Leita í fréttum mbl.is

Ögmundur hvað er að hjá þér?

Finnst þetta með afbrigðum! Hvað heldur Ögmundur að það hjálpi að kalla alla sem eru ekki sömu skoðunar og hann illum nöfnum. Hann hefur nú þegar úthúðað:

  • AGS og vildi ekki sjá aðstoð frá þeim
  • Norðurlöndum og sérstaklega Svíum.
  • Núverandi stjórnvöldum hér og sagði sig úr ríkisstjórn
  • ESB
  • EES
  • NATÓ

Í raun hefur hann talað gegn öllum erlendum ríkjum sem við erum í tengslum við.

Hann eins og fleiri telja að það eigi bara að vera sjálfsagt að lána okkur fé. Það væri gaman að einhver spyrði hann um hvaða þjóðum við höfum lánað athugasemda laust

Og eins væri honum gott að átta sig á því að þessar þjóðir og AGS telja nauðsynlegt að við fylgjum þeirri áætlun sem við settum fram haustið 2008 og óvart er laust Icesave eitt af því sem þar er inni.

Norðurlönd óttuðust t.d. að það fé sem þau lána okkur færi í það að greiða Icesave skuldina ef við hefðum ekki náð að semja um hana.

Skil ekki hvað er hlaupið í Ögmund. Mann sem hefur staðið í samningaviðræðum fyrir BSRB í gegnum árin. Er hann að halda því fram að hann hafi náð öllum kröfum sínum í gegn þar. Og ekki var hann með svona skítkast út í viðsemjendur sína þá. Enda er það ekki vel til þess fallið að ná samningum.


mbl.is Svíar handrukkarar Breta og Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Magnús, þú verður að skilja að ráðamenn í Svíþjóð hafa tekið frasann "þið verðið að standa við alþjóðlegar skuldbindingar" frá B&H hrátt upp og óritskoðað. Við gætum alveg eins snúið þessu við og sagt að B&H geta ekki heimtað að við samþykkjum Icesave samning sem brýtur Evrópskar reglugerðir . Það er einmitt þetta síðartalda sem Íslendingar munu kjósa um í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Kalli (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 16:40

2 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ég held að það sé ekkert að hjá Ögmundi, en ég held að það sé eitthvað mikið að hjá Steingrími og Samspillingunni. Ég tel að það sé heilbrigðara að tala máli þjóðar sinnar en reyna sífellt að herja á hana.

Ragnar Gunnlaugsson, 15.1.2010 kl. 16:51

3 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Held að þegar rykið hefur sjatnað og málin skýrast á næstu árum þá komi í ljós að Svíar hafa bara hugsa um sína banka hagsmuni nr eitt tvö og þrjú, Svíar eru í slæmum málum í t.d Lettlandi og eru þeir nú á fullu við að skattgreiðendavæða(ekki Sænskir skattgreiðendur) græðgi Sænskra bankamanna í Lettlandi og víðar.

Ef Ísland er látið taka tjónið af gallaðri tilskipunum þá er það lítill fórnkostnaður, að mati Svía, að fórna Íslandi til að bjarga sér frá bankafalli heimafyrir, ef Ísland fær sanngjarna meðferð vegna gallaðra tilskipunar, og annarra þátta sem virðast vera að koma upp á yfirborðið, þá skaðar það hagsmuni Svía í innheimtuaðgerðum sínum á t.d Lettneskum skattgreiðendum.

Hinar norðurlandaþjóðirnar taka málstað Svía vegna þess að þar liggja hagsmunir þeirra, líklega er þetta upphafið á endanum í norrænu samstarfi. eða alla vega er ríkari ástæða fyrir vestur norrænu eyþjóðirnar að standa betur saman gegn kúgunar tilburðum stærri þjóðanna.

Tæknilega hefur Ögmundur rétt fyrir sér í því að Svíar séu að handrukka fyrir Breta og Hollendinga en það gera þeir til að fá að vera í friði við að handrukka  t.d Letta.

Það er komin tími til að þjóðin standi saman sem ein og tryggi að skattgreiðendur Íslands fái sanngjarna málsmeðferð í Æsseif í anda Evrópusambandsins(Brussel viðmið).

Eggert Sigurbergsson, 15.1.2010 kl. 17:19

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

þetta er náttúrulega algjör rökleysa.

AGS segir að matið fari ekki fram nema við fáum lán hjá norðurlöndunum. 

Norðurlöndin segja að við fáum ekki lán nema AGS sé búið að klára nýtt mat. 

http://www.motifake.com/image/demotivational-poster/small/0907/obvious-life-time-human-nature-circular-reason-control-mind-demotivational-poster-1248978428.jpg

Fannar frá Rifi, 15.1.2010 kl. 17:31

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta ætti að kenna Ömundi að hugsa aðeins áður en hann ríkur upp á nef sér:

Sænski fjármálaráðherrann, Anders Borg, segir að Svíar ætli áfram að halda lánalínum til Íslands opnum þrátt fyrir allt en Svíar hafa verið hvað gagnrýnastir að undanförnu vegna ákvörðunar forseta Íslands að synja Icesave lögunum staðfestingar.

Hafa sænsk stjórnvöld gengið hvað harðast gegn því að Ísland fái áfram stuðning frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum vegna þess. Síðast í gær var haft eftir forsætisráðherra landsins, Fredrik Reinfeldt, að Svíar muni ekki lána Íslendingum meira fé fyrr en endurskoðun AGS er lokið. Þeirri endurskoðun var slegið á frest en engu að síður virðast Svíar hafa séð að sér ef marka má fjármálaráðherrann.

Segir Borg þó ennfremur að nauðsynlegt sé að Ísland haldi áfram að standa við sínar skuldbindingar en að sama skapi væri mjög mikilvægt að loka ekki fyrir lánalínur til landsins að svo stöddu. Íslendingar séu í afar erfiðri stöðu og stuðningur á slíkum tíma mikilvægur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.1.2010 kl. 18:25

6 Smámynd: Halla Rut

Gott innlegg hjá Eggert. Það er nefnilega ávallt eitthvað á bakvið ákvarðanatöku manna og þjóða.

Magnús, ég er ánægð með Ögmund en hann tilheyrir meirihluta Íslendinga sem ekki láta kúga sig.

Halla Rut , 15.1.2010 kl. 18:30

7 Smámynd: Ívar Pálsson

IMF-Ríkisstjórnin og Norðmenn/ESB eru í dæmigerðum Catch-22 þversögnum eins og lýst er á Wikipediu:

 "'Orr' was crazy and could be grounded. All he had to do was ask; and as soon as he did, he would no longer be crazy and would have to fly more missions. Orr would be crazy to fly more missions and sane if he didn't, but if he was sane he had to fly them. If he flew them he was crazy and didn't have to; but if he didn't want to he was sane and had to."

Ívar Pálsson, 15.1.2010 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband