Leita í fréttum mbl.is

Eva Joly komin langt út fyrir sitt sérsvið!

Við lestu rá greininni hennar sést að hún ásamt fleiri erlendu fólk sem hafa verið að skrifa um Icesave og hvetja okkur til að neita því eru ekki að þessu bara af einstakri góðmennskur við okkur. Þó sjá þarna að við getum verið tæki í baráttu t.d. græningja í Frakklandi fyrir breytingu á fjármálakerfi heimsins sem þau vilja að breytist.

Og svona rök eins og Icesave sé sambærilegt og leggja hvað 700 milljarða punda á Breska skattgreiðendur er náttúrulega út í hött. Hún skautar framhjá því að við erum að tala um ríkisábyrgð á láni til Innistæðutryggingarsjóðs sem vitað er að á fyrir mestu eða öllum greiðslum vegna Icesave í eignum Landsbankans (gamla). Held að Bretar væru þá ekkert að stressa sig yfir því.

Þarna er Eva Joly stjórnmálamaður að tala komin langt út fyrir sitt sérsvið. Hélt að hún sem hefur verið hér svo oft hlyti að vita að Ísland er ekki í neinu standi til að vera lögfræði- og hagfræðitilraun fyrir róttæklinga í heiminum næstu 3 til 5 árin. Hélt að kona sem upplifði t.d. óþolinmæði fólks gagnvart Sérstökum saksóknara í fyrra og þar á undan vissi að hér er fólk ekki í standi til að taka á sig auknar birgðar næstu ár til að fara út í baráttu sem lýkur eru á að tapist hvort eða er með enn meiri óvissu í kjölfarið. Þ.e. þjóðin þolir ekki að bíða í 5 ár með að sjá til lands. Það munu þá bara allir sem geta fara héðan.


mbl.is Augu umheimsins á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Magnús! Ein samviskuspurning til þín: Hvort heldur þú að þjóðin trúi frekar Evu Joly eða forkálfum ríkisstjórnarinnar? Við vitum báðir svarið við þeirri spurningu.

Þórður (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 09:31

2 identicon

Einn helsti sérfræðingur EU á sviði fjársvikamála kemst að því að fjármálakerfið hafi engann trúverðugleika og að skattgreiðendur eigi fyrir vikið ekki að moka peningum undir það.

Þá er hún umsvifalaust komin út fyrir sitt sérsvið?

sr (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 09:32

3 identicon

Jájá Magnús þetta er að sjálfsögðu samsæri.....please

Einar (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 09:45

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll vorkenni svona mönnum sem eru undirlægur flokkræðisins og elítunnar! Maður spyr sig hvers vegna þú lætur svona?

Sigurður Haraldsson, 8.4.2011 kl. 09:48

5 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Hvert er þitt sérsvið Magnús?

Langar bara til að vita hvort þú hafir útfrá þeim forsendum "leyfi" til að tjá þig og hafa skoðun á Icesave?

Kristján H Theódórsson, 8.4.2011 kl. 09:56

6 identicon

Þótt ég sé ekki sammála Magnúsi í þessu máli mega allir hafa skoðanir á málum, hversu vitlausar sem þær eru. Við búum við málfrelsi í landinu, sem betur fer.

Þórður (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 10:19

7 Smámynd: Adeline

Nei þetta er myndu flestir ætla - "einmitt hennar sérsvið".

Hvað er annars hennar sérsvið að þínu mati (Magnús) ? ...

Og það er nauðsynlegt að heyra álit eins margra og mismunandi "fræðimanna" um þetta mál sem maður þarf endilega að taka afstöðu til. helst myndi maður nú vilja troða þessu bara ofan í kokið á Björgólfi, Sigurjóni og félögum sem spóka sig nú um frjálsir og enn -ríkir um Ísland -án þess að skammast sín.

Adeline, 8.4.2011 kl. 10:58

8 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Alveg sammála Þórði um skoðanafrelsið, en Magnús á þá að virða rétt annarra til skoðanafrelsis óháð "sérsviði" viðkomandi!

Eva Joly hefur fullt leyfi til að hafa skoðun á hvort okkur ber að greiða Icesave ,eða ekki. Vill reyndar svo til að það fellur bara býsna nærri hennar "sérsviði" að greina hvað er rétt og rangt í því máli!

Kristján H Theódórsson, 8.4.2011 kl. 11:00

9 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það er merkilegt rannsóknarefni hvernig hluti þjóðarinnar er ýmist tilbúinn að bölva útlendingum í sand og ösku og liggja svo flatir um leið og útlendingarnir kitla hégómagirndina og ýta undir óraunsæið. Trúlega er þetta blanda af minnimáttarkennd og skammsýni. Segjum já!

Hjálmtýr V Heiðdal, 8.4.2011 kl. 11:05

10 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þú borgar Hjálmtýr ekki ætla ég að gera það! Nei verður ofaná því að réttlætið sigrar að lokum! Lifi lýðræðið og fullvalda frjálst Ísland.

Sigurður Haraldsson, 8.4.2011 kl. 11:47

11 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það skiptir ekki máli hvaða hugmyndir veltast um í kolli þínum Sigurður. Þú borgar bara í öðrum gjaldmiðli eftir nei-ið: atvinnuleysi, stöðnun, meiri niðurskurður í velferðarkerfinu ofl. Svona er lífið miskunarlaust. En þú og þínir skoðanbræður getið kanski fagnað ímynduðum sigri á morgun - og haldið uppá hann með flugeldasýningu. Það væri viðeigandi. Ég myndi í þínum sporum fá forsetann til að kveikja á fyrsta flugeldinum. Það væri líka viðeigandi.

Hjálmtýr V Heiðdal, 8.4.2011 kl. 12:46

12 Smámynd: Ævar Austfjörð

Það eru mjög margir komnir út fyrir sitt sérsvið í þessu máli. Ég tjái mig mikið um það ég er kjötiðnaðarmaður. Steingrímur J er jarðfræðingur og Jóhanna Sig er flugfreyja. Ég persónulega tek mest mark á Evu Joly af þeim sem ég taldi upp.

Ævar Austfjörð, 8.4.2011 kl. 13:31

13 identicon

Þetta er nú vindhögg hjá þér Magnús. Eva er lögfræðingur, saksóknari í efnahagsafbrotum, stjórnmálamaður , rithöfundur og þingmaður á Evrópuþinginu. Hún gjörþekkir löggjöf ESB um fjármál, efnahagsmál og viðskipti. Alþjóðleg starfsemi fyrirtækja, s.s. banka hafa augljóslega verið hennar viðfangsefni.  Ég las grein hennar og þar kom satt best að segja lítið nýtt fram enda kannski ekki við því að búast. greinin hefur frekar táknrænt gildi en innihaldslegt.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 14:12

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu  hennar sérsvið er rannsóknir á fjármálamisferlum. Hún er eins og þú veist væntanlega ein af mörgum sem vill breyta fjármálakerfum. Það eru hennar pólitískuskoðanir og byggja ekki að því sem er viðtekið. Þannig að í hennar augum er þetta barátta sem vert er að taka en hún þarf ekki að lifa við það heldur getur skrifað um það eftir nokkur ár hvað þetta var sniðug hugmynd á meðan að við þurfum kannski að taka hér dýfu í lífskjörum til að fóðra þessa hugsmyndafræði hannar. Og það þola Íslendingar ekki nú til lengdar. Og tal hennar um að við séum að taka á okkur 700 milljarða er náttúrulega út í hött. Hún eins og aðrir vita að það er þegar til eignir fyrir megninu eða öllu sem Icesave kostar okkur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.4.2011 kl. 15:10

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og ég veit að hún er lögfræðingur yst á vinstrikanntinum. Situr á Evrópuþinginu fyrir Græningja í Frakkalandi en þar með er hún ekki sérfræðingur í milliríkjadeilum ekki frekar en Reimar er það.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.4.2011 kl. 15:12

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

@Kristján H Theódórsson, 8.4.2011 kl. 09:56

Ofsalega sniðugt! Ég þarf að lifa með ákvörðuninni sem verður tekin á morgun og því eðlilegt að ég tjái mig um mínar skoðanir. M.a. á því sem aðrir segja. Hér er málfrelsi. Eva Joly má hafa sína skoðun og tjá hana er ekkert að setja út á það. En ég má hafa skoðun á því sem hún segir. Allt þetta er málfrelsi.

Ég er bara eins og hver annar Íslendingur sem hef velt þessu máli fyrir mér í 2 ár. Er ekki lögfræðingur, hagfræðingur, atvinnurekandi verkalýðsleiðtogi eða neitt svonleiðis en hlusta þegar allir sérfræðingar, hagsmunasamtök og allir þeir sem unnu að því að leisa þetta mál hvetja okkur til að segja já. Það er ekkert annað sem vakir fyrir því fólki en að við veljum það besta sem sjá fyrir Ísland.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.4.2011 kl. 15:19

17 identicon

Gat nú verið að þú færir að baula Maggi.  En hæðst glymur í tómri tunnu eins og máltækið segir.

Þín og þinna flokkssystkina mun verða minnst sem landráðamanna þegar öllu verður á botnin hvolft!

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 15:32

18 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hún er að segja að það eigi að afnema einu tryggingu sem almenningur hefur gegn bönkunum.

Hún er td. að segja að þegar SP-Kef fór sína leið á dögunum - þá hefði  ríkið ekki átt að vernda innstæður.

Eru íslendingar sammála því?  Eg hef ekki orðið var við að mjög margir íslendngar séu sammála því.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 8.4.2011 kl. 15:33

19 identicon

Magnús vs Joly. Tja, það er nú það. Ég held að ég veðji á að Joly hafi meiri þekkingu á þessu, sorry...

Jón Logi (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 15:39

20 identicon

Komið þið sæli; Magnús Helgi - sem aðrir skrifarar, og lesendur !

Þó svo; þeir Magnús síðuhafi / Hjálmtýr og Ómar Bjarki, munu fremur síðla, viðurkenna þau afglöp sín, að fylgja íslenzku fjármála Mafíunni að málum;; svo augljóslega, sem öllum er kunnugt - og láta sér í léttu rúmi liggja, áframhaldandi lausagöngu Björgólfs Guðmundssonar (og sonar) - auk húskarla þeirra, nokkurra, skulum við ekki hæðast að dapurlegum viðhorfum þeirra þremenninga, öllu frekar.

Þeir gætu; þó fjarlægur möguleiki sé, sýnt iðran nokkra - og beðið sam landa sína fyrirgefningar, á furðulegri fylgisspektinni, við ''útrásar'' Margréti Kristmannsdóttur og Engeyjar- Benedikt Jóhannesson, sem þau önnur, í ''Áfram'' hópnum, undarlega, gott fólk.

Gefum þeim; Magnúsi / Hjálmtý og Ómari Bjarka ráðrúm, til þess að viðurkenna, sína vondu villu, að minnsta kosti.

Með kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 15:56

21 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála Óskar þeir vaða villu vegar og ekki annað hægt en að vorkenna þeim vegna blindu þeirra.

Sigurður Haraldsson, 8.4.2011 kl. 16:25

22 identicon

Magnús það að þú viljir segja já við þessum fjárkúgunum sýnir að þú ert annaðhvort þroskaheftur eða aumingi, Nú spyr ég bara hvort er það.

einhver (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 20:22

23 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég vil bjóða forseta Frakklands alla þingmenn Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir Evu Joly og láta svo Össur Skarphéðinsson í milligjöf.

Árni Gunnarsson, 8.4.2011 kl. 20:43

24 identicon

Hver viti borin manneskja sér að þetta útspil Joly er sett fram í eiginhagsmunaskyni vegna baráttumála hennar á Evrópuþinginu. Ykkur dettur þó ekki í hug að hún sé að skella þessu fram því henni þyki svo ofsalega vænt um Íslendinga?

Páll (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 22:34

25 identicon

Komið þið sæl; sem fyrr !

Einhver !

Fjarri fer því; að þú aflir fylgis, okkar málstað - sem viljum hafna Ice save´s, eða öðrum sér- Evrópskum gjörningum, með þinni framkomu, í garð Magnúsar Helga.

Þú ættir; að draga þessi ljótu orð þín, til baka. Magnús Helgi er; prúður og kurteis jafnan, í orðræðunni, og á því rétt á, að honum sé sýnd lág marks virðing, á síðu sinni.

Með; þeim sömu kveðjum, sem fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 22:54

26 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég segi NEI við Icesave, því mér var kennt að það væri ljótt að stela.

Theódór Norðkvist, 9.4.2011 kl. 01:54

27 identicon

Eva Joly er afar fjölmenntuð kona með mjög breitt og vítt menntunarsvið. Hennar álit er mikils virði um allan heim. Svo mikil virðing er borin fyrir þessari konu, að menntaðasta og víðlesnasta þjóð heims, Frakkar, þar sem venjulegur öskukall les Descartes og venjulegur pípulagningarmaður kann stórar glefsur úr Kant, og skúrningarkonan getur þrætt um mismunandi kenningar er varða Sócrates, þjóðin þar sem lýðræðið varð til og nútíminn, móðir Bandaríkjanna og nútíma Evrópu, gefur henni séns að verða þar mögulega forseti. Hún er líka meiri Íslandsvinur en þú sjálfur.

Magnús (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 02:11

28 identicon

Kannanir hafa sýnt að það er mikil fylgni með menntun og skoðunum á Icesave!
Þeir sem eru háskólamenntaðir kjósa frekar já og þeir sem eru með grunnskólamenntun kjósa frekar nei...
hmm hverjum á ég að treysta fyrir framtíð Íslands.....
Ég segi JÁ!

Ég byggi mína skoðun að miklu leiti  á hvað upplýstir einstaklingar hafa að segja um málið, vonandi stjórnast ykkar skoðun ekki af tilfiningum heldur rökum og hvað er best fyrir Ísland!

Tryggvi (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 02:16

29 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eva Joly er ekki fjölmenntuð eins og einhver sagði hér að ofana. Hún starfaði sem ritari og tók lögfræðinámið sitt í kvöldskóla og útskrifaðist úr því 38 ára og hefur eitthvað farmhaldsnám í lögfræði þ.e. "and became a magistrate when she was 38.[1] Joly specialised in financial affairs, and in 1990 she joined the High Court of Paris as an investigating judge"

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 08:34

30 identicon

Góðan dag.

þeir sem komu okkur í þetta er talið menn um 45 til 50 vel mentaðir og á góðum launum. Hverjir vilja samþykkja þetta þeir sömu.. Það er alltof mikil óvissa sem við Íslendingar fáum ekki að vita um. þannig  segjum NEI og fáum upplýsingar sem okkur langar að vita td. var allt tryggt í Bretlandi, varðandi mismun hvað með vaxtakjör sem er verði að bjóða OKKUR 3,3% en þeir lána sér með 0.9 % Afhverjum eiga bretar að GRÆÐA á þessum gjörningi Bjögga og CO

bs (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 10:21

31 identicon

RANNSÓKNARDÓMARINN Joly er sem sagt skussi, sem var orðin heilla 38 ára þegar hún loksins kláraði kvöldskólann sinn, og hélt svo áfram í einhverju "farm-halds" námi. Kannski búfræðingur? Hlýtur að vera, því flestir eru þeir örugglega nei-menn :D

Jón Logi (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 11:17

32 identicon

Athugaðu Magnús líka: Eva Joly sagði líka að það kæmi hæðst 30% út úr Landsbanka hræinu, ætli það veri ekki nær lagi.

Þú átt eftir að þakka þeim 70% sem segja NEI í dag, að bjarga landinu okkar, að því marki sem hægt er, en því miður erum við gjaldþrota þjóð sem getur ekki haldið uppi skammlaust mennta og heilbrigðiskerfi,

Iceslave3 er því ekki ábætandi

Kristinn M (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband