Leita í fréttum mbl.is

Ég vill þá líka benda á þetta myndband!

Hér sést kannski hversu mikið er að marka Vigdísi Hauksdóttur. Hér er myndbrot sem ég fann á youtube af konsingafundi í sjónvarpssal þar sem Vigdís tjáir sig um hugsanlega aðildaumsókn að ESB. En svo nokkrum mánuðum seinna þegar búið var að kjósa hana var hún orðin fulltrúi Heimssýnar á aðalfundi NEI to EU  samtakana í Noregi.


mbl.is Benti einungis á myndbandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Arnar

Takk linkaði a þetta youtube myndband eftir eg sa þu hafðir fundið það!

Jón Arnar, 8.10.2011 kl. 23:19

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er kostur hvers manns að geta endurskoðað skoðanir sínar, eftir því hvernig umhverfið þróast. Þó einhverjir hafi verið hlyntir aðild að ESB vorið 2009, eru einungis örfáir þverhausar sem enn eru þeirrar skoðunar.

Það sem nú gengur á innan ESB, einkum innan evruríkjanna, hlýtur að vekja menn til umhugsunar um það hvort Íslandi sé betur borgið innan þess eða utan.

Þetta er reyndar ekki neitt nýtt sem nú er að gerast innan ESB. Menn innan ESB voru farnir að vara við því sem koma skyldi, strax veturinn 2008. Það var svo fyrir rúmu ári síðan sem spár þeirra tóku að rætast og ástandið nú jafnvel orðið mun verra en nokkur þorði að spá 2008 og enn á það eftir að versna. Þó sumir hér á Íslandi hafi ekki viljað viðurkenna þennan vanda, þá eru fáir eftir sem skella skollaeyrum við honum, enda þarf einstaka þvermóðsku til.

Vigdís Hauksdóttir var opin fyrir aðildarumsókn veturinn 2009. Hún hafði þó skynsemi til að sjá hvert stefndi og sneri af leið vitleysunnar.

Það væri betur ef fleiri hefðu kjark og þor til að viðurkenna vitleysu sína. Þó forsætisráðherra og utanríkisráðherra vilji ana áfram með bundið fyrir augu og eyru, er engin ástæða fyrir þjóðina að fylgja þeim í fen ESB. Það eru sem betur fer fleira og fleira Samfylkingarfólk sem sér vitleysuna og vill bakka frá feninu og sjá til hver þróun innan ESB mun verða.

Það er einmitt það fólk innan Samfylkingar sem harðast hefur talað fyrir aðild, Ingibjörg Sólrún og Jónas Kristjánsson, sem hafa gefið slíkar yfirlýsingar út. Það hefur vit og skynsemi til að greina á milli þess sem einhver glóra er í og þess sem er glóru laust.

En því miður er þetta fólk ekki í ábyrgðarstöðum innan flokksins, þó Ingibjörg eigi þó enn nokkur tök innan flokksins. En hún er ekki formaður og það er eins og flokksmenn þori ekki fyrir sitt litla líf að tala gegn formanni sínum!

Því miður fyrir Samfylkingar fólk en sem betur fer fyrir alla aðra landsmenn!!

Gunnar Heiðarsson, 9.10.2011 kl. 01:42

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gunnar Hreiðarsson og hvernig er ástandið hér á Íslandi. Það eru þó bæði geta og öfl í Evrópu sem geta komið til aðstoðar. Ef hér verður annað hrun hverjir hjálpa okkur þá? Og hvernig má það vera að nær allar þjóðir þar sem velmegun er og hefur verið eru gegnar í ESB. Minni á að Svíþjóð og Finnland sem og Noregur sóttum um aðild að ESB eftir síðustu bankakrísu þar sem þær töldu að það nauðsynlegt að vera í samstarfi við aðrar þjóðir og í einhverju skjóli ef að slíkt kæmi aftur fyrir. Þó Noregur hafi hafnað aðild þá hafa þeir 4X sótt þar um. Þeir fundu síðan olíuauðlyndir og eru ekki kannski á leiðinni þangað alveg á næstunni en nærri helmingur þjóðarinnar var tilbúin að samþykkja það síðast nema að þau voru óánægtð með sjávarútvegskaflan. Sem í dag skiptir þá ekki svo miklu máli lengur.

En þú vllt bara hafa þetta svona áfram eins og það er. Við látum nokkara menn hagnast á fiskinum okkar. Höldum uppi um 4500  bændum með háu landbúnaðarverði og niðurgreiðslum á kjöti sem þeir selja til útlanda til að þurfa ekki að lækka verð hjá okkur. Borgum Bændasamtökunum um hálfan milljarð fyrir að úthluta peningum til félagsmanna sinna og hafa eftirlit með sér sjálfir. Þú ert sáttur við að fá ekki að kaup hér ódýrari erlenda kjötvöru og grænmeti. Þú ert ánægður með að borga milljarða til ESB í gegnum EES án þess að hafa nokkuð um það að segja. Taka upp lög ESB án þess að hafa nokkuð um það að segja. Ýmsa tolla hér á vörur sem gera þær miklu dýrari en annarstaðar.  Og eigum við að tala um gjaldmiðilinn og lánin og vextina. Þú ert glaður með þetta allt les ég hér að ofan.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.10.2011 kl. 16:52

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og kannski aðeins í viðbót. Það liðu 4 mánuðir eða 5 frá því að Vigdís sagði þetta sem hér er að ofan í videóinu þar til að hún var mætt fyrir hönd Heimssýnar á fund með Nei til EU í Noregi.  Hvað hafði eiginlega breyst á þessum mánuðum. Hún sagðist fylgja samþykktum landsþings Framsóknar en það var sannarlega ekki svona sem Landsfundur samþykkti að málið yrði rekið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.10.2011 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband