Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Jæja þið sem voruð að spyrja um stefnu Samfylkingar í stóriðjumálum - Nú hafið þið það
Nú hefur Ingibjörg Sólrún lýst yfir að Samfylkingin vilji fresta stóriðjuframkvæmdum bæði í Straumsvín og Helguvík.
Enda eðlilegt að við setjum okkur stefnu og ramma um hvað við ætlum að gera á næstu árum í sambandi við náttúruvernd og nýtingu. Sem og umhverfisstefnu til næstu áratuga.
Samfylkingin vill að umhverfisráðherra setji upp rammaáætlun um náttúruvernd sem nái til landsins alls. Á meðan gerð hennar stendur vill Samfylkingin að öllum rannsóknum og áætlunum varðandi stóriðju hér á landi verði frestað.
Í áætluninni eiga að koma fram tillögur um skipulag verndarsvæða og áætlun um virka verndun þeirra, með lögum þar sem það á við, og nýtingu sem samrýmist náttúruvernd. Hana á síðan að leggja til grundvallar við aðalskipulög sveitarfélaga og hugsanlegt landsskipulag.
Samfylkingin vill enn frekar að umhverfisráðherra leggi tillögu til þingsályktunar um rammaáætlun um náttúruvernd fyrir Alþingi eigi síðar en veturinn 2009-2010.
Gott að þetta er komið á hreint. Þið sem eruð að gagnrýna Samfylkingu fyrir stefnuleysi í þessum málum ættuð þá kannski að snúa ykkur að næstu flokkum og kanna þeirra stefnu í sömu málum
Frétt af mbl.is
Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum
Innlent | mbl.is | 6.2.2007 | 18:56Samfylkingin vill fresta stóriðjufamkvæmdum í Straumsvík og Helguvík. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í umræðu sem fram fór á Alþingi í dag. Umræðan var vegna frumvarps um rammaáætlun um náttúruvernd.
Samfylkingin andvíg álversstækkunum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, leggst gegn því að það verði ráðist í stækkun álversins í Straumsvík nú. Samfylkingin vilji sömuleiðis að byggingu álversins í Helguvík verði frestað.
Engar efnahagslegar aðstæður réttlæti áformin, framkvæmdirnar myndu bitna á landsbyggðinni og heimilum í landinu. Svæði sem spillist hafi heldur ekki verið metin út frá náttúruverndarsjóðamiðum. Þá stefni í það að óbreyttu, að allir virkjanakostir Íslendinga verði nýttir til álframleiðslu og farið verði fram úr skuldbindingum í loftslagsmálum.
![]() |
Samfylkingin vill fresta stóriðjuframkvæmdum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Fáránleiki stríðsátaka.
Þetta sýnir fáránleika hernaðar og stríðsátaka. Menn vita ekki einusinni hvað þeir eru að skjóta á. Hvað ef þetta hefði verið bílalest sem var að flytja börn. Menn skjóta bara á allt sem hreyfist.
Frétt af mbl.is
Sun með myndband af árás Bandaríkjamanna á Breta í Írak
Erlent | mbl.is | 6.2.2007 | 12:52
Breska dagblaðið Sun hefur undir höndum myndbandsupptöku af loftárás bandarískra hermanna á bílalest breska hersins í Írak árið 2003. Breskur hermaður lést þegar skotið var bílalestina. Á myndbandinu heyrast samræður bandarísku hermannanna við stjórnstöð þar sem þeir segjast halda að bandamenn þeirri séu í bílunum en er sagt að skjóta á þá engu að síður.
![]() |
Sun með myndband af árás Bandaríkjamanna á Breta í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Egill Helgason um skoðanakönnun Blaðsins
Ég hef líka mínar efasemdir um gildi svona kannana. En Egill segir m.a.:
Vísir, 06. feb. 2007 12:28
Hæpnar skoðanakannanir
Skoðanakönnun sem Blaðið birtir í morgun byggir á um það bil 300 manns. Úrtakið í könnuninni er 750. Svarhlutfallið er 88 prósent. Af þeim taka 53 prósent afstöðu. Þetta er ekkert til að byggja neina umræðu á. Enda virðist sumt í könnuninni vera alveg út úr kortinu - til dæmis 45,4 prósenta fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Er ekki ástæða til að biðja þá sem gera skoðanakannanir að vanda sig, eða sleppa því ella? Það eru að koma kosningar - og á þeim tíma er viss ábyrgðarhlutur að framkvæma skoðanakannanir. Því þær eru að vissu leyti skoðanamótandi. Sjálfur er ég nokkuð hrifinn af þeirri hugmynd að banna birtingu skoðanakannana síðustu vikuna fyrir kosningar.
Menn hljóta líka að gera kröfu um að vinnubrögðin séu almennileg, ekki bara hippsum happs. Meðan þau eru ekki betri lætur maður sér nægja að taka mark á könnunum Gallup - í nýbirtri könnun þaðan voru niðurstöðurnar mjög ólíkar því sem er hjá Blaðinu.
Þetta ætti fólk að hafa í huga enda held ég að hann viti hvað hann er að segja. Líka hefur verið rætt um hverjir eiga Blaðið og fólk ætti að skoða þessa könnun með því tilliti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Afhverju er lögð áhersla á að þetta sé hægra lungað?
Maður óskar Birni náttúrulega góðs bata. EN svona til að vera meinlegur þá gæti maður velt fyrir sér hvort að það sé einhver dulin meining um tilkynna sérstaklega að það hafi verið það hægra. Gæti náttúrulega spurt hvort að Birni sé þrotið þol í hægri baráttu sína og fari því að mildast?
En svona á maður ekki að láta og ég hefði ekki gert það nema að skv. bloggi Björns þá virðist þetta allt að komast í lag aftur.
Frétt af mbl.is
Hægra lunga Björns Bjarnasonar féll saman
Innlent | mbl.is | 6.2.2007 | 10:57Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, greinir frá því á vefsíðu sinni að hann hafi þurft að leita sér læknisaðstoðar í gær. Hann segist hafa átt erfitt með andardrátt og hafi í framhaldinu haft samband við lækni. Skömmu síðar hafi hann verið kominn á bráðamóttöku Landsspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut þar sem í ljós kom að hægra lunga hans hafði fallið saman.
![]() |
Hægra lunga Björns Bjarnasonar féll saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Þetta er bara fyndið
Einhver með góðann húmor farinn að skjóta inn fréttum á www.visir.is
Vísir, 06. feb. 2007 10:25Bilaði bíllinn
Bifvélavirki í New York fékk verkbeiðni sem á stóð; Það heyrist alltaf "klúnk" þegar bíllinn beygir. Bifvélavirkinn fór út með bílinn í reynsluakstur. Hann tók hægri beygju, og mikið rétt, það heyrðist "klúnk." Þá tók hann vinstri beygju og það heyrðist aftur "klúnk."
Bifvélavirkinn fór þá aftur á verkstæðið, kíkti í skottið og fann fljótlega vandamálið. Hann skilaði verkbeiðninni aftur, með eftirfarandi athugasemd: "Fjarlægði keilukúlu úr skottinu"
Sniðugt | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Aldrei þessu vant er ég sammála Guðlaugi
Ég verð að segja að mér finnst það ekki spennandi hugmynd að Búa til upphækkaðan veg um Kjöl. Þetta hér fann ég á www.nordurvegur.is
. Gert er ráð fyrir að veggjald verði greitt af þeim sem nota veginn og er útlit fyrir að
gjaldið verði um 2.000 kr. á ferð fyrir fólksbíl en um 8.000 kr. fyrir þungaflutninga. Framkvæmdin á að geta borgað sig upp á 16 til 18 árum en gert er ráð fyrir að fyrsta rekstrarár árið 2010 verði um 500 bíla umferð á dag.
Vegurinn verður 8,5 metra breiður og upphækkaður um tvo til þrjá metra yfir nánasta umhverfi
Ég á erfitt með að sjá fyrir mér umferð á 100 km hraða þarna milli jöklanna og framhjá Hveravöllum. Þetta er leið sem er nokkuð greiðfarin yfir sumarið smá lækir og ár sem þarf að fara yfir.. Þarna er vegur/vegslóði sem fylgir landaslaginu og ekkert upphækkaður. Hann gerir það að verkum að fólk keyrir þarna hægt og nýtur landslagsins.
þá get ég séð fyrir mér að það verði nokkuð um að bjarga þurfi fólki þarna á veturna þegar veður versna snögglega. Þá finnst mér 2000 krónur nokkuð há upphæð..
Þessi fyrirhugaði vegur verður 2 til 3 metra upp úr landslaginu og sker í augum þarna á milli jöklana.
Þá segir eftirfarandi á sama vef:
Gert er ráð fyrir að því sem næst öllu efni verði ekið í veginn og efnið tekið á völdum stöðum úr námum meðfram veginum.
Maður hefur jú séð svona námur víðsvegar og þær eru ekki til prýði. Til að byggja veginn upp um 2 til 3 metra þarf alveg ofboðslega mikið af efni og því mikla efnistöku.
Ég er sammála Jónasi Kristjánssyni þegar hann segir:
06.02.2007
35 kílómetrar
Ráðgerður Kjalvegur með bundnu slitlagi styttir leiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar ekki um 47 kílómetra. Aðeins um 35 kílómetra, ef miðað er við að stytta núverandi leið á smákafla með því að færa hana frá Blönduósi að Svínavatni. Þetta eru 22 mínútur, ótrúlega lítill árangur af miklu róti. Er þá eftir að taka tillit til ósnortinna víðerna á Kili og Eyvindarstaðaheiði, sem verða þá ekki lengur ósnortin. Kjalvegur hinn nýi er þáttur í hamslausri árás mannsins á landið, sem hefur alið hann. Hroki nútímans sést þarna í sömu mynd og í eyðingu Vesturöræfa og Kringilsárrana.
Og Guðlaugi Þór eins og segir hér í fréttinni.
Frétt af mbl.is
Efasemdir um nýjan Kjalveg
Innlent | Morgunblaðið | 6.2.2007 | 5:30
Svara þarf þeirri grundvallarspurningu hvernig Íslendingar vilja að hálendið þróist. Ekki er sjálfgefið að aðgengi að því verði gert auðvelt með malbikuðum vegum. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður umhverfisnefndar Alþingis.
![]() |
Efasemdir um nýjan Kjalveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 6. febrúar 2007
Ég neita að trúa þessu.
Ég tel að Samfylkingin eigi stóran hluta af þessu óákveðna fylgi. Ég neita að trúa því að fólk hafi nokkura ástæðu til að flykjast frá flokknum. Hann er búinn að móta sér stefnu í flestum þeim málum sem brenna á fólki.
Samfylkingin teflir fram formanni sem hefur sannað getu sína til að stjórna. Þó að andstæðingar flokksins hamri nú á henni. Gera mikð úr meintum svikum hennar við borgarbúa en gleyma því að það var samflokkur hennar framsókn sem gat ekki sætt sig við að Ingibjörg vildi taka 5 sæti á lista Samflylkingar í Reykjavík. Og settu henni úrslitakosti.
Ég neita að trúa því að fólk sé að verðlauna Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hafa gefið vinum sínum og framsóknar eignir okkar í bönkum og öðrum ríkisfyrirtækjum sem nú mala gull undir eigendur sína sem nokkrum árum seinna halda veislur með Elton John og Duran Duran.
Ég neita að trúa því að fólk sætti sig við að bönkum sé leyft að okra á okkur og fyrirtækjum þar sem samkeppniseftirlit er en í skötulíki hjá okkur
Ég trúi ekki að fólk ætli að kjósa Sjálfstæðisflokkin og opna fyrir að orkugeirin verði einkavæddu og gefinn góðum vinum flokksins.
Ég trúi ekki að fólk ætli að verðlauna Sjálfstæðisflokkinn fyrir stóriðjustefnu hans.
Ég skil betur vöxt Vg en fólk. Hann hefur verið staðfastur í umhverfismálfum Fólk skildi skoða samt hvernig málflutningur hans hefur verið í mörgum framfaramálum okkar síðustu ár utan umhverfismála.
Frétt af mbl.is
Samfylkingin með minna fylgi en VG og ríkisstjórnin heldur velli
Innlent | mbl.is | 6.2.2007 | 6:44Samfylkingin nýtur nú minna fylgis en Vinstri grænir, samkvæmt könnun Blaðsins á fylgi við flokkana fyrir þingkosningar. 19,1% sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna en 22,9% Vinstri græna. Samfylkingin hefur ekki áður verið með minna fylgi en Vinstri grænir, en hún fékk 31% atkvæða í seinustu kosningum, árið 2003. 39% aðspurðra höfðu ekki gert upp hug sinn.
![]() |
Samfylkingin með minna fylgi en VG og ríkisstjórnin heldur velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 6. febrúar 2007
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson