Leita í fréttum mbl.is

Hér fer fyrirtæki manns sem telur að hann sé hæfastur í að stjórna Íslandi.

Nú er EM 13 áður BMI komið í gjaldþrotameðferð. Það væri í ekki í frásögur færandi nema að þar var stjórnarformaður Bjarni nokkur Benediksson. Maður sem um 37% þjóðarinnar segir nú að það sé tilbúið að kjósa sem Forsætisráðherra Íslands þ.e. með því að kjóðsa Sjálfstæðisflokki. Þarna er gjaldþrotafyriritæki og í því eru engar eignir en skuldir upp á 4,3 milljarða. Þetta er fyrirtæki sem fór með stóra eignarhluta í N1 og kom því fyrirtæki í gjaldþrot og það var yfirtekið af kröfuhöfum. N1 var ESSÓ áður stærsta olíufélag landsins. Á nokkrum árum tókst þessum eigendum að gjörsamlega skuldsetja það til andskotans með því að reyna m.a. að kaupa upp öll dekkjaverkstæði og varahlutaverslanir landsins. Og sennilega töpuðu Bjarni og ættingjar hans í raun litlu heldur voru búnir að ná mestu af sínum þaðan út áður en til gjaldþrotsins kom. Því ekki hef ég heyrt talað um að þeir séu persónulega gjaldþrota.  Í samkrulli við þá var líka faðri Sigmundar Davíðs og þó þessi fyrirtæki séu farinn þá hefur maður ekki heyrt að Gunnlaugur sé heldur gjaldþrota sjálfur þannig að einhvernvegin hefur þeim tekist að bjarga eigin peningum úr þessum félögum.

En sem sagt svona var árangur Bjarna sem stjórnarformanns BMT hf á nokkrum árum. Þetta virðist stórum hluta fólks lika vel og vekja hjá þeim traust um að þar fari maðurinn til að bjarga Íslandi. Og fólk alveg óhrætt við að þessir drengir Bjarni Ben og Sigmundur Davíð láti ekki eigin hag hafa áhrif á ákvarðanir sínar ef þeir komast í aðstöðu til þess. 


mbl.is 4,3 milljarða gjaldþrot BNT
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

BB er hæfastur að stjórna Íslandi, það þarf ekkert að halda neitt um það.

Kveðja frá Saudi Arabíu

Jóhann Kristinsson, 22.1.2013 kl. 18:17

2 identicon

Er það ekki alveg öruggt að við eigum titilinn "Zígaunar Norðursins", alveg upp efstu sæti stjórnmálamanna/kvenna? Íslendingar slá ekki slöku við þegar um þjófnað og annað smátt og gott er að ræða.

Guð blessi Ísland !!! Sagði einhver góður maður + allir prestar og prelátar kyrja þetta í kirkjum.(Ekki skrýtið þótt ekki margir mæti í kirkju.)

jóhanna (IP-tala skráð) 22.1.2013 kl. 18:30

3 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Svakalega er þetta auðviðrilegt hjá þér."Ísamkrulli við þá var faðir Sigmundar Davíðs" Hvað kom Sigmundur Davíð þessu við? Þið samfíósar ættuð að líta ykkur nær. Hefur t.d.aðstoðarmaður forsætisráðherra og ráðgjafi(þú veist þessi sem vissi ekki hvar Jón Siguðsson var fæddur)gert eitthvað vafasamt?

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 22.1.2013 kl. 18:49

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Af öllum þeim sem eru til boða þá er ég sammála því að Bjarni Benediktsson er hæfastur til forystu fyrir okkur Íslendinga...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 22.1.2013 kl. 19:52

5 identicon

Ja, Ingibjörg Guðrún ekki hefur þú mikið álit á stjórnmálamönnum yfir höfuð. Ef Bjarni Ben. er sá besti þá er nú um auðugan garð að gresja. ég er sammála þér í að það finnast ekki mörg gáfnaljós í stjórnmálafólki á Íslandi, en ég held að við verðum að vona og trúa að Bjarni Ben. komist aldrei í nálægt ríkiskassanum. Hann veit ekki sjálfur hvað hann skrifar undir, hvaða dag, eða hvort hann hafi gert það yfir höfuð. Ekki veit ég það. Þá tala ég um Vafningin. Veit það nokkur hvaða þátt hann átti í 4,3millj. gjaldþroti. Þetta verði valið sem forsætisráðherra. Nei takk.

jóhanna (IP-tala skráð) 22.1.2013 kl. 20:33

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég nefndi þetta með Sigmund Davíð og föður hans að fólk skildi gæta að því að bæði Bjarni Ben og fjölskylda hans og Sigmundur Davíð og fjölskylda hans er á kafi í fjárfestingum og fyrirtækja rekstri og fólk þarf bæði að átta sig á að gera vel fyrir fjáfesta og eignarmenn snertir beint hag þeirra og fjölskyldna. Bendi á að Sigmundur Davíð er nú tiltölulega vel stæður því að kona hans er erfingi að miklum auðæfum og þeim er sjálfsagt fjárfest vel. Skattar t.d. auðlegðarskattar snerta þau væntanlega beint. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.1.2013 kl. 20:50

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svo sé ég ekkert auðvirðilegt að nefna það að Gunnlaugur er faðir Sigmundar. Eða á Sigmundur að fyrirverða sig fyrir það? Og heldur fólk að Sigmundur eða Bjarni færu að beita sér t.d. fyrir sköttum sem myndu leggjast þungt á feður sína? Eða aðra í fjölskyldum sínum?  Hefði Sigmundur t.d. með alla sína hagfræðiþekkingu ekki átt að ráðleggja föður sínum ef að hann er svona klár?

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.1.2013 kl. 20:55

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ef að Bjarni Ben sem stjórnarformður í stórfjárfestingar fyrirtæki var ekki gætnar en svo að fyrirtækið var skuldsett fyrir um 10 eða 12 milljarða þ.e. N1 sem var langt umfram verðmæti þess hvernig haldur fólki að honum gangi að fást við ríkisstjóð sem skulda yfir  landsframleiðslu sem er um 1500 milljarðar. Og hugmyndir hans og félaga ganga út á að lækka skatta og gjöld á fjárfesta og fyrirtæki? Hvað er það? Hvernig á að borga af lánum Ríkisns. Ætli það verði ekki vandamál? Nema að það verðum við almenningur sem verðum látin borga í staðinn?

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.1.2013 kl. 20:59

9 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Magnús Helgi, þetta fylgir fréttinni og enginn xD vill vita um.

Hinsvegar er nokkuð ljóst að þjóð mín mun kjósa þennan vanhæfa mann yfir sig næst.

Held samt að greind BB sé hærri en Georgs W (93, en meðallag er 100)

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.1.2013 kl. 23:02

10 identicon

Mikið er ég fegin að búa erlendis. Ekki hvarflar að mér að kjósa íslenska stjórnmálamenn...og þó, ég ætti kannski að gera það; það lendir þá á því fólki sem býr þar enn og vill þetta yfir sig.

Ólöf Zeige (IP-tala skráð) 23.1.2013 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband