Leita í fréttum mbl.is

Nokkrar milljónir þar

Þessar skemdir kosta nokkrar milljónir sem þarf þá að skera útgjöld  niður fyrir líka. Spurning hvað fólk finnst vinnast með því að skemma Alþingishúsið sjálft? Hvað fólk græddi á að skemma ráðherrabíla og bíla þingmanna? En þetta finnst fólk svo gaman. Líka spurning hvað fólk fékk út úr því að brenna bekki sem Reykjavíkurborg á?


mbl.is Yfir 30 rúður brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála!!

Jón Grétar Þórsson (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 00:59

2 identicon

Og hvað ætli hagstjórnarmistök þessarar ríkisttjórnar kosti á degi hverjum? endalausar skattahækkanir og lélegar ákvarðanir sem allar hækka lánavísitöluna sem og verðbólgu. Eithvað kostar það á hverjum degi. Hverjum er ekki sama um nokkrar rúður þegar hægt er að fá almennilegt fólk utan stjórnmálanna til þess að stjórna þessu landi!

Jón Helgi (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 01:01

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað bætir það fyrir mistök stjórnvalda að eyðleggja eigur okkar. Og sérstaklega hluti sem þarf að laga strax í dag eða nótt. Sem og ráðherrabíla.  Næsat viss um að flestir sem köstuðu í rúður og börðu bíla skulda ekki mikið en grípa hvert tækifæri sem bíðst til að láta eins og fífl.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.10.2010 kl. 01:06

4 identicon

Anarkí.

D (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 01:10

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona til að styðja mál mitt bendi ég næstu frétt um þetta mál:

"Skömmu áður en mótmælin leystust upp um miðnætti í nótt grýttu ungir mótmælendur eggjum og öðru lauslegu, að því er virtist grjóti, að lögreglu, og höfðu uppi ókvæðisorð um laganna verði. Tveir menn reyndu að rífa upp garðbekk til að bera á bálið en gátu svo ekki borið hann alla leið."

Og í sömu frétt

"Einn benti á Alþingishúsið og spurði hver myndi borga þrifin. Skammt frá var hópur unglinga úr mótmælunum fyrir utan Café París og virtist sem þeir væru ekki vissir um hvað þeir ættu að taka til bragðs. Þeir voru svo á bak og burt skömmu síðar."

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.10.2010 kl. 01:13

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Því miður eru alltaf einhverjir einstaklingar sem ekki geta hamið sig og nýta sér friðsöm mótmæli til að fá útrás fyrir skemmdarfýknina. Þetta eru fáir einstaklingar og ekki hægt að dæma fjöldann vegna þeirra.

Hitt er svo annað mál að þjóðin er búin að fá nóg, þegar um 8000 manns mæta til að mótmæla segir sig sjálft að stjórnvöld verða að taka tillit til þessa fólks.

Gunnar Heiðarsson, 5.10.2010 kl. 02:00

7 Smámynd: Sigurður Helgason

Þetta eru smáaurar MAGNÚS minn,,,, ekki meira en utanlands ferð ráðherra sem geta sofið heima hjá sér 

Svo er þetta atvinnuskapandi er það ekki sem ríkistjórnin vill meiri atvinnu handa fólkinu  

Sigurður Helgason, 5.10.2010 kl. 02:10

8 Smámynd: Árni Halldórsson

Fyndið væl yfir þessu. Þetta er hagvöxtur, meiri atvinna, meira efni, fleiri verk að vinna í landi 20 þúsund atvinnulausra manna. Og kostar svo ekki mikið miðað við þann ávöxt sem þetta starf leiðir af sér, það er að koma þessari ríkisstjórn frá.

Árni Halldórsson, 5.10.2010 kl. 04:28

9 identicon

Nákvæmlega það sem ég var að hugsa, skemmdarvargar sem er skítsama þótt skattpeningar okkar fari í að taka til eftir þá í stað þess að t.d. greiða fyrir velferðarkerfið. Á sama tíma og fólk á ekki pening fyrir mat er eitthvað lið að henda mat í kringum sig. Þetta lið ætti að skammast sín. Þeim væri nær að setja matinn í poka og fara með hann til mæðrastyrksnefndar eða einhverra hjálparstofnanna!

Ég styð hins vegar heilshugar friðsöm mótmæli - fólk sem ber á bumbur, veifar spjöldum og gerir hróp að óhæfum þingmönnum - en þeir sem henda grjóti og skemma eiga að skammast sín. Ég lærði strax í æsku að grjótkast væri ólíðandi! 

Guðrún (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 10:16

10 identicon

Ætli þetta nái nokkuð klukkutíma launum skilanefndar, annars ef þetta verður til þess að hreyfa við liðinu niðri á þingi þá er þetta lítill fórnarkostnaður.

Bjöggi (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 11:00

11 identicon

Blessaður vertu.. þetta er atvinnuskapandi.

runar (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 13:37

12 Smámynd: SeeingRed

Þessir örfáu einstaklingar sem fá útrás fyrir skemmdarfýsn og reiði sína segir ekkert um þorra mótmælenda.

SeeingRed, 5.10.2010 kl. 18:05

13 identicon

Er ekki ad maela med skemmdarverkum EN er thetta ekki edlileg útrás fólks sem er í mikilli neyd einungis vegna spilltra stjórnmálamanna?

Thegar spillingin er ordin svo rótgróin og skadleg fólki thá á fólk ad segja frá!

Skiljanleg útrás fyrir tilfinningar fólks sem sett hefur verid út á gaddinn af gerspilltum stjórnmálaglaepamönnum.

skiljanleg reidi (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 20:07

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvað ráðherrabílana varðar var nógu slæmt að vera að eyða peningum í svona montkerrur. Hinsvegar ber að líta á þau skemmdarverk sem tækifæri til að skera niður í bifreiðakaupum ríkisins.

Hér eru nokkrar ágætis bifreiðar sem myndu henta vel undir ráðherrarassa:








Eitthvað þarf að lappa upp á þennan síðasta, en á móti kemur að hann fæst væntanlega á góðu verði. Auk þess er minni þörf á því að gera við dældir á svona bílum, þeir eru hvort eð er ekki mikið fyrir augað.

Theódór Norðkvist, 5.10.2010 kl. 20:39

15 identicon

Magnús, auðvitað á Steingrímur bara að bíða með að gera við bílinn sinn.  Eins og margir aðrir sem geta ekki látið gera við skemmdir á bílum sínum á hann bara keyra um á beygluðum bíl í smá tíma............ 

Ari (IP-tala skráð) 6.10.2010 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband