Leita í fréttum mbl.is

Finnst að fyrst verk Alþingis á morgun eigi að vera

Finnst að fyrsta verk Alþingis á morgun eigi að vera:

  • Samþykkja þingályktunartillögu þar sem vinnubrögð bankana eru hörmuð og ef þeir nú þegar komi ekki með raunhæfar umbætur fyrir verst settu viðskiptavini sína. Þá verði settur á þá skattur sem dugi ríkinu til að koma þessu fólki til bjargar

mbl.is Tilveran verður aldrei aftur eins og hún var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð tillaga, styð hana!

ASE (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 22:55

2 Smámynd: Einar Guðjónsson

Þú ert bara ekki í raunheimum frekar en dýrðlingar þínir Jóka og  Steingrímur. Ýmis lög eru fyrir hendi en þá ná bara ekki yfir neina og eru bara hugsuð til að slá ryki í augu fólks.

Dæmi 1. Lög um greiðslufrest á sköttum vegna vanskila ( skuldafrestun í ár ) á

árinu 2009 en ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ FÁ HANN NEMA FÓLK sé með alla skatta ársins 2010 . Sá sem er í skilum árið 2010 er ekki í neinum vanda, ergo: enginn getur nýtt sér úrræðið.

Dæmi 2. Lög um aðgerðir í þágu heimila og fyrirtækja vegna banka og gjaldeyrishrunsins. Skv. þeim eiga bankar að aðlaga lán að greiðslugetu sem FME skal setja og þær eiga að vera aðgengilegar og skuldbindandi. Enn eru engar reglur settar og engin á að hafa eftirlit með þeim og engin viðurlög eru við brotum á þeim. Ergo: ekkert gerist nema bara að bankarnir gera það sem þeim sýnist. Semsagt algjörlega dauð lög þó að viljinn sé góður og fréttatilkynning þeirra hafi hljómað vel í hádegisfréttum. Þau eru bara að spóla föst í drullu. 

Þessi lög  hefði mátt nota ef þau hefðu verið hugsuð en Jóka og Grímur hafa verið á ríkisbeitinni í 30 ár og vinirnir líka því hafa þau engin tengsl við venjulegt fólk eða veruleikann. 

Einar Guðjónsson, 4.10.2010 kl. 23:11

3 Smámynd: Einar Guðjónsson

Átti að standa: engin fær greiðslufrest á sköttum ársin 2009 nema vera í skilum með alla skatta ársins 2010.

Þingsályktunartillaga hefur ekkert vægi. Það á t.d. að virkja Lögin um aðstoð við fyrirtæki í vanda ÞANNIG að bankar og Íbúðalánasjóður fari eftir þeim og svipta þá  leyfi til bankastarfsemi ef þeir brjóta lögin. Bankar mega hinsvegar brjóta lögin en læknir sem brýtur læknalögin, hann missir leyfið og fer í djeilið.

Einar Guðjónsson, 4.10.2010 kl. 23:14

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ég sem hélt að þú værir vel upplýstur fréttahaukur, nafni.  Það eru stofnanir ríkisins og sveitarfélög sem ganga hvað harðast að heimilunum með uppboðsbeiðnum.  Þessir aðilar eiga ca 50% af þeim. 

Magnús Sigurðsson, 4.10.2010 kl. 23:15

5 identicon

Veistu, það er talað og skrifað mikið en ekkert gert !

Það eru engin afrek unnin á alþingi, þar er bara talað um hvað allt er ómögulegt hjá hinum !!!

Á alþingi er ekki einn einast maður eða kona , sem virðist kunna að vinna !!!

Megnið af þessu fólki er búið að vera í vernduðu vinnuumhverfi of lengi  !!!

JR (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 23:16

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Maggi, ég er alls ekki alltaf sammála þér.

En um þessa tillögu er ég þér hjartanlega sammála!

Guðmundur Ásgeirsson, 4.10.2010 kl. 23:31

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

@Magnús Sigurðsson,

Það er aðallega verið að kvarta yfir skuldavanda vegna íbúðalána. Ef að þau eru löguð til þá ætti fólk að ráða við opinber gjöld. Og um þessi opinberugjöld hef ég ekki heyrt talað um. En væntanlega ætti fólk að ráða við opinberu gjöldin ef að greiðslubirgði þeirra er aðlöguð að greiðslugetu og til að geta framleitt sér. Eins á þá Alþíngi að koma að því að ekki sé krafist nauðungaruppboða næstu 6 mánuið á skuld fólks við ríki og sveitarfélög og á þeim tíma að semja við þá einstaklinga um greiðslur þessara skulda. Sé ekki að þær skuldir eigi að fella niður þar sem það er greiðslur til samneyslunar. Skil reyndar ekki hvernig fólk kemst í þannig skuldir þar sem útsvar er jú tekið af launum og svo er það bara fasteignagjöld sem ekki eru svo rosaleg.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.10.2010 kl. 23:41

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

@Einar Guðjónsson, Það er nú bara þannig að skattar eru allt annað en íbúðalánaskuldir. Það verður jú að taka tillit til þess en enginn á að komast hjá því að borga sína skatta. Það gildir bara allt annað um þá. En auðvita má vera sveigjanleiki í þessu.

Bendi á að þetta hefur ekkert verið í umræðunni og skv. því sem ég hef séð eru skattavanskil ekki hærri en venjulega.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.10.2010 kl. 23:45

9 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nafni, fasteignagjöld sveitarfélaga sem miðuð eru við fasteignamat bólunnar.  Íbúðalánasjóður er á ábyrgð ríkisins.  Segir þetta þér eitthvað.

Magnús Sigurðsson, 5.10.2010 kl. 07:54

10 Smámynd: Einar Guðjónsson

Magnús

Þetta var kannski dæmi um hugarfarið: Átti að hjálpa t.d. sjálfstæðum atvinnurekendum, dæmi um skatta eru t.d. virðisaukaskattur sem þarf að greiða af útgefnum reikningum þó þeir séu ekki greiddir og því voru Lög um greiðslufrest á sköttum sett. Útsvarið er dregið af kaupi fólks sem er í launavinnu t.d. hjá ríki eða sveitarfélögum ( 1 af hverjum 4 ).Lögin áttu m.a. að hjálpa smáatvinnurekendum EN Skilyrði var að ekki væru vanskil á sköttum á árinu 2010 því hjálpuðu lögin engum vegna þess AÐ sá sem skuldar árið 2009 hann er auðvitað að  reyna að greiða upp skuldir vegna 2009 fyrst. 

Öll löggjöf fasistastjórnarinnar hefur miðast við opinbera starfsmenn eða þá að hún  á að hjálpa fólki sem fætt er á hlaupársdag ÞAU ÁR sem EKKI er hlaupár.

Einar Guðjónsson, 5.10.2010 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband