Leita í fréttum mbl.is

Fíaskó í Heiðmörk

Mér finnst alveg ótrúlegt hvað lítið er rætt um þetta mál. Ef að Álafosskvosin er náttúruperla er þetta gimsteinn sem verið er að skemma.

Hélt að fólki þætti vænt um Heiðmörk. Og eins að það er Kópavogsbær sem stendur að þessum heidmorkskemmdum. Og til að kóróna þetta er þetta fyrirtæki sem bæjarstjóri Kópavogs á eða átti stóran hlut í þ.e. Klæðning ehf. Og allt þetta gert vegna þess að Kópavogur þarf að koma sér upp vatnsveitu til að skaffa Garðabæ niðugreitt vatn. Þannig að Kópavogsbúar þurfa að greiða mun hærra fyrir vatnið frá sinni eigin vatnsveitu heldur en Garðabær fyrir vatn frá okkur.

En ég hvet fólk til að lesa þessa frétt af www.ruv.is

Heiðmörk: Grafið of mikið á vitlausum stað

Kópavogsbær og verktakar á hans vegum fóru ekki eftir teikningum þegar þeir hófu framkvæmdir við stofnlögn vatnsveitu í Heiðmörk í leyfisleysi fyrir helgi. Skurðir sem áttu að vera 10 metrar á breidd reyndust 20 metra breiðir og á röngum stöðum. Þetta kemur fram í umsögn Orkuveitu Reykjavíkur vegna framkvæmdanna. Einnig voru gerðar athugasemdir um lausan hund á brunnsvæði vatnstöku Orkuveitunnar. Hann var í umsjá eins verktakanna.

Orkuveita Reykjavíkur sendi umsögn vegna framkvæmdanna til skipulagsfulltrúa Reykjavíkur í dag. Hún er í níu liðum. Þar er bent á að allstórt gróið svæði hafi verið tekið undir efnishauga en þar höfðu ung börn á vegum UNICEF gróðursett litlar plöntur síðastliðið vor í þeim tilgangi að safna fé handa fátækum börnum í Afríku.

Verktakarnir grófu einnig í sundur Þjóðhátíðarlundinn og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur lýsti svæðinu sem sundurskornu þegar hann kannaði aðstæður á föstudag, skömmu áður en framkvæmdir þar voru stöðvaðar af borgaryfirvöldum.

Þá gerir Orkuveitan athugasemdir við umgengni verktakanna á svæðinu hafi verið slæm og landi raskað meira en þörf hafi verið á. Flutningabílum hafi verið ekið utan aðkeyrsluvegar að vatnsbólum og slóðar lagðir gegnum kjarrsvæði fjarri lagnastæði.


mbl.is Kröfu vísað frá um stöðvun framkvæmda við tengiveg í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaokrið á Íslandi

Var að kíkja á www.althingi.is og á umræðunna þar í dag um banka og bankakosnað almennings. Sérlega athyglisverð ræða Jóhönnu sem bað um þessa utandagsumræðu. Í ræðu hennar segir m.a.

monyFrá því að einkavæðing bankanna var innleidd árið 2003, þ.e. á fjórum árum, hafa þjónustutekjur bankanna hækkað um tæp 600%, og vaxtatekjur um 435%. Hagnaður bankanna hefur aukist úr rúmum 11 milljörðum í 165 milljarða, þ.e. um 1.416% frá einkavæðingunni. Full ástæða er til að láta líka fara fram rannsókn á sölu ríkisbankanna sem nánast voru gefnir bankakóngunum í krafti helmingaskiptareglu stjórnarflokkanna, sannarlega er um að ræða einkavinavæðingu, enda urðu nokkrir einkavinir stjórnarflokkanna milljarðamæringar af öllu saman. Og hvað græddu svo neytendur á þessu?

Vaxtaokrið er slíkt að vaxtamunur hefur aldrei verið hærri en eftir einkavæðinguna, um 13%, algengir vextir eru 17%, þ.e. 10% hærra en í nágrannalöndunum, og dráttarvextir hér hafa hækkað úr 17% í 25% meðan þeir eru t.d. 10% annars staðar á Norðurlöndunum.

Bankakostnaður, ýmis kostnaður, hefur frá einkavæðingunni vaxið um allt að 250% frá árinu 2002 og það í 8% verðbólgu. Kostnaður við hverja debetkortafærslu hefur aukist um 58% á þessum tíma, og greinilegt er þegar ýmis bankakostnaður er borinn saman milli bankanna að um augljósa samstillingu á verðlagningu er að ræða, ekki síst þegar kemur að kostnaði við lánveitingar.

Í því sambandi verður að skoða greiðslukerfi bankanna og hvernig þeir nýta sameiginlegt tölvukerfi gegnum Reiknistofu bankanna og hlýtur það að vakna upp hvort sameiginleg starfræksla bankanna á henni sé ekki brot á samkeppnislögum og hvort að með þessu fyrirkomulagi þrífist ákveðinn samráðsvettvangur bankanna. Þarna koma forsvarsmenn bankanna allir að sama borði sem hlýtur að auðvelda þeim samstillingu og samráð um vexti og bankakostnað.

Samkeppniseftirlitið kallar á að þetta sé skoðað, en bankarnir hreyfa sig ekki í að breyta þessu. Ég spyr því ráðherrann hvort ekki sé ástæða til að setja lög til að brjóta upp sameiginlegt eignarhald bankanna á greiðslumiðlunarkerfinu, greiðslukortafyrirtækjum og notkun á sameiginlegu tölvukerfi gegnum Reiknistofu bankanna og að Reiknistofan verði færð undir Seðlabanka.

 

Í Kastljósi í kvöld var bankastjóri Landsbankans í umræðu við Ögmund Jónsson og hélt því fram að vaxtamunur hér væri aðeins um 2% og að bankarnir stæður sig vel. Í framhaldi af því er nú rétt að vitna í Guðmund Ólafsson í Morgunhananum á Útvarpi Sögu þar sem hann sagið í morgun:

Mikill vaxtamunur er kaldur veruleiki launamanna

15.febrúar 2007 - kl. 10:52
Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, segir að vel megi vera að munur inn- og útlánsvaxta hafi eitthvað minnkað, en það sé ekki sú mynd sem blasi við launafólki. "Kona, sem vinnur í leikskóla og hefur 130 þúsund krónur á mánuði leggur laun sín inn á veltureikning og fær þar hugsanlega 4 prósenta vexti af innláni. Taki hún yfirdráttarlán tekur bankinn 23 prósenta útlánsvexti." Þetta segir Guðmundur að séu staðreyndir sem blasi við hverjum launamanni, hverju heimili. Engin furða sé því að menn og fyrirtæki leiti eftir lægri vöxtum í öðrum löndum. -
Hvet fólk til að hlusta á allt viðtalið á www.morgunhaninn.is

Hvað er að ske?. Fyrirtæki rekið með tapi- Hélt að það væri ekki hægt

Hélt að þetta gerðist ekki lengur hér á þessum uppgangs tímum. Mér hefur sýnst alveg sama hvað menn færu með á markað skilaði arði.

Frétt af mbl.is

  Teymi rekið með 1.253 milljón króna tapi á fjórða ársfjórðungi
Viðskipti | mbl.is | 15.2.2007 | 16:15
Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis Teymi tapaði 1.253 milljónum króna á þriggja mánaða tímabili, frá október til desember 2006. Tímabilið október til desember 2006 er fyrsta tímabilið sem Teymi hf. birtir afkomu eftir skiptingu Dagsbrúnar hf. í Teymi og 365 þar sem rekstrarlegur aðskilnaður átti sér stað 1. október 2006.


mbl.is Teymi rekið með 1.253 milljón króna tapi á fjórða ársfjórðungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiningardeild Bandaríkjahers fær falleinkunn.

Þetta er nú ótrúleg frétt. Þetta bendir til þess að bandríski herinn sé ekki með öflugar greiningardeildir. Og hafi í fáfræði sinni trúað eins og Bush á mátt hernaðar og aflsmunar. En svona á ekki við þegar ráðist er inn í annað land. Þar verður að taka tillit til þess að fyrst snýst þjóðinn gegn þeim sem ráðast á hana síðan byrjar valdabaráttan milli hópa innan lands. Herinn var líka búinn að gera ráð fyrir að einhverjir Íraksir kaupsýslumenn sem höfðu búið í Bandaríkjunum um margara áratugaskeið yrðu boðnir velkomnir þangað sem nýjir leiðtogar.

Hugsa sér að þjóð sé tilbúinn að fara út í strið á svona hæpnum forsendum.

Svo reyna menn að segja að Írakar hafi það þó betra núna. En á www.visir.is kemur fram að a.m.k. 2 milljónir Íraka eru landflótta nú og Bandaríkjamenn vilja veita 7000 þeirra hæli..

Vísir, 15. feb. 2007 12:45


Vilja taka við flóttamönnum

Írösk stjórnvöld hafa lokað landamærunum að Sýrlandi og Íran til að stöðva vopnaflutninga og ferðir vígamanna til landsins. Ákvörðunin er liður í aðgerðum þeirra gegn uppreisnarmönnum sem hófust fyrir alvöru í gær. Vegatálmar voru settir upp víða um höfuðborgina Bagdad og hermenn fóru hús úr húsi í leit að vopnum og sprengiefnum. Þá greindu bandarísk stjórnvöld frá því í gær að þau væru reiðubúin til að taka við sjö þúsund íröskum flóttamönnum á næstunni og kvaðst Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna fagna þessu útspili í morgun. Yfir tvær milljónir Íraka eru landflótta og 1,7 milljónir til viðbótar eru á vergangi í eigin landi.

Ég leyi mér að fullyrða að Írakar hafa það verr en fyrir innrásina. Líkur eru á því að öfgatrúarmenn nái þar völdum með t.d. takmörkun á réttindum kvenna sem er víst þegar byrjað.

Erlent | mbl.is | 15.2.2007 | 13:46

Innrásin í Írak byggð á tálsýnum

Hefði áætlun bandaríska hersins fyrir innrásina í Írak árið 2003 gengið eftir hefðu um 5.000 bandarískir hermenn verið eftir í Írak í desember árið 2006. Áætlunin gekk hins vegar ekki eftir og nú eru um 132.000 bandarískir hermenn í landinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Þá gerðu yfirmenn Bandaríkjahers ráð fyrir því að eftir innrásina myndi það taka tvo til þrjá mánuði að koma á stöðugleika í landinu og að þeim loknum yrði 18 til 24 mánaða endurreisnartímabil. Þá gerðu þeir ráð fyrir að Bandaríkjaher yrði að alfarið farinn frá landinu 48 mánuðum eftir innrásina.


mbl.is Innrásin í Írak byggð á tálsýnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona dettur um eigið barn og fær skaðabætur.

Las eftirfarandi á www.visir.is  Kona dettur um eigið barn og fær skaðabætur. En ein vitleysan frá Ameríku

Vísir, 15. feb. 2007 14:26

Kathleen meiddi sig

Kviðdómur í Austin í Texas hafði mikla samúð með Kathleen Robertsson sem hafði mátt þola bæði kvalir og vinnutap þegar hún braut á sér öklann. Húsgagnaverslunin þar sem Kathleen öklabrotnaði, harðneitaði að greiða henni nokkrar bætur.

Kviðdómendur voru að vonum hneykslaðir og tóku málstað Kathleen. Þeim þótti hæfilegt að láta húsgagnaverslunina borga henni sex milljónir króna í skaðabætur. Það var jú í húsgagnaversluninni sem barnið var að skríða, sem Kathleen hnaut um. Og hvað með það að það var sonur hennar sjálfrar.


Það gleður dóttur mína best þegar ég hætti að syngja.

Spurning hvort að ég ætti að reyna að komast í Heimsmetabókina fyrir hversu lengi ég fæ að syngja án þess að valda leiðindum.

Frétt af mbl.is

  Söng í 60 klukkustundir til að gleðja veikan eiginmann
Veröld/Fólk | AFP | 15.2.2007 | 8:45
Suður-kóresk kona hefur sett heimsmet í karíókísöng eftir að hafa verið búin að syngja í nærri 60 klukkustundir á Valentínusardaginn til þess að gleðja eiginmann sinn sem á við veikindi að stríða, en hún hóf sönginn á mánudag.


mbl.is Söng í 60 klukkustundir til að gleðja veikan eiginmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein svört skýrsla. - Nú um Samhjálparheimilið við Miklubraut.

Þetta er náttúrulega ekki hægt. Menn eru auðsjáanlega að reka þessa þjónustu á vitlausum forsendum. Annaðhvort eru þessi félög að taka þetta að sér fyrir allt of litla upphæðir.  Það á náttúrulega ekki að taka að sér þjónustu við fólk án þess að vera viss um að maður geti veitt almennilega þjónustu

www.ruv.is

Svört skýrsla um ástand á Samhjálparheimili

 

Fulltrúar í velferðarráði Reykjavíkur fengu ekki að sjá skýrslu um ástand á stuðningsheimili Samhjálpar fyrir heimilislausa fyrr en fimm mánuðum eftir að niðurstöður lágu fyrir. Úttekt á heimilinu leiddi í ljós að íbúar telja sig fá útrunnin og skemmdan mat.

Samhjálp rekur stuðningsheimilið við Miklubraut 18 í Reykjavík en þar geta átta heimilislausir dvalið í senn. Þegar úttektin var gerð á starfseminni í sumar bjuggu þar sex manns. Allir nema einn sögðust fá útrunnin og skemmdan mat. Þó að úttektin hafi leitt í ljós að mörgu væri ábótavant liðu fimm mánuðir þar til fulltrúar í velferðarráði sem fara með málefni heimilisins gátu kynnt sér skýrslu með niðurstöðum úttektarinnar.

Minnihlutinn í velferðarráði samþykkti í gær bókun þar sem þessi seinagangur er harðlega gagnrýndur. Þorleifur Guðmundsson, fulltrúi vinstri grænna í velferðaráði, segist hafa spurst fyrir um niðurstöðurnar í tölvubréfi strax 10. nóvember. Hann telur að velferðarsvið hafi í marga mánuði vitað að heimilislausir fengju útrunninn mat án þess að gera nokkuð í málinu.

Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs borgarinnar, segir að starfsmenn sviðsins hafi ekki geta kynnt ráðinu skýrsluna þar sem hún hafi ekki verið tilbúin. Starfsmaður sem gerði úttektina hafi hætt og annar tekið við. Því hafi tafist að ljúka við sjálfa skýrsluna. Þá hafi fyrst þurft að kynna hana fyrir starfsfólki og skjólstæðingum stuðningsheimilisins en illa hafi gengið að ná í skjólstæðingana.

Jórunn segir mjög óheppilegt að skýrslan hafi dregist en þetta undirstriki hve eftirlitið sé mikilvægt. Læra megi af þessu og vill hún að velferðaráði verði framvegis kynntar bráðabirgðaniðurstöður til að hægt sé að bregðast strax við, reynist einhver mál í ólestri. Velferðarráð hafi óskað eftir frekari upplýsingum um matarkostnað Samhjálpar vegna stuðningsheimilisins við Miklubraut 18. Þá muni ráðið kalla eftir nánari úttekt á því sem miður hafi farið á heimilinu og fylgjast með að úrbætur nái fram á ganga.


Bloggfærslur 15. febrúar 2007

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband