Miðvikudagur, 6. apríl 2011
Ég bara neita að trúa því að þetta verði útkoman
- Ég bara trúi því ekki að þjóðin kjósi óvissu næstu árin.
- Ég bara trúi því ekki að fólk sé tilbúið að fórna því að koma þessu máli í fastan farveg með vörnum þannig að ekki þrengi um of að okkur vegna greiðslan ef að illa fer. Þ.e. framlengin á greiðslum í allt að 30 ár.
- Ég bara trúi því ekki að fólk taki frekar mark á fullyrðingum NEI sinna þegar allir sérfræðingar sem komið að þessu máli hvetja okkur til að samþykkja það. En þeir sem standa fyrir Nei áróðri hafa ekki einu sinni rætt við fulltrúa Breta og Hollendinga. Né eru sérfræðingar í evrópskum lögum.
Nú er ástæða til þess að minna allt hugsandi fólk að þyrpast á kjörstað og segja já til að leggja fram sitt til að koma þessu Icesave frá þannig að hægt verði að halda hér áfram.
Verð reyndar að segja að niðurstaða þessarar sömu könnunar um fylgi flokkana veldur því að ég vildi gjarnan vita hvernig valið var í það úrtak sem spurt var. Finnst ótrúleg sveifla í fylgi flokkana miðað við fyrri kannanir sem gerðar voru fyrir 2 vikum.
Í sömu könnun kom fram að ef gengið yrði til alþingiskosninga nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn um 40 prósent atkvæða, Framsóknarflokkurinn um 16 prósent, Samfylkingin um 17 prósent, Vinstri grænir tæp 13 og Hreyfingin tæp 5.
Því finnst mér líklegt að þetta sé úrtak úr viðhorfshóp þar sem er fólk á aldrinum 18 til 67 ára. Minnir að það sé yfirleitt hjá MMR. Og því séu há skekkjumörk.
57% ætla að segja nei | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.4.2011 kl. 00:41 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
allir sérfræðingar sem komið að þessu máli hvetja okkur til að samþykkja það
Ekki satt. Fjöldi sérfræðinga sem hafa kynnt sér málið hafa líka ráðlagt okkur að hafna samningnum. Þetta er alls ekki einhlítt.
En þeir sem standa fyrir Nei áróðri hafa ekki einu sinni rætt við fulltrúa Breta og Hollendinga.
Þetta er alls ekki rétt. Við sendum meðal annars bréf til yfirstjórnar ESB þar sem lagðar eru fram spurningar og óskað skýringa þeirra á málinu. Afrit af bréfinu fóru til hollenskra og breskra ráðuneyta, þingmanna og fjölmiðla.
Ennþá er beðið eftir svari.
Né eru sérfræðingar í evrópskum lögum.
Við höfum einmitt gætt þess að ráðfæra okkur við sérfræðinga í evrópskum lögum, þar á meðal háskólaprófessora. Eins og aðrir sérfræðingar eru þeir heldur ekki allir sammála. Einn sem við töluðum við var ekki búinn að gera upp hug sinn, aðrir segja nei og sumir segja já.
Það sem þessi "ráðgjöf" hefur sýnt okkur er að óvissan um hvað sé réttast minnkar ekki við að ráðfæra sig við sérfræðinga. Það sem hver og einn verður að gera er að kynna sér málið og beita eigin dómgreind.
Guðmundur Ásgeirsson, 6.4.2011 kl. 19:15
Að segja nei er besta ástæðan til að þjappa ríkisstjórninni saman um að halda áfram að gera ekki neitt enda hefur hún notað það sem sem sína helstu skýringu að gera ekki neitt að ekki sé búið að ljúka icesave
Óðinn Þórisson, 6.4.2011 kl. 19:18
Þú þarft ekki að trúa þessu Magnús, niðurstaðan verður enn verri fyrir þig en niðurstaða MMR. Þetta fer svona 65% nei á móti 25% já. Því er niðurstaða könnunarinnar hóflega metin.
Þórður (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 19:26
Það er ekki búandi hérna, það er svo mikið af vitleysingum.
Sveinn R. Pálsson, 6.4.2011 kl. 19:28
Þú mátt alveg neita að trúa þessu svona Magnús. Þú getur líka alveg hætt að trúa á lýðræðið ef og þegar að það passar ekki stöðluðum skoðunum þínum og Samfylkingarinnar.
Það breytir engu því að meirihluti þjóðarinnar mun taka upplýsta ákvörðun um að kolfella ICESAVE III þrælasamninginn og fljótlega mun líka enn stærri meirihluti þessarar sömu þjóðar vísa ESB ruglinu útí hafshauga líka það verður meira að segja líka fyrr en seinna !
Þú mátt alveg neita að trúa því líka Magnús og þér væri alveg trúandi til þesws.
En lýðræðið mun samt að lokum líka sjá svo um að það mun samt gerast hver sem trúarbrögð þín annars eru eða verða!
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 19:51
40% tóku ekki afstöðu. Það er ansi hátt hlutfall óákveðinna. Sjáum bara til hvað úr kjörkössunum kemur.
Baldur (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 20:03
Auðvitað er þetta möguleiki, Magnús. Það er fjölmargt sem hefur áhrif á hvað fólk kýs. Það er ofsafengin reiði í þjóðfélaginu og hún birtist m.a. í andstöðu við Icesave-samninginn. Fólk vill greiða skuldir glæpamanna sem tókst næstum að setja landið á hausinn. þessir glæpamenn ganga enn lausir og lifa við mun betri kjör en þorri landsmanna. Það er einnig mikil reiði gegn bretum. þeir beittu Ísland mikilli hörku og hafa leynt og ljóst beitt sér gegn íslenska ríkinu. Ef meirihluti segir nei mun flókin atburðarás fara af stað. Það er ljóst að hagvöxturinn sem Hagstofan hefur spáð mun ekki eiga sér stað. Óvissa verður á vinnumarkaði. Líklega verður boðað til kosninga. 70% þingmanna eru í andstöðu við þjóð sína í miklu deilumáli. Formaður Sjálfstæðisflokksins og stór hluti þingmanna flokksins hlýtur að segja af sér. í nýrri stjórnarskrá verður að skilgreina hlutverk forseta lýðveldisins. Við taka mörg ár deilna fyrir dómstólum hér og erlendis. (Lögmannsstofur græða milljarða!!)
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 20:07
"Sjáið og þér munuð trúa" Sérðu nokkuð að viti Maggi minn svona í gegn um krúsarfjandann. Þetta er alveg orðið geirnelgt síðan þið yes menn skiptuð Villa og Gylfa inná. Svipað og bjóða barnaðerra velkominn á róló.
Rekkinn (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 20:56
Því miður gæti þetta gerst. Sjálfur þekki ég fólk sem er svo reitt vegna aðgerðaleysis lögreglu, dómstóla og saksóknara gagnvart þeim glæpamönnum sem komu okkur í þessa stöðu og á ég þar við Davíð Oddsons og Björgúlfana ásamt fleirum, að þeir segja nei við öllu. Við fáum sennilega að sitja hér með tólgarkertin í framtíðinni.
Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 21:13
Voðalega eruð þið vitlaus að halda að það að fella þennan samning þýði böl til framtíðar. Þessir peningar sem Bretar og Hollendingar telja okkur skulda sér eru í raun smáaurar í þeirra hagkerfi og það er enginn að fara markvisst að legga heila þjóð í rúst yfir þessu. Ísland er ekki að fara að breytast í Kúbu og við erum ekki að fara að borða gras næstu áratugina. Heimskulegar samsæriskenningar.
Jón Flón (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 22:07
Magnús, ætlarðu að lofa mér því að ef samningnum verður hafnað að loka blogginu þínu, halda kjafti og helst flytja til fyrirheitna landsins í ESB í stað þess að heimta að allir fylgi þér rænulausum?
Það væri mikið mannúðarverk ef þú gerðir það.
Jón Steinar Ragnarsson, 6.4.2011 kl. 22:18
Já og ef ég má, þá vil ég stinga upp á landi fyrir þig. Ég er ekki svo illkvittinn að mæla með Grikklandi, því þar er allt farið fjandans til, nú eða Írlandi þar sem allt er á leiðinni fjandans til. Nei, ég mæli með Portúgal. Að vísu er bjórinn orðinn dýrari þar en hér en þeir fá að borga eins og þeim lystir í bankahítina. Skuldatryggingarálagið þeirra er ekki nema þrisvar sinnum hærra en hér enda borga þeir ekki nema um 10% vexti af "björgunarlánum" ESB og AGS. Það' erjú ekki nema um 5 sinnum hærra en Svíar þurfa að borga, en þeir eru jú bara með einhverja ömurlega krónu.
Ef slaveríið í Portúgal er ekki nógu mikið, þá horfir til enn hentugri aðstæðna fyrir þig á Spáni, verandi svona marsúkisti, sem þú ert, en svo má vænta þess að Ítalía verði enn stærri smellur og paradis fyrir menn eins og þig.
Hvað segirðu? Á ekki að skella sér?
Jón Steinar Ragnarsson, 6.4.2011 kl. 22:55
Voðalega getur fólk verið dónalegt og ofsafengið hér á blogginu (ekki í fyrsta sinn, en það er mjög áberandi núna). Það virðast allir svo innilega vissir um hvað sé best að gera og hvernig þetta muni fara og að allar aðrar skoðanir séu beinlínis rangar. Fólk er rakkað niður fyrir að hafa sínar skoðanir í þessu máli sérstaklega. Reynið kæru bloggarar að bera virðingu fyrir hver öðrum! Það er enginn vitlaus fyrir að hafa sína skoðun, það er algjörlega óvitað hvernig kosningin fer og hvað gerist í framhaldinu. Það er eru heldur engar flokkslínur í þessu máli, flokkar eru allir klofnir. Og Gunnlaugur Ingvarsson, það er gott að þú getir nú talað máli meirihluta þjóðarinnar þrátt fyrir að ekki er búið að kjósa um neitt ennþá! Ert þú kannski þjóðin? Eru aðrar skoðanir ómerkilegri en þínar? Hvurslags umræða er þetta eiginlega?
Skúli (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 23:44
Sæll Magnús
Þetta er skoðanakönnun, ekki úrslit. Það veit enginn enn hvernig þetta fer.
Hvernig svo sem þessar kosningar fara þá þurfum við öll að halda áfram á sunnudaginn þannig að öll þurfum við að gæta hófs í orðavali.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 7.4.2011 kl. 00:52
@ Skúli ég er sammála þér varðandi hvernig fólk talar. Ég þarf stundum að gæta að því sem ég segi þó ég reyni að gæta mín ávalt hér á blogginu og í athugsemdum. Það er nefnilega reynsla mín að þeir sem eru einna verstir í skrifum sínum og orðbragði hafa lítið fyrir að kynna sér málin. Svona eins og menn hér að ofan sem segja:
Ef að þetta væri niðurstaða þá væru kosningarnar væntanlega ógildar þar sem að það vantaði 10% upp á að öll atkvæði hefðu verið talin.
Og ég skil ekki Gunnlaugur Ingvarsson þegar hann er að segja að ég trúi ekki á lýðræðið. Ég var að segja að neitað að trúa að úrslitin yrðu svona ég var ekkert að tala um lýðræði. Auðvita verður það meirihlutin sem ræður.
En svona bítur ekkert á mig þó menn hreiti í mig ónotum. En góðar rökræður við fólk sem hefur andstæðar skoðanir eru skemmtilegar þó þær geti orðið harðar á köflum
Og ég veit að þessi skoðanakönnun eru ekki úrslit. Einmitt þessvegna sagði ég að ég neitaði að trúa að þetta verði úrslit á laugardaginn.
Magnús Helgi Björgvinsson, 7.4.2011 kl. 01:12
Þeir er hófværir sem segja 65% Nei. Það ver a.m.k. 70% Nei við Iceslave 3 eftir hótunar útspil ASI og SA
Skál á laugardaginn og leysum Island úr rústum án þess að auka lántökur, förum svo að handsama BJÖGGAANNA og koma þeim bak við lás og slá.. sem og aðra hrun-glæpamenn
Kristinn M (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 08:35
http://www.makepovertyhistory.org
Þetta mál snýst um óendanlega miklu stærri hluti en Ísland og Íslendinga. Sem andlega sinnaður og ekki illa greindur maður, ættir þú að sjá það þorir þú að taka niður flokksgleraugun og heilaþvottinn, sem allir verða fyrir barðinu á, því áhrifagirni er hluti af mannlegu eðli, og horfa í staðinn með þeim augum berum sem Guð gaf þér. Þá muntu sjá um hvað málið snýst í raun og veru. Ég mun kjósa nei við Icesave þrátt fyrir að búa ekki einu sinni á Íslandi, hafa lifibrauð mitt annars staðar, og vera ekki á förum heim af ákveðnum ástæðum. Íslensk flokkapólítík kemur mér heldur ekkert við og ég er milljón prósent vinstrisinni og það nánast eldrauður, þó ekki kommúnisti. En ástæðan að ég kýs nei er sú að annars gæti ég hvorki litið í spegil né sofnað á nóttunni, og sá sem gengur fram af sér og svíkur samvisku sína borgar fyrir það með tjóni á geðheislu sinni, og ég efast um að ég gæti lifað við þá ákvörðun lengi. Ég hef nefnilega komið til Afríku og horft í augun á fólkinu þar. Og ég veit nóg um alþjóðlega lögfræði til að vita og skilja hvaða fordæmisgildi okkar mál mun hafa í málaferlum Afríkuríkja gegn kúgurum sínum í þessari herferð um afnám skulda þeirra. Ég vil geta lifað með sjálfum mér og kýs því nei takk.
Baldur (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 09:53
Afsakið, þessi orð voru ekki ætluð þér. Ég copy/pasteaði þau víst óvart hingað en þau voru fyrir annan bloggara.
Þér er held ég því miður ekki viðbjargandi á næstunni. Þú ert of langt leiddur frá sjálfum þér og því sem kallast siðferði. Enda færðu borgað með einu eða öðru móti fyrir þennan áróður þinn frá vinnuveitendum þínum, sem allir geta komist að hverjir eru með að skoða bloggið þitt, því þú hefur ekki vit á að fela það. Þú hefur allt þitt lifibrauð frá þessum mönnum og þorir ekki að missa vinnuna á erfiðum tímum sem þessum og gerir hvað sem er til að halda henni. Það er vonandi þú fáir ríflegan bónus, því það eru aumir silfurpeningar fyrir að hunsa þitt eigið hyggjuvit og þína eigin sál.
Baldur (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.