Leita í fréttum mbl.is

Ég legg til að Vigdís Hauksdóttur verði gert að yfirgefa Alþingi

Konan bullar bara stöðugt. Hvaða manneska lætur hafa svona eftir sér í fjölmiðlum án þess að kanna málið

„Maður hélt að þetta væri bara í svörtustu Afríku, en svona hefur þessi ríkisstjórn hagað sér. Og í raun og veru, í þessum málum sem eru búin að vera fyrir dómstólum, að þá hefur ríkisstjórnin verið að hóta dómstólum með ýmsum hætti óbeint í gegnum fjölmiðla," segir Vigdís. Þetta megi ríkisstjórnin ekki gera.

Verður manneskjan ekki að nefna nein dæmi til að styðja við málflutning sinn. Það þýðir ekki að styðjast við orð einhvers embættismanns sem er sár þar sem hann var settur af sem ríkissaksóknari í málefnum eigenda bankanna vegna þess að sonur hans var það í innsta hring.

En Vigdís ríkur í fjölmiðla af minnsta tilefni sem og í ræðustól Alþingis og þar sér maður skelfingar svip á öðrum alþingismönnum þegar það gerist því að yfirleitt fer hún þar með fleipur, misskilning og hreinlega eitthvað sem hún les á bloggum einhverstaðar og ræðir málin eins og þarf fari einhver sannleikur.

Hún er oft leiðrétt en nú á síðustu mánuðum finnst mér eins og menn leyfi henni bara að röfla og hlusti ekkert á hana.

Hún er nú fræg fyrir að gjaldfella orð eins og "landráð" og kenna starfsmönnum þingsins um mistök sín við frumvarpsgerð. Og málflutningur hennar í ESB umræðum á Alþingi voru náttalega til skammar þegar hún kom upp í tugum andsvara og sagði nákvæmlega sama hlutinn aftur og aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vigdís er langleiðinlegasti þingmaðurinn og þá er mikið sagt.Það er margt neyðarlegt á Alþingi en þetta er það neyðarlegasta.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 19:48

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú gætir þess vandlega að þegja um þá frétt frá í gær, að Valtýr Sigurðsson, fráfarandi ríkissaksóknari, gat þá ekki lengur þagað yfir þeirri gagnrýni sinni á forsætisráðfrúna, að hún hafi ítrekað skipt sér af dóms- eða réttarrannsóknarmálum með þeim hætti, sem óviðeigandi væri af hálfu framkvæmdavaldsins.

Ég hygg að lögfræðingurinn Vigdís sé miklu betur heima í þessum málum en þú, Magnús Helgi. En þú heldur náttúrlega áfram að stunda þína Samfylkingar-meðvirkni, unz yfir lýkur, geri ég ráð fyrir, þ.e.a.s. þar til síðasti Samfylkingar-geirfuglinn er horfinn af þingi. Það tekur ekki nema 6–10 ár, ef þeim tekst með sínum þjóðsvikum að gabba Icesave-klafann upp á þjóðina. Það kann ekki fótum sínum forráð, þetta fólk, en vera má, að það eygi nokkra von í því að komast á eitthvert velsældar-eftirlaunahælið fyrir aflóga stjórnmálamenn í Brussel.

Margt af því, sem frá Vigdísi kemur, er leiftrandi snilld. Þannig var t.d. um viðtal við hana á Útvarpi Sögu á 5. tímanum einhvern daginn í síðustu viku.

Þú kemst ekki með tærnar þar sem hún hefur hælana, sú valkyrja.

Jón Valur Jensson, 19.3.2011 kl. 19:49

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Svo mættu Heilög Jóhanna og Gunnarsstaða-Móri fylgja henni........  

Jóhann Elíasson, 19.3.2011 kl. 19:50

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hrafn er svo annar í bleika liðinu, sem tekur hér þátt í að rægja Vigdísi.

Jón Valur Jensson, 19.3.2011 kl. 19:53

5 identicon

Hvað segir Sigurður Líndal um málið?ndi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að saksóknarar eigi ekki að þurfa að láta ummæli ráðherra hafa nein áhrif á sig. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði í gær að Jóhanna hefði haft óbein áhrif á ákæruvaldið með ummælum sínum meðal annars um handtökur útrásarvíkinga og í máli nímenninganna.

„Ráðherrar og pólitíkusar segja nú margt og ég sé ekki að það eigi að hafa nein áhrif á ákæruvaldið eða dómarana hvað þeir eru að segja. Þeir fylgja bara sínum reglum," segir Sigurður. „Ég sé ekki alveg hvernig það hefur áhrif þó að forsætisráðherra segi eitthvað," segir Sigurður. Ríkissaksóknari og dómarar eiga að láta það sem vind um eyru þjóta. „Þeir bara gera það sem þeir telja rétt að gera og hafa stjórnskipulega heimild til þess, segir Sigurður.

Sigurður Líndal segir að full harkalegt hafi verið að ákæra fólkið fyrir árás á Alþingi í máli nímenninganna. Þó hafi verið eðlilegt að ákæra í tilfelli þeirra sem hafi verið sakaðir um að hafa bitið lögreglumenn.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 19:54

6 identicon

Magnús: 

Það átti að vera löngu búið að leggja til að Vígdís H yfirgæfi þinghúsið, ég hef marg oft lagt það til, bæði beint við hana og óbeint, en hún skilur það ekki, verðum við bara ekki að taka okkur til og bera hana út Magnús ?

Að öðru þjóðinni til heilla: Köstum Krónunni og tökum upp USA Dollar strax og göngum í EU og tökum upp € innan sex til tíu ára eða um leið og hægt er og að síðustu; massíft NEI við Iceslave 3

Kristinn J (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 19:55

7 identicon

Sæll Jón Valur! Hvað segir þú um rök Sigurðar Líndals? Mér finnst Vigdís drepleiðinleg og það er ekki rógur að segja það.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 19:58

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég var að segja Jón Valur að Vigdís ætti að kanna málið sjálf. Valtýr hélt þessu fram í gær en nefndi engin dæmi. Bendi þér á orð Sigurðar Líndals á www.visir.is í dag. þar sem hann segir m.a.

„Ráðherrar og pólitíkusar segja nú margt og ég sé ekki að það eigi að hafa nein áhrif á ákæruvaldið eða dómarana hvað þeir eru að segja. Þeir fylgja bara sínum reglum," segir Sigurður. „Ég sé ekki alveg hvernig það hefur áhrif þó að forsætisráðherra segi eitthvað," segir Sigurður. Ríkissaksóknari og dómarar eiga að láta það sem vind um eyru þjóta. „Þeir bara gera það sem þeir telja rétt að gera og hafa stjórnskipulega heimild til þess, segir Sigurður.

Veist Jón Valur að miðað við að hún sé lögfræðingur þá finnst mér með ólíkindum það sem kemur frá henni. T.d. þegar hún þrástagaðist á "Kaupmannahafnarviðmiðum ESB í umræðu um umsóknina um ESB sem hún taldi valda því að við gætum ekki sótt um því værum ekki að uppfylla þau. Þar til henni var bent á að þetta kom málinu ekki við. Bendi þér líka á þessar ályktanir sem hún dregur eftir orð Valtýs. Þ.e. að þetta sé eins og svörtustu Afríku! Og gefur í skyn að Jóhanna sé að stjórna Dómsstólum. Þetta er náttúrulega bull og þingmaður á að skammast sín fyrir þetta. Og þegar haft er eftir Valtý að "Jóhanna hafi ærst af fögnuði" þegar úrrásarvíkingar voru teknir til rannsóknar. Þá bið ég um dæmi og sýnir að Vigdís getur ekki tekið orð þessa manns það marktæk að rjúka með þau í fjölmiðla. Hún er jú Alþingismaður.

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.3.2011 kl. 20:01

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

þessi þingmaður virkar sem hálfgerður bjáni.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.3.2011 kl. 20:03

10 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Vigdís Hauks einn að okkar FÁU þingmönnum við viti á Alþingi í dag.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.3.2011 kl. 20:07

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jú, Magnús Helgi, Valtýr nefndi víst dæmi.

Hrafn, þú ert hér enn í þinni stjórnarþægð.

Svo ætti Magnús að hugleiða þessar greinar í X. kafla almennra hegningarlaga (ég tek aðeins það með, sem hann þarf sérstaklega að ígrunda ... og hugsa um leið til harla vafasamra tiltækja sumra stjórnmálamanna):

"86. gr. Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með [...] svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.

87. gr. Geri maður samband við stjórn erlends ríkis til þess að stofna til fjandsamlegra tiltækja eða ófriðar við íslenska ríkið eða bandamenn þess, án þess að verknaðurinn varði við 86. gr., þá varðar það fangelsi ekki skemur en 2 ár eða ævilangt. Sé þetta í því skyni gert að koma erlendu ríki til þess að skerða sjálfsákvörðunarrétt íslenska ríkisins á annan hátt, þá varðar það fangelsi allt að 8 árum.

91. gr. Hver sem [...] skal sæta fangelsi allt að 16 árum.

Sömu refsingu skal hver sá sæta, sem [...] kemur undan skjali [...], sem heill ríkisins eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin.

Sömu refsingu skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri.

Hafi verknaður sá, sem í 1. og 2. mgr. hér á undan getur, verið framinn af gáleysi, skal refsað með fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru fyrir hendi."

Magnús getur spurt Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing, hvað þessi X. kafli hegningarlaganna kallast.

Jón Valur Jensson, 19.3.2011 kl. 20:20

12 Smámynd: Jón Valur Jensson

PS. Svo segir maður:

Ég legg til, að Vigdísi Hauksdóttur verði gert ...

ekki: ... Vigdís Hauksdóttir ...

Jón Valur Jensson, 19.3.2011 kl. 20:23

13 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Góðan daginn! ég hlýt  að verja Vigdísi Hauksdóttur í hvívetna, þar sem að hún er að mínu viti sú eða sá þingmaður sem virkilega lætur  menn hafa það óþvegið, og rétt er hjá Jóni V að ekki minntist síðuhöfundur á að óhæfi Valtýs í málinu!!

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 20:40

14 identicon

Komið þið sælir; hér,, á Kópavogs búans síðu !

Magnús nafni - Hrafn - Kristinn J. og Ómar Bjarki !

Vitaskuld; mættuð þið þakka fyrir, að hafa, þó ekki væri, nema snefil þeirra mannkosta, sem Vigdís Hauksdóttir (Gíslasonar, Jónssonar), frá Stóru- Reykjum í Hraungerðishreppi (einum; nágranna Hreppa minna), hefir til að bera.

Vigdís er ódeig; að standa fyrir sinn Skjöld, í málafylgju allri - annað; en sagt verður, um ykkur krata luðrurnar, þegar á Hólminn er komið.

Þið eruð; ekki meiri menn en svo, að fylgja leiðsögn Elli ærrar kerlingar, sem fátt hefir til okkar samfélags lagt, nema til bölvunar einnar, ágætu drengir.

Skoðið nú ögn; hvor meira hefir til brunns að bera, hin stórláta sonar dóttir Gísla Hreppstjóra, að Stóru- Reykjum - eða kerlingar skarn það, sem ráfast, fyrir flokks nefnu ykkar, piltar.

Með beztu kveðjum; öngvu að síður - úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 20:46

15 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Hlýt að klára  það sem ég ætlaði að  segja (var  freklega truflaður  af gestum  og ýtti þá óvart á  send takkan, en svo ég klári:

"og rétt er hjá Jóni V að ekki minntist síðuhöfundur á að óhæfi Valtýs í málinu, eðli málsins samkvæmt,  hvarf  á braut, og gerði það að verkum að hann til lengdar gat ekki þagað yfir málinu og sagi sitt álit á gerðum ráðherra,"

Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 21:49

16 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

 Ekki er verra að Vigdís er falleg í ræðustól Alþingis!

Aðalsteinn Agnarsson, 19.3.2011 kl. 22:05

17 identicon

Óskar,  snýst ekkert um að  ,,fylgja hinum eða þessum þingmanninum."

Snýst um að orðræða þingmanna verður að vera í þokkalegu lagi þekkingarlega og vera haldinn  sæmilegu raunsæi og meika lágmarks sens.  það er alveg átakanlegur skortur á því þrennu hjá nefndum þinganni.  Hann er þinginu til stórskammar.  Og skil eg tæplega hvað sunnlendingum gekk til með þessari sendingu inná háttvirt alþingi.  En það eru svo sem ekki allar fagrar sendingarnar frá þeim sunnlendingum inná áðurnefnt þing.  það er eins og það sé eitthvað sérstakt markmið hjá þeim að toppa sig í ruglsendingunum.

Ok. svo þetta landráða-fetish hjá fuglum allrahanda, þá er þetta nú komið útfyrir öll velsæmismörk, þó það þyki hipp og kúl hjá apaköttunum sem hafast við á Útvarpi Sögu.

En ef menn hafa svo gaman af að bera slíkt orð á tungugóma þá - jú jú þá get eg  alveg verið landráðamaður.  Alveg eins og hvað annað.

Ef landráð eru td. að  fylgja þokkalegu raunsæi pólitískt og hafa skynsemi að leiðarljósi  til að hagur lands og þjóðar geti verið sem best tryggður á komandi árum og í framtíðinni etc.. - þá er eg einn landráðamaður.  Nó probleimó.

Ómar Bjarki Kristjánsson (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 22:21

18 identicon

Komið þið sælir; að nýju !

Ómar Bjarki !

Svo vel; þekki ég til Stóru- Reykjafólks, að það er ekki vant því, að láta frá sér fara, neinn orðhengilshátt, í allri orðræðu, svo fram komi.

Vigdís er; að öllum líkindum, of hreinskiptin og einörð, fyrir þessa sam kundu, sem Alþingi nefnist, og geldur þess, vafalaust.

Tek fram; að ég hefi ekki stutt flokk hennar, fremur en þá hina þrjá, sem ráðandi hafa verið, áratugunum saman, heldur; studdi ég þá Guðjón Arn ar, og sjóhunda- og þungavigtarsveit Frjálslynda flokksins, svo;, einnig fram komi.

Þann 9. Apríl; mun ráðast, hversu fara mun, um framtíð og heill Íslend inga, Ómar Bjarki, og enn hefir þú kost á, að turna þinni skoðun, til okkar hinna, sem ekki viljum spila djarft, með fjöregg barna okkar - barnabarna, sem annarra afkomenda, ágæti drengur.

Það er; heilmikil list, að kunna að horfa til áratuga - sem alda, eins og Kínverjar, bræður mínir hafa gert, með þeim hætti, sem kunnur er.

Ekki; að falla í skammtíma hyggju Vesturlandabúans, Ómar Bjarki, sem reynst hefir afleitlega, sem við þekkjum svo glöggt.

Þess vegna; og með tilliti, til ALLRA kringumstæðna, í nútíð - sem og framtíð, verðum við, að hafna offorsi Breta og Hollendinga, á okkar hendur, Ómar Bjarki.

Með; sízt lakari kveðjum, en þeim fyrri /

Óskar Helgi   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 22:41

19 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg skal ekkert leggja mat á Stóru-Reykjarætt út af fyrir sig en hitt er augljóst að umræddur þingmaður er eigi hæfur til setu á því því há þingi.

Með þessar kosningar tilvonandi þá snúa þær að því að forsetakjáni nokkur sem desperat  var vegna óvinsælda, datt í hug að poppa upp lúkkið með því að höfða til þjóðrembingsdrullu sem ríkjandi er hjá sumum íslenskum og í því skyni sendi hann atriði er snúa að alþjóðlegum  skuldbindingum landsins í þjóðaratkvæði.  Alveg  útúr kú.

Og umræddar alþjóðlegar skuldbindingar varða það að ríki ábyrgjast það að innstæðueigendur fá bætur ef á reynir og hefur það verið við líði í áratugi og óumdeilt fyrirkomulag.  Og jafnframt snýr það að því að Jafnræðis skuli gætt í hvívetna millum manna.

Ennfremur er þetta atriði pínötts í samhengi við skaðakostnað þann er hlaust af rústalagningu  þeirra  sjalla á landinu.  þetta er bara algjört nó case.   En sjallarnir hafa notað þetta sem rauða dulu framan í
þjóðremuheilkenni íslands og þannig beint augum innbyggjara frá afglapa og óreiðuhætti sjalla sjálfra - og þetta svínvirkar svona alveg hreint!  Íslendingar kolfalla fyrir vitleysisgangi  sjalla.  Sem svo skellihlæja að kjánaskap ykkar.  Skellihlæja.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.3.2011 kl. 23:06

20 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er drephlægilegt, að útnesjamaðurinn Ómar Bjarki með ESB- og Icesave-öfgaskoðanir sínar skuli telja sig færan um að leggja dóm á Vigdísi frænku mína og forsetann sjálfan með stráklegum hætti. Honum væri nær að draga fisk í soðið hvern virkan dag, þegar til þess viðrar, og flagga íslenzka fánanum um helgar.

Vigdís ber enga sök á þátttöku Framsóknar í fyrri stjórnum. Voru þær þó margfalt skárri en þessi amlóðastjórn sem nú er við völd og sífellt biður stjórnarandstöðuna að hjálpa sér um rétta stefnu ... fyrir utan þær einu ær og kýr, sem allt gengur út á í stjórnarbúskapnum, en þar er átt við ESB og evru. Sjá um það í 1. viðauka við þessa færslu mína.

Jón Valur Jensson, 19.3.2011 kl. 23:26

21 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Og ennfremur er allt, nákvæmlega allt, sem menn og kvinnur hafa verið að babúa um varðandi ,,ábyrgðarleysi ríkis á innstæðum" bara það.  Babú.

Sem dæmi orð norska Hyttenes um að ríkið þyrfit ekki að koma að norska sjóðnum - að það er ósköp eðlilegt.  Nojarar hafa etv. sterkasta slíkt fyrirkomulag í víðri veröld  þar sem trygging er tugi milljóna og allt vaðandi í slíkum sjóðum. þeir safna endalaust í sjóði.  Safna korni í hlöður.

Hann var bara að meina að ríkið mundi ekki þurfa að koma beint að þessu þannig séð.  Svo sterkt væri kerfið.   En etv. óbeint.  

Enda gera nojarar sér alveg grein fyrir að kerfið muni þurfa að taka lán ef í harðbakkann slær eins og þeir steita á heimasíðu sinni:

,,The Norwegian Banks' Guarantee Fund does not have sufficient personnel resources to handle crisis situations unaided. Accordingly, binding agreements have been concluded with Finance Norway (the Norwegian Financial Services Association and the Norwegian Savings Bank Association), under which access to additional resources can be provided should a crisis arise."

Þetta ,,Finance Norway" er samtök allskyns banka, sjóða og trygginga, líf og slysatrygginga og ég veit ekki hvað og hvað,  í noregi og óhugnalega sterkt apparat augljóslega og ríkið mundi aldrei láta það verða fjár vant.  Enda apparatið sennilega ígildi ríkisins uppá norska mátann.

Fólk verður að fara að átta sig á því að framsjallar rústuðu landinu hérna á allan hátt. 

Að það er alveg vandræðalegt að sjá ísl. suma halda því fram að innstæðutryggingar snúist aðeins um að koma upp útveggjum að sjóði.  þeta er kerfi.  Halló.  Scheme.  Kerfi sem samkv.evrópulögum ríki eru skuldbundin til að sjá svo um að uppfylli markmiðin.  Greiða bætur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.3.2011 kl. 00:00

22 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Stæði Jóhanna við frjálsar handfæraveiðar, færu Ómar Bjarki ofl. á skak og

leystu byggðavanda, fátæktarvanda, fjárhagsvanda og atvinnuvanda Íslendinga, engar lántökur, málið leyst og allir sáttir.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.3.2011 kl. 01:01

23 identicon

Komið þið sælir; sem fyrr !

Ómar Bjarki !

Fremur; forherðist þú, í þínum aumkunarverða einleik.

Ég gaf þér heilræði; og hugði þig mögulega ígrunda, það.

En; viljir þú ekki; víkka þinn sjóndeildarhring - og skoða betur; hjá hverjum hin raunverulega ábyrgð liggur, er það þinn vandi, ekki okkar, sem sjáum við vélum Stjórnarráðs og Alþingis; annarrs vegar - og hins vegar, Evrópusambandsins.

En; kannski skipta orðræður okkar öngvu máli, sé Þriðja Heimstyrjöldin jafnvel, í farvatninu, ágæti drengur.

Það eru nefnilega ekki; allir dagar í böggli - eins; og gamla fólkið kvað, forðum, Ómar Bjarki. 

Með; þeim sömu kveðjum samt, sem fyrr /

Óskar Helgi   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.3.2011 kl. 01:34

24 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Já, Ómar Bjarki er orðstór að vanda, segir:

"þessi þingmaður virkar sem hálfgerður bjáni."

Þessi athugasemd hans segir meira en mörg orð! 

Framsókn á engan sérstakan sess í sögunni ef tekið er tillit til ástand þess sem þjóð okkar er komin í, þeir eru sekari en margir, en það kemur núverandi þingmönnum ekkert við, allra síst Vigdísi Hauksdóttir eða aðrir þingmenn flokks hennar í dag.

Jón Valur er greinilega í essinu sínu í kvöld þegar hann svo skemmtilega tekur til orða, og ég "kvóta"

"Honum (Ómari Bjarka) væri nær að draga fisk í soðið hvern virkan dag, þegar til þess viðrar, og flagga íslenzka fánanum um helgar"

Vel sagt og sýnir orðsnilld Jóns þegar hann er í ham. 

Guðmundur Júlíusson, 20.3.2011 kl. 01:50

25 identicon

VIÐ ÞURFUM FLEIRRI SVONA JAXLA EINSOG  VIGDÍSI HAUKSDÓTTUR Á ALÞING.

Númi (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 00:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband