Leita í fréttum mbl.is

Get ekki séð að þetta myndi hjálpa nokkuð við að taka rétta ákvörðun.

Held að "Nei" sinnar hafi nú heldur betur fengið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í öllum fjölmiðlum og netinu síðustu misseri. Nú er komið nóg. Þetta gildi einnig um "Já" sinna.  Hvernig halda menn að þetta yrði. "Nei" sinnar myndu halda fram einhverjum fullyrðingum sem síðan færu næstu dagar í að sýna fram á að væru ekki á rökum reistar. Sem og að "Nei" sinnar myndu reyna að rakka niður skoðanir "Já" sinna. Það hefur komið fram að bara að senda einfalt bréf til 20 þúsund manns  í VR kostar nokkrar milljónir þannig að hér værum við að tala um kostnað upp á hundruð milljóna ef að það ætti að senda á öll heimili landsins. Þetta myndi bætast ofan á kostanað við kosningarnar sjálfar sem og að senda út hlutlausar kynningar Lagastofnunar Háskólans. 

Ef að svona efni væri sent út væri skilyrði að það efni væri yfirfarið af hlutlausum lögfræðingum og þjóðaréttarfræðingum til að taka út vitleysur sem hafa grasserað hjá báðum fylkingum og eru ekki rétt út frá lögum og reglum ef grannt er skoðað.

Það verður að muna að "Nei" sinnar sem hafa haft hæst eru leikmenn sem hafa hvorki menntun né reynslu í þessum málum og málflutningur þeirra byggist á óskhyggju, vísvitandi rangfærslum og upphrópunum sem eiga sér ekki stoð.

Nú fáum við hlutlausa kynningu og Íslenskir kjósendur gera upp hug sinn á þess að einhverjir besservissar matreyði sína skoðun ofan í fólk.

Held líka að flestir séu þegar búnir að mynda sér skoðun.


mbl.is Vilja fá að gera kynningarefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Hér koma smáupplýsingar úr raunheimum. Það kostar  á milli 2 og þrjár milljónir að senda bréf/ kynningarefni á öll heimili í landinu.

Einar Guðjónsson, 25.3.2011 kl. 13:32

2 Smámynd: ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE

Ríkisvaldið er ekki hlutlaus aðili í þessu máli, Magnús Helgi!

Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingurinn í Lagastofnun, er í þessu máli ekki "hlutlaus lögfræðingur", hann hefur a.m.k. þrívegis tekið afstöðu MEÐ Icesave-samningum: fyrst haustið 2008, svo með Icesave-I (Svavarssamningnum) og nú nýlega með Icesave-III. Hann er því EKKI óvilhallur, óhlutdrægur aðili til að fjalla um málið; krafan er, að hann verði EKKI í því verki hjá Lagastofnun!

Sjá nánar í þessari grein: Var nokkurt samráð haft við andstæðinga Icesave-III? – og um Helga Áss og Lagastofnun!

Andstæðingar Icesave-samninga treysta sér vel til að framreiða gott og skiljanegt kynningarefni um málið. Þetta er gert meðal annarra þjóða; af hverju ætti að ekki að vera hægt hér? Því fylgir sáralítill aukakostnaður, úr því að Lagastofnun á hvort sem er að senda út kynningarefni.

ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE, 25.3.2011 kl. 15:22

3 identicon

Hótar Össur að sparka þér úr vinnunni sem einka-tölvunörd/kjölturakki ef þú flytur ekki daglegar lofræður í hvert skipti og hann snýtir sér?

? (IP-tala skráð) 25.3.2011 kl. 17:56

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

"?" Össur hefur ekkert með vinnu mína að gera. Ég þekki ekki manninn og hef aldrei talað við hann.  Get ekki séð að það sé glæpur að standa með stjórnvöldum. Enda fjallar þessi pistill hér að ofan um að ég vill hlutlausa kynningu en ekki eitthvað sem er matreitt ofan í mig af Já eða Nei sinnum.

Alveg furðulegt með fólk sem heldur að allir séu í einhverju leynimakki ef það hefur skoðanir sem samrýmast stjórnvöldum.  Þau eru að mínu mati þrátt fyrir allt á þeirri einu leið sem kemur okkur út úr þessari kreppu. Þett er mín skoðun og ég áskil mér rétt til að hafa hana.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.3.2011 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband