Leita í fréttum mbl.is

Getur einhver skýrt fyrir mér eftirfarandi:

Nokkur atrið varðandi þessa ferð Forsetans til Páfa.

  • Ólafur Ragnar segir Guðríði fyrstu hvítu konuna sem kom til Ameríku?  Hvað hefur hann fyrir sér með það að hún hafi verið sú fyrsta?
  • Ólafur segir að hún hafi gengið síðan niður alla Evrópu að flytja Páfa sögu sína af ferðum sínum ´verstur veg.  Hvernig veit hann það? Það sem stingur mig er að hún konan á tímum sem konur voru í flestum löndum útilokaðar frá háum stöðum finnst manni hæpið að hún hafi bara gengið á fund Páfa bara sí sona.
  • Nú var hún Guðríður frá Norðulöndum/Íslandi. Talaði hún rómversku eða hvaða tungumál sem notað var þarna  niður frá.
  • Hvernig stóð á því að Páfagarður gerði ekkert með þessar upplýsingar hennar?
  • Hvernig fór kona að því að ferðast alla leið frá Íslandi niður alla Evrópu á þessum tímum? Þetta er væntanlega margra mánuði sigling, ganga eða hvaða ferðamáta sem hún notaði. Um allskonar lönd og ríki þar sem ólík tungumál eru notuð. Á hverju lifði hún á þessari ferð. Væntanlega ekki mikill farangur sem hægt var að flytja í einu gangandi eða hvernig sem menn hugsuðu þetta.

Nú er þetta nefnt í þeim fáu setningum sem til eru um þessa konu a hún farið í Suðurferð. Hvernig er síðan kominn allur þessi bálkur um að hún hafi farið til að segja Páfa ferðasögu sína? Gat hún ekki verið að fara allt annað. Nú hefur maður m.a. heyrt að víkingum í Konstantínópel þar sem þeir ferðuðust eftir ám. En kona labbandi til Páfa finnst mér frekar ótrúlegt.

Ætli Páfinn og stafsmann hans siti enn og hlæi að okkur eftir fundinn? Ætli páfinn eigi ekki í sjala - og bókasafni sínu einhver gögn um það ef hún kom þangað. Mér skilst að Bókasafn Vadikansins sé bæði mikið að vöxtum og ítarlegt.


mbl.is Forsetinn á fréttastöð páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er greinileguröfundartónn í þessum pistli Magnús. Veistu að ég skil það því forseti vor ber af öðrum ráðamönnum þjóðarinnar.

Helga Kristjánsdóttir, 5.3.2011 kl. 02:10

2 identicon

Sæll Magnús. Guðríður er fyrsta hvíta konan sem vitað er með vissu að hafi komið til Ameríku, og jafnvel fyrsta sögusögnin um slíka konu. Það getur vel verið að kona hafi komið þangað frá Evrópu 3000 fyrir Krist, en hvorki mannfræðingar né sagnfræðingar hafa neinar vísbendinga um neitt eldra en Guðríði, nema getgátur sem fáir vísindamenn taka mark á. Hillary Clinton hefur talað mjög mikið um Guðríði þessa og segir hana sína persónulegu fyrirmynd. Hún hefur haldið ræður um hana á femískum ráðstefnum víða um heim, en hún og Bill eru miklir Íslandsvinir líka. Hún er ekki sú eina sem vitnar í þessa konu. Ólafur var ekki að segja neitt frumlegt eða nýtt...

Það voru til túlkar á þessum tíma, og í öllum löndum þar sem voru til prestar og lærðir menn voru líka til menn sem töluðu latínu. Snorri Sturluson virðist til dæmis hafa talað latínu og fleiri mál. Hann virðist jafnvel hafa lesið La Divina Comedia, en það er lengri saga og ekki alveg sönnuð. Írar töluðu margir latínu. Latína var enska þess tíma.

Páfagarður á heimsins stærsta og leyndasta bókasafn. Flest það sem páfar hafa séð og upplifað ratar aldrei fyrir augu almennings. Leynd er bara þeirra policy, hefð og siðvenja. Þú getur ekki einu sinni orðið múnkur nema hjá flestum reglum nema samþykkja að leyna því ferli sem fer í gang til að þú fáir að gerast slíkur, og múnkar hafa mismunandi tign og aðgang að þekkingu. Bara þeir sem komast lengst allra eru hafa aðgang að allri þekkingu páfagarðs. Páfagarður á youtube er eitthvað algjörlega nýtt og tilheyrir bara okkar eigin undarlegu tímum, ekki sögu þeirra. Og þeir leyna alls konar litlum hlutum af ástæðum sem við skiljum flest seint.

Hvernig fór hún til Ameríku? Hefurðu lesið Íslendingasögurnar? Heldurðu menn hafi ekkert ferðast á þessum tíma?

Það er enginn að hlægja að neinum nema þér sjálfum...ef það væri ekki of sorglegt að svona fáfróður maður sitji hér útvarpandi "þekkingu" sinni sem kemur bara upp um hvað hann er illa lesinn og fáfróður, úthrópandi forseta vorn af öfund og flokkshundahætti.

PS: Ég hef farið gangandi milli landa, eða svo segi ég, þó ég hafi tekið tvo báta á leiðinni. Þetta er málvenja, og gerir afrekið engu minna að hafa stytt sér erfiðustu leiðina með bát. Og maður er miklu lengur á leiðinni til Konstantínópel en Ítalíu væni.

Víðförli (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 02:21

3 identicon

Villtu svo ekki bara vera sjálfum þér samkvæmur og sanna fyrir þér og öðrum þú sérst ekki að skrifa þessa grein af tómri óvild til forsetans með að skrifa sagnfræðingum bréf um að þeir séu klikk að segja þetta fyrstu konuna sem kom til Ameríku, og senda Hillary Clinton eitt stykki bréf að lesa fyrir Obama, um að hún sé bara rugludallur að vera að röfla um þessa konu.

Villtu svo ekki bara sýna hvað þú ert stór kall með að fylgja fordæmi Guðríðar og forsetans og fara bara sjálfur að tala við páfan um þetta, væni minn?

Víðförli (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 02:25

4 identicon

Víðförli, það má vel vera að Snorri Sturluson hafi kunnað latínu en að hann hafi lesið La Divina Commedia er hæpið. Talið er að Dante hafi samið það verk einhvern tímann á árunum 1308 til 1321.  Snorri Sturluson var drepinn í september 1241, eða 24 árum áður en Dante fæddist.

 

Guðríður er ekki fyrsta konan sem vitað er með vissu að hafi komið til Ameríku.  Það er ekki vitað með vissu að hún hafi komið þangað eða yfir höfuð að hún hafi verið til.  Það eru skiptar skoðanir á því hvert sannleiksgildi Íslendingasagnanna er og nánast enginn lítur á þær sem einhvers konar sagnfræði.

 

Það eina sem skráð er um Rómarferð Guðríðar er þessi setning í Grænlendingasögu:

 

“Og er Snorri var kvongaður þá fór Guðríður utan og gekk suður og kom út aftur til bús Snorra sonar síns og hafði hann þá látið gera kirkju í Glaumbæ.”

 

Sem sagt “fór utan og gekk suður”.  Hvaðan forseti vor hefur þá vitneskju að hún hafi gengið á fund páfa og gefið honum skýrslu um ferð sína til Ameríku hefur mér vitanlega ekki komið fram.  Því miður virðist hann enn vera í útrásargírnum sem einkenndi hann svo mjög fram að hruni.

 

Gísli (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 03:45

5 identicon

Ég vinn í söluturni. Er ég þá betri en aðrir? Nei, einmitt. Hélt ekki. Enda skiptir það engu máli.

Keli (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 05:18

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Mikill er áhugi ykkar vinstrimanna í ólafi ragnari og allt á neikvæðu hliðina - hversvegna ætli það sé

Óðinn Þórisson, 5.3.2011 kl. 09:23

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það er auðvitað ekkert vitað með vissu um meinta Guðríði.

það er ekki einu sinni hægt að fullyrða að hún hafi verið raunveruleg persóna. 

Og enn síður er hægt að fullyrða að hún hafi gert hitt og þetta eða farið hingað og þangað.

Og þó maður gefi sér að hún hafi farið til rómar, þá er hæpið að setja = við að hún hafi hitt páfa þáverandi.

þetta sem Ólafur er með er gamla 19.aldar trúin á íslandi varðandi þessar sögur.  Íslendingar voru þá mestanpart bókstafstrúar á þessi fornrít og svo skálduðu þeir bara inní sem þeim þótti hæfa best og færðu fram sem fullkomin og endanleg sannindi.  (svipað og bókstafstrúarmenn lesa Biblíu eða Kóran)

Í dag þykir túlkun eins og Ólafur er með bara brosleg og hallærisleg.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.3.2011 kl. 09:25

8 identicon

Það er ekki vitað með vissu að Móses, Abraham né Jesús Kristur hafi verið til, kæri Ómar, né um það bil fimmtungur dýrlinga kaþólsku kirkjunnar, margir telja þá einungis gamla guði í nýjum gerfum, Saint Birgit, verndardýrlingur Írlands, sem minnir skuggalega á gyðjuna keltnesku Bridget er ein af þeim ótal dýrlingum sem enginn hefur getað sannað hafi verið til. Það þýðir ekki páfinn hafi ekki áhuga á þessu fólki og taki mark á því að það sé ekki hægt að sanna það hafi verið til, frekar en meirihluta frægra manna í eldgamla daga. Og það þýðir ekki heldur að öfundsjúkir menn séu ekki að stunda árásir á forsetan á bloggi þessu af tómri flokkshundamennsku og undirlægjuhætti við sína yfirmenn. Sumir eru bara vanþakklátir.

Kári (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 22:07

9 identicon

Og það má bæta við það er auðveldara að "sanna" tilvist Guðríðar, við komust nær því, en meirihluta dýrlinga og Biblíulegra persóna sem kaþólska kirkjan trúir á. Svo má taka fram að það eru ekki bara  trúarbrögðin sem eiga við þetta vandamál að glíma. Það er alls óvíst Shakespeare hafi verið til, svo dæmi séu nefnd, þó hann sé mikilvægasti rithöfundur Englands, mögulega skrifuðu margir menn verk hans, en hann sjálfur gæti verið að eins goðsögn, um þetta deila sagnfræðingar, sem rýrir engan veginn gildi hans. Við VITUM nefnilega nánast ekkert um fortíðina, þetta eru allt mest getgátur. Ég ætti að vita það. Ég er sagnfræðingur!

Kári (IP-tala skráð) 5.3.2011 kl. 22:09

10 identicon

Er Ólafur Ragnar raunveruleg persóna? Maður efast stundum.

marat (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 01:46

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi grófa efahyggja gagnvart fornum frásögnum á lítinn sem engan rétt á sér. Og Jesús Kristur er söguleg staðreynd.

Maggi ætti að kynna sér skrif afar upplýsts læknis (ókaþólsks) sem ritað hefur margar greinar á síðustu árum í Merki krossins, tímarit kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um suðurferðir manna frá Íslandi o.fl. löndum á miðöldum, pílagrímaferðir. Það er mjög mikið kunnugt um leiðirnar, sem menn fóru helzt, og um gististaði, einkum í klaustrum, og þar finnast jafnvel nafnalistar um norræna menn sem þar höfðu gist.

(Ég get bætt við meira seinna.)

Jón Valur Jensson, 10.3.2011 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband