Leita í fréttum mbl.is

Eignarsafn Landsbankans dugar sennilega fyrir Icesave hluta okkar skv. þessu

Tekið af netinu:

Skv. frétt Financial Times í dag er áætlað að virði Iceland matvörukeðjunnar sé komið í 370 milljarða kr. Það eru mjög góðar fréttir og þýða að við Íslendingar þurfum EKKERT að borga fyrir Icesave. Við getum klárað málið með því að segja Já á morgun. Icesave skuldin er bara kominn niður í 0 kr. út frá forsendum samningsins. Við ítrekum að einungis núverandi samningur lætur upphæðina hverfa við nýtt verðmat á Iceland.

mbl.is Menn verða að hafa kjark
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Magnús, "sennilega" er ónýt fullyrðing. Skjalfest og opinber yfirlýsing þess efnis er það eina sem dugar.

Kolbrún Hilmars, 7.4.2011 kl. 13:25

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nú ef að fólk er tilbúið að segja Nei við Icesave þó er það ekki að setja sig upp á móti að eitthvað sé sennilegt. Því Nei þýðir væntalega óvissu um miklu meira. Það er þó ljóst að skv. Icesave3 erum við með tryggt að þurfa aldrei að borga meira en sem nemur 5% af tekjum ríkisins á ári. En ef við höfnum Icesave þá vitum við ekkert hvað tekur við.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.4.2011 kl. 13:35

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Hver tekur mark á þessari kerlingu lengur og hennar aftaníhosum.?

Ragnar Gunnlaugsson, 7.4.2011 kl. 13:37

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og við vitum sannarlega að það er búið að bjóða milljarð punda í Iceland og því var hafnað  Og nú er verið að ræða um að það séu boð á leiðinni upp á 2 milljarða punda. Hvernig sem á þetta er litið eru þetta mun hærri upphæðir en þær sem Skilanefnd Landsbankans hafði metið þessar eignir á. Og því kemur meira í búið til að greiða Icesave

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.4.2011 kl. 13:38

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús Helgi, ertu nú alveg viss?  Hver er hin raunverulega krafa á "okkur"?  Samkvæmt upplýsingum á vef Alþingis (skjal frá júní 2009) voru heildarinnstæður á Icesave 1.338 ma.kr.  Af því falla um 650 ma.kr. undir lágmarkstryggingu.  Eignir Landsbankans þurfa ekki aðeins að duga fyrir þessum 650 ma.kr. heldur öllum 1.338 ma.kr.  Gerist það ekki, alveg óháð já-i eða nei-i í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þarf ríkið líklega að greiða mismuninn.  Ástæðan fyrir því er sú mismunun sem fólst í vernd innstæðna hér á landi og á Icesave.

Neyðarlögin settur ALLAR innstæður í forgangskröfuhóp.  Til þess að það gangi upp að allir innstæðueigendur fái sinn pening til baka þurfa eignir Landsbankans að duga fyrir ÖLLUM innstæðu.  Verði sjóðþurrð hjá Landsbankanum áður en búið er að greiða alla 1.338 ma. á Icesave, þá hefur ESA gefið í skyn að ríkið þurfi að greiða mismuninn.  Það er því eins gott að eignir Landsbankans dugi ríflega 100% fyrir forgangskröfum, því annars munu íslenskir skattgreiðendur þurfa að greiða þær innstæður hér á landi, sem í raun og veru áttu ekki að njóta verndar.

Marinó G. Njálsson, 7.4.2011 kl. 14:27

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eignasafn Landsbankans var talið að stæði undir um 89% af icesave skuldinni nú um daginn þá var mat á t.d. Iceland innan við 100 milljarðar. Nú er verið að tala um að Iceland gæti selst á um 370 milljarða sem bætast þá við sem þýðir að 200 milljarðar bætast við þá tæpu 1200 milljarða sem eignarsafnir er metið á i dag. Þannig fékk ég að þetta gæti gengið upp. Sem og að talið var að ef að heildsölulánin hefðu verið dæms sem almennar kröfur þá var eignarsafnið talið duga fyrir Icesave. Því reikna ég með að það sé eins að hugsanlega 100 milljarðar meira en núverandi mat dugi fyrir Icesave. Og þó það féllu nokkri milljarðar á ríkið þá held ég að gróðinn sé miklu meiri á að klára þetta. bara hálft prósent í hagvexti myndi þýða auknar tekjur í þjóðarbúið upp á 150 milljarða á ári.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.4.2011 kl. 15:02

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Stór hluti eignasafnsins er í dollurum, en það eina sem heldur uppi verðgildi hans er lánstraust Bandaríkjastjórnar sem nú fer hratt dvínandi.

Svo ætla ég að biðja ykkur að lesa þessa hérna frétt og segja mér svo hvort gengisáhætta vegna IceSave er eingöngu bundin víð íslensku krónuna?

Stöðvun vofir yfir bandaríska ríkiskerfinu

Guðmundur Ásgeirsson, 7.4.2011 kl. 15:16

8 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús, Iceland Foods var metið á 180 ma.kr. í bókum Landsbankans skv. frétt á DV.is þannig að það eru ekki 200 ma.kr. sem eru að bætast við heldur kannski 30 - 40 ma.kr.  Síðan eru aðrar forgangskröfur en bara innstæður.

Þetta er ekki alveg svona einfalt.  Það er hins vegar mín skoðun, að TIF þurfi alltaf að greiða lágmarkstrygginguna (þ.e. 20.887 EUR eða 16.700 GBP) að hámarki fyrir hvern innstæðureikning.  Hjá því verður aldrei komist.  Ég er líka sannfærður um að sama hvernig atkvæðagreiðslan fer, þá munu verða dómsmál um sömu hlutina, þ.e. mismunun eftir búsetu og ef sjóðþurrð verður hver á að borga það sem upp á vantar.

Marinó G. Njálsson, 7.4.2011 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband