Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 identicon

Hmmm, er þetta ekki meira og minna liðið sem kom okkur í þann skít sem við erum í? Af hverju ættum við að trúa þeim núna?

Sigurður (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 09:05

2 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Nákvæmlega Sigurður! Afstaða þessa liðs segir okkur almúganum að NEI er eina rétta svarið þann 9unda.

Eggert Sigurbergsson, 2.4.2011 kl. 09:14

3 identicon

Svo er náttúrulega einstaklega ósmekklegt að birta auglýsingu þar sem maðurinn sem var stjórnarformaður FME á meðan Icesave reikningarnir blésu út, hvetur til þess að almenningur ábyrgist klúðrið hjá honum sjálfum. Hvað næst? Sigurjón Árna og Bjöggarnir?

Sigurður (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 09:19

4 identicon

nei - nei - tökum ekki mark á þeim, gamla Ísland galar -

No (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 09:28

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

þetta er í raun ískalt hagsmunamat, eins og Tryggvi sagði.

Fólkið á myndunum veit alveg hvernig svona virkar. 

Atriði varðandi Alþjóðlegar skuldbindingar landsins virka ekkert ein og Sigmundur Davíð heldur.  Hann heldur að það dugi bara að snúa öllu á haus og gala útá feisbúkk:  Spuni, spuni etc.

Þetta snýst líka um, eins og verkfræðingrinn benti á, hvort íslendingar ætli að kjósa það að vera drullusokkar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 2.4.2011 kl. 09:35

6 identicon

Og maður á náttúrulega að treysta ísköldu hagsmunamati þessa fólks (og Tryggva Þórs). Það hefur nefninlega reynst okkur svo vel í gegnum tíðina!

Sigurður (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 09:47

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Feigum verður ekki forðað nafni.  Það er með miklum ólíkindum ef að fólk ætlar að ganga í takt við það lið sem þrammaði með íslenskt þjóðfélag fram af hengifluginu haustið 2008, eftir að þau höfðu útdeilt sjálfum sér fallhlífum.  

En að ætla að ganga í takt fram af hengifluginu í annað sinn á innan við þremur árum væri með ólíkindum og þeim mun meiri þegar það er farið fram á skilyrðislausa taktgöngu heillar þjóðar til greiðslu skulda sem glæpamenn eru að kaupa sig frá.

Magnús Sigurðsson, 2.4.2011 kl. 09:49

8 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Enginn af þessum fyrverandi ráðherrum getur komið mér til að samþykkja þetta landráðaplagg, vill ekki líka meirihluti þeirra selja fullveldið til Brussel??? Það er enn meiri ástæða til að hafna ófögnuðinum...

Ég segi NEI-ICESAVE...

Þjóðin getur ekki tekið við meiri skuldum með skuldirnar 144% af vergri landsframleiðslu fyrir ICESAVE...

Gerir svo ekkert nema að hækka þjóðarskuldirnar ef landráðaplaggið verður samþykkt...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 2.4.2011 kl. 09:52

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

,,Og maður á náttúrulega að treysta ísköldu hagsmunamati þessa fólks (og Tryggva Þórs)."

Skiptir máli hvað er sagt auðvitað.  þú metur þetta síðan sjálfur drengur!  Þú ert með ,,löggjafavald" að því er forsetahróið mælir.  þú átt ekki að láta einhver segja þér neitt í þessu máli.  þú átt að byggja á hagsmunamati.  Hvað kemur þjóð og landi best.

Eða ætlar þú kannski bara alfarið að treysta hagsmunamati Dabba Odds og Hólmsteins?  Og kjósa drullusokkastimpil yfir þjóðina!  Ha?!

Ískalt hagsmunamat Tryggva í umræddu tilfelli meikar pörfektlí sens.  það sér hvað maður með 1% hugsun eða meira.  það að segja svokallað ,,nei" innifelur í sér marga óútfyllt víxla.  Óútfyllti víxillinn sem Tryggvi benti á gæti orðið mörghundruð milljarðar.  Og þetta viljið þið endilega skrifa undir!  Óúfylltan víxil. 

Ja, þá veit fólk hvert það á að fara ef það vill fá signeraðan óútfyllta víxla! Fara bara til svokallaðs ,,nei" hóps!.  Þeir vilja alveg endilega undirrita óútfyllta víxla.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 2.4.2011 kl. 09:58

10 identicon

tjodin verdur einkvernvegin ad losa sig vid tetta skita pakk en first verdur ad sega nei

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 10:11

11 Smámynd: Óðinn Þórisson

Frjáls og fullvalda þjóð segir NEI

Óðinn Þórisson, 2.4.2011 kl. 10:23

12 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Ef þú segir JÁ við landráðaplagginu þá ertu að kalla yfir þjóðina fastar afborganir sem verða ekki bara fyrir þig. Það verður fyrir barnið þitt og barnabarn að borga ef illa fer...

Ég er nokkuð viss um að þetta "kalda mat" ásamt NEI-i  verða smápeningar og + það að við höfum í hendi okkar að málaferli skulu rekin fyrir íslenskum dómstólum.

Ef niðurstaðan verður sú að landráðaplaggiv verði samþykt þá verða öll mál sem kunna að rísa leidd til lykta fyrir breskum dómstólum og hvort treystir þú betur íslenskum dómstólum eða breskum dómstólum skipuðum af nýlenduherrum???

Ég segi líka NEI af mörgum góðum og gildum ástæðum sem ég nenni ekki að rekja hér enda á leið í háttinn eftir langa vakt...

Loddarar eru og verða loddarar það sést á þessum lista yfir fyrverandi ráðherra...

NEI þýðir NEI

Höfnum ICESAVE vegna fólksins í landinu núverandi sem ókomnum og ófæddum...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 2.4.2011 kl. 10:27

13 identicon

Mér sýnist þetta nú upp til hópa vera aldrað fólk á eftirlaunum; fólk sem þarf ekki að takast á við hrikalegar afleiðingarnar af samþykki Icesave heldur getur slakað áhyggjulaust á með sín risavöxnu ríkistryggðu ráðherraeftirlaun.

Svei attan. Og þetta lið á að sannfæra unga fólkið á Íslandi - sem á ALLT sitt undir - um að kyngja ælunni og girða niður um sig mótþróalaust? Nei, enn og aftur held ég að áróðursvél Áfram hópsins sé að skora sjálfsmark.

Birgir (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 11:57

14 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Frjálsar handfæraveiðar leysa byggða, fátæktar og atvinnuvanda

Íslendinga, ekki nýjar lántökur gjaldþrota þjóðar!

Nýtum auðugustu fiskimið í heimi á sjálfbæran hátt, ekki eins og í dag,

er miðin gefa aðeins lítið brot af eðlilegum afla!

Aðalsteinn Agnarsson, 2.4.2011 kl. 13:23

15 identicon

Þeir sem komu okkur í skítinn ættu að hafa miklar áhyggjur af því að þjóðin segi nei... Því, ef við segjum nei þá lenda þeir í enn meira klandri og við munu hengja þá þegar úr verður dæmt að þeir brutu sín eigin lög og lög EFTA/ESB.

Bara ein af ákærum ESA þarf að vera réttmæt svo að úr verði hægt að skera að við greiðum allt eins og skot, og líklega í jafnrétti við ofurtrygginguna sem var sérstaklega veitt íslendingum með neyðarlögunum.

Jonsi (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 13:46

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þarna eru nú flestir sem voru á þingi fyrir þetta brjálæði sem hófst hér upp úr 2000. Og margir þarna með miklu meiri skynsemi en framsóknarflokkurinn eins og hann leggur sig t.d. Og reyndar á það við um flesta flokka. Held t.d. að Siv sé einn sá þingmaður nú sem sýnir mesta skynsemi af þeim sam á Þingi situr. Og ábendingar hennar um óábyrga hegðun margra sam þingmanna sinna eru virkilega þarfar.

Það er sko ekkert að því að fólk sem hefur m.a. staðið um árabil í ríkisstjórn en er hætt sökum aldurs bendi á hvaða vitleysisgangur er í fólki eins og mörgum framsóknarmönnum, sjálfstæðismönnum og fleirum. Fólk sem hefur aldrei þurft að standa við öll sín stóru orð í raun.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.4.2011 kl. 14:12

17 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þarna fer hugsandi kona:

margrét pála

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.4.2011 kl. 14:42

18 identicon

Maður fær óbragð í munninn við að lesa þessa athugasemd Margrétar Pálu í auglýsingunni. "Í stað þess að þrástagast á hver réttur okkar er, þá skulum við gera gott úr öllu saman og gefast upp".

Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir,
hvar er þín fornaldar frægð, frelsið og manndáðin best?

Ekki kristallast manndáðin í ykkur "Já"-liðunum, það er nokkuð á hreinu.

Birgir (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 14:56

19 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Birgir hún segir bara alls ekki það sem þú setur í gæsalappir.  Ekki bulla! Hún segir að okkur sé það best á þessari stundu að leysa úr þessum deilum og ná eðlilegum samskiptum við aðrar þjóðir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.4.2011 kl. 15:08

20 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Fólk sem notar orðið "landráð" í þessari umræðu er búið að dæma sig úr leik. Það er ekki hægt að taka mark á slíkum sauðum.

Matthías Ásgeirsson, 2.4.2011 kl. 16:02

21 identicon

Verð að vera sammála Matthíasi, þeir sem nota orðið landráð og aðrar eins upphrópanir dæma sig úr leik

Tryggvi (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 17:01

22 identicon

Ég tek mér það bessaleyfi að birta hér pistil eftir vin minn Jón Baldur L´Orange. Þar segir allt sem segja þarf.

"Er hægt að reikna sig niður á réttlæti með reiknistokk? Í umræðunni um Icesave er gerð tilraun til þess. Það er búið að telja fólki trú um að rangt sé rétt, svart sé hvítt, vegna þess að við höfum ekki efni á öðrum valkosti. Það ku vera rétt að samþykkja ranglæti, annars munum við hafa verra af. Það rétt að samþykkja ranglæti, vegna þess að við höfum ekki efni á réttlæti. Og svo reikna menn og afreikna allar hugsanlegar og óhugsanlegar kröfur og málaferli. Óttinn hræðir gungur frá því að gera það sem satt er og rétt. En verðum við ekki stundum að staldra við og spyrja okkur þessara spurninga? Hvað segir réttlætiskenndin okkur að gera? Hvað er rétt og rangt? Er hægt að reikna sig frá ranglætinu með óttanum? "

Verum sjálfstæð og stöndumá okkar rétti. Nei þýðiir Nei.

Kveðja

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 17:10

23 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég bendi þá á móti á þessa grein á http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_adsent/thorbergur-aetla-islendingar-ad-verda-ad-drullusokkum

Þar sem segir m.a.

Margir  Íslendingar  berja sér á brjóst og segjast ekki ætla að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum.  Spurninginn 9. apríl er hinsvegar ekkert um það heldur eingöngu hvort íslenskir eða erlendir skattgreiðendur borgi innistæður Íslendinga í Landsbankanum . Ef meirihluti þjóðarinna segir nei  er það yfirlýsing um að við séum drullusokkar. Þá verður erfitt að vera stoltur af því að vera hluti af þessari þjóð.

Hann reiknar það út að vegna þess að allir Íslenskir innistæðueigendur í Landsbanka fengu sínar innistæður að fullu þá hafi verið 92 milljörðum minna í þrotabúi Landsbanka til annarra forgangskröfuhafa.

Allir vita að innlendar innistæður í LB töpuðust ekki, þrátt fyrir hrunið. Hvaðan komu þá þessir 94 milljarðar? Fjölmargir hafa haldið því fram að íslenska ríkið hafi lagt fram fjármuni til að tryggja innlendar innistæður. Það er þó fjarri öllu sanni því ekki ein einasta króna hefur runnið úr ríkissjóði vegna innistæðutrygginga. Almennir kröfuhafar greiddu innistæður Íslendinga í Kaupþingi og Glitni.  Varðandi LB dugðu ekki eignir heildareignir bankans fyrir öllum innistæðum, þó almennir kröfuhafar fái ekki krónu.  Restin til að tryggja innlendu innistæðurnar var tekin úr þrotabúinu,  því  þegar nýi Landsbankinn (NBI) var stofnaður voru öll innlend innlán, 470 milljarðar, tekin úr þrotabúinu og  færð yfir í nýja Landsbankann (NBI) en nákvæmlega jafnmikið var síðan tekið af eignum (útlánum) yfir í nýja bankann. Ríkissjóður lagði síðan eingöngu til fjármagn sem nam nauðsynlegu eigin fé bankans (um 20%  eða 112 milljarða) og á bankann að fullu. Þetta fé sem ríkið lagði fram, var því ekki tapað fé heldur eign sem hefur væntanlega ávaxtað sig vel, miðað við hagnað íslenskra banka.

Síðan bendi ég grein Friðriks Jónssonar

Fimmtu rökin eru þau að "Samfélag án ábyrgðar verður samfélag án frelsis". Þetta er flottur frasi og alveg hægt að taka undir hann. Í röksemdafærslu sinni segir Aðalsteinn enga heimild fyrir því að ríkið taki á sig skuldbindingar vegna einkafyrirtækis. Vísar hann í lög um ríkisábyrgðir þar sem segi "Ríkissjóður má aldrei takast á hendur ábyrgðarskuldbindingar, nema heimild sé veitt til þess í lögum." Hér erum við hins vegar komin að öðrum kjarna deilunnar. Að lögum er til Tryggingarsjóður innistæða og deilt er um hvort að ríkisábyrgðarskylda hvíli á því að tryggja lágmarksinnistæður. Ekki allar innistæður, heldur lágmarkið. Ísland tryggði allar innistæður allra íslenskra banka, en bara á Íslandi. Ekki annars staðar. Hámarkskröfur gætu snúist um fullt jafnræði gagnvart innstæðueigendum hér á landi.


Þetta er kjarni samningsins. Viljum við taka áhættuna á dómstólaleiðinni þar sem allt er undir? Allt eða ekkert?

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.4.2011 kl. 17:53

24 identicon

Ööö Magnús... meinar þú ekki ekkert eða ekkert?

Það er betra að sitja uppi með ekkert á okkar forsendum en skríða í duftinu fyrir ólögvörðum kröfum, yfirgangi og óréttlæti.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 20:02

25 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Merkilegur hópur þessi tuttugu fyrrverandi ráðherrar enda ALLIR ESB sinnar, þessi hópur undirstrikar bara það að Icesave er aðgangsmiðinn að ESB, jafnframt mun hópur ganga skaðlaus frá borði enda eru þeirra eftirlaun bundin lögum frá ríkinu sem kjararáð ákveður, þessi hópur er nákvæmlega sama þótt þessi samningur springi í andlitið á þjóðinni enda þurfa þeir ekki að taka þátt í því á sínum ríkisvörðu afkomutryggingu frá kjararáði!

Eggert Sigurbergsson, 3.4.2011 kl. 01:11

26 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það þykir mér hæpið að verið sé að reyna að færa rök fyrir því að ég sé búinn að dæma mig úr leik í umræðunni sökum þess að ég hafi notað orðið "landráðaplagg"...

Ástæðan fyrir þessari orðanotkun er einföld.

Það að vilja selja þjóðina í ánauð til að þræla og púla svo þjóðin geti borgað skuld sem einkafyrirtæki stofnaði til er í mínum huga og sjálfsagt margra annarra ekkert annað en landráð.

Sá helmingur þjóðarinnar sem vill samþykkja svona nokkuð þarf alvarlega að íhuga hvert hann stefnir. Þetta virðist fyrir mér vera fólk sem upp til hópa vill ekki tilheyra íslenskri þjóð.

Ég er kominn af þrælum sem hingað voru fluttir frá Írlandi og þaðan kemur líklega sá hluti í mér sem vill engann veginn verða þræll í vinnu Breta og Hollendinga, ekki frekar enn þeir Írar sem hingað voru fluttir sem þrælar á sínum tíma.

Það er líka greynilegt að JÁ liðið í þessu er líka fólk sem mundi örugglega giftast þeim aðila sem lagði þá mest í einelti í þeirri von að eineltið hætti. Það er að segja ef hægt er að nota þessa samlíkingu.

Með kveðju og von um NEI við ICESAVE

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 3.4.2011 kl. 10:54

27 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Og ekki má gleyma sjálfum Davíð Oddssyni sem „mokaði“ 300 milljörðum út úr Seðlabankanum hausti 2008 í bankana. Það var litið á slíkt að sjaldan var jafnmiklu ausið áfram til „lána“ til sérstakra lánþega bankanna.

Og svo er verið að rífast um Æseif sem talið er vera innan við 40 milljarða!

Mætti biðja um þjóðaratkvæði: Var rétt af DO að veita bönkunum 300 milljarða haustið 2008 án trygginga né viðhlítandi veða?

Einnig mætti spyrja:

Hver ber ábyrgð: Þjóðin öll, Seðlabankinn, Sjálfstæðisflokkurinn eða persónulega Davíð Oddsson?

Auðvitað á að innheimta ALLAR útistandi skuldir, líka skuldir þeirra sem stýrðu eða tengdust Landsbankanum.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.4.2011 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband