Leita í fréttum mbl.is

Hverskonar dónaskapur er að kynna sig ekki?

Og hvaða fólk skirfar undir með kennitölu á síðu sem enginn er skráður fyrir? Það veit engin hver stendur að þessu né í hvaða tilgangi undirskriftir fólks verða notaðar en samt eru 1100 manns búnir að skrifa þar undir með kennitölu og alles.

Vantar bara að fólk gefi upp lykilorðin sín og kortanúmer. Er ekki í lagi með fólk.


mbl.is Undirskriftasöfnun gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algörlega sammála þér. Þetta er mikilvægt málefni og það þarf að vera til staðar fullt traust til þeirra aðila sem standa á bak við svona framtak, eins gott og framtakið nú er.

Eigandi lénsins kjosum.is eru Samtök fullveldissinna - fullvalda.is.

Jón Flón (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 11:35

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Blaðamannafundur hefur víst verið auglýstur á mánudaginn í Þjóðmenningarhúsinu þar sem væntanlega verður upplýst hverjir nákvæmlega standi að þessu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 12.2.2011 kl. 11:47

3 identicon

 

»Samstaða þjóðar gegn Icesave« eru samtök einstaklinga sem stofnuð voru til að berjast gegn þeirri lögleysu og siðferðilegu rangindum sem birtast í Icesave-kröfum Breta og Hollendinga. Samstaða hefur nú hrint af stað undirskriftasöfnun um áskorun á forseta Íslands, að staðfesta ekki ný Icesave-lög. Einnig er áskorun beint að Alþingi, að hafna öllum Icesave-ábyrgðum.

 

Ég veit að þú ert búinn að undirrita Magnús og ég þakka þér fyrir það. Einnig vil ég þakka þér fyrir að auglýsa svona vel Samstöðu okkar. Þú ert sannur Íslendingur.

http://www.kjosum.is/

Loftur Altice Þorsteinsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 11:59

4 identicon

Skv. ISNIC Lénaskrá eru Samtök fullveldissinna eigendur lénsins kjosum.is

Upplýsingar um Samtök fullveldissinna má sjá m.a. á wikkunni, http://is.wikipedia.org/wiki/Samt%C3%B6k_Fullveldissinna

Varnarþing Samtaka fullveldissinna er skráð á Klapparhlíð 36 í Mosfellsbæ. Hér er kynning á öðrum húsráðanda: http://www.svipan.is/?p=15447

Ég er hjartanlega sammála þér, Magnús Helgi. Það er frámunalegur dónaskapur að gefa ekki upp hver stendur fyrir undirskriftasöfnuninni og fólk er frámunalega vitlaust að skrifa undir án þess að vita það.

Harpa Hreinsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 12:34

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

Maggi ég geri ráð fyrir því að þú eins og aðrir lýðræðissinnar innan Samfylkingarinnar sem styðja þjóðaratkvæðagreislur að þú skrifir undir þetta -

Óðinn Þórisson, 12.2.2011 kl. 12:58

6 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Magnús, sýndu þjóðinni manndóm og skrifaðu undir.

Aðalsteinn Agnarsson, 12.2.2011 kl. 13:16

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

OK þetta eru þá loftur Altice og Jón Valur og co.  Allt í lagi að kynna sig þegar menn eru að safna undirskriftum fólks. Ekki legg ég nafn mitt við neitt sem Samtök fullveldissinna standa fyrir enda málstaður þeirra í flestum atriðum á skjön við það sem ég stend fyrir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.2.2011 kl. 13:33

8 identicon

Magnús: Þegar þú setur nafnið þitt á svona undirskriftalista þá ertu ekki að ganga í samtök þessarra manna þú er bara að staðfesta að þú sért sammála því sem stendur í þessarri ákveðnu yfirlýsingu.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 12.2.2011 kl. 14:15

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona smá abending til þeirra sem ætla að skrif þarna undir. Þá eru þeir m.a. að skrifa undir þetta sem mér finnst nú ekki mjög gáfulegt:

"Samstaða telur að Ríkissjóði Íslands beri ekki að gangast undir slíka ábyrgð og hafi lögin sín megin. Hræðsluáróður um tapaðan málstað er byggður á vanþekkingu eða tilfinningum og ætlaður til að hræða almenning.  Málið varðar gjaldþrota banka og kröfur í bú hans. Engu skiptir hvað ESA úrskurðar í málinu, ríkisábyrgð er bönnuð samkvæmt reglum EES samningsins."

Þetta finnst mér ekki gáfulegt þar sem að ESA er nú æðsta stofnun EFTA varðandi eftirlit með framkæmd EES samningsins. Og skv. starfsmanni íslenskum sem vann hjá ESA þá fara þau ekki með mál fyrir EFTA dómsstólinn nema að vera nokkuð viss um að þau hafi þar betur.

Og ef að fólk les þessa yfirlýsingu þessara samtaka sem fylgir þessari undirskriftarsöfnun þá er það að skrfia undir að ekki veriði samið við Breta og Hollendinga.

Þetta blasir ekki við en sést ef fólk les yfirlýsingu sem fylgir á kjosum.is  Sjá hér http://www.kjosum.is/index.php?option=com_content&view=article&id=2&Itemid=1

Réttara hefði verið að þeir spyrðu hvort að við ættum þá bara að gefa skít í Bretland og Holland og neyta að borga eitt né neitt. Og held að Íslenska þjóðin sé ekki svo vitlaus að trúa svona bulli.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.2.2011 kl. 21:08

10 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Maggi hafðu engar áhyggjur, síðan er bara til þess að þeir sem vilja fá þjóðaratkvæðagreiðslu geti tjáð þann ásetning á einum stað.

Það þarf ekki að fæla neinn frá þó gefa þurfi upp kennitölu. Jafnvel þó ég væri nafnlaus stórglæpamaður og fengi kennitöluna þína, hvað ætti ég þá að gera við hana? Hvað veistu nema við höfum kennitölurnar ykkar allra nú þegar hvort eð er? Vefsíðan er bara til að staðfesta hver vill vera á þessum ákveðna lista og hver ekki, þeir sem ekki vilja vera memm sleppa því einaldlega.

Ekkert bull, enga vitleysu, einfalt mál.

Skrýtið að þú skulir láta það skipta máli hver er skráður fyrir léninu á vefsíðunni. Við erum nokkrir úr þeim samtökum sem erum líka í hópnum sem stendur að kjósa.is og skráning lénsheitisins er aðeins bókhaldsatriði. (Þetta eru líka einu stjórnmálasamtökin sem eru með bókhaldið sitt í lagi og á réttum tíma, þannig að þar eru engu að vantreysta.)

Maggi, fyrst þú setur það svona fyrir þig að Samtök Fullveldissinna séu skráð fyrir léninu, þá ætla ég að birta þér áskorun: Nú skaltu gjöra svo vel og segja okkur hvaða lögaðili þyrfti að vera skráður fyrir síðunni, til þess að hún hljóti náð fyrir þínum augum. Ef þú svarar þessu án þess að snúa út úr skal ég mælast til þess að lénaskráningunni verði breytt í þá veru, bara svo þér einum líði betur, en að öðrum kosti skaltu hundur heita.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2011 kl. 23:44

11 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Og já fyrirgefðu ég gleymdi að láta þess getið að tölvukerfi síðunnar hefur verið sett upp, forritað og yfirfarið af fagmönnum. Meðal annars af óháðum sérfræðingi í öryggismálum.

Var það eitthvað fleira fyrir þig?

Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2011 kl. 23:47

12 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það er rétt að vekja athygli á því að Magnús Helgi Björgvinsson er búinn að verja hvern einasta drápsklyfjasamning sem átt hefur að skella á þjóðina vegna brasks nokkurra fjárglæpamanna.

Ef það hefði verið farið eftir hans ráðleggingum hefði þessi þó eitthvað skárri samningur aldrei náðst. Við sætum nú uppi með á bilinu 300-700 milljarða skuldabagga í viðbót við allt annað sem við höfum þurft að ganga í gegnum.

Theódór Norðkvist, 13.2.2011 kl. 04:27

13 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Já, talandi um að eyðileggja trúverðugleika sinn...

Voff Voff ! ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2011 kl. 07:27

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já ég hef varið þá! Ég taldi það mikla áhættu að hafna samningum þar sem var m.a. ákæði um að samningurinn yrði endurskoðaður ef að efnahagsforsendur stæðust ekki. Ég tel að Icesave deilurnar hafi valdið okkur ómældum skaða. Bæði hvað varðar fjárfestingar og lánsmöguleika t.d. Landsvirkjunar og OR. Sem og að þessir samningar hafa tekið allt of mikla orku frá okkur sem hægt hefði verið að nota til annarra hluta. Það kom mér á óvart að Hollendingar og Bretar fóru ekki í hart. En tel að það hafi bara verið greiðasemi hjá þeim. Ég skil yfirlýsingar Íslands um að við tryggðum allar innistæður þannig að það eigi við allar innistæður í Íslenskum bönkum þar með talið Icesave. Sem og að ég tel að andi tilskipunar EES um að ekki megi mismuna eftir þjóðerni varðandi innistæður sem og tilskipun um að þjóðum EES beri að koma upp kerfi sem tryggi innistæður í bönkum upp að 21 þúsund evrum þýði að þjóðum beri að fylgjast með að þessi trygging haldi. Og ef þær geri það ekki þá séu þær ábyrgar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.2.2011 kl. 20:23

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hunda hafa meiri trúverðuleika en margir bloggarar þannig að ég lít á þannig comment sem hrós.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.2.2011 kl. 20:24

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og að lokum. Það er að mínu áliti næsta víst að Icesave verður bæði samþykkt á þingi og í þjóðaratkvæðagreiðslu (ef til hennar kemur) þannig að ég held að menn geti nú bara slakað á og farið að snúa sér að öðru.  Held að menn ofmeti fylgið við að fella þennan samning.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.2.2011 kl. 20:27

17 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það borgaði sig augljóslega að taka þessa áhættu þannig að þú hafðir rangt fyrir þér. Sá baggi sem stefnir í að ríkið þurfi að bera (enn minni ef nýjI samningurinn verður felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu er aðeins um 10% af því sem orðið hefði með uppgjafarstefnunni.

En þakka þér fyrir að minna á að höfnun Icesave-laganna hafi tafið fyrir meiri skuldasöfnun Landsvirkjun og OR og enn meiri niðurgreiðslu heimila landsins á orku til umhverfissóða, sem þakka fyrir sig með því að eyðileggja landið.

Það var aukaafurð af sigri staðfestunnar sem ég hafði gleymt, takk fyrir að minna á það.

Theódór Norðkvist, 13.2.2011 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband