Leita í fréttum mbl.is

Man nú ekki eftir að kannanir MMR hafi nokkru sinni verið nálægt öðrum könnunum eða niðurstöðu kosninga!

Held að stjórnarandstaðan ætti að fara varlega í að nota þessa könnun til að túlka eitt né neitt. Veit ekki hvað er þessum hóp sem þau styðjast við í sínum könnunum en þær hafa sjaldnast mælt á sama hátt og hjá öðrum könnunar fyrirtækju eða kosningum.

En auðvita vill engin borga neitt af Icesave. Það er ekki sama að vilja og að þurfa.  Svo er náttúrulega orðið fremur lítið sem við komum til með að borga. Því bæði er eignasafn Landsbankans að styrkjast sem og að við erum að landa mun betri samning sem þýðir að vaxtagreiðslur verða mun lægri. Og miðað við að vegna fyrri samninga var verið að tala um að á þjóðinni gætu lent 180 milljarðar, þá hafa málin breyst. Vaxtagreiðslur nú fyrstu árin verða engar. Síðan breytilegir með álagi.   Og síðan tikka eignir upp í skuldina og vextir eftir þeir koma til verða af miklu minni höfuðstól. Og eignarsafnið er verðmætara en það var talið. Því erum við kannski að tala um nokkra tugi milljarða sem verða útaf eftir 6 ár. Og þá fáum við að greiða á nærri eins löngum tíma og við viljum.

Eða að niðurstaðan verði blanda af okkar tillögum og viðsemjenda.

A.M.K. er þetta ekki og hefði aldrei verið 1000 milljarðar sem lentu á þjóðinni eins og stjórnarandstaðan stimplaði inn i þjóðina síðasta vetur.


mbl.is Skýr skilaboð í Icesave-könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

60% þjóðarinnar eru mörg atkvæði...

Vel þess virði að ýta til hliðar þeim óþægilega sannleika að þessi afstaða er bæði lögfræðilega og siðferðislega afar veik.  Þess vegna sögðu lögfræðiálit sem fengin voru að ekki væri viturt að fara með þetta fyrir dómsstóla. Þess vegna taka engir þjóðarleiðtogar eða ríkisstjórnir undir þetta sjónarmið.

Hvet menn til að lesa 'rebeleconomist' bloggið sem Egill Helga vísaði til í gær, og komment við þann pistil.

Skeggi Skaftason, 10.3.2010 kl. 09:50

2 identicon

Magnús, þú lætur þetta hljóma eins og við séum hreinlega að græða á Icesave...

Mér finnst við ættum bara að sleppa því að borga Icesave, láta þá bara kæra okkur ef þeir vilja.

Svo kærum við þá fyrir hryðjuverkalögin og fyrir tuddaskap og fáum 1000 milljarða í skaðabætur.

...Ísland væri í góðum málum ef ég væri forsætisráðherra

...og Gordon Brown yrði ákærður fyrir að vera hryðjuverkamaður

Andri (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 10:03

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Magnús minn, það sem er að angra þig er ekki að MMR hafi gert þessa könnun heldur niðurstaðan. Þú veist eins og ég að ef könnunin hefði verið gerð af Capacent og niðurstaðan verið sú sama hefðir þú að sama skapi haft allt á hornum þér.

Hjörtur J. Guðmundsson, 10.3.2010 kl. 10:08

4 identicon

Það er alveg nákvæmlega sama hvernig þú hamast þjóðinni verður ekki haggað í þessu máli. Íslenskir skattgreiðendur eru ekki tilbúnir að taka að sér að ríkisvæða tapið.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 10:13

5 identicon

Vonandi dugar eignasafnid til ad eta upp skellinn. En Bretar og Hollendingar virdast ekki hafa meiri tru a thvi en thad, ad their vilja ad thjodin taki thetta a sig "in solidum", sem er full abyrgd a hverju sem thetta endar i. Tölurnar geta verid minni en talid er, en lika meiri.

Annars er fyndid hvernig borgunarsinnar reyna ad gera litid ur könnunum svo og nidurstödu kosningarinnar. Er staddur i ESB, og their segja allir sem einn: EKKI BORGA, hehe.

I stuttu mali, stjornin reyndi ad troda vonlausum og haskalegum samningum upp a thjodina og fell a thvi. NEI er algerlegt svar med russnenskum atkvaedayfirburdum. Og hid slaema sem atti ad gerast vid nei-vidbragdid, - gengishrun, greidslumatshrun, og einangrun, hefur ekki raest. Nu ber allt i einu a studningi, gengid er betra en sidasta haust, og betri samningar bjodast.

Skandall.

Jon Logi (IP-tala skráð) 10.3.2010 kl. 10:53

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jón Steinar Ragnarsson, 10.3.2010 kl. 11:02

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú hefur ekki pælt í  því að fara í standup? Þú hefur allt til þess að bera. Frábær satýra.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.3.2010 kl. 11:03

8 Smámynd: Sævar Guðbjörnsson

Ef þessi könnun hefi verið öfug það að seiga 60 prósent VILJA borga þá myndir  þú sko ekki vera að tala niður könnunina, heldur nota hana í ÞINN hag.  Varst það ekki þú sem varst að tala um þessa frægu skuldaklukku sem er svo rosalega trúverðug.  Þar sem það skiptir ekki máli hvað kemur í fréttum heldur hvað eru bestu fréttir fyrir flokkin þinn samfylkinginn þá er það augljóst að hjá þér er það FLOKKUR sem gengur fyrir ÞJÓÐ! 

Sævar Guðbjörnsson, 10.3.2010 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband