Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú furðuleg röksemd

Ég skil ekki alveg þessi rök:

Almenningur væri almennt ekki tilbúinn að taka á sig skuldbindingar vegna fallinna banka.

Hvernig á þetta að vera rök fyrir gangrýni í Bretlandi? Hún hlýtur að átta sig á að Breskir skattgreiðendur eru búnir að borga þetta. Ég var reyndar úti þegar hún var í Silfrinu. En ég skil þetta ekki.


mbl.is Aukin gagnrýni í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Þór Strand

Það er þannig að áhætta breskra banka erlendis er veruleg og ef þeir neyða okkur í Icesave þá hafa þeir enga vörn þegar fall verður hjá þeim.

Einar Þór Strand, 17.1.2010 kl. 14:18

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Margir eru því marki brenndir að við getum valið um það hvort við borgum ICESAVE eða ekki. Slíkur málflutningur er með öllu óábyrgur og til þess eins að rugla fólk í ríminu.

Íslenska þjóðin hefur það val að samþykkja ICESAVE samninginn eða fara inn þjóðargjaldþrot og mikla fátækt þar sem okkar sambönd erlendis munu lokast hvert af öðru sökum almenns vantrausts alþjóðasamfélagsins

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.1.2010 kl. 14:51

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ekki nýtt að þú skiljir ekki, enda viltu það ekki. Bankinn notaði almannafé til að tryggja almannafé, hjá sumum reyndar. Hér er um að ræa fordæmi, sem sviptir anka ábyrgð á fjárhættuspili sínu og það er enginn borgari í bretlandi, sem vildi vera í sömu sporum og við í framtíðinni þegar brestur.  Hér er prinsippmál, réttlætis og sanngirnismál á ferð. 

Almenningur á ekki og hefur aldrei verið gert að sæta ábyrgð á gjaldþroti einkafyrirtækja. Ábyrgðar verður svo tæplega krafist eftiráí neinu máli. Við gáfum Flugleiðum ríkisábyrgð í kjölfar 911, það var fyrirfram og í eina skiptið. Sama var gert annarstaðar. Ef það félag hefði popað þá, þá hefðuum við þurft að beila það út. Ef við hefðum ekki verið búin að samþykkja það fyrirfram, þá hefði bæri okkur engin skylda til að hlaupa undir bagga. Sú aðgerð snerti raunar öryggi og smagöngur og ekki í nokkru saman að líkja.

Haltu endilega áfram að tala yfir þig kúgunina. Þú ert að verða eini aðurinn í þeim hópi fyrir utan Evrópubandalagsástandsfrúnna Hólmfríði.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.1.2010 kl. 15:14

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Hólmfríður það er ekkert sem leggur þá skyldu á ríkið að borga IceSave umfram það sem er í innistæðutryggingarsjóðnum, sem nota bene var ekki notaður gagnvart innlendum innistæðum.  Innistæðutryggingarsjóðurinn fer einfaldlega á hausinn og málið er dautt.  Það er aftur á móti þannig að margir vilja neyða okkur til að taka á okkur skuldbindingar sem eiga sér enga hliðstæðu og fer Steingrímur þar fyrir, það að reyna að koma þannig þjóðinni í kaldakol er furðulegt af stjórnmálamanni og gerist bara af tveim ástæðum. Sú fyrri er að hann hafi misst vitið (vonum það hans vegna), hin síðari er öllu alvarlegri og hún er að honum hafi verið mútað ásamt fleirum og er margt sem bendir til þess, einkum þó framkoma forkólfa stjórnarandstöðunnar sem hafa sennilega ekki fengið að vera með en vilja auðvitað fá sitt.

En niðurstaðan er að við verðum að losna við alla stjórnmálaelítuna og byrja upp á nýtt með algjörlega nýju fólki og nýju kerfi.

Einar Þór Strand, 17.1.2010 kl. 16:26

5 identicon

Hólmfríður.  Ég óttast að þú skiljir ekki eðli málsins.  Tryggingarsjóður innistæðueigenda og Landsbankinn hf eru í ábyrgð vegna þessara peninga.  Báðir eru gjaldþrota einkafyrirtæki og það er BANNAÐ að velta skuldum einkaaðila yfir á skattgreiðendur, enda veittu skattgreiðendur ekki sjálfsskuldarábyrgð á innistæðunum. 

 Ég er sammála Einari.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 17.1.2010 kl. 16:54

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gísli innistæðutrygginarsjóður var nú ekki meira einka en svo að hann var rekinn innan úr Seðlabanka og hefur hingað til verið á D hluta fjárlaga. Málið var að við tryggðum allar innistæður í Íslenskum bönkum skv. yfirlýsingum frá því í október 2008. Og óvart þá var Icesave rekið frá Íslandi.

En hvernig kemur þetta við rökunum í þessari frétt. Þ.e. 

Almenningur væri almennt ekki tilbúinn að taka á sig skuldbindingar vegna fallinna banka.

Breskur almenningur er búinn að taka ábyrgð á þessu fyrir löngu þegar Bretar greiddu út þessar innistæður. Þannig að ég held að þessi rök þessarar ágætu konu eigi varla við í þessu tilfelli. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2010 kl. 18:10

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og í yfirlýsingum ríkisstjórnar var lofað að standa á bak tryggingarsjóðinn varðan

di lán sem hann þyrft mögulega að taka. Þetta var sagt nokkru fyrir hrun. Formaður sjóðsins skv. lögum er skipaður af viðskiparáðherra. Sjóðurinn var sjálfseignarstofnun reyndar en ríkið átti þar 2 fulltrúa í stjórn og skipaði 3 fulltrúa sem var fulltrúi innistæðueignenda. Síðan var Seðlabanka falið að reka þennan sjóð skv. heimildum í lögum.

Stjórn sjóðsins skal skipuð sex mönnum til tveggja ára í senn. Viðskiptabankar tilnefna tvo

í stjórn sjóðsins, sparisjóðir einn mann, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu og aðrir sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf sameiginlega einn mann og viðskiptaráðherra tvo menn. Viðskiptaráðherra tilnefnirjafnframt fulltrúa innstæðueigenda og fjárfesta sem áheyrnaraðila með málfrelsi og tillögurétt í stjórn sjóðsins og skal hann uppfyllasömu kröfur og stjórnarmenn. Viðskiptaráðherra skipar formann stjórnar. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.

Stjórn sjóðsins er heimilt að ráða framkvæmdastjóra við sjóðinn eða semja við lögaðila umrekstur og vörslu hans. Lögaðilinn getur verið Seðlabanki Íslands og vörslufyrirtæki samkvæmt lögum um verðbréfasjóði.

Þar með átti Seðlabanka að vera fullkunnugt um stöðu þessa sjóðs vegna Icesave og gerði ekkert.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2010 kl. 18:29

8 Smámynd: Einar Þór Strand

Magnús Breskur almenningur er ekki tilbúinn að taka á sig ábyrgð á Breskum bönkum og til að geta varist því þá er ekki gott að hafa látið íslenskan almenning taka ábyrgð á Icesave.

Varðandi innistæðutryggingarsjóðinn þá hafði hann ekki ríkisábyrgð og það kemur málinu ekki við hvaða yfirlýsingar menn gáfu hann hefur ekki ríkisábyrgð.

Í raun á ég mjög erfitt með að skilja fólk sem vill setja sem mesta ábyrgð á þjóðina af þessu máli því það er þannig að við rísum aldrei undir henni hvernig sem við förum að því að reikna, en kannski er það þannig að menn halda að hungur og örbyrgð sé það besta sem til er.

Fyrir utan útrásarvíkinganna þá ber fjórflokkurinn ábyrgð á þessu og við verðum að losa okkur við hann, hvort svo sem það er sandkassaleikur umræðustjórnmála félagshyggjunnar eða aulagangur nýfrjálshyggjunnar.  Burtu með stjórnmálaelítu heimsins og leyfum venjulegu fólki að endurskipuleggja stjórnkerfið sem er orðið handónýt.

Ég veit ekki hvort menn gera sér grein fyrir því en ef við myndum reyna að greiða allar skuldir heimsins þá eru ekki til verðmæti til þess, þetta er afleiðing Excelhagfræðinnar sem allt er að drepa.

Einar Þór Strand, 17.1.2010 kl. 18:53

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Við höfnum Icesave,vonandi förum við að hittast á Austurvelli með hækkandi sól,til að skerpa á því.

Helga Kristjánsdóttir, 17.1.2010 kl. 23:10

10 identicon

Íslenska þjóðin hefur það val að samþykkja ICESAVE samninginn eða fara inn þjóðargjaldþrot og mikla fátækt þar sem okkar sambönd erlendis munu lokast hvert af öðru sökum almenns vantrausts alþjóðasamfélagsins

Hólmfríður Bjarnadóttir, 17.1.2010 kl. 14:51

Hólmfríður. Þessi hugsun hjá þér er okkur þjóðinni stórhættuleg! Ég má til með að benda þér á það að samþykki íslenska þjóðin að greiða þrælasamning Steingríms og Jóhönnu þá MUN hvort eð er verða hér mikil fátækt OG ÞJÓÐARGJALDÞROT eftir einhver ár. Ef við samþykkjum þrælalögin munum við öðlast þetta vantraust alþjóðasamfélagsins sem þú talar um. Það yrði ekki hjá því komist þar sem við höfum ekki burði til að standa undir greiðslum til breta og hollendinga, við yrðum gjaldþrota. Þá er nú betra að taka því sem að höndum ber núna, en ekki geyma þetta handa börnum okkar og barnabörnum. Þetta ástand er okkur að kenna en ekki þeim! Við verðum að segja nei við þrælalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu!!  

assa (IP-tala skráð) 17.1.2010 kl. 23:21

11 Smámynd: Einar Þór Strand

Hólmfríður að samþykkt Icesav forði okkur frá þjóðar gjaldþroti er meiri heimska en ég átti von á frá þér og algjör skortur á gagnrýninni hugsun.

Einar Þór Strand, 18.1.2010 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband