Leita í fréttum mbl.is

Hinn dæmigerði "Nei" sinni

Var að hlusta á Útvarp Sögu í morgun þar sem hringdi maður og var að segja frá því hvað "já" sinnar væru að gera þjóðinni. Hann sagði að vegna málflutnings þeirra sem vilja samþykkja Icesave væru fjölskylduboð að leysast upp og þjóðin að klofna. Menn eru svo vitlausir að þeim dettur í hug að fara með svona vitleysu í fjölmiðla. Honum datt ekki í hug að þetta gæti nú verið vegna þess að fólk væri ekki sammála og að eins væri hægt að kenna "Nei" sinnum um.

Svo koma svona morðhótanir! Verða að segja að málflutningur "Nei" fólks er með afbrigðum og fólk virðist ekki átta sig á að því að það er að gleypa vitleysur upp hvert eftir öðru og uppruninn ekki traustar heimildir. Síðan er það að blanda þjóðernisrembu inn í þetta og um leið er það að fóðra allskonar vitleysinga sem eru svo vitlausir að senda fólki morðhótanir. 

Staðreyndin er að allar stofnanir, sérfræðingar, meirihluti Alþingismanna, ríkisstjórn öll samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingar og í raun allir sem hafa látið sérfræðinga skoða málið telja að við eigum að ganga að þessum samning.

Þeir sem vilja það ekki eru leikmenn sem byggja sín fræði á hæpnum rökum sem þeir hafa grafið upp á internetinu  og eiga sér sjaldnast stoðir í raunveruleiknaum.


mbl.is Hótaði fyrrverandi ráðherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Ertu viss um að þetta sé NEI sinni Magnús ? allavega er nokkuð grafið djúpt í pokann hjá þér (vona ég) að kalla þann sem að þessu stendur "dæmigerðann" Nei sinna, var "drullusokkur" sem þú varst svo hrifinn af hjá Þorbergi, ekki nóg ?

Nei Magnús ! við getum verið beittir og harðir í rökræðunum, en hvorki Já né Nei sinnar flestir liggja á þessu plani, ona ég allavega.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 4.4.2011 kl. 17:26

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta gæti nú alveg eins verið einhver sem er að smygla sér inn í baráttuna á fölskum forsendum.  Það þekkist nú, hver man ekki eftir breska lögreglumanninum sem læddi sér ínn í hóp Saving Icelandssinna, til að njósna fyrir lögregluna.  Það mætti alveg segja mér að þetta sé fólk frá bankamafíunni sem er orðið dauðhrætt við að neiið verði ofaná. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2011 kl. 17:38

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Það er enginvegin hægt að verja svona eintakling sem svona gerir og ber að taka þetta mjög alvarlega.
Það ber að varast að fara í sleggjudóma og segja að allir NEI - sinnar séu öfgmann - það er ekki svo

Óðinn Þórisson, 4.4.2011 kl. 17:44

4 Smámynd: Pétur Harðarson

Ég á enn eftir að sjá rök frá Já sinnum. Ég hef séð upptalningu af ráðherrum og gömlum celebum sem ætla að segja já án þess að færa fyrir því gagnleg rök. Málflutningur já sinna sást síðan best í heilsíðu auglýsingu í Mogganum núna fyrir helgi. Þar var stór mynd af Jaws að gleypa íslenska fjölskyldu. Hræðsluáróður? Soldið.

Það eru engin rök til fyrir því að samþykkja Icesave. Engin lagaleg, engin siðferðisleg og allra síst eru einhver réttlætissjónarmið til fyrir að samþykkja þessa kúgun. Það virðist vera að ESB sinnar séu tilbúnir að greiða Icesave sem inngöngugjald inn í sambandið og þeir mega skammast sín mikið fyrir það.

Pétur Harðarson, 4.4.2011 kl. 17:47

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég var búin að skrifa heilmikið hér,þegar einh. "draugur" kom og skaut það á bólakaf.  Dæmi eru um að menn reyni að koma höggi á andstæðinga sína,með svona háttalagi,en þetta verður rannsakað. Er sammála Kristjáni H. þú ert ekkert að skafa af því. Þar sem ég er ekki daglegur gestur hér,sá ég ekki að þú hefðir verið hrifinn af grein Þorbergs Leifs. Þar sem hann er vinur á Facebook og auk þess bróðursonur minn (Leifur var fósturbróðir minn),sendi ég trekk í trekk mótmæli á hann,en það kom alrei fram. Þetta er kaski klaufaskapur,en vonandi ekki þurrkað út vegna mótmæla minna.

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2011 kl. 17:59

6 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Helga ! Magnús Helgi má eiga það að hann stingur aldrei af frá rimmu, og stendur fyrir sínu, en Þorbergur bara "hverfur" ef rökin eru of góð gegn honum, því miður, en hann um það, mér finnst fræðandi að láta taka mig í gegn, eykur víðsýnið

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 4.4.2011 kl. 18:03

7 Smámynd: Aðalsteinn Tryggvason

Samkvæmt 40 og 41 gr. stjórnarskrárinnar eru það Landráð að smþykkja Icesave smninginn. Og því ber að segja NEI.                                                      Þetta segir sig nokkuð sjálft.

Aðalsteinn Tryggvason, 4.4.2011 kl. 18:05

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Já Íslands hetjur við verðum að hrista þessa óværu af okkur. NEI,9april.

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2011 kl. 18:49

9 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það sem skilur á milli þeirra sem ætla að segja já og þeirra sem ætla að segja nei er réttlætiskennd og þú mátt alveg kalla það þjóðrembu ef þér svo líkar.

Nei segja þeir sem vilja ekki láta dæma sig fyrir glæp sem þeir frömdu ekki, en þessu er öfugt farið með þá sem ætla að segja já.

Hrólfur Þ Hraundal, 4.4.2011 kl. 20:56

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála Hrólfur.  Við viljum einfaldlega ekki láta dæma okkur fyrir glæp sem við áttum enga aðild að. Það er bara svo einfalt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2011 kl. 21:37

11 Smámynd: Pétur Harðarson

Ég var að taka eftir því að Magnús Helgi er með málstað já sinna í hnotskurn í borðanum hjá sér efst á síðunni. "Ísland í ESB! Takk fyrir. Ég segi já við Icesave" Þetta er ekki flóknara.

Pétur Harðarson, 4.4.2011 kl. 21:59

12 Smámynd: Daníel Sigurður Eðvaldsson

Þessi einstaklingur eða einstaklingar eru náttúrlega snarklikkaðir að fara að senda hótanir hægri og vinstri og finnst eiginlega meira dæmigert fyrir já sinna að herða rökin sín með því að bendla svona menn við alla nei sinna. Ég segi einfaldlega nei vegna þess að ég sé ekki ástæðu að bjarga ónýtri reglugerð um gervi tryggingasjóð ESB og skapa fordæmi fyrir almenning að bjarga bankamönnum. Vill frekar fá þetta fyrir dóm og ef hann segir að við eigum að borga þá skal ég fyrst samþykkja þetta frekar en að láta pína mig og hóta mér til að greiða eitthvað sem ég tók engan þátt í.

Já sinnar hafa sín rök en einhvern veigin enda þau alltaf á gamla góða Svavars rökum, bara til að losna við þetta af bakinu og þá blómstrar allt hér sem aldrei fyrr. 

Daníel Sigurður Eðvaldsson, 4.4.2011 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband