Laugardagur, 6. mars 2010
Æji Nýja Ísland þetta er hætt að vera sniðugt!
Það væri nú ágætt að fólk sem tilheyrir þessu fína Nýja Ísland færi nú aðeins að fara yfir aðferðir sínar.
- T.d. Þau ættu að vita að Björgólfur er sá eini af útrásarvíkingum sem er gjaldþrotameðferð sjálfur. Persónulega
- Get ekki séð að þetta hjálpi heimilum eða einstaklingum í landinu nokkurn skapaðan hlut
- Þetta fólk ætti líka að átta sig á að þessir menn hafa ekki verið sakfeldir ennþá um neitt
- Aðgerðir þessara félaga í Nýju Íslandi eru ekki aðgerðir sem ég vill sjá móta hér nýtt Ísland. Þ.e. að það sé flott að einhverjir hópar misvitra manna og kvenna taki fólk af lífi án dóms og laga
- Svo væri gaman að vita hverju þessar aðgerðir eigi að skila
- Loks minni ég menn að þetta fólk á fjölskyldur, börn, barnabörn og svo framvegis. Halda menn að þessi börn finni ekki illilega fyrir þessum aðgerðum.
Það er allt annað þegar menn eru að mótmæla við fyrirtæki og stofnanir sem þeim finnst að hafi brugðist fólkinu en að ráðast svona að heimilum fólks finnst mér eitthvað sem hér á ekki að viðgangast. Sér í lagi af hópum sem eru að reyna að berjast fyrir hagsmunum heimila.
Þetta er farið að líkjast einhverju ömurlegu hugarástandi sem ég vill ekki að verið hér til frambúðar.
Fóru að heimili Björgólfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:07 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 11
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 969468
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Af hverju er hann í gjaldþrotameðferð?
Var hann kanski að taka smá skell fyrir sonargarminn?
Fórnaði sér fyrir strákskrattann?
Hamarinn, 6.3.2010 kl. 16:57
Nei ég held að eins og aðrir hafi hann tekið hærri lán en hann réð við! Og eins og aðrir Íslendingar lifið hann hærra en tekjur hans réðu við þegar allt hrundi. Hans lán voru bara hærri af því honum buðust þau.
Það er ekki Björgólfi persónulega að kenna að krónan hrundi og öll gengistryggð lán tvöfölduðust. Hvar voru t.d. þeir sem áttu að standa vörð um gjaldmiðilinn okkar? Hvar voru aðilarnir sem áttu að fylgjst með þvi að bankar yrðu ekki svo stórir að þeir gætu sett landið á hliðina? Hvar voru þeir sem fyrir löngu áttu að vera búinir að koma okkur í gjaldmiðil sem tæki á verðbólgu hér og sköpuðu okkur lægri vexti.
Björólfur er sekur um að hafa farið offari í lántökum og vitleysisgangi eins og West Ham og fleira gáfulegt. En ennþá er ekki búið að ákæra hann um lögbrot.
Magnús Helgi Björgvinsson, 6.3.2010 kl. 17:07
Hann þessi drullusokkur er sekur um græðgi, hann getur ekki kennt öðrum um heimsku og græðgi sína, hann er ekki einn sekur um hrunið, en hann á stóran þátt í því.
Hann og hans banki á EINN icesave málið sem Bjöggi litli sagði að aldrei yrði neitt vandamál.
Hvers vegna ertu að reyna að verja þessa aumingja, sem hafa margt á samvisku sinni?
Hamarinn, 6.3.2010 kl. 17:27
Tek undir með þér Magnús. Ég held að aðferðir þessa blessaða fólks séu ekki að skila neinu nema enn meiri leiðindum inn í samfélagði. Tek fram að ég er bara venjulegur maður með vísitölufjölskyldu og myntkörfulán og allt það en þessi dómstóll götunnar mun ekki hjálpa mér né neinum öðrum í þessu samfélgi.
Jón (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 17:35
Terroristar fela sig á bak við börn. Á þá ekki að koma nærri þeim?
Og heldurðu að þessi öðlingur sem um ræðir sé ekki með allt sitt á hreinu þrátt fyrir að vera í gjaldþrotameðferð. Hann er í fríu húsnæði, með frían jeppa o.s.frv. þar sem allar eignir eru skráðar á konuna hans og gjaldþrotalög heimila ekki að gengið sé í launin hans sem munu væntanlega verða í formi ellilífeyrisgreiðslna það sem eftir er.
Það var eftirlýstur fangi hér á landi um daginn. Í tengslum við það var tekið sérstaklega fram að þeir sem hjálpuðu honum eða kæmu í veg fyrir að hann næðist væru meðsekir um glæp. Skoðaðu aðeins mál útrásavíkinga í þessu samhengi og allra þeirra "saklausu" ástvina sem eru með eignir þeirra skráðar á sig.
Og að lokum. Dómar "dómstóla götunnar" eru fordæmisgefandi. Þeir kunna að koma í veg fyrir að aðrir fari sömu leið og dæmdir fírar. Orðstír deyr aldreigi!
Kristinn (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 18:14
Sammála þér nafni, ef þetta fólk verður endilega að ofsækja manninn þá má það gera það á vinnustað eða að minnsta kosti utan heimilis. Hér á Íslandi er réttarríki þar sem ALLIR eiga rétt á að vera saklausir þangað til sekt er sönnuð.
Ég veit ekki hvað þetta á að afreka annað en að angra gamlan mann sem er nú þegar hataður af samfélaginu.
Kristinn: "Terroristar fela sig á bak við börn. Á þá ekki að koma nærri þeim?" Þú þarft ekkert að skaða barnið líka. Ef maður tekur sér sinn tíma og planar geturðu náð terroristanum einum. Og orðstír "deyr" kannski ekki en orðstír er fljót að breytast. Maður getur verið hetja einn daginn, með einni rangri ákvörðun verið hataður þann næsta. Hver veit nema með nokkrum góðum ákvörðunum getur sá hinn sami verið hetja á morgun. Múgurinn er hverfull.
Magnús Eggertsson (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 18:48
Kallast þetta ofsóknir að banka upp á hjá honum í friðsamlegum tilgangi. Er ekki í lagi með þig.
Þessi maður hefur svo margt á samviskunni, að það á að stinga honum inn strax,
Hamarinn, 6.3.2010 kl. 19:24
Það var ekki bankað upp hjá honum. Það mætti þarna her manns með tilheyrandi látum. Og bendi þér á að þú hefur dómsvald og við lifum í ríki sem er fer eftir lögum og reglum. Þannig að það þarf nú fyrst að ákæra mannin, dæma og síðan áætla honum refsingu. Það er ekki þitt að gera það. Ef við ætlum að búa í siðuðu ríki þá leyfist fólki ekki að taka fólk af lífi án dóms og laga. Og mundu að þessir menn eiga fjölskyldu sem hefur ekkert til saka unnið. Og svo að Björgólfur er gjaldþrota eins og aðrir hér. Og skuldir hans lenda sennilega mest á erlendum kröfuhöfum en ekki okkur
Magnús Helgi Björgvinsson, 6.3.2010 kl. 19:42
Er það eitthvað skárra að útlendingar borgi sóðaskapinn eftir karlugluna frekar en við.
Búum við í siðuðu ríki? Finnst þér það?
Ef ég væri grunaður um eitthvað , þá sæti ég í gæsluvarðhaldi meðan rannsókn færi fram, en það þurfa þessir aumingjar ekki að gera, enda dómskerfið jafn spillt og þeir.
Fjölskyldur þeirra sem þessi karlugla hefur sett á hausinn, hafa ekkert gert af sér.
Þessi síðasta setning hjá þér er BRANDARI, og lýsir þínum hugsunarhætti vel.
Hamarinn, 6.3.2010 kl. 20:15
Allt sem þessi karlugla kemur nálægt verður að engu. Hvers vegna?
Hamarinn, 6.3.2010 kl. 20:16
Jú, hann á fjölskyldu sem hefur kannski ekkert til saka unnið, en það á ég líka og ég fæ sko fyrir ferðina vegna þess sem efnahagshrun útrásarvíkinganna og allra hinna hefur komið til leiðar. Það bitnar á konunni minni og börnunum, en kerfið er sko ekkert að hlífa þeim.
núll (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 21:13
Það eru jú margar fjölskyldur að fara illa útúr ástandinu sem ríkir hér á landi og það mjög líklegt að hann eigi stærri þátt í því en flestir en bara þótt fjölskyldan þín/þeirra er að finna fyrir ástandinu gefur þér/þeim ekki leyfi til þess að láta aðra finna fyrir því.
Magnús Eggertsson (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 22:15
Það mætir her lögfræði-þræla hjá saklausum skuldurum svika-banka og sá dómara-her lætur sér lítið muna um að bera fólk út úr hýbýlum sínum með hræðilegum afleiðingum af sundrung fjölskyldna og landflótta!
Hver ber blak af því saklausa fólki?
Ekki hámenntaðir dómarar og lögfræðingar þessa lands né lögreglu-dóms-kerfið á Íslandi!!!
Mafíu-bankarnir þykjast hafa takmarka-lausann rétt á að úthýsa heiðarlega vinnandi Íslendingum frá sínu eigin Íslandi til að gefa landið til ESB eða annara hernaðar-bandalaga.
Er Ísland ekki fyrir Íslenska ábúendur?
Við verðum að standa saman áður en neyðin verður of mikil til að við getum gert nokkurn skapaðan hlut til varnar?
Nú er tími til kominn að fólk fari að skilja raunverulegt samhengi heimsbyggðarinnar og að samstaða er árangurs-ríkari og sterkari en stríð!!! M.b.kv. Anna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.3.2010 kl. 22:50
Anna hvað eru "saklausir skuldarar"? Hvað kemur það Björólfi við? Hann á ekki bankann og hefur ekki átt bankan í nærr 2 ár. Og síðan bendi ég þér á að það hafa alltaf mætt menn frá sýslumönnum og boðið upp íbúðir. Það hefur verið miklu minna um það síðustu 2 árin en árin þar á undan. Auðvita þarf að gera eitthvað fyrir þá sem hægt er að bjarga og hinir verða að vera lausir mála þegar þeir missa íbúðir. En ekki láta eins og þetta hafi ekki komið hér fyrir áður. Ég veit það vegna þess að ég lenti í því 2x að þurfa að selja íbúðir vegna lána sem ég réð ekki við um og eftir 1990 og er enn að borga af síðustu lánunum frá því.
Svona var þetta í góðærinu
2004
2005
2006
2007
2008
Skráðar fjárnámsbeiðnir
21600
15913
19129
19758
18541
Loknar gerðir
29834
19580
17088
19731
17591
Skráðar fasteignabeiðnir
2482
2277
Seldar fasteignir
215
83
91
137
161
Seldar bifreiðar
516
378
367
419
491
Selt annað lausafé
12
50
16
193
30
Magnús Helgi Björgvinsson, 6.3.2010 kl. 23:04
Hvað skyldu Bjögga bófarnir hafa gert við aurinn sem þeir fengu fyrir bjórverksmiðjuna í Rússlandi,það er deginum ljósara að ekki króna af því kom til Íslands.
Númi (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 23:12
Veit það ekki nákvæmlega. Björólfur Thor á nú ýmislegt ennþá. En pabbi hans held ég að hafi m.a. tapað þessu í West Ham og fleiri gáfulegum fjárfestingum. Það er eins og fólk átti sig ekki á því að ef þú átt hlutfé í einherju fyrirtæki sem fer á hausinn þá eru menn að tapa eignum sínum og ef menn eiga 100 fyrirtæki þá er smávegis af þeirra peningum bundið í þeim flestum og tapast. T.d. allir sem áttu hlutfé í SPRON eru búnir að tapa því öllu. Því að fyrirtæki sem er gjaldþrota er tekið til skipta og þar með tapast allar eignir manna í því. Þó þessir labbakútar hafi fengið mikið lánað og m.a. til að kaupa Landsbankan þá töpuðu þeir sennilega flestir megninu af því sem þeir áttu. Ef þeir ættu mikið fé falið annarstaðar þá kæmi það í ljós á næstu árum. Minni menn að bæði hefur sérstakur saksóknari tök á að rekja mikið af þessu fé ef eitthvað er sem og að Rannsóknarnefnd Alþingis hefur undir höndum allar færslur sem fóru í gegnum bankana hér á landi. Sérstakur saksóknari vinnur nú að því leggja fram fyrstu kærurnar og Sýrsla Rannsóknanefndar er að koma út. Hvernig væru nú að leyfa sérhæfður aðilum að vinna úr þessu í stað þess að fólk sé að eyða tíma sínum í að hrella gamalt fólk og þeirra fjölskyldur eins og i morgun. Fólk gæti nú t.d. frekar eytt tíma sínum í bönkunum og kannað hvaða möguleika þeirra bankar eru tilbúnir að semja við þá um. Eða unnið áfram að þrýsta á bankana beint. Björgólfur er ekki eigandi, í stjórn, eða með nokkur áhrif þarna inni. Og ef hann á einhverjar eignir eftir þá eru þær kröfuhafana ekki fólksins í Nýju Íslandi.
Magnús Helgi Björgvinsson, 6.3.2010 kl. 23:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.