Sunnudagur, 29. apríl 2007
Svo leyfa þessi Sjálfstæðis og Framsóknarmenn að gagnrýna þessar tillögur
Hef verið að lesa blogg hinna ýmsu bloggara um þetta mál. Menn sem fylgja Sjálfstæðisflokknum leyfa sér að gagnrýna þessar tillögur sem er mér óskyljanlegt. Ef þessir ágætu menn horfa í árangur Sjálfstæðisflokksins þá geta þeir t.d. byrjað á að gera sér grein fyrir að á BUGL er nú 170 börn á biðlista eftir greiningu og meðferð. Og hvaða flokkur hefur farið með stjórn landsins nú síðustu 16 ár? Og hvað hefur hann gert til að vinna bug á þessu? Það var fyrst á síðsta ári eftir áralangt þóf sem loksins var ákveðið að byggja við BUGL. Eitthvað sem hafði verið rætt um í einhverja áratug að þyrfti að gera.
Og nú þegar einhver flokkur kemur með tillögur að lausnum þá hengja menn sig í það að sviðstjóri innan BUGL sé í framboði fyrir Samfylkingunna. Hveskonar rök eru það. Hugmynd Samfylkingarinnar um árangurstengdan samning við BUGL gefur möguleika á að BUGL geti ráðið fleira sérhæft fólk til starfa og umbunað fólki fyrir árangur.
Sama gildir fyrir Greingarstöðinna þar sem að í fleiri ár hefur verið langur biðlisti af börnum með þroskafrávik sem bíða greingar
Og þessi hugmynd um 400 hjúkrunarrými er náttúrulega það eina rétta. Til að leysa úr vandamálum eldirborgara verður að gera það með áhlaupi. Og síðan þessar hugmyndir:
Á fyrstu 18 mánuðunum í ríkisstjórn Samfylkingarinnar verða byggð 400 hjúkrunarrými fyrir aldraða til að eyða biðlista þeirra sem eru í brýnni þörf. Þangað til þeim biðlista hefur verið eytt verður gerður samstarfssamningur við sjúkrahús og hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, í samráði við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og félagsþjónustu, um sólarhringsþjónustu við þennan hóp aldraðra. Fyrirmyndin er sólarhringsþjónusta LSH við aldraða í heimahúsi. Gerð verður úttekt á þörf fyrir sams konar þjónustu á landsbyggðinni.
Sjálfstæðismenn reyna að kenna R listanum um en gleyma að málefni elli og hjúkrunarheimila er á forræði ríkisins að mestu. Reykjavík var búin að leggja um 1,5 milljarð til hliðar til að mæta sínum hluta af kosnaði en ríkð stóð á bremsunni. Og þó borgum við öll í framkvæmdasjóð aldraðra til standa straum að þessum byggingum.
Frábærar og raunhæfar hugmyndir og betri en aðrir hafa lagt til.
Frétt af mbl.is
Samfylkingin vill tryggja börnum og öldruðum á biðlistum örugga þjónustu
Innlent | mbl.is | 29.4.2007 | 16:53
Samfylkingin kynnti í dag tillögur að aðgerðum sem miða að því að tryggja þeim börnum og öldruðum viðunandi þjónustu sem nú eru á biðlistum í brýnni þörf fyrir úrræði. Tillögurnar fela m.a. í sér að þegar verði gripið til aðgerða til að eyða biðlistum á BUGL og Greiningastöð ríkisins og að veitt verði bráðaþjónusta allan sólarhringinn fyrir börn með geðraskanir og aldraða.
![]() |
Samfylkingin vill tryggja börnum og öldruðum á biðlistum örugga þjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.4.2007 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Framsóknar bloggarar fara hamförum og vilja kæfa eðlilegan fréttaflutning.
Var að lesa www.mannlif.is og auðséð að þeir hafa verið að skoða bloggheima. Þar fara margir Framsóknarmenn hamförum og vilja hreinlega aftökur vegna umfjöllunar Kastljóss á veitingu ríkisborgararréttar til tengdadóttur Jónínu Bjarmarz. Mér finnst þetta nú fáránlegt. Það getur verið að einhverju hefði mátt haga öðruvísi en anskotinn ef við látum reka alla fréttamenn sem fjalla um umdeilt mál þá verða ekki fluttar neinar fréttir sem skipta máli. Og við fáum ekki að vita um hluti sem betur mega fara.
Þó þetta hafi vegið nálægt Framsókn þá eru fullt af málum sem hafa verið í fréttum sem tengjast öðrum þar sem að ekki hafa verið svona viðbrögð. EN svona setja þeir þetta fram á www.mannlif.is
Hirð Framsóknar vill hreinsanir
Bloggarar Framsóknarflokksins fara hamförum vegna frétta Helga Seljans af tengdadóttur Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra og vilja hreinsanir hjá Ríkisútvarpinu. Gestur Guðjónsson hvetur til fjöldapósta til útvarpsstjóra á Moggabloggi sínu í því skyni að koma höggi á Kastljós og fréttastofuna fyrir að hreyfa málinu: ,,Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Helgi Seljan, Kastljósið og öll fréttastofa sjónvarpsins setur mikið niður og trúverðugleiki þeirra er stórlaskaður og það er greinilegt að Páll Magnússon verður að taka til sinna ráða. Ég hvet alla til að styrkja hann í þeirri óhjákvæmilegu skoðun sinni með því að senda honum áskorun á pall.magnusson@ruv.is um að taka til hendinni á fréttastofunni og í Kastljósinu."
Björn Ingi Hrafnsson er á sömu nótum á sínu bloggi til varnar Jónínu:,,Kastljósið reiddi hátt til höggs gegn Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra sl. fimmtudagskvöld og leiddi að því líkum að hún hefði haft áhrif á að tengdadóttir hennar frá Mið-Ameríku hefði fengið íslenskan ríkisborgarrétt með lögum frá Alþingi."
Pétur Gunnarsson, yfirbloggari Framsóknarflokksins, lætur ekki sitt eftir liggja: ,,Var Kastljósinu ekki ljóst að með þessu var verið að gera tilræði til ráðherraferil og þingmannsferil Jónínu Bjartmarz? Er málum svo komið að það er hægt að bera hvað sem er upp á stjórnmálamann ef hann tengist Framsóknarflokknum?"
Merkilegt að enginn bloggara Framsóknar vilji fá botn í málið og það hvort raunverulega hafi átt sér stað spilling í úthlutun á ríkisborgaraétti. En skýringin kann að vera sú að flokkurinn hefur á sér gróna ímynd spillingar og náhirð flokksins leggst því öll í vörn ....
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Slysið í Hveragerði og umfjöllun Stöðvar 2
Vettvangi Magga barst aldrei þessu vant tölvupóstur þar sem einn sem þekkir til í Hveragerði er að benda mér á þá fáránlegu umfjöllun um slysið sem verið hefur í fjölmiðlum þar sem látið var hálft í hvoru að um óhæfuverk hefði verið að ræða. Hér er hluti póstsins:
Hræðilegt slys varð í Hveragerði, Maður sem er á blóðþynningarlyfjum datt á fyllirýi og nefbraut sig, virðist hafa geta staðið upp aftur og ráfað um íbúðina og vegna lyfjana dreift blóði um húsið. Svo virðist sem að hann hafi svo dottið út af og blætt í lungu hans, sem að líkum varð hans banamein. AF HVERJU ÞURFTI AÐ SÝNA HÚSNÚMERIÐ MJÖG VEL Á STÖÐ 2. Þetta var slys, þrátt fyrir að hræðilegt væri. Aðstæður ( blóðið) gæti hafa gefið til kynna að morð hafi verið framið en óþarfi að sýna húsnúmerið í nærmynd þar til að annað kæmi í ljós.
Auk þess að þurfa að vera á blóðþynningarlyfjum var karlinn með MS og jafnvægið ekki gott, og batnaði ekki við áfengi. Þess utan átti konan sem að veitti honum húsaskjól (fyrrverandi eiginkona) hund sem hafði þann leiða ósið að flækjast fyrir fótunum á fólki, getur verið að hundurinn sé óbeint morðingi. Hundar eru varasamir [þetta síðasta var víst skot á Gutta hundinn minn- Innskot Maggi]
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Tæp 40% sem ekki voru tilbúin að gefa upp afstöðu sína.
Skv. þessari könnun voru tæplega 40% ekki ákveðin eða ekki tilbúin að gefa upp afstöður sína:
61,4 prósent svarenda tóku afstöðu til spurningarinnar. (www.visir.is )
Þetta finnst mér merkilegt. Annars er það makalaust stjórnin virðist ætla að halda völdum en 3 ráherra framsóknar komast ekki á þing.
Og ef þetta væru úrslit kosninga þá kæmist Jón Magnússon á þing sem uppbótarmaður skv. úrreikningum Fréttablaðsins í dag bls. 18.
En ef miða yrði við þetta væru úrslitin héldu stjórnarflokkarnir meirihluta sínum. En þetta yrði nú vandamál þar sem að Framsókn mundi ekki ná inn Siv, Jóni Sig og Jónínu. Og hefði varla Þingmenn sem gætu annað öllum nefndarstörfum sem þarf að vinna með 6 Þingmenn.
Það er mér gjörsamlega óskiljanlegt ef að kosningaauglýsingar og loforð Framsóknar eru að fara gefa þeim fylgisaukningu einu sinni enn. Trúi ekki að kjósendur séu fífl. Og að menn séu búnir að gleyma:
- Tannlæknakosnaði barna
- Stöðu Landspítala
- Brotthvarfi 2 ráðherra framsóknar á tímabilinu
- Byrgismálinu
- Tímasetningu 90% íbúðarlánasjóðs sem setti verðbólgunna endanlega í gang.
- Og svo væri hægt að telja áfram.
Nei ég vill trúa því að þeir sem ekki gáfu sig upp í þessari könnun eigi eftir að ákveða hvort þeir kjósi Vg eða Samfylkingu. Maður getur leyft sér að vona.
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með 40% fylgi samkvæmt könnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 29. apríl 2007
Framkvæmdin hjá blessuðu fólkinu segir nú bara eitt. Ekki bjóða fram!
Þetta framboð hefur nú verið dauðadæmt frá upphafi. Byrjaði á stöðugu rifrildi milli hópa innan þessa hreyfinga sem endaði með að á tíma stóð til að 2 framboð kæmu fram. Síðan var auglýst með pompi og pragt að Höfðuborgarsamtökin ætluðu að vera með þeim í framboði. Síðan kom í ljós að það var engin grundvöllur fyrir því. Og nú virðist ein kona hafa verið ábirg fyrir að skila inn framboðslistum og stuðningaðilum og vegna veikinda og tölvuvandræða gat hún ekki skilað inn listum á réttum tíma. Þetta segir manni nú margt um stöðu framboðsins. Það að engin var til að hlaupa í skarðið er virkilega skrítið.
Þá fæ ég ekki skilið hverning hún átti að skila inn listum nema í Reykjavíkurkjördæmum. Það hlutu aðrir að vera ábyrgir fyrir öðrum kjördæmum.
En þau ættu að hugga sig við að þau eru búin að koma málefnum eldriborgarar inn í umræðunna. Hætta við framboð og styðja þann flokk sem ætlar að vinna að málefnum eldri borgarar og öryrkja.
Frétt af mbl.is
Framboðslistum Baráttusamtakanna hafnað
Innlent | mbl.is | 28.4.2007 | 16:22
Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma suðurs og norðurs og Suðurkjördæmis hafa hafnað framboðslistum Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja sem bárust of seint til kjörstjórnanna. Að sögn Þórunnar Guðmundsdóttur, oddvita yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis norður, hafa samtökin hafa nú sólarhringsfrest til þess að kæra úrskurðinn til landskjörstjórnar.
![]() |
Framboðslistum Baráttusamtakanna hafnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 29. apríl 2007
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson