Leita í fréttum mbl.is

Ætli að ESB myndi bara ekki fagna því að við hættum aðildarviðræðum við þá?

Þá væri það ekkert að flækjast fyrir þeim í málinu varðandi Makrílinn. Og ekkert að flækjast fyrir þeim í í málinu fyrir EFTA dómsstólnum. Og þá gætu þeir beitt sér af fullum styrk gegn okkur til að verja hagsmuni Breta og Hollendinga. Sem hafa lagt út hvað um 660 milljarða til að borga okkar hlut í Innistæðutryggunni. Þ.e. 20 þúsund evrur á hvern reikning og gerðu það fyrir hvað 3 árum. Og haf ekki fengð þann pening nema að smá hluta til baka. Því hafa þessir penigar sem þeir lögðu út ekki ávaxtast eða verið notaðir í annað.  Við vörum jú allar aðrar innistæður á bankareikningum og gerðum upp á milli innistæðueigenda í bönkum eftir útibúum og þjóðerni.

En ég sé ekki hvað það hjálpar okkur að segja okkur frá viðræðum við ESB? Held að þeim sé slétt sama. Og ekkert viss um að þeir séu tilbúnir að endurtaka viðræður við okkur í ljósi láta síðustu ára.  Held að hér sé nú ekki svo mikil orka í boði eða svo stór fiskistofn að við séum algjörlega ómissandi. 


mbl.is Ræddu viðbrögð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú styður sem fyrri daginn hagsmuni Breta og Hollendinga í þessu Icesave-máli og átt þó að vita, að Icesave-innistæðurnar voru tryggðar hjá brezka tryggingasjóðnum!

Annars eyði ég ekki (veikur) orku í þín snarvilltu skrif núna.

Jón Valur Jensson, 13.4.2012 kl. 00:42

2 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Jón Valur, Það er þér líkt að ljúga. Icesave innistæðunar voru aldrei nokkurntíman tryggðar hjá breska innistæðutryggingarsjóðnum. Enda var Icesave í útibúum, en ekki dótturfélagi. Kaupþing EDGE var í dótturfélagi, og tryggt í Bretlandi. Enda tóku bretar það yfir og það varð ekkert mál úr því eins og með Icesave.

Jón Frímann Jónsson, 13.4.2012 kl. 01:12

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég skal segja þér Magnús hvað það hjálpar að segja sig frá aðildarviðræðum á þessu stigi málsins, sem er það atriði að greina í sundur annars vegar pólítíska hagsmuni og hins vegar lagaleg álitamál, þar sem umsóknin að Evrópusambandinu er pólítisk en dómsmálið ekki.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú blandað hinum pólítíska farvegi inn í dómsmál gegn íslensku þjóðinni og við þvi hinu sama þarf að bregðast af fulltrúum hennar er sitja við stjórnvölinn, eðli máls samkvæmt.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.4.2012 kl. 01:31

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

JFJ, þú hefur ekkert vit á þessum Icesave-málum, fyrir utan að þú ert rammhltdrægur gegn íslenzku þjóðinni í þessu eins og í Esb-málinu. Leitaðu í smiðju til Lofts Þorsteinssonar verkfræðings, hann getur frætt þig um þetta eftir ýtarleg bréfaskipti við FSA og FSCS í Bretlandi. Árni Páll Árnason og aðstoðarmaður hans, Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur, kunnu svo sannarlega að meta upplýsingarnar frá nefndum stofnunum og frá hollenzka seðlabankanum, sem Loftur miðlaði til þeirra. Upphrópanir ófaglegs ómerkings í þessum málum hafa ekkert gildi gagnvart slíkum upplýsingum, þar sem einmitt þessi "top-up" innistæðna-trygging Landsbankans í Bretlandi kemur ótvírætt fram, enda galt hann þangað iðgjöld vegna trygginganna.

Jón Valur Jensson, 13.4.2012 kl. 11:06

5 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Jón Valur, Farðu nú og troddu þessum nasisma þínum eitthvert annað. Helst sjálfum þér líka þar sem enginn þarf að frétt af þér aftur. Vegna þess að þú ert ekki húsum hæfur hérna, eða annarstaðar.

Fullyrðingar Lofts Þorsteinssonar eru og hafa alltaf verið tómt bull. Enda er það svo að það sem hann fullyrti fyrir síðustu Icesave kosninganar hefur ekki staðist, ekkert af því.

Það er ekki nema von að Árni Páll hafi verið vitlaust upplýstur um stöðu mála ef hann hefur verið að taka við upplýsingum frá vitleysingum Lofti. Afstaða Hollenska Seðlabankans hefur alltaf verið skýr, eins og hjá Breska Seðlabankanum. Aftur á móti gátu þeir lítið gert þar sem Icesave var út útibúum en ekki í dótturfélögum. Því var Icesave allt saman á forræði íslenskra stjórnvalda og FME.

Þetta eru allt saman staðreyndir málsins sem þú hunsar. Vegna þess að það hentnar ekki þínu sjónarhorni á heiminn, sem er bæði þröngt og ömurlegt.

Guðrún María, Það er ekkert nýtt að ríki sem er að sækja um aðild standi í deilum við Evrópusambandið eða ríki Evrópusambandins. Slíkt gerðist síðast hjá Króatíu þegar þeir voru í aðildarferli. Það var yfir landamærum og miklir hagsmunir í húfi fyrir Króatíu. Það mál var hinsvegar leyst, og núna er Króatía á leiðinni að verða 28 aðildarríki Evrópusambandsins.

Jón Frímann Jónsson, 13.4.2012 kl. 12:48

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það mætti halda það á æsingarskrifum JFJ, að hann sé öfgamaður.

Ég er að ræða hér lagaréttindamál á viðskiptasviði; hann talar um nazisma!

Þú nýtur þess nú, að ég er upptekinn, annars færi ég í saumana á því sem þú skrifar hér um málið sjálft, en heimskulegt er alltjent af leikmanninum princíplausa að tala um hinn ötula vitsmunamann og greinahöfund Loft verkfræðing sem "vitleysing".

Ég þekki þetta mál eins og handarbakið á mér, var m.a. á fundi með ráðamönnum í viðskiptaráðuneytinu um það ásamt Lofti o.fl.

Jón Valur Jensson, 13.4.2012 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband