Leita í fréttum mbl.is

Já, já! Segið svo að krónan sé á vetur setjandi!

Menn hafa verið andskoti brattir og sagt að það sé ekkert mál að hafa krónuna áfram. En þið ágætu vitleysingar ættuð að átta ykkur á að þar sem að aðrir eru ekki tilbúnir að kaupa krónu eða skipta í krónu nema til að græða á gengismun, þá er krónan dæmd til að rýrna jafnt og þétt áfram sem og hún verður að vera í höftum þar sem að hér bíða milljarðar sem vilja komast héðan út og kosta það að við verðum að vera með gríðarlegan gjaldeysirvaraforða sem þó myndi tæmast ef að við myndum ekki vera með höft. Og nú verður að herða þau.
mbl.is Lög um gjaldeyrishöft hert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

þetta eru því miður að mestu mistök Seðlabankans og löggjafans.  Í lögum um gjaldeyrismál(gjaldeyrishöftunum) eru ýmsar ívilnanir og undanþágur og virðist Seðlabankinn ekki hafa skoðað vel hvaða afleiðingar þær hefðu og hvað þær í raun kosta fyrir hagkerfið.

Löggjafinn sem samþykkti frumvarpið var heldur ekkert að spá í þessu heldur tók við frumvarpinu sem var samið í Seðlabankanum og Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og samþykkti það nær óbreytt og án gagnrýnna efnislegra athugasemda.

9. febrúar 2011(í fyrra) þá gaf Arionbanki út þetta kennslurit(PDF) í því hvernig ætti að nota HFF14 til að koma peningum úr landi og nýta sér ívilnun í lögunum.

Nú er verið að leiðrétta þessi mistök.

Lúðvík Júlíusson, 12.3.2012 kl. 19:49

2 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það er líka í óþökk ríkisstjórnarinnar að fólk fái að nota fjármagnið sitt til annars en það sem ríkisstjórnin vill.

Samfylkingin er að reyna allt sem í hennar valdi stendur til að fá fólk til að trúa því að grasið sé grænna hinummegin við lækinn. Trúðu mér, þar er grasið föllt að sjá og kemur illa undan vetri, ver enn það sem hér er.

Íslandi troðið í ESB = NEI TAKK...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 12.3.2012 kl. 20:00

3 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Krónan er ágæt en óstjórn ríkisstjórnarinnar og glórulaust rugl hjá seðlabankanum veikja hana sífellt. KRÓNAN ER AÐ RÝRNA JAFNT OG ÞÉTT ÚTAF ÓSTJÓRN Á EFNAHAGSMÁLUM, ÞAÐ ER LJÓTT AÐ KENNA KRÓNUNNI UM GETULEYSI STJÓRNVALDA Í HAGSTJÓRN Á LANDINU. ÞESSI 80 ÁR SEM VIÐ HÖFUM HAFT ÍSLENSKA KRÓNU HAFA LÍFSKJÖR BATNAÐ ÆVINTÝRALEGA. Það þarf að fá hér ríkisstjórn sem kemur atvinnulífinu úr þessari stöðnum sem verið hefur frá hruni. Það er mikið brýnna verkefni en að skipta um gjaldmiðil.

Hreinn Sigurðsson, 12.3.2012 kl. 20:58

4 Smámynd: ViceRoy

Við getum kennt ríkisstjórninni um lélegt gengi krónunnar en málið er hins vegar að þeir sem flytja út hafa hag af því að krónan sé lág... því verður alltaf veðjað gegn krónunni... Ekki að ég styðji þessa hálfvitastjórn sem halda skattar bjargi öllu, að neinu leyti, þá þurfum við gjaldmiðil sem okkar litla þjóð getur ekki vegið gegn... gallinn er hins vegar að ef eitthvað vegur gegn gjaldmiðli okkar, hver sem hann er þá verðum við að gera haft áhrif... ef við getum ekki nein áhrif þá hlýtur það að segja eitthvað um þær aðstæður þegar gjaldmiðilinn fellur hver sem hann er

ViceRoy, 12.3.2012 kl. 21:31

5 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Sannleikurinn er sá að við munu þurfa mun öflugri hagstjórn ef við tökum upp annarra manna gjaldmiðil heldur en að við værum með okkar eigin.

Sannleikurinn er sá að ef við höfum annarra manna gjaldmiðil og hér verður áfall vegna t.d aflabrests þá verður ekki hægt að fella gengið, gera okkur samkeppnisfær á ný og viðhalda lágu atvinnuleysi heldur verður því mætt með fjöldaatvinnuleysi, launalækunum, kaupmáttarrýrnun og niðurskurði í heilbrigðis og menntamálum. Við erum svo heppin að fá að fylgjast með í beinni útsendingu frá Grikklandi, Spáni, Ítalíu og fleiri löndum hvað bíður okkar undir ESB og Evrunni þegar áföll ríða fyrir Íslenskan efnahag eins og gerist reglulega í okkar auðlindahagkerfi. Er það björt framtíð að hafa 51% atvinnuleysi hjá ungu fólki eins og raunveruleikinn er hjá Grikkjum og Spánverjum undir ESB og Evrunni?

Krónan er síðasti jafnaðarmaðurinn á íslandi.

Krónan viðheldur lágu atvinnuleysi.

Krónan eykur atvinnuþáttöku og þá sérstaklega kvenna.

Krónan hefur komið þjóðinni úr því að vera fátækasta þjóð Evrópu til í að vera eitt af ríkustu löndum í heimi þar sem gott er að búa.

Krónan hefur gert margfallt meira á sinni 141 ára ævi heldur en nýleduþjóðir meginlandsins gerðu fyrir okkur á 700 árum.

Krónan hefur tvöfaldað þjóðarauðinn frá 1969 til dagsins í dag á meðan Danir hafa staðið í stað.

Krónan er það skásta sem við höfum í dag þrátt fyrir lúxusvandamál eins og gjaldeyrishöft.

Krónan tryggir að allir taka þá í áföllum í íslensku hagkerfi, ekki bara launamenn eins og yrði með upptöku á annarra manna gjaldmiðli.

Eggert Sigurbergsson, 13.3.2012 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband