Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir atvinnulifið um ESB viðræður:

Svana Helen Björnsdóttir formaður Samtaka Iðnaðarins:

Því næst vék Svana máli sínu að Evrópumálum. Hún sagði það staðreynd að Ísland getur ekki verið einangrað. Ísland sé háð utanríkisviðskiptum og jafnvel landbúnaður getur ekki afhent þjóðinni afurðir án þerra. Þannig liggi margrætt matvælaöryggi í utanríkisviðskiptum en ekki innflutningshöftum.

Reynsla þjóðarinnar af einangrun er fátækt, hungur og dauði. Nú er það ekki svo að okkar tímar hvetji til einangrunar og enginn þröngvar henni upp á okkur nema við sjálf. Við eigum einmitt að nýta okkur það val sem við höfum, starfa með öðrum þjóðum að okkar og þeirra framgangi, nýta það sem aðrir bjóða og gera betur en við og bjóða þeim það sem við gerum best.

Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins

Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, telur rétt að ljúka aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Mikilvægt sé að ná niðurstöðu í máliðsvo það verði ekki að eilífðardeilumáli. Hann bendir á að í viðræðunum skipti miklu máli að ná ásættanlegri niðurstöðu í sjávarútvegsmálunum. Það komi síðan í hlut þjóðarinnar að samþykkja aðild eða hafna henni. 

Jón Sigursson forstjóri Össurar

Jón segir að í hans huga komi ekkert annað til greina að ganga í Evrópusambandið, af því gefnu að aðildarsamningurinn verði ekki „fráleitur.“

Mér finnst það vera eina langtíma stefnumótunin sem liggur frammi núna og mér finnst það óskaplega skrítið að flokkar slái þennan eina möguleika út af borðinu, nema þá að koma með einhverja aðra framtíðarsýn. Það finnst mér ekki vera uppi á borðinu.

Jón segir það mikið áhyggjuefni að íslenskir stjórnmálaflokkar hugi ekki að gjaldeyrismálum. Hvað Össur varðar breytir það litlu, enda fyrirtækið með undanþágu frá lögum um gjaldeyrishöft og getur þar af leiðandi „hagað sér eins og það vill

 

Á ég að trúa því að fólk ætli að trúa Birni Bjarnasyn, Jóni Bjarnasyni, Ragnar Arnalds, Styrmi Gunnarssyni  og Páli Vilhjálmssyni um hvað felist í ESB og það sé bara eymd og volæði. Flestir menn á eftirlaunaaldri sem eru búnir að ljúka afskiptum af Pólitík og engin eftirspurn hefur verið eftir síðan. 


mbl.is Svana endurkjörin formaður SI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

ég trúi ekki né treysti þessum mönnum sem þú nefnir. Hafa skal þó í huga að ég horfi á staðreyndir og þær segja mér að það sé ekki gott fyrir okkur sem þjóð að hverfa inní þetta samband.

Ástæðan er einna helst sú að ég horfi uppá fólkið í þessum löndum búa við lakari hagvöxt sér til handa. Það breytir því engu hvað fólk segir um að hagvöxtur flestra landa sé í blússandi blóma, hagvöxturinn sem ég horfi á er þykkt seðlaveskja eða bankabóka íbúa landanna.

Það er hægt að taka Pólland sem dæmi en þrátt fyrir excelskjöl sem sýni hagvöxt þá er ekki um raunverulegan hagvöxt að ræða þar sem fólk býr við hækkandi verðlag en engar launahækkanir. Þetta er hinn raunverulegi "hagvöxtur" sem á sér stað þar í landi sem dæmi og gekk Pólland í ESB 2004.

Það sagði við mig maður, pólsku, í samtali um daginn, frá heimahögum þar sem hann býr að ef Pólland hafi ekki orðið fyrir kreppu þegar aðrar þjóðir fengu hana, þá væri hún skollin á núna. Tek fram að maðurinn er búsettur í Póllandi.

Af öðrum manni sem ég hef verið í sambandi við en hann er Portúgalskur. Hann segir að landið okkar egi ekki að ganga í ESB, en ástæðuna segir hann vera, vaxandi atvinnuleysi innan sambandsins, ekki bara Portúgal.

Ég get bent á fleiri samtöl sem ég hef átt við fólk frá hinum og þessum löndum sambandsins og eru flest á þann veg að viðmælendur segja að landið egi ekkert erindi í ESB, betur færi að standa fyrir utan og bíða enn um sinn. Þei fáu sem sögðu annað vildu hreynlega ekki tjá sig um það hvort við ættum að ganga inn, vöruðu frekar við því en sögðust ekki vilja í dag ef verið væri að fjalla um þeirra þjóð...

Kveðja

Ólafur Björn Ólafsson, 14.3.2013 kl. 17:31

2 Smámynd: Rafn Guðmundsson

flott hjá þér Magnús

Rafn Guðmundsson, 14.3.2013 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband