Leita í fréttum mbl.is

Góð hugleiðing varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna!

Bendi á frábæran pistill Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Ég ætla að fá lánuð nokkur brot hjá henni en hvet fólk til að lesa hana í heild. Mjög góð greining

Þar segir hún m.a.

Hér má spyrja sig þeirrar spurningar: Hversu rökrétt og heilsteypt er þessi túlkun á þýðingu „nei-sins“ ef Íslendingar eru með þessu nei-i eingöngu að hafna því að greiða skuldir íslenskra einkabanka sem störfuðu í öðrum löndum?  Annað gildi um skuldir einkabanka sem störfuðu á Íslandi. Milljörðum af skattpeningum almennings er jú varið í að endurfjármagna íslensku bankanna hér á landi.

Og síðar varðandi áhrif þess að segja nei á laugardag segir hún

Þá er því haldið fram að með því að segja „eitt stórt feitt nei“ á laugardaginn þá muni samningsstaða Íslendinga í IceSave-deilunni styrkjast.

Hér má spyrja hvort ekki sé búið að stækka íslensku samninganefndina allverulega? Er ekki með þessari túlkun verið að draga alla kosningabæra menn og konur á Íslandi að samningaborðinu?  Ef svo, þá má aftur spyrja, er það þannig sem við erum að hugsa hlutverk beina lýðræðisins, þ.e. þjóðaratkvæðagreiðslu, í framtíðinni? Vill þjóðin koma að samningagerð við aðrar þjóðir í framtíðinni með svo beinum hætti?  Ef svo, hver er þá staða fulltrúalýðræðisins á Íslandi? Ef vilji þjóðarinnar stendur til þess að koma með svo beinum hætti að sjálfri samningagerð í stað þess að framselja það vald með umboði til kjörinna fulltrúa, má þá ekki reikna með því að upplýsinga- og samskiptakostnaður í slíkum málum verði hér gífurlega hár í framtíðinni?

Og loks er þetta eftirtektavert

Mest heyrist nú í þeim sem vilja að þjóðin flykki sér á kjörstað og segi „feitt nei“ á laugardaginn. Rökin eru „nei við heimskapitalismann og aðila fjármálamarkaða“ og „já við sterkari samningsstöðu Íslendinga í IceSave“. Því fleiri sem kjósa og segja nei því betri samstaða og skýrari skilaboð út til heimsbyggðarinnar.  Í ljósi framvindunnar á undanförnum vikum og stöðu IceSave-deilunnar í dag getur ríkisstjórnin ekki með nokkru móti mælt með „já-i“ á laugardaginn. Valkosturinn er því í rauninni einn, ef menn vilja taka afstöðu í kosningunum á laugardag og það er „nei“. Aðrir valkostir eru að kjósa ekki eða skila auðu. Þá þurfa stjórnmálaskýrendur að leggjast yfir og reyna að túlka hvaða skilaboð auðir kosningaseðlar senda og hvaða skilaboð sjálf kosningaþátttakan sendir?  Hér gætu úrslit kosninganna því farið að snúast um eitthvað annað og meira en IceSave.

Þó menn vilji ekki ræða það mikið núna fyrir kosningar, þá hefur því nú verið haldið fram að „feitt nei“ á laugardaginn þurfi alls ekki að þýða að ríkisstjórnin verði að fara frá.

Hér má þó spyrja, hvaða augum munu menn vilja líta „feita nei-ið“ eftir kosningarnar?   Hverjum gæti hentað þá að túlka „feita nei-ið“ þannig að ríkisstjórnin hreinlega verði að fara frá? Annað sé bara ekki hægt að lesa út úr þessum kosningum. 

Greinin í heild


mbl.is Fjölmiðlamiðstöð opnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

NEI þýðir NEI alveg sama hvað margar bleyður sitja heima. Bara það að forseti vor hafnaði þessu ICESAVE rugli hefur nú þegar þýtt margra tuga betri samningsmöguleika fyrir þjóð okkar.

Hvenær ætlið þið ESB/ICESAVE sinnar að kyngja þessari stærstu og verstu lygi Íslandssögunnar.

Þessari lygi ykkar um að hér færi allt til andskotans ef við samþykktum ekki þetta ICESAVE rugl eins og því hefur verið stillt upp.

NEI - er fyrir frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar og réttlátri lausn ICESAVE deilunnar ! 

Gunnlaugur Ingvarrson (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 21:15

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og nei við hverju ætlar þú að kjósa! Ert þú sem sagt ánægður með ágúst lögin? Og vitandi að það er nýr samningur á leiðinni óháð kosningum. Við erum þegar marg búin að lýsa því yfir að við ætlum að veita innistæðutrygginarsjóði aðstoð og ábyrgð. Meira að segja forsetinn sagði það þegar hann synjaði lögunum staðfestingu. Hann sagði:

Verði lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu, gilda þau að sjálfsögðu áfram. Verði úrslitin á annan veg, eru engu að síður áfram í gildi lög nr. 96/2009 sem Alþingi samþykkti 28. ágúst 2009 á grundvelli samkomulags við stjórnvöld í Hollandi og Bretlandi, en þau fela í sér viðurkenningu Íslendinga á skuldbindingum sínum. Þau lög voru samþykkt á Alþingi með aðkomu fjögurra þingflokka eins og tilgreint var í yfirlýsingu forseta 2. september 2009.

Svo bið ég þig að hætta að segja að ég sé að ljúga það er ég ekki að gera. Þú mátt hafa þína skoðun ef þú nennir að kynna þér málið þá ert þú ekki að hafna Icesave með því að segja nei á laugardag. Þú ert aðeins að kjósa um lög númer 1 frá janúar 2010. Ef þau verða feld sem við gerum ráð fyirir því að betir samningar eru í boði. Þá taka gildi lög frá ágúst 2009. Þetta sagði forsetinn. Nei hefur ekkert með frelsi þjóðarinnar að gera. Og hefur engin áhrif á samningaviðræðurnar. Því Bretum og Hollendingum er löngu ljóst að við vilju betri samning og eru að semja við okkur um hann. 

Síðan bendi ég þér á það að tafirnar við að ganga frá Icesave eru búin að kosta okkur hundruð milljarða vegna þess að allri endurreisn hefur seinkað um 12 til 16 mánuði vegn þess. Lánskjör okkar hafa versnað. Gjaldeyrishöf koma í veg fyrir fjárfestingar. Það hefur verið áætlað að til lengri tíma litið megi ætla að þetta icesave dæmi kosti okkur jafnvel tugi milljarða á mánuði. Kannski um 2 til 3000 atvinnulaus vegna þess að engar framkvæmdir komast af stað. Og traust og viðskipavild upp á milljarða í útlöndum. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2010 kl. 21:41

3 identicon

Magnús Helgi Björgvinsson er augljóslega hrifinn af langlokum. Verði þér, og þér einum að góðu.

Rólegur maður (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 23:26

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Takk fyrir! Og mikil viska þetta! Og vertu bara "Rólegur maður! Ég fer ekkert á taugum þó svona mannvitsbrekkur komi með svona gáfulegar athugasemdir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2010 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband