Leita í fréttum mbl.is

Furðulegar staðreyndarvillur varðandi hugsanlega inngöngu okkar í ESB

Þegar maður fer um bloggið og les bloggfærslur og athugasemdir um Samfylkingunna og einnig Ingibjörgu Sólrúnu sem tengjast möguleikanum á því að við sækjum um aðild að ESB verður maður stundum forviða. Er fólk ekki stundum búið að láta mat sig á vitleysu án þess að hugasa nokkuð um sannleiks gildi þess sem það er að skrifa:

Fyrst kannski varðndi þá fullyrðingu ýmisa um að komist Ingibjörg til valda þá leiði hún okkur beint inn í ESB. Fólk talar eins og hún standi ein fyrir þessa skoðun innan Samfylkingarinnar. Ég er nú samt viss um að Össur Skarphéðinsson hefur oftar talað um þetta en Ingibjörg og talaði mjög fyrir þessu þegar hann var formaður. En það virðist vera ákveðinn hópur sem hatast út í Ingibjörgu og í blindu hatri klíni öllu beint á hana.

Eins er talað um að Ingibjörg fórni örugglega sjálfstæði Íslands með því að þröngva okkur inn í ESB.

  • Svona til að byrja með þá fórnum við ekki sjálfstæði okkar við að ganga í ESB. Fólk sem heldur þessu fram hefur látið mata sig á kolröngum upplýsingum og nægir að benda á allar þjóðirnar í ESB: Er fólk þá að halda því fram að Svíþjóð, Finnland, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Spánn, Portúgal, Ítalía og svo framvegis séu ekki sjálfstæðar þjóðir.
  • En það er staðreynd að við framseljum ákveðnar ákvarðanatökur til ESB. En það er mun minna en fólk heldur því nú gerir EES samningurinn það að verkum að við erum þegar búinn að framselja þetta vald að stórum hluta.
  • Síðan má ekki gleyma því að við gætum ekki gengið í ESB nema það yrði samþykkt í Þjóðaratkvæðagreiðslu.
  • Loks má geta þess að öll lönd sem hafa gengið í ESB hafa gengið í gegnum langt samningaferli við ESB þar sem þau semja um ákveðna sérstöðu í ákveðnum málum.
  • Loks finnst mér ágætt að fólk hugsi út í það að öllum þjóðum er heimilt að segja sig úr þessu sambandi ef þeir telja að hagi sínum sé betur borgið á annann hátt. Og því er það skrítið að engin þjóð hefur gert það enn.

Mér finnst að fólk ætti nú aðeins að kynna sér málin áður það kemur með svona fullyrðingar eins og að fórna sjálfstæði þjóðarinnar og svo framvegis.

Fólk ætti að rifja upp alla þá andstöðu sem var við EES samninginn. Þar voru þessar fullyrðingar um að við værum að afsala fullveldi okkar og sjálfstæði. En í dag talar enginn um það. Og hvernig væri staðan nú hjá okkur ef við hefðum ekki gert þennan samning?

Eins þá ætti fólk að hugsa um að ef við könnum ekki þennann möguleika þá getum við verið að tapa umtalsverður til lengri tíma. Við töpum engu á samningaviðræðum. Ef að samningar takast ekki þá gerum við engan samning.

Þegar fólk talar um að við missum tökin á fiskveiðum okkar. Í því sambandi þá vill ég benda á að það er nú ekki beint hægt að segja að við höfum mikil tök á þeim nú. Það eru nokkrir einstaklingar sem eiga nú allan rétt hér við land á öllum fiski í sjónum við landið. Og ekki hefur okkur tekist að byggja upp fiskistofna við landið.

Hefði ekki trúað því að óreyndu að á þessum síðustu tímum værum við svona íhaldsöm.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, ævinlega Magnús Helgi !

Hélt, að við þyrftum ekki að ræða þetta frekar. Gömlu góðu nýlenduveldin, í Evrópu eru ekki í rónni fyrr en þau hafa kokgleypt blessaða álfuna alla, frá Íslandi að og með Kazakhstan sléttum, í austri.

Ertu hissa á því, að Vladímír Pútín, hinn skeleggi forseti Rússa gjaldi, m.a.; mikinn varhug við þessu óþyrmilega skrifræðisbákni, í álfunni ?

Gildir einu, Magnús; hvort heldur er, missir hlutlægs sjálfstæðis ríkja Evrópu, eða þá huglægs, ófremdar óskapnaður er samt að skapast með tilkomu þessa risavaxna bákns, hyggilegast fyrir Íslendinga að standa utan þess, enda fátt raunverulegra vina, þar innanborðs þegar kemur að þáttum, eins og hvalveiðum okkar; t.d.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi        

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 02:12

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Alveg með eindæmum bullið í ykkur ESB-sinnum. Halda því fram að
Íslendingar stórskaði ekki sjálfstæði sitt og fullveldi er þvílíkt bull að
það er varla svaravert.

  Í dag er sjárvarútvegur og landbúnaðar algjörlega UTAN ESS. Með
inngöngu í ESB yrði við hluti af sjávarútvegsstefnu ESB og myndum
klárlega missa yfirráð yfir okkar fengsælustu fiskimiðum heims.

  Við myndum tapa ÖLLU frelsi að gera viðskiptasaminga við ALLAR
þjóðir heims utan ESB.  Hugsið ykkur alla sérviðskiptasamninga sem
við höfum gert undanfarið og sem eru í undirbúningi, sbr Kína.

  Við yrðum skyldaðir til að greiða TUGI MILLJARÐA í sukk-sjóði ESB
umfram það sem við fengum.

  Í undirbúningi er enn meiri samruni. Sjálfstæð utanríkisstefna
og stefna í öryggis-og varnarmálum mun færast til Brussel.

  Í Evrópuráðinu yrði atkvæðavægi Íslands langt innan við 1%þannig að áhrifa okkar yrði sama og engin.

  Þetta er bara fáeinar upptalningar. Að halda svo því fram að
Ísland myndi ekki stórskerða sjálafstæði sitt en meiriháttar blekking.

  Kratar hafa ætíð verið öfgasinnaðir í sinni alþjóðahyggju og vildu
margir þeirra fresta lýðveldisstofnunni 1944. Þannig þeirra
óþjóðlega stefna í þjóðfrelsismálum kemur ekki á óvart.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.2.2007 kl. 12:45

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og samt eru um 80% af viðskiptum okkar við Evrópu. Þannig að þessir viðskiptasamningar eru ekki að skila okkur svo miklu. Landbúnaður í ESB eru það sem mest er styrkt og verndað. Og t.d. í  Svíþjóð og Finnlandi fá bændur sérstök ákvæði sem tengd eru landbúnaði á Norðu svæðum. Ég las líka að ríkin sjálf ráða mestu um hver veiðir innan þeirra lögsögu en þurfa að fá samþyktir fyrir kvótum frá ESB. Við erum nú ekki mjög sjálfstæð í utanríkisstefnu eða öryggismálum. VIð erum jú í Nató eins og flestar þjóðir ESB og að öðruleyti höfum við fylgt Bandaríkjamönnum.

Eins þá held ég að þú getir ekki nefnt mér það land t.d. í heiminum sem við getum átt viðskipti við og gætum ekki átt viðskipti við þó við værum í ESB. Annaðhvort er ESB með samninga við þau lönd eða að þjóðirnar sjálfar hafa gert samninga þrátt fyrir að vera í ESB.

Þá ætti það að vekja fólk til umhugsunar að það eru ekki nema við, Norðmenn og Sviss af þessum Vestrænu Evrópuþjóðum sem eru ekki í ESB. Hef ekki heyrt alvöru tal frá neinni af þeim þjóðum sem eru í ESB að þær vilji ganga úr bandalanginu. Þannig að þær virðast sjá sér hag í því að vera þar. Og þessi milljarðar sem eru greiddir þangað virðast skila sér til baka. Sérstaklega til minni þjóða.

Við þurfum nú þegar að taka inn 60 til 70% af öllum lögum og reglum sem ESB setur og höfum engin áhrif á það. Þannig að við inngöngu hefðum við þó einhver áhrif.

Þannig að fyrst að þið sem eruð á móti inngöngu í ESB getið bullað og bullað um þessi mál. Og notast við alskona klysjur sem þið gleypið frá aðalandstæðingum inngöngunnar úr Sjálfstæðisflokknum, þá hef ég fullt leyfi til að reyfa mínar skoðanir. Og svona kjaftæði eins og við missum sjálfstæði okkar er náttúrulega bull. Eins og ég sagði eru nær  allar ríkustu og stærstu þjóðir Evrópu í ESB og það segir enginn mér að þær séu ekki sjálfstæðar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.2.2007 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband