Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú einmitt það sem Þór Saari var að biðja aðra um að gera ekki!

Sem sagt hræðslur áróður af verstu sort. Enda virðist málflutningur Þórs miða alltaf við að hann passi vel í fréttir, en ekki endilega að hann sé réttur.

Er það ekki einmitt það sem Þór Saari og fleiri hafa verið að tala á móti að nú hefjist hræðsluáróður. Svona til að byrja með þá væntanlega er það trygginarsjóður sem væntanlega tekur lán fyrir þessu hjá ríkinu. Innistæðutrygginarsjóður greiðir þetta lán því upp ef að eignir Landsbankans duga fyrir nær öllum greiðslum sem nú er allt útlit fyrir. En ef að eitthvað vantar á þá væntanlega greiðum við þessa milljarða en ekki núna. En væntanlega verður þetta lán  og afborganir ekki fyrr en eftir nokkur ár.


mbl.is Icesave þýðir hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Tekur innistæðutryggingarsjóður væntanlega lán hjá ríkinu. Væntanlega???? Veistu það ekki fyrir víst að hann geri það. Þú vilt samþykkja icesave 3 og þá hlýtur þú að vera með það á hreinu hver það er sem ber þennan vaxtakostnað. Eru það skattgreiðendur eða er það innistæðutryggingarsjóðurinn???  Þetta skiptir nefnilega talsverðu máli.

Sigurður Sigurðsson, 1.3.2011 kl. 00:35

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Nafni Magnús er blindaður af flokksræðinu og gleymir lýðræðinu eins og svo margir þessa dagana því miður!

Sigurður Haraldsson, 1.3.2011 kl. 01:02

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Hann hlítur meyna Innistæðutryggingarsjóð, ekki eiga skattgreiðendur að borga þetta!!! Eða hvað!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 1.3.2011 kl. 01:24

4 identicon

Ja Maggi - þín þroskaþjálfalaun hljóta að vera töluvert hærri en mín :(

Ég á allavega ekkert eftir til að taka þátt í þessu rugli og er í hjarta mínu sannfærð um að fari málið fyrir dómstóla þá þurfum við ekki að borga krónu af þessu !

Anna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2011 kl. 02:14

5 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Ég spyr:

Af hverju vilja Bretar og Hollendingar fá þessa ríkisábyrgð?

Af hverju dugar þrotabúið þeim ekki?

Hvað vita þeir sem við vitum ekki?

Friðrik Hansen Guðmundsson, 1.3.2011 kl. 09:28

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Anna ég er sanfærður um að lokum þá þurfum við ekki að borga neitt þegar allar eignir gamla Landsbankans hafa verið innheimtar. Að lokum þá verða það vextirnir sem greiðast upp. Og ég er viss um að til lengda höfum við tapað milljarðatugum á þessari deilu og því sem hefur fylgt henni. Þannig met ég söðuna. Sem og að ráðgjafar ríkisstjórnarinnar bæði innlendis og erlendis mæla með því að við göngum frá þessu. Helst einhverjir sjálfskipaðir sérfræðingar sem hafa hvorki nám né þekkingu á þessum málum sem segja að við eigum að fara með þetta í dóm frekar en að taka þessum samningum.

Minni á að bæði ríkisstjórn og samninganefnd hafa haft virtar lögfræðistofur með sér í þessari vinnu.  Trúi því ekki að neinn stjórnmálamaður sé tilbúinn að skuldbinda þjóðina nema að hann telji að þetta sér besta lausnin. En aðrir googla bara þangaði til að þeir finna heimildir sem styðja sínar skoðanir og oft þá er um einhverja áhrifalausa sérlundaða menn að ræða sem tala fyrir skoðunum sem ekki njóta neins fylgis. Menn vitan í lög sem koma þessu máli ekki við eins og það séu rök í þessu máli. Menn setja upp dæmi með 50% falli krónunar og örðum hamförum til að sýna að það sé betra að halda þessum deilum áfram og svo framvegi. Sorry ég er ekki að kaupa þetta. Ég hef þá skoðun að betra sé að koma svona málum úr heiminum þó það kosti heldur en að eyða orku í svona baráttu sem engin veit hvernig endar. Sem og að ég held að við verðum mun áhugverðari kostur fyrir vönduð erlend fyrirtæki þegar betra orð fer af okkur. Í dag er myndin af fólki sem lokar eignir útlendinga hér með gjaldeyrishöftum, neitar að borga skuldir, þjóði sem afskirfaði öll erlend lán bankana upp á 10.000 milljarða, þjóð sem skrifar undir saminga en hættir svo við og svo framvegis.

Og jú Þorskaþjálfalaun mín er að minnsta kosti nóg til að ég hef aldrei haft betri kaupmátt. Ég hef á þeim komið mér á 10 árum út úr skuldum sem ég sat eftir með eftir Íbúðakaup og missi. Varð tæknilega gjaldþrota 1994 þar sem ég keypti mér íbúð í verðbólgunni 1989. Og það gerði ég með því að vera duglegur að semja við banka og þá vildu þeir allt fyrir mig gera. Erlenda lánið mitt á bílnum hvarf eftir að það var endurreiknað og þeir borguðu mér 40. þúsund.  Ég verð að segja að ég er ekki að skynja þessa kreppu nema kannski að ég er ekki sáttur við þetta fokk á bensíni í hvert skipti sem einhver prumpar einhverstaðar.

Ég vissi að allir þyrftu að leggja eitthvað á sig í ljósi kreppunar og skulda ríkisins og ennþá að minnsta kosti er þetta vel viðráðanlegt hjá mér. Takk fyrir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.3.2011 kl. 12:22

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Það eitt sem ég skil ekki hjá þér Magnús. Afhverju ætti skilanefndin að greiða ríkinu vaxtakostnaðin við samkomulagið til baka. Skilanefndin hefur eingöngu skyldum að gegna gagnvart kröfuhöfum bankans og vaxtakostnaður íslenska ríkisins fellur ekki undir þá skyldu. Má þá ekki gera þess skóna að það sem innheimtist umfram ef eitthvað verður verði skipt milli kröfuhafa bankans.

Sigurður Sigurðsson, 1.3.2011 kl. 17:09

8 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Ef neyðarlögin halda ekki þá verður hugsanlegt dómsmál varðandi Icesave smáaurar miðað við þær hamfarir sem þá hefjast og ríkið verður samstundis gjaldþrota, tapist dómsmál vegna neyðarlaganna þá verður byggð í þessu landi sjálf hætt enda ekki fræðilegur möguleiki á að þjóðin standi undir +1.200Miljörðum auk vaxta.

Okkur sem þjóð liggur nákvæmlega ekkert á og blákalt hagsmunamat er að bíða eftir niðurstöðu af tilvonandi dómsmálum voldugustu bankastofnana veraldar gegn neyðarlögunum, eini sérhagsmunahópnum sem liggur á eru ESB-liðar Samfylkingarinnar enda eru þeir dauðhræddir um að annars verði ekki hægt að ljúga þjóðina í ESB.

Ekki einu sinni ESA getur staðfest að neyðarlögin standist fyrir dómi en þeir telja það "líklegt" en sjálfsagt mundu þeir ekki láta reyna á það fyrir dómi ef þeir þyrftu að taka afleiðingunum.

Þetta frumhlaup ríkisstjórnarinnar um að þröngva Icesave í gegn þótt engin tímapressa hafi verið að hálfu B&H á eftir að reynast þjóðinni dýrt ef ekki bara banabitinn! 

Eggert Sigurbergsson, 1.3.2011 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband