Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ánægður að sjá örvæntinguna á þessu bloggi um afhroð samfylkingarinnar eftir 4ra ára samfellt getuleysi í þjóðmálunum...

Það merkilega er það hvað þetta kemur ykkur á óvart, þótt það sé linnulaust síðan vorið 2009 búið að kalla eftir efndum flokksins að standa vörð um hagsmuni landsmanna, en öll ykkar orka hefur farið í að verja hagsmuni erlendra kröfuhafa á kostnað landsmanna.

Sigurður (IP-tala skráð) 17.3.2013 kl. 17:08

2 identicon

AF bloggi Stefáns Ólafssonar sem hefur verið óþreytandi að reka áróðurinn fyrir ykkur.

Þar skrifar Marinó G Njálsson ágætis svar:

"Þú segir, Stefán, að stjórnarflokkarnir hafi náð ágætum árangri með endurreisnarstarfið. Mér finnst það ekki vera rétt. Stjórnarflokkarnir hafa gert endalaus mistök varðandi endurreisnina. Fyrsta var að standa ekki við skjaldborgina um heimilin, eins og lofað var. Annað var að láta fjármálafyrirtækin marka stefnuna um skuldaleiðréttingu fyrirtækja (og raunar heimilanna líka). Þriðja er að hér hafa varla orðið til störf vegna aðgerða stjórnvalda. Fjórða er hin grófu mistök sem gerð voru varðandi samninga um endurreisn bankanna. Fimmta var að samþykkja hljóðalaust, að nýju bankarnir hagnist um hundruð milljarða við endurmat á lánum, sem þeir fengu með miklu afslætti. Sjötta er hvernig komið er fyrir hinum ýmsu stofnunum samfélagsins, t.d. stendur heilbrigðiskerfið á brauðfótum. Sjöunda er að varla hefur verið staðið við neitt af þeim atriðum sem komu út úr vinnu þingmannanefndar með niðurstöðu RNA og samþykkt var að hrinda í framkvæmd. Gæti haldið svona áfram í nokkurn tíma í viðbót.

Staðreyndin er að stjórnvöld settu upp skjaldborg um fjármálastofnanir á kostnað almennings og almennra fyrirtækja. Nánast bara þeir sem eru í klíkunni fá skuldir lækkaðar, en af öðrum eru eignir teknar eða þeir hraktir í gjaldþrot. Ég kalla þetta ekki ágætan árangur nema þetta hafi verið markmiðið."

Allt satt og rétt hjá Marinó eins og svo oft áður, og allt eru þetta hlutir sem er búið að margbenda ykkur á.

Samt skiljið þið bara ekkert í því að fólk sé búið að gefast upp á flokknum ykkar...

Sigurður (IP-tala skráð) 17.3.2013 kl. 17:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er á alveg sama máli og Sigurður "ÞAÐ ER NOKKUÐ FRÓÐLEGT AÐ FYLGJAST MEÐ HRÆÐSLU LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR VIÐ YFIRVOFANDI FYLGISTAP OG ÞEIR ERU BÚNIR AÐ FINNA SÉR ÓVIN NÚMER 1"..........................

Jóhann Elíasson, 17.3.2013 kl. 19:41

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nenni nú ekki að tala um svona uppnefni og bull. En minni menn á að ég er ekki Samfylkingin. Þetta er mitt blogg og ég leyfi mér bara að gagnrýna hvern sem ég vill. Og ég hef bara ýmigust á Framsókn og Sjálfstæðisflokk. Og enn meira er mér í nöp við menn sem þora ekki að eiga í jákvæðum samskiptum við aðrar þjóðir. Ekki einu sinni að kanna hvort að við getum notið þess samstarfs.  En þið haldið bara áfram að stinga höfðinu í ...... og finna upp flott uppnefni á fólk og halda að það rökstyðji mál ykkar.  Góða skemmtun

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.3.2013 kl. 20:28

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona til að ítreka það Samfylkingarinnar vegna. Þá er ég að skrifa hér sjálfur það sem mér sjálfum finnst. Er ekki í starfi fyrir Samfylkingunna og veit þvi ekkert hvað er að gerast þar.  Og ég held að margir þar mundu ekki styðja málflutningin minn. Finnst eins og bloggarar haldi að allir séu í einhverju liði sem skipuleggi blogg um allann bæ. Finnst það skrítið því ekki ég og ég nær allir bloggarar eru í neinu öðru sambandi heldur en að skrifa og gera athugasemdir við aðra bloggara. Það er alltaf talað um að eitthvað samsæri sé í gangi sem ég hef aldrei séð sjálfur nema kannski hjá Hannesi Hólsteini, Birgi Þór og Skapta sem koma yfirleitt á nærri sama tíma t.d. í baráttur gegn Stefáni Ólafssyni.  Marinó er ágætlega rökviss maður en hann ætti kannski að horfa á Silfrið í dag og umræðurnar þar fyrst. T.d. um 65% af öllum Íbúðalánum er við ríkið. Um 18% eru við Lífeyrissjóði. Þetta eru ekki einhver fjármálafyrirtæki sem hægt er að skykka bara í leiðréttingar eða lækkanir á lánum án þess að við finnum fyrir því.  Þetta eru sjóðir á ábyrgð okkar skattgreiðenda og við þurfum að fjármagna allar leiðréttingar. Og þessir vondu banka sem kröfuhafar græða bara á gleymir Marinó að þeir hafa nú tapað um 7000 milljörðum á þeim. Sem og að við eigum nú einn af þessum 3 bönkum. Um Dróma hefur ekkert verið slegið skjaldborg því hann er í slitameðferð og margir þeir sem taka undir með Marínó vildu nú að allir bankarnir hefðu verið settir í þrot í stað þess að mynda nýja og þá væru þeir allir eins og Drómi. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.3.2013 kl. 20:41

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er sem eg hef áður sagt og segi enn, að það er svona histería í gangi þar sem löngu er ljóst að skynemi, raunsæi eða rök bíta ekki á umtalsverðan fjölda innbyggjara. Það er bara sömu frasarnir eins og 5 ára krakkar, skjaldborg, vondir útlendingar og tilheyrandi svika og kandráðabrigsl með dassi af kjánaþjóðrembingi eftir smekk hvers og eins.

Hef nefnt það áður að þessi histeríutendens er alveg svakalega áberandi í sumum íslendingum og verður svona áberandi eftir að öll internetumræðan kom til sögunnar.

Það sem pólitískt skynsemdar- og raunsæisfólk á að gera núna, það er bara að halda ró sinni og standa með skynsemi og raunsæi. Eins og Jafnaðarmenn hafa alltaf gert.

Þessi framsóknarhistería verður bara að hafa sinn gang.

Langlíklegast er, miðað við histeriutendensinn, að framsjallar myndi stjórn. þá náttúrulega hafa þeir þessa própagandastöðu í gegnum fjölmiðla og geta talið jóa og sigga útí bæ trú um að þeir hafi fengið einhvern pening gefins - og þá verða allir bara sáttir. þangað til þeir eru búnir að tæma alla sjóði og rústa öllu - og svo koll af kolli.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.3.2013 kl. 23:51

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Enn og aftur þá snýst málið ekki um hve mikið eigi að leiðrétta hjá hinum eða þessum, heldur einfaldlega að viðurkenna orðinn hlut. Ríkið er þegar búið að þurfa að leggja Íbúðalánasjóði til tugi milljarða og það er ekki einu sinni byrjað að afskrifa eða leiðrétta formlega.

Nú í haust lýkur greiðslustöðvun þúsunda heimila hjá ÍLS (og bönkunum reyndar líka.) Halda menn virkilega að hvert einasta heimili sem hefur verið í greiðslustöðvun sé bara með sand af seðlum og muni borga eins og ekkert sé af ennþá hærri höfuðstól, en þau urðu að komast í skjól undan, fyrir nokkrum árum?

Theódór Norðkvist, 18.3.2013 kl. 01:44

8 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heill og sæll Magnús Helgi

Það er nú einu sinni svo að það er ekki kostur að kjósa Samfylkinguna, Bjarta framtíð eða Vinstri græna, þannig að fyrir margann kjósandann er Framsókn það eina sem menn sjá í stöðunni.  Samfylkingin er búin að mála sig út í horn, hefur ekkert uppá að bjóða, enda treysta kjósendur þeim flokki ekki til eins eða neins.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.3.2013 kl. 10:32

9 Smámynd: Óðinn Þórisson

Voðalega er þetta aukna fylgi við Framsókn að fara illa í þig Magnús

Óðinn Þórisson, 18.3.2013 kl. 14:38

10 identicon

Ef skoðannakannanir eru greindar má segja með einni setningu.

Framsóknarmenn

þrífast best

á 

Bjarana Ben.

jónsi (IP-tala skráð) 18.3.2013 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband