Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú eitt af því sem hægt er að kalla þetta!

Veit ekki hvað fólk vill kalla þessi gylliboð Landsvirkjunar á árum áður:

Hann sagði að í samningnum hafi falist að Landsvirkjun myndi greiða fyrir skipulagið, setja bundið slitlag á tvo vegi óviðkomandi virkjuninni, koma að vatnsveituframkvæmdum í hreppnum og bæta GSM samband í hluta hreppsins.

Þetta minnir á þegar að Indíána höfðingjum var boðið wisky og ýmis glitvarningur fyrir lönd í Ameríku. Og svipaðar aðferðir og erlend fyrirtæki nota í Afríku við að ná undir sig námuréttindum.  Eins minnir mig að sveitarstjórnarmenn hafi líka fengið laun fyrir vinnu sína varðandi aðalskipulag. Og síðar endurgreitt. En hæstiréttur dæmdi þetta löglegt.


mbl.is Segi mútur og skrifa mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Sveitarstjórnarmennirnir fengu ekki laun frá Landsvirkjun per se en hreppurinn greiddi þeim fyrir mætingu á fundi. Þeir komu oftar saman á fundi vegna skipulagsvinnunnar og fengu greitt fyrir aukafundina með peningum sem sveitarfélagið fékk frá Landsvirkjun. Svipuð vinnubrögð hafa tíðkast í Reykjavík alveg síðan vinkona Marðar  ISG hóf skuldavegferðina í Reykjavík og einkavinavæðinguna. Verktakar greiddu fyrir skipulagsvinnuna fyrir skipulagið sem þeir pöntuðu hjá Ingibjörgu en þolendur verktakaskipulagsins í Reykjavík gátu ekkert leitað nema til úrskurðarnefndar um skipulagsmál og síðan til Skipulagsstofnunar. Svo komu auðvitað beinar mútur í Reykjavík sem skilaði nýju skipulagi undrafljótt s.s. Skuggahverfi og Höfðaborg.

Einar Guðjónsson, 13.2.2011 kl. 20:40

2 Smámynd: JRJ

Á hvaða plánetu eru stuðningsmenn Samfylkingarinnar, halda þeir að það sé betra að væna fyrirtæki um mútur til að geta hafið atvinnuuppbyggingu þjóðinni til framdráttar, eða vilja þeir stöðnun þangað til þeim tekst að klára landráðið sem þeir eru að fremja með því að selja fullveldi Íslands til ESB

Usssssss skammmm

JRJ, 13.2.2011 kl. 20:55

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

 Þetta er úr frétt á eyjunni 2009: "Landsvirkjun greiddi sveitarstjórnarmönnum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 200 þúsund krónur hverjum fyrir að sitja fundi um umdeild virkjanaáform í Þjórsá."

Þetta er úr frétt á visir.is

"Þorsteinn segir að lagt hafi verið út fyrir fundarsetu og fleira sem sé umfram venjulega stjórnsýslu í sveitarfélögunum. Sama eigi við um Flóahrepps og rauninni önnur sveitarfélög, til dæmis á Austurlandi."

Sjá hér http://www.visir.is/floahreppur-fekk-einnig-greidslur-fra-landsvirkjun-vegna-skipulagsvinnu/article/2009421598018

Og hér:

"

Ingimar Karl Helgason skrifar:

Landsvirkjun greiddi fyrir fundarsetu sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, um fyrirhugaðar virkjanir í hreppnum. Hver sveitarstjórnarmaður fékk 200 þúsund krónur, segir fyrrverandi sveitarstjóri. Oddviti hreppsins staðfestir að hafa fengið greiðslur frá Landsvirkjun, í gegnum hreppinn, en er ósáttur við að vera sakaður um mútuþægni.

Landsvirkjun hefur í hyggju að smíða þrjár virkjanir í Neðri Þjórsá. Tvær þeirra, Hvamms- og Holtavirkjun, eiga að vera í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þetta þarf að setja á skipulag, sem sveitarstjórnin hefur nú samþykkt. Málið er nú í höndum umhverfisráðherra. Virkjanirnar hafa verið mjög umdeildar í hreppnum, svo sem annars staðar á Suðurlandi.

Sigurðar Jónssonar, fyrrverandi sveitarstjóra í hreppnum segir sveitarstjórnarmenn hafa þegið greiðslur frá Landsvirkjun fyrir óbókaða fundi.

Hann segir að fimm sveitarstjórnarmenn hafi fengið 200 þúsund krónur hver fyrir að sitja tíu fundi. „Landsvirkjun greiddi þennan kostnað, já," sagði Sigurður í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2.

Sigurður segir að hreppurinn hafi fengið meira frá Landsvirkjun, í allt 11 milljónir króna. Þar á meðal lögfræðikostnað. Fjölmargar athugasemdir bárust vegna fyrirhugaðra virkjana. Lögfræðikostnaðurinn einn og sér hafi numið um fimm milljónum króna, segir Sigurður.

Hann segist aðspurður ekki vilja nota orðið mútur, en segir á að hreppurinn hafi orðið við beiðni Landsvirkjunar."


Magnús Helgi Björgvinsson, 13.2.2011 kl. 21:21

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

'' í gegnum hreppinn staðfestir Oddvitinn'' . Sigurður þessi Jónsson fitnaði líka en hann hafði meira en milljón á mánuði fyrir að halda utanum þrjár skúffur við eitt skrifborð hjá  innan við  þúsund íbúum. Þykir þeir að vísu hafa fengið lítið fyrir hvern þessara funda eða 20 þúsund fyrir 2 til 4 tíma fundi sem samsvara um 14 þúsund krónum fyrir skatt eða 4. þúsund á fund. Veit ekki um nokkurn starfmann ríkisins sem færi á fund '' starfstengdan'' utan vinnutíma fyrir 4. 000.kr. Þetta er svo lítið í samanburði við það sem borgarfulltrúar og stjórnendur í Reykjavík hafa þegið síðan mútuöldin hófst þar árið 1994 að  þetta gerir eiginlega lítið úr orðinu og glæp þeirra jafn stóran og borgarfulltrúa og stjórnenda í Reykjavík.

Einar Guðjónsson, 13.2.2011 kl. 22:30

5 Smámynd: Einar Guðjónsson

Því auðvitað er glæpur þeirra miklu minni en stjórnenda og borgarfulltrúa í Reykjavík og að auki voru mútugreiðslurnar ekki uppi á borðum í Reykjavík.

Einar Guðjónsson, 13.2.2011 kl. 22:32

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Einar, þú ert búinn  að drulla yfir alla sem vilja fá það yfir sig og hina líka. Sammála í megin atriðum en sleggjudómarnir eru alveg þínir,,,,

Sindri Karl Sigurðsson, 13.2.2011 kl. 22:46

7 identicon

Ef maðurinn getur ekki sannað jafn alvarlega afsökun, þá hefur hann gerst sekur um að vega að mannorði einhvers, eða libel, sem er saknæmt athæfi sem fyrir er margra ára fangelsisvist samkvæmt íslenskum lögum. Geti hann ekki sannað þetta, ber honum að segja af sér, og sitja svo sinn dóm á Litla Hrauni.

Réttlæti (IP-tala skráð) 14.2.2011 kl. 05:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband