Leita í fréttum mbl.is

Jæja gott fólk þá viti þið hverjum er ekki að treysta!

Gunnar Bragi er þingflokksformaður Framsóknar. Hann væntanlega fylgir samþykktum flokksins sem sagði 2009:

Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar.

Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu

Og þetta sagði fólkið sem komst á þing í gegnum Borgarahreyfinguna. En nú er Birgitta ein af flutningsmönnum þessarar tillögu. Hvað er að marka svona fólk. Þau klárlega setja það ekkert fyrir sig að lofa því að þjóðin fái ekki  að tjá sig. Þannig að gagnrýni þeirra á t.d. ríkisstjórn núna er bara píp þau myndu haga sér nákvæmlega eins ef þau væru við völd. Það er svo auðvelt að vera ábyrgðarlaus í stjórnar andsstöðu og ljúga kjósendur fulla. 


mbl.is ESB-umsóknin verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fólk sem vill ekki sjá hvað samstarfssamningur við þróaðar nágrannaþjóðir felur í sér, er heimskt. Það vill ekki sjá og heyra, heldur þrasa áfram um mögulega kosti þess.

Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 19:50

2 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Ekki er ég framsóknarmaður en allir sem málið hafa kynnt sér vita að vandamálið var að ESB samningurinn tryggði einmitt EKKI hagsmuni almenning og atvinnulífs og síst af öllu hagsmuni sjávarútvegs og landbúnaðar.  Og til að bæta gráu ofaná svart var fullveldi Íslands og óskorað forræði okkar yfir auðlindum þjóðarinnar að veði. 

Þjóðin hlýtur að fagna því að menn eins og Gunnar (ofl.) standi við sitt.

Ragnar Kristján Gestsson, 14.6.2010 kl. 20:32

3 identicon

Ragnar; Ég fagna því fyrir þína hönd og samvisku að vera ekki framsóknarmaður. Þú verður að skrifa skírari hugsun. Við erum ekki enn í ESB, og væntanlegur samningur verður veginn og metinn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hef sterklega á tilfinningunni að íslenskur landbúnaður myndi njóta góðs af inngöngu. Einangraður bústofn frá landnámsöld fær styrki að sjálfsögðu vegna sérstöðu, svínakjöt og kjúklíngar er iðnaðarframleiðsla. Íslenskir bændur munu græða mikið á inngöngu. Ef við fáum ekki að ráða okkar veiði og stjórnun innan okkar landhelgi í skjóli veiðireinslu, þá fellir íslenska þjóði samninginn. Hræðsluáróður fyrirfram tel ég af annarlegum hvötum runnið.

Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 22:15

4 identicon

Afsaka fljótfærnislegar stafsetningavillur. Vil bæta við, að vanta eitthvað í einu búðinni á svæðinu, en hætta við vegna þess að inn í búðinni er "ðrugglega ekkert í boði", ganga burt og bölva hræðilegu ástandi og sjá enga kosti í stöðunni.

Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 22:22

5 identicon

Í ESB má kveðja m.a. eftirfarandi vegna þess að við erum ekki samkeppnishæf.

Osta og Smjör-framleiðslu.

Kjúklingarækt og eggjaframleiðslu.

Svínarækt.

Síðan missum við stjórnina yfir fiskimiðunum (barnalegt að halda að Bretar ætli að gefa okkur eitthvað í þeim efnum)

Alþingi verður að mestu óþarft og stjórnsýsla að sömuleiðis, enda ekkert að gera nema að taka upp tilskipanir frá Brussel og Haag.

Bless lýðræði!

Óskar (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband