Leita í fréttum mbl.is

Jæja þá getum við byrjað á Suðurlandsvegi.

Þá er bara að byrja. Þetta er eins og ein og hálf Héðinsfjarðargöng. Og umferðin um þennan veg svona 500 til 1000 x meiri. Skil ekki afhverju ekki er inn í þessu göng undir Hellisheiði. Því að þar mundum við losna við Kambana sem oft eru hættulegir.

Frétt af mbl.is

  Vegagerðin áætlar að tvöföldun Suðurlandsvegar kosti 13,5 milljarða
Innlent | mbl.is | 7.2.2007 | 11:43
Suðurlandsvegur. Bæjarstjórar Hveragerðis, Ölfuss og Árborgar hafa fengið svar við erindi sem þeir sendu Vegagerðinni fyrir skömmu þar sem óskað var eftir skýringum á misvísandi tölum varðandi ætlaðan kostnað við tvöföldun vegarins á milli Selfoss og Reykjavíkur. Vegagerðin áætlar nú, að framkvæmdin myndi kosta 13,5 milljarða króna.


mbl.is Vegagerðin áætlar að tvöföldun Suðurlandsvegar kosti 13,5 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það væri nú meiri munurinn að fá bara "hraðbraut" með göngum og öllu þarna á milli. Ég bý í Köben og það er rosalegur munur að hafa hraðbrautirnar. Ég er td. rúmar 10 mín. að keyra heiman frá mér og niður á Kastrup sem eru 25km leið. Það mundu örugglega fleiri keyra á milli Rvk og Selfoss ef það tæki aðeins 20 mín. að keyra. Svo ég tali nú ekki um fækkun á slysum.

Valgerður í Köben

Valgerður (IP-tala skráð) 7.2.2007 kl. 13:02

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Ef það á að keyra Selfoss Reykjavík á 20 mínútum þarf að hækka hraðatakmörk allverulega, því að það er meðalhraði uppá u.m.þ.b. 110 km á klst. 

Ég held að það sé ekki meiningin að hækka hámarkshraða á íslandi á næstunni, þrátt fyrir tvöföldun á hinum ýmsu vegum

Eiður Ragnarsson, 7.2.2007 kl. 13:35

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ok 20 mínútur til Hveragerðis og 27 mínútur til Selfoss

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.2.2007 kl. 14:01

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og ef það kæmu göng þá styttist leiðin líka. Þannig að 25 mínútur til Selfoss

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.2.2007 kl. 14:02

5 Smámynd: Morten Lange

Hvet ykkur til að koma með rök fyrir því að þjóðfélagið hagnist á 2+2 lausn fram yfir 2+1 yfir Hellisheiði.

Ég er með rök í hina áttina í þessari færslu

Kostir með göng væri líka : 

  • Minni röskun og minni umferð á  Hellisheiði.
  • Minni ljósmengun
  • Þarna yrði væntanlega ansi friðsamlegt að aka, ganga og hjóla.

Morten Lange, 7.2.2007 kl. 14:49

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er sammála þér með göngin. Og að fram að þeim og frá þeim væri 2+2. Ég held líka að það mundi raska umferð minna á meðan famkvæmdum stendur. En með 2+1 þá er það mín reynsla að það séu vissir erfiðleikar við  það. Ég hef keyrt þessa leið nokkrum sinnum þar sem er komið 2+1 og nokkrum sinnum lent á eftir hægfara ökutækjum 60 til 70 á þeim hluta sem var einfaldur. Þessi kaflar eru jú ekki langir en það er ekki möguleiki á að komast framhjá og það myndaðist strax löng röð með tilheyrandi stressi. Og því hallast ég á 2+2 en best væri að það kæmu göng undir sjálfa Hellisheiði.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.2.2007 kl. 15:10

7 identicon

Það eru afar fá rök sem mæla með 2+2 en því fleiri sem mæla með 2+1.  Lýsing er líka óþörf, það bætti ekkert á Keflavíkurleiðinni, þar jókst hraðinn og slysum fjölgaði!  Náið jarðsambandi gott fólk, þetta er ekki eini vegurinn sem þarfnast úrbóta og ekki virðist vera það mikið um peninga..viljið þið hærri skatta? gjaldtöku? hvað með Vesturlandsveg á hann að sitja eftir? Hvað með vegi út frá Akureyri?, hvað með einbreiðu brýrnar eða vegtengingar við minni byggðir td. Þórshöfn.  Bætum vegi jafnt og þétt á skynsamlegan máta.  Tökum líka á orsökinni sem er oftar en ekki glæfraakstur sumra ökumanna.

Sigurður S. (IP-tala skráð) 7.2.2007 kl. 15:14

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það sem ég er að tala um er að eðlilega á að bæta vegir þar sem 70 til 80% af umferðinni er. Það er með öllu ómögulegt að fólk skuli búa við það að á Suðurlandsvegur yfir Hellisheiði þar sem hafa orðið svo mörg slys og þar sem svo margir keyra skuli vera látinn býða á meðan verið er að sperða milljörðum í göng annarstaðar. Þetta er sama með höfuðborgarsvæðið þar er ekkert farið að gera. Þó held ég að 70 til 80% af öllum akstri fari fram. Þannig að leiðir innan höfðuborgarinnar og frá henni verða að fara að komast í forgang. Það geta engir hér á landi bent á hvort að 2+1 eða 2+2 vegir eru öruggari þar sem hér er nær engin reynsla af því. Þetta ættu menn að hafa í huga.

Bendi á þessa skýrslu: http://vgwww.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/2+1Samanburdur.pdf/$file/2+1%20Samanburdur.pdf Þar segir m.a.

Af töflu 1 sést að slysasparnaður lausnanna er á bilinu 14-64% af slysakostnaði áranna sem voru skoðuð. Breyting yfir í 2+2 veg hefur að jafnaði í för með sér hærri slysasparnað heldur en breyting yfir í 2+1 vegi. Þrátt fyrir það hefur 2+2 vegur lægri fyrsta árs arðsemi (FÁR) en 2+1 vegur með víraleiðara og álíka og 2+1 vegur án víraleiðara og stafar það aðallega af hærri framkvæmdarkostnaði. Breyting Suðurlandsvegar í 2+1 veg með víraleiðara hefur mestu fyrsta árs arðsemi. Breyting Reykjanesbrautar í 2+1 veg með víraleiðara kemur þar fast á eftir, en breyting Vesturlandsvegar í 2+1 veg með víraleiðara fylgir þar í kjölfarið með nærri helmingi lægri fyrsta árs arðsemi en breyting Suðurlandsvegar. Breyting Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar í 2+1 veg án víraleiðara og 2+2 veg sem og breyting Reykjanes-brautar í 2+2 veg reka svo lestina með fyrstu árs arðsemi á bilinu 2,3 – 3,5%.

Samanburðurinn í töflu 1 sýnir að miðdeilir með víraleiðara í 2+1 lausn skiptir töluverðu máli. Ef ekki er notaður víraleiðari er ekki komið í veg fyrir "frontal" árekstra, en í dag eru þeir með dýrustu umferðaróhöppum á Vesturlands- og Suðurlandsvegi þar sem þessi slys verða oftar en ekki mjög alvarleg.

Rétt er að taka fram að tölur fyrir fyrstu árs arðsemi eru einungis nálgun á þeirri arðsemi sem fæst með breytingunum. Mat á slysasparnaði er tiltölulega gróft þar sem einungis eru skoðuð þau óhöpp sem eru skráð af lögreglu, en gera má ráð fyrir að ekki séu öll óhöpp skráð. Einnig eru kostnaðartölur fyrir breytingar metnar nokkuð gróft, þar sem aðstæður á hverjum stað fyrir sig eru ekki skoðaðar sérstaklega. Þá er ekki tekið tillit til rekstrar- og viðhaldskostnaðar. "

Sem sagt að 2+2 fækkar slysum mest!

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.2.2007 kl. 15:37

9 identicon

Ef að þjóðin ætlar að fallast á að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að leggja hraðbraut yfir Kjöl þá er alveg borðliggjandi að þetta er þjóðhagslega hagkvæmt. Menn geta jú reiknað sig hvert sem er ef að það er pólitískur vilji fyrir hendi og það er sá vilji sem virðist ráða mestu.

P.s. 2+1 vegur er sumstaðar kallaður "mannaklippur". Spurning hvernig menn meta sundurklippta mótorhjólamenn og -konur og hvað það þarf mörg þess háttar dauðsföll áður en "2+1" verður breytt í "2+2" með nýju vegastæði við hliðina.

Kv.
Kristinn

Kristinn F. (IP-tala skráð) 7.2.2007 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband