Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðisflokkur! Hvers vegna ætlar fólk að kjósa hann?

Nú er von að maður velti fyrir sér hvað sérstaklega veldur því að um 40% sé tilbúið að kjósa Sjálfstæðisflokk!

  • Er það Bjarni Ben? Nú var hann þingmaður Sjálfstæðisflokks í hruninu sagði margt þá sem hann hefur dregið allt til baka.
  • Er það kannski af því að hann stóð sig svo vel sem stjórnarformaður BNI eða hvað það hét sem keypti N1 og skuldsettu til andskotans. Keyptu og keyptu öll hjólbarðaverkstæði, varahlutaverslanir og fóru svo kyrfilega á hausinn.  Halda menn að það sé besta leiðin fyrir Ísland í dag?
  • Er það Einar Guðfinns. Stóð hann sig svo vel sem ráðherra?
  • Er það styrkjakóngurinn Guðlaugur Þór?
  • Er það Birgir Ármannsson? 
  • Er það af því að fólki líkar svo vel við hvaða stefnu Sjálfstæðisflokkur hefur gagnvart útgerðinni og fiskveiðilögum?
  • Er það vegna þess að þeir hafa boðað að þeir ætli að afnema auðlegðarskattinn? Og hver á þá að borga hann í staðinn?
  • Er það af því að þeir vilja virkja þó það sé engin kaupandi að orkunni í augnablikinu og því líkur á því að orkan verði nærri gefin?
  • Er það kannski Árni Johnssen sem vekur áhuga fólks?
  • Er það kannski Jón Gunnarsson? Hefur fólk heyrt hann flytja ræðu án þess að virkjun komi fyrir í henni?
  • Er það kannski möguleikinn á að þeir selji Landsvirkjun sem vekur fólki löngun til að kjósa flokkinn?
  • Er það kannski allar lausnirnar sem þeir eru með varðandi krónuna, vertryggingu, gjaldeyrishöft og svo framvegis? Nei úps þeir eru ekki með neinar!
  • Er það kannski fyrri árangur Sjálfstæðismanna varðandi einkavinavæðingu banka?
  • Er það kannski vegna þess hvernig þeir hafa valið embættismenn og dómara?

Hvað skildi það vera sem fær fólk til að gefa Sjálfstæðisflokkinn upp flokkinn sinn í kosningum. 

P.s.smá viðbót. Síðunni barst bréf. Þar var viðkomandi búin að bera saman kannanir Fréttablaðsins frá því í des 2011. Og þá má sjá að fylgi Sjálfstæðismanna er nú ekki að aukast skv. þeim.

 

konnanir_frettabla_sins.jpg
 
 
Og hann bréfaskrfari bætti síðan við:

 

Kannanir þessar eru gerðar þannig að hringt er þangað til 800 svör hafa fengist.

Fréttablaðið og Stöð2 hafa tekið fram við allar þessar kannar að vegna þessa lága svarhlutfalls eigi að taka niðurstöðum um fylgi flokkanna með fyrirvara.

Minni á að það sem Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði sagði um könnunina 10. des 2011 í Fréttablaðinu má heimfæra upp á allar þessar kannanir: „Líklegt er að þeir sem hafi kosið stjórnarflokkana, Samfylkinguna og Vinstri græna, í síðustu kosningum séu síður tilbúnir að taka afstöðu til flokka en þeir sem styðji Sjálfstæðisflokkinn eða Framsóknarflokk. Því megi búast við því að stjórnarflokkarnir eigi eitthvert fylgi inni þegar komi að kosningum.“

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur - Björt framtíð í þriðja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Teitur Haraldsson

Einfaldlega vegna þess að þeir sem eru núna eru svo mikið verri að öllu leiti.

Hvað í ósköpunum ætlar þú að kjósa?

Teitur Haraldsson, 18.1.2013 kl. 19:09

2 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Á fólk að kjósa Árna Pál,Guðbjart,Ólínu,Katrínu,Möller,Össur,Skúla,og hvað það nú heitir allt þetta samfylkingarpakk?Ég held bara ekki.Af hverju ætti að kjósa þessa hrunverja?Það er alveg sama hvað þið samfósar farið í mikla afneitun ÞIÐ VORUÐ Í HRUNSTJÓRNINNI.Og eftir að þið fóuð í stjórn með vg hélt hrunið áfram.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 18.1.2013 kl. 19:09

3 identicon

Jú, stefnuskráin virðist falla launafólki í geð, þ.e. að selja Landsvirkjun og viðhalda verðtryggingu.

Almenningur (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 19:19

4 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Varðandi flokk sem er nr 2 og flokk nr 3 í þessari könnun verður að segjast að margt er líkt með kúk og skít.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 18.1.2013 kl. 19:30

5 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað ekki fullkominn.  Það er enginn stjórnmálaflokkur.  Yfirleitt þegar kjósendur ákveða hvað þeir ætla að kjósa, gera þeir yfirleitt málamiðlanir.  Þeir kjósa þann sem þeir telja næst því að gera það sem þeir telja rétt.

En kjósendur hegna líka þeim sem ganga á bak orða sinna og stefna í tóma vitleysu.

Þess vegna er Sjálfstæðisflokkuinn í stórsókn og ríkisstjónarflokkarnir að hrynja í fylgi.

Vegna þess að kjósendur hafa áttað á að ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu án innnistæðu og að eftir allt saman þá sé Sjálfstæðisflokkurinn betri kostur.

Án þess að hann sé fullkominn, langt í frá, en sá kostur er ekki finnanlegur fyrrir stærstan hluta kjósenda.

G. Tómas Gunnarsson, 18.1.2013 kl. 19:42

6 identicon

Liggur það ekki ljóst fyrir Magnús Helgi að við eigum allavega alls ekki og aldrei nokkurn tíma að kjósa yfir okkur önnur eins ömurlegheit og við höfum nú.?

Aðalbjörn Þór Kjartansson (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 19:44

7 identicon

Ummm... Hvað eru 41% af 60% þeirra sem tóku afstöðu, þrátt fyrir hefðbundnar og þrálátar spurningar Fbl og S2 um hvort það gæti hugsað sér að kjósa D?

Svarið er: um 25%.

Sef rólegur í kvöld.

Fv. Ybbar Gogg (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 20:03

8 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þeir eru skárri en núverandi stjórnvöld. Það er líklegasta skýringin á þessu.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.1.2013 kl. 20:06

9 identicon

Fólk á þá allvega möguleika á að eiga í sig og á, annað en með þetta krabbamein sem nú er við völd

Wilfred (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 20:19

10 identicon

Af því að fólk hefur komist að því fullkeyptu hvað vinstri stjórn þýðir.

Soffía (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 20:50

11 identicon

Algengasta ástæða þess að hinn venjulegi almenni borgari kjósi Sjálfstæðisflokkinn, en ekki þessi minnihluti meðal kjósenda hans sem eru eiginlegir Sjálfstæðismenn, er einfaldlega óbeit á Samfylkingunni, sem knýr þetta fólk, meirihluta kjósenda flokksins, til að kjósa þann flokk sem líklegastur er til að knekkja á honum. Eins algeng og Sjálfstæðisflokks-óbeit er, er Samfylkingar-óbeit, að vilja fella Samfylkinguna hvað sem er, nefnilega mun algengari, og hinn þögli meirihluti Íslendinga á sameiginlega þessa Samfylkingaróbeit, og tjáir með mismunandi móti, sumir þessu. Einunigs örlítið brot kjósenda xD kýs flokkinn til að tjá neitt annað en óbeit á því sem þeir álíta ennþá verri kostinn. Þetta er dagssatt.

Venjulegur Íslendingur (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 21:05

12 identicon

Sjálfur þekki ég persónulega hundruðir slíkra Íslendinga, sem kjósa xD, þó þeim verði flökurt við verknaðinn, og gera þetta ítrekað, BARA af Samfylkingaróbeit. Sumir þessara Íslendinga eru vinstrisinnaðri en nokkur íslenskur stjórnmálaflokkur. Afarfáir þeirra myndu teljast hægrisinnar, flestir eru einhvers staðar á miðjunni. Þjóðerinssinnaðir eru þeir almennt ekki.

Venjulegur Íslendingur (IP-tala skráð) 18.1.2013 kl. 21:08

13 Smámynd: Guðmundur Björn

Þetta hlýtur að vera einhver aumkunarverðasta athugasemd / færsla sem ég hef nokkur tíma lesið.  Greyið þú Magnús að fólk ætlar að mögulega kjósa eitthvað annað Baron Von Brussel hefur skipað þér að kjósa.   Þú átt mína vorkunn, þú þarft á henni að halda.

Guðmundur Björn, 18.1.2013 kl. 22:10

14 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Afþví það vill annað hrun.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.1.2013 kl. 22:27

15 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

þeir sem vilja lægri skatta og meiri efnahagslegt frelsi kjósa sjálfstæðisflokkinn.

Þeir sem trúa því að einstakloingarnir sjálfir eyða betur sínum eigin peningum heldur en stjórnmálamenn skjósa XD

Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2013 kl. 23:53

16 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

það jákvæða við þetta er algjört hrun VG.

ég vona að þeir fá minna en 5% og þurkast út

Sleggjan og Hvellurinn, 18.1.2013 kl. 23:54

17 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það skýrir ekki svo mikið fylgi Sjalla að þeir vilji lækka skatta á elítuna. Elítan er bara 3-4% þjóðarinnar.

Sagan sínir og það er vel staðfest talnalega, að Sjallar almennt hækka skatta á allan almenning ef þeir komast að kjötkötlunum.

http://blogg.smugan.is/bvg/2013/01/19/loford-og-veruleiki/

Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.1.2013 kl. 14:28

18 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ómar

í valdatíð XD var flöt skattprósenta þ.e allir borga sama hlutfall. Þannig að tekjuháir borguðu meiri en tekjulágir í krónum talið.

Svo var persónuafslátturinn valdandi þess að þegar allt var tekið saman þá borguðu tekjulágir lægri vaxtaprósentu... XD verðtryggði persónuafsláttinn rétt fyrir hrun...

það fyrsta sem vinstristjórnin gerði var að afnema þessa verðtryggingu.

Sleggjan og Hvellurinn, 19.1.2013 kl. 21:11

19 identicon

Vegna þess Maggi litli.

Kostirnir fyrir venjulegt launafólk eins og mig eru þessir.

1. Kjósa tæra vinstri stjórn áfram sem svíkur meirhluta kosningaloforða sinna og láta skatta sig og hagkerfið til Helv. 

2. Kjósa spiltan stjórnmálaflokk sem kemur hlutum og hagkerfinu af stað og vill lækka skatta.

 Ég veit ekki með þig en fyrir mér er valið freka einfallt. 

Bing Bong (IP-tala skráð) 20.1.2013 kl. 15:56

20 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Sennilega vegna þess að 40% íslendinga eru fávitar.

Þorvaldur Guðmundsson, 20.1.2013 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband