

Hún sagði að Ísraelsmenn hefðu tekið því mjög alvarlega sem gerðist í Beit Hanoun og skildu að vinir þeirra litu atvikið alvarlegum augum. Hún lagði samt áherslu á að gagnstætt því sem haldið er fram og gagnstætt því sem Palestínumenn gera, að ráðast af ásettu ráði á ísraelska borgara, réðist ísraelski herinn ekki viljandi á palestínska borgara og sagði síðan að þetta hefðu verið mistök. Ennfremur tók hún fram að mistökin hefðu ekki verið af mannlegum toga, heldur hefðu rafeindatæki bilað.

Er ekki lægi með þetta fólk. Það eru aðeins lítill hópur Palestínumanna sem tilheyrir herskáum. Þeir eru að skjóta rörasprengjum á Ísrael sem skaða engan nema lenda í hausnum á þeim. Miðað við viðtal sem var við Gyðing sem staðhæfði að sprengja hefði fallið aðeins nokkrum metrum frá honum í síðustu viku. Það sá ekki á honum.


mbl.is Sendiherrann segir Ísraela ekki ráðast vísvitandi á óbreytta borgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver þorir að kaupa af þeim skuldabréf?

Það eru auðsjáanlega einhverjir enn sem hægt er að sækja peninga til . Þeir gáfu út svona skuldabréf fyrir 130 milljónir Bandaríkjadala fyrir 3 árum og nú aftur. Gama að vita hvaða veð þeir eiga eftir fyrir þessu
mbl.is deCODE gefur út breytanleg skuldabréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. nóvember 2006

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband