Leita í fréttum mbl.is

Hef sagt allt sem ég ætla að segja hér á blog.is i bili

Þegar menn hér á netinu eru farnir að blanda vinnustað mínum og þeim sem ég vinn við að aðstoða inn í eiinhverjar árásir á mig þá verð ég að hugsa málið. Ætlaði fyrr i kvöld að halda ótrauður áfram en eftir að hafa lesið athugsemdir hér þá er blog.is fullt af fólki sem ræðast bara að persónunni sér til skemmtunar.  Og þar gengið svo langt að upplýsa um heimilsfang staðar þar sem búa fatlaðir einstaklingar og væna mig um að "hanga bara í tölvunni" í vinnu minni. Menn jafnvel gengið svo langt að klaga mig fyrir vinnuveitendum mínum. Þar sem mér er annt um vinnu mína og hata ef að þeir sem búa þar kæmu til með að dragast inn í þessa vitleysu þá hef ég ákveðið að hætta í bili að skrifa hér. Væntanlega öllum til ómældrar ánægju. 

Finnst að blog.is sé ekki lengur þannig vettvangur þar sem fólk vill rökræða. Nú er það bara ef að einn og einn leyfa sér að styðja stjórnina þá er löglegt að taka okkur af lífi með öllum þeim meðölum sem menn finna. Gæti sem best trúað að þessir menn gætu grafið eitthvða upp um fjölskyldu mína og farið að áreita fleiri.  Ég ætla ekki að nafngreina þá hér en þeir vita hverjir þeir eru og eru svona ómerkilegur hópur hægri vanabe sem enginn nennir að hlusta á og því nota þeir svona aðferðir til að vekja athygli á sér. Svona leik nenni ég ekki að stunda áfram hér. Enda eru margar fleiri leiðir til að tjá sig.

 

blogghlé

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll; Magnús Helgi !

Á annan máta; hefði farið, hefðir þú ígrundað betur, mitt mál, á minni síðu - og; hversu varhugavert er, í öllum löndum, að staðsetja sinn málstað, að baki víglínu óvinanna, Magnús minn.

Til þessa; hefði því alls ekki þurft að leiða, sem þú lýsir hér, að ofan.

Sjálfum; þykir mér miður, að vinnustaður þinn, skyldi inn í þessa um ræðu dragast, sem raunin hefir orðið á - því; atvinnu og fjölskyldulífi á að halda fyrir utan orrahríð alla, nema; þegar úrhrök stjórnmálanna sjálfra, eiga hlut að máli, vitaskuld - sem; þú ert nú að gjalda fyrir, viljandi - eða óviljandi, með því að styðja And- íslenzkan málstað, síðuhafi góður, eða; allt til þessa, að minnsta kosti.

Hvar; ég er Alþjóðasinni (alls Heimsins - ekki bara, hluta hans), og þar með á skjön við eiginlega þjóðernisstefnu, sem ég áður fylgdi, vil ég samt taka fram, Magnús Helgi, að ég skil sjónarmið þeirra, sem við hinu Vestur- Evrópska ofurelfi (ESB), vilja vörnum við koma, aldeilis.

Og; ekki hvað sízt, í ljósi hinna viðsjárverðu tíma, sem framundan eru - nær; sem fjær, í veröldinni, allri.

Hygg; að þú skiljir mína meiningu, þar um, Magnús Helgi.

Vil; að endingu, þakka þér fyrir öll okkar skoðanaskipti, sem við höfum átt, frá árinu 2007, að minnsta kosti, þó oft hafi á bátinn gefið, í okkar samskiptum, sem eðlilegt er, þegar um ólík sjónarmið, er að ræða.

Þrátt fyrir; hugmyndafræðilegan ágreining okkar, margvíslegan, árna ég þér, og öllu þínu fólki heilla, í framtíðinni, og; að þú náir að skilja betur, hvað í húfi er, fyrir Ísland og Íslendinga, til næstu árþúsunda litið - ekki bara, til hins skemmri tíma, og hver ábyrgð núlifandi kynslóða er, að koma landi og lýð og fénaði öllum skammlaust, til skila, til ókominna kynslóða, án erlendra yfirráða, að öllu leyti.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /       

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.4.2012 kl. 03:31

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Óskar svona skoðanaskipti eru bara allt önnur Ella. Ég hef gaman af þeim. En þegar menn fara í að hóta mér með því að gefa upp vinnustað minn. Halda fram að ég sé ekki að vinna vinnu mína og klaga mig til vinnuveitanda þá tek ég ekki áhættu á að menn fari ekki að angra aðra í kring um mig. Og þá er kominn tími til að hætta því maður veit ekki hvar svona veikir menn enda. En ég hef haft gaman að okkar rökræðum þó þú sért stundum svolítið forn í máli og ég þurfi að lesa aftur það sem þú skrifar til að ná merkingunni þá hef ég haft gaman að þér og þínum tilsvörum. Takk fyrir það. En ég skal koma okkur í ESB á endanum. Annars ótttast ég að dætur mína og barnabarn ásamt æsku okkar gangi bara þar inn með þvi að flytja þangað. Því hér verða allir hræddir að ætla að gera áætlanir um framtíðina þegar engin getur spáð fyrir hvers virði t.d. krónan verður eftir viku, ár eða 5 ár. Sem og að lifum nú þann tíma að jafn langt er að fljúga til Bretlands  eða Danmörku og að keyra til Hafnar í Hornafirði. Og ef hér verður áfram verðtrygging og verðbólga er ekkert sem heldur í fólk til lengdar. En úps ég er hættur að skrfa hérna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.4.2012 kl. 03:58

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Já Magnús, samfélagið er orðið sjúkt, alveg helsjúkt. Ég hef séð og lesið þessi komment sem þú nefnir. Þau dæma sig sjálf. Það er einmitt þeirra vegna sem maður hætti að tjá sig á blogginu og hvatti ég þó þar til uppreisnar gegn fjórflokknum. Ég virði allar skoðanir og líka skoðanaleysi. Skítkastið er allsráðandi. Fésið dugar. Óskar Helgi er einharður maður og liggur ekki á sínu. Hann, ólíkt mörgum öðrum gefur mönnum þó tækifæri og sýnir virðingu. Flottur fýr :-)

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 14.4.2012 kl. 05:40

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þetta þykir mér mjög ósanngjarnt og leiðinlegt Magnús.

Ekki vegna þess að við séum svo oft sammála, aldeilis ekki.

En það hefur samt verið gaman að lesa þitt sjónarhorn og eiga við þig rökræður og orðastað. Vona að þú komir inn aftur og að þér gangi allt í haginn bæði í leik og starfi.

Gunnlaugur I., 14.4.2012 kl. 09:24

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef menn þola ekki gagnrýni þá er lítil eftirsjá að þeim..........

Jóhann Elíasson, 14.4.2012 kl. 09:49

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Jóhann - sammála þér.

Óðinn Þórisson, 14.4.2012 kl. 12:32

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Svona bloggbullur eru auðvitað óþolandi, sama gegn hverjum það beinist. Ég hef oftast verið ósammála Magnúsi, en það á enginn að þurfa að verða fyrir svona löguðu.

Ég skal viðurkenna að Magnús hefur ekkert alltof mikið umburðarlyndi gagnvart skoðunum og rökum þeirra sem eru á öndverðum meiði við hann og hefur þótt að hann taki ekki nógu mikið á mótrökum. Hinsvegar man ég ekki eftir að hann hafi verið dónalegur.

Það sem ég geri gagnvart þeim sem mér finnst ekki gera nóg til að skilja mín rök, er að ég hætti bara að þrasa við þá. Enda getur hver sem er séð að það er langt síðan ég setti inn athugasemd hingað - hef einfaldlega álitið það vera tilgangslaust, því ég hef játað mig sigraðan gagnvart því verkefni að snúa Magnúsi til betri vegar.

Það er ljóst að engum mun takast það, fyrst blogginu verður lokað, en kannski sér hann ljósið seinna meir.

Theódór Norðkvist, 14.4.2012 kl. 15:46

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Magnús, ég skora á þig að láta þetta ekki hafa áhrif á bloggið þitt.

Þetta eru lítilmannlegar ofsóknir í anda Mccarthyisma og þær munu merkja skítseiðin til frambúðar.

Svona vesalingum gleymir maður ekki og ég fer fram á það að þeir láti ekki sjá sig á minni síðu í framtíðinni.

hilmar jónsson, 14.4.2012 kl. 18:45

9 identicon

Hvort hann heitir Jóhann Elíasson, Óðinn Þórisson, Jóhann Laxdal eða bara Gróa á Leiti, og eru öfga hægri fólk !  Þá er það ekki þeirra réttur að eyðileggja vefinn og  netsamfélagið !!!

Svoleiðis fólk ætti að vera gera eitthvað þarfara !

Hvernig væri að fara bara út og anda að sér góðu lofti ?

Getur verið að einhver  þeirra sem gagnrýna Magnús hvað harðast séu sjálfir á launum , hjá klíkuklúbbum, við að eyðileggja netsamfélagið ?

Stundum dettur manni ekkert annað í hug, því svo svakaleg eru viðbrögðin.  Það er enginn heilbrigður maður sem setur sumt á blað sem þessir aðilar eru að skrifa !

JR (IP-tala skráð) 15.4.2012 kl. 00:27

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

JR, ég get ekki séð að það sé neinn skortur á ÖFGA VINSTRA FÓLKI HÉR Á BLOGGINU..................

Jóhann Elíasson, 15.4.2012 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband