Leita í fréttum mbl.is

Ég legg til að greiðslumiðlun landbúnaðarins verði komið á.

Manni skilst að helstu áhyggjur Ásmundar Einars Daðasonar sé að ESB telji óeðlilegt að að hagsmunasamtökum séu afhentar um 500 milljónir fyrir að annast úthlutun á styrkjum okkar til bænda upp á 11 milljarða. Þeir vilja koma á sjálfstæðri ríkisstofnun sem úthlutar þessum styrkjum sem og hefur eftirlit með þeim.

 Hvað er að þessu Ásmundur? Og ég legg til óháð því hvort að við göngum í ESB að þessu kerfi verið komið á. Enda hefur fólk rætt um það í áraraðir að Bændasamtökin hafi nýtt þetta m.a. í að byggja eða halda við Bændahöllinni /Hótel Sögu. Eins þá er eðlilegt að það séu ekki þeir sem þiggja þessa styrki sem bæði semja um þá, sjá um að úthluta þeim til bænda og hafa svo eftirlit með sjálfum sér.

Þannig að ég sting upp á að einhverjir þingmenn taki sig saman um að flytja tillögu um að koma þessu kerfi hér á. Það hlýtur að vera að Alþingismenn samþykki þetta. Við erum jú að tala um meðferð á fé skattborgara.


mbl.is Hótað embættismissi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

http://www.youtube.com/watch?v=cAhiP2__B2U&feature=player_embedded#!

LIFUM AF! HORFUM Á ÞETTA VÍDEÓ! SEGJUM FRÁ! (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 00:59

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona hræðsluáróður er náttúrulega út í hött. Bendi á að þarna er verið að tala um að Írar héldu bankakerfi sínu gangandi með því að dæla í bankan þúsundum milljarða 2008 - 2009 minnir að stærsti bankinn hafi kostað skattgreiðendur um 5400 milljarða. ESB er búið að segja að þeir komi Íralandi til bjargar. Írland hefur náttúrulega verið það land í Evrópu sem þar sem efnahagslífið hefur vaxið hvað mest síðustu áratugi. Frá því að vera land með mikla fátækt og gamaldags vinnubröðg upp í að vera eins og aðrar Evrópuþjóðir.

Þeir fóru of hratt en mynni á að þeir hafa ekki enn þurft að leita á náðir AGS og telja sig komast út úr þessu þó þeir ætli ekki að leggja bankakerfinu til ótakmarkaða peninga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2010 kl. 08:50

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svo kannski rétt að benda á þessa frétt:

ESB kemur Írum til hjálpar ef þarf

 
Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir að sambandið komi Írum til hjálpar ef með þarf. Barroso sagði í gær á fréttamannafundi í Seoul í Suður Kóreu, þar sem hann situr leiðtogafund G20-ríkjanna, að Evrópusambandið fylgist grannt með ástandinu á Írlandi og sambandið hafi þau úrræði sem þarf til að koma Írum fjárhagslega til aðstoðar.

Ummæli Barroso urðu til þess að formælandi framkvæmdastjórnarinnar í Brussel varð að lýsa því sérstaklega yfir síðdegis að Írar hefðu ekki farið fram á aðstoð úr björgunarsjóði sambandsins. Við athugun Reuters fréttastofunnar meðal sérfræðinga voru tveir þriðju á því að Írar verði að leita á náðir björgunarsjóðsins fyrir lok næsta árs.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2010 kl. 09:00

4 identicon

Þetta er lygi kæri Magnús og Bloomberg er virtasta fréttastofa heim og ég held ég taki meira mark á henni en ælunni sem þú hefur eftir Baugsmiðlunum.

ESB er enginn vinur okkar. Ef við göngum í það komum við um leið í veg fyrir að komast í yfirburðastöðu sem máttugasta veldi heims, ríkast af olíu og náttúruauðlindum, í Norður Atlandshafsbandalaginu, sem er EINA lausnin, og myndi sætta stríðandi fylkingar hér á landi, með og móti ESB, með að fara bil beggja og handan við þær í senn.

Með því að tengjst ESB ertu um leið að taka á þig "skuldir " Þýskalands og gömlu nýlenduherrana, og þeir eiga sína óvini, og munu falla. Afríka er í fátækt í dag út af því skuldafangelsi sem þessi lönd halda henni í, og vildu innleiða hér með Icesave. Það er bara tímaspursmál hvenær "barbaranir koma til Rómar" og refsa henni.

Það er því viturlegast að standa einfaldlega fyrir utan hana. Í skjóli siðferðilegra yfirburða þjóða sem ekki skulda blóð og helfarir, þjóðarmorð og arðrán þjóða.

Þannig munum við lifa af yfirvofandi stríð. Og þannig fækkum við óvinum á háum stöðum, sem eiga þessum þjóðum grátt að gjalda...Það lifa ekki allir af morgunndaginn og þriðja heimstyrjöldin er á leiðinni. Farðu bara að lesa og skoða.

Norður (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 11:52

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heyrðu góði Njörður

Bloomberg var þarna að tala við 2 einstaklinga sem halda þessu fram. Það vissu allir að Írar fóru aðra leið en við í bankahruninu. Þeir kusu að halda bönkum gangandi óbreyttum með því að leggja þeim til mikið fé og voru skuldugir sjálfir fyrir. Það var jú talað um að mundurinn á stöðu okkar og þeirra væri einn stafur í nafni landsins og 6 mánuðir. ESB er síðar búið að tilkynna að Írum verði bjargað. 

Síðan bendi ég þér á stöðu okkar við erum lítil nær gjaldþrota þjóð sem stöndum hér ein á milli stórvelda. ESB og Noregur á annan veginn og Kanda og USA á hinn veginn. VIð erum með ónýta krónu, og höfum ekkert bolmagn til að verja hana. Við erum örhagkerfi en byggjum allt okkar á viðskipti við þjóðir sem eru með gjaldmiðil sem er stöðugur. Þannig að kíló af sykri t.d. getur sveiflast um 100% á einum degi hjá okkur. Auk þess sem við eru of mikið sér á mörkuðum að við njótum ekki hagræðis af öllum þeim möguleikum sem ESB býðiur upp á. En aðallega að komast í það kerfi að vera ekki með gjaldmiðil sem sígur stöðugt miðað við aðra og rýrir hér laun.

Síðan bendi ég þér á að síðast 2008 kom í ljós hversu ein við erum þegar á okkur er ráðist. Við stóðum ein og óvölduð þegar að Bretar beittu okkur hryðjuverkalögum.

Og það er skrýtið að allar aðrar þjóðir Evrópu hafa gripið til þess ráðs að sæka um aðild að ESB eftir að þær lenda í þeirri stöðu sem við erum í núna. Við höfum líka gert þetta reglulega að ganga í samstarf við önnur ríki þegar að okkur kreppir. T.d. EFTA 1970 - EES 1994 og Norðulandaráð nítjánhundruð sextíu og eitthvað. Og alltaf fylgdi þessu aukin hagvöxtur þó við höfum ekki kunnað að fara með hann.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2010 kl. 13:01

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Smá viðbót það þyrfi ekki nema meðal fjárfestir til að fella krónuna þegar að gjaldeyrishöftin eru tekin af.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2010 kl. 13:03

7 identicon

Bloomberg talar bara við helstu sérfræðinga heims í þessum málum. Það er ekkert slúðurblað eins og vísir-Baugur, Mogginn-íhaldið og dv-slúður.

Allir sem kafa djúpt ofan í heimsmálin vita að það kemur heimstyrjöld. Þá verður tækifærið notað að hefna fyrir eitt og annað. Ef þú stendur fyrir utan þetta samkurl, verður þér ekki hefnt fyrir syndir þeirra.

Svo eru framtíðar auðæfi hér á Norðurslóðum, orka og olía, sem restin af stríðsherrum og fyrrum nýlendum Evrópu á engan rétt á né heimtingu á. Norður Bandalagið verður höfuð heimsins ef það bara fær að verða til. Það mun fá mikinn meðbyr og hjálp frá umheiminum af háum stöðum ef það verður til, afþví þá verður lausnin á "hryðjuverkavandanum" fundinn, með að leggja allt í að styðja við olíuviðskipti úr norðri, en hryðjuverkaógnin er fjármögnuð með olíupeningum. Það er ástæða fyrir því að fjöldi fólks í Ísrael neitar að keyra bíl af "pólítískum ástæðum". Í hvert sinn sem þú setur bensínn á bílinn sem er að einhverjum hluta frá þessum löndum renna nokkrar krónur til hryðjuverkastarfsemi.

Við munum sjá eftir því að læsa okkur inni með Evrópu ef við gerum það, sem við vonandi höfum vit til að sleppa. Það væri eins og gullfalleg kona sem er orðin svo einmana hún segir já við næsta lúða og læsir sig með honum í hjónabandi. Við megum ekki vera desperat. Við verðum aldrei sigurvegarar í ESB. Við eigum betra skilið en vera einhver smápeð. Okkur er ætlað meira.

N (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 14:19

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðaðu myndbandið. Þetta er m.a. einhver framkvæmdarstjóri  Southwest sem eru skv. google eintthvað fjármálaráðgjafa fyriræki sem ég hef aldeir heyrt um. Og Bloomberg hefur nú talað við ýmsa Íslendinga sem eru nú ekki taldir þeir færustu í sínu fagi. Þessir menn eru á móti evrunni en ef þeir hefðu einhverja vikt þá held ég að þetta væri á öllu fréttastöðvum í kjölfarið.

Það vita allir að Írland er í vandræðum en þeir þakka þó fyrir enn að vera með evruna. Því að þeir hefðu t.d. ekki mátt við því að gjaldmiðill þeirra hefði hrunði um helming. Sem og að þeir fóru aðra leið en t.d. við við hrunið. Það var ákvörðun Íra ekki ESB.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.11.2010 kl. 14:50

9 identicon

Já, við stóðum ein afþví það er samsæri um að reyna að fá okkur þarna inn hvað sem tautar og raular. Heldurðu það hangi eitthvað mikið á spýtunni þegar við erum sett á lista með Al Quaeda. Ef við stöndumst þessa freistingu eru aftur á móti stærri öfl en ESB sem munu vinna með okkur að því að verða leiðandi afl í The North Atlantic Union. Þar getum við verið áhrifamikið afl, á allan hátt, en ekki eitthvað smápet sem lét nýlenduherrana gömlu hafa af sér auðlindir sínar rétt eins og Afríka og Indland forðum. Ef við stöndumst þá munum við njóta meiri virðingar í framtíðinni en Ghandi, og staða okkar mun styrkjast meðan staða Evrópubandalagsins hrakar með hverjum deginum, jafnvel enn meir en Bandaríkjunum. Það er þörf á nýju leiðandi afli í hinum Vestræna heimi, og hvað er betra til að tækla hryðjuverkaógnina en olíuveldi á Norðurslóðum? Olíuveldi með hreinanskjöld sem hefur hvorki átt aðild að arðránum á þriðja heimsþjóðum, helförinni á gyðingum, eða neinu öðru sem skrifast á reikning leiðandi þjóða Evrópusambandsins, og þeirra sem leggjast undir þeirra yfirráð.

Okkar er valið, að æða fram í fljótfærni og ótta í átt að ósigrinum, afþví við erum hrædd, eða hugsa til lengri tíma hagsmuna og til hagsmuna heimsins sem heildar, og sækja fram til Norður Atlandshafsbandalagsins, leiðandi afl friðsælla og auðugra þjóða. Hagkerfi heimsins breytist. Bankar fara á hausinn. Þjóðir verða "gjaldþrota", en raunveruleg auðæfi eru fólgin í auðlindum þjóðar, ef hún lætur ekki taka þær af sér. Afríka væri vellauðug í dag ef Evrópumenn hefðu ekki stolið þar öllu steini léttara og ráðskist þar með öll þeirra auðæfi.

Okkur var ekki ætlað að verða hundar hjá ESB.

N (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 14:51

10 identicon

Ef þú hefur aldrei heyrt talað um Southwest held ég þú verðir að lesa ansi mikið áður en þú tjáir þig meira um heimsfjármálin, væni minn. Allt í lagi, hættu bara að horfa á Bloomberg og farðu að lesa dv. Og seldu barnabörnin þín í þrældóm og berðu svo ábyrgðina þegar Styrjöldin, kafli 2, byrjar...Þú um það. En fljótfærnin mun hafa alvarlegar, og óafturkræfanlegar, afleiðingar ef fjöldinn hugsar á sömu nótum.

Ég er fjáls maður sem virði forfeður mína og afkomendur og ætla mér inn í Norður Atlandshafsbandalagið.

N (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 14:54

11 identicon

Gjaldmiðlar heimsins eru að fara að breytast. Dollarinn verður bráðum ekki lengur til, í stað hans kemur Amero. Þeir sem vita þetta ekki ættu að googla "North American Union". Amero verður sterkur gjaldmiðill og gjaldmiðlar Kína og Indlands munu líka styrkjast, en í Evrópu verður borgarastyrjöld, afþví of lítið sameinar Evrópu í raun, Evrópubandalagið var hvorki byggt á sameiginlegum menningarlegum arfi, eins og Arababandalagið verður, né nógu stórri og fullgildri grunnhugsjón, eins og Bandaríkin, og mun ekki lifa af. Evran mun hrynja. Evrópa er mjög fátæk af auðlindum og ógnað af mörgum vígstöðvum. Og það er bara gott. Við skulum fara inn í eitthvað betra frekar en sníkja í rúkandi rústum ESB.

Change (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband