Leita í fréttum mbl.is

Vantar að nefna dæmi um þjóðir með svona mikla sérstöðu sem ekki hafi fengið undanþágur varanlegar

Finnst að það sé mikið í lagt að geta fullyrt svona nema að nefna dæmi! Nú ef það eru möguleikar á að varanlegar undanþágur fáist þá eigum við náttúrulega að klára að opna alla kafla og kanna málið. Nú ef ekki fæst viðunandi lausn þá verður ekki skrifað undir. Og ef  það er skrifað undir og lausnir fyrir okkur eru ekki nógu góðar verður samningurinn feldur í þjóðarakvæði!

Og eins mætti vera skýrar í þessari skýrslu hver staða okkar væri þarna inni án undanþága en væntanlega með öll þau réttindin sem t.d. þjóðir eru nú þegar með í ESB eins og landbúnað á harðbýlum svæðum. Og eins réttindin til að aðrir veiði ekki ekki í staðbundum stofnum sem ekki hafa þar nýlega veiðireynslu.  Önnur ríki virðast plumma sig í þessu hér í kring um okkur sem búa við svipuð skilyrði. 

En miðað við að í EES samningum var sífellt sagt að við fengjum engar sérlausnir tókst nú samt að fá m.a. undanþágur frá innflutningi á kjöti og mörgu öðru .

Svo nú er bara að byrja í rólegheitunum að klára það sem vantaði upp á. Nú við fáum ekki viðunandi samninga þá það, þá getur ESB átt sig. En ef við fáum viðundani samninga þá er hvert ár sem við drögum þetta slæmt því að fyrr sem við semjum því fyrr losnum við við krónuna, tolla á innfluttar matvöruru og ekki síst á unnan matvörur eins og fisk, mjölkurvörur, kjöt og fleira sem við gætum selt erlendis en getum ekki í dag nema með tollum. 


mbl.is Óraunsætt að undanþágur fáist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

hmm - skrítið hjá Gunnari Haraldsyni að segja svona þegar dæmi um annað eru til (ef ég skil þetta rétt)

Rafn Guðmundsson, 20.2.2014 kl. 21:48

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ólafur Stephensen var svo kjánalegur að nefna Möltu sem dæmi um lausn í sjávarútvegsmálum. Hann er sem sagt reiðubúinn að taka hér upp 25 mílna landhelgi -- allt fyrir ESB og stórbokkana þar!¨

Jón Valur Jensson, 20.2.2014 kl. 22:14

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þú verður að athuga, Magnús, að ESB ákvað að taka fyrir slíkar varanlegar undanþágur við inngöngu.  Flestar varanlegar undanþágur sem eru í gangi, eru vegna ríkja sem voru í sambandinu áður en Maastricht samningurinn var gerður.  Ef ég man rétt þá eru nokkur lönd með slíkar varanlegar undanþágur.  Veit að Danmörk er með það á fjórum sviðum, m.a. myntsamstarfið og varnamál.  Írar fengu einhverjar undanþágur, sem ég man ekki hverjar eru.  Svíar eru utan myntsamstarfsins.  Nú Bretar eru utan Schengen og myntsamstarfsins.  Þarna eru því nokkur lönd með stórar undanþágur og varanlegar.

Marinó G. Njálsson, 20.2.2014 kl. 23:00

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta ,,undanþágutal" skiptir engu máli uppá veiðar á einhverjum fisktittum.

Þar er reglan um veiðirétt og hlutfallslegan stöugleika sem gildir.

Þetta sífellda þvaður mogga og andsinna um einhver ,,yfirráð" - er hvergi relevant nema í þeirra heimska haus.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 23:03

5 identicon

Atvinnuleysi ungmenna áhyggjuefni

Atvinnuleysi meðal ungs fólks í Evrópu hefur einmitt verið sérstakt áhyggjuefni. Árið 2012 var atvinnuleysi meðal ungmenna, þ.e. þeirra sem eru yngri en 25 ára, í aðildarríkjum Evrópusambandsins 23%. Atvinnuleysi ungmenna var meira en 25% í þrettán aðildarríkjum Evrópusambandsins og einungis minna en 10% í Þýskalandi, Austurríki og Hollandi.

Árið 2012 var atvinnuleysi ungmenna á Spáni 53%, en 55% í Grikklandi. Atvinnuleysi var einnig mikið í öðrum löndum þar sem hagvöxtur var lítill eins og á Ítalíu, í Portúgal og Slóveníu, eftir því sem fram kemur í skýrslunni.

Í skýrslunni er einnig fjallað um atvinnustig, sem er skilgreint sem hlutfall starfandi manna af fólki á vinnualdri. Þar segir að atvinnustig í Evrópu hafi aukist frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar og fram til ársins 2008 þegar það hafi náð hámarki

sæmundur (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 23:15

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Sæmi fróði hann situr í frans / í svartaskóla og rembist við / að rísa undir nafni/ hann rýnir svo stíft / í rúnir að gleymt er honum sjálft nafnið/ og hann tuðar barasta eitthvað um atvinnuleysi til forna í svartfjallalandi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 23:24

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Reglan um hlutfallslegan stöðugleika" er nú fyrirbæri sem "gildir" ekki lengur en ráðherraráði Evrópusambandsins þókknast, en þar fengi Ísland 0,06% atkvæðavægi, ef við álpuðumst inn í þetta stórveldabandalag.

"Reglan" sú arna er ekki partur af sáttmálum ESB. Norðmenn reyndu að fá vísun í "regluna" þá arna í sinn inntökusáttmála (sem sumir kalla hér "aðildarsamning"), en það var bara ekki við það komandi hjá Brusselmönnum, enda vilja þeir hafa fullt svigrúm til að losa sig við þessa "reglu" þegar þeim þókknast.

Jón Valur Jensson, 21.2.2014 kl. 00:53

8 Smámynd: Snorri Hansson

Ekki gleyma helsta afreki Svía í sínum viðræðum. Afsakið Samningaviðræðum. MUNNTÓBAKIÐ. En þeir þurftu að taka á honum stóra sínum til að ná því

Snorri Hansson, 21.2.2014 kl. 00:59

9 identicon

• Úrdráttur úr vinnuskjali formanns og varaformanns auðlindahóps Evrópunefndar

,,Langalvarlegasti þáttur hugsanlegrar aðilar Íslands að ESB er að lagasetningarvaldið og þar með forræði yfir Íslandsmiðum flyst varanlega frá Alþingi til stofnana Evrópusambandsins. Afleidd löggjöf er sett með auknum meirihluta atkvæða í ráðherraráðinu. Atkvæði eru nú 345 en Íslendingar fengu líklega þrjú atkvæði líkt og Malta ef Ísland gerðist aðili. Íslendingar fengu því líklega þrjú atkvæði af 348.''

Baldvin Nielsen

B.N. (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 02:17

10 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er margoft búið að fara yfir þetta og þessi formbreyting skiptir ekki nokkru máli. Innihald það sama en form örlítið breytt.

Eg ítreka: Þvaður og bull andsinna og moggaræfils um ,,yfirráð" er bara það. Þvaður og bull. Og eigi relevant fyrir nokkra umræðu.

Andsinnar virðast mestanpart vera últra-öfgamenn til hægri og vinstri ásamt heimskingjum.

Segir sína sögu að einn andsinnabjálfinn og öfgamaðurinn skrifaði mikinn pistil þar sem hann vonaðist til að uppreisn alþýðu í Úkraínu yrði barin harkalega niður - og þá sennilega með miklu mannfalli.

Sennilegast er draumurinn að framkvæma það sama hér.

Því það sama mun líklega gerast hér á næstu árum ef stjórnvöld hægri-öfgamanna og heimskingja forsmá lýðræðisþjóðir evrópu og nálgast síellt meir að ganga í Kína og Rússland.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.2.2014 kl. 11:31

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Baldvin, það eru ekki nema rúmir 7 mánuðir í það, að atkvæðavægið í ráðherraráðinu ("ráðinu") og leiðtogaráði Evrópusambandsins snarbreytist: sjá hér! Tíu aflóga nýlenduveldi ráða lögum og lofum í Evrópusambandinu frá 1. nóv. 2014 með rúml. 73% atkvæðavægi í hinu volduga ráðherraráði (sem bjó t.d. til "reguna um hlutfallegan stöðugleika" og getur breytt eða eytt henni að vild), en hin 18 ríkin, saklaus af nýlendustefnu, munu ráða þar innan við 27% atkvæðavægi!

Sem dæmi um breytinguna má nefna, að þá minnkar atkvæðavægi Möltu í leiðtogaráði Esb. og ráðherraráðinu úr 0,87% niður í 0,08%, en Svíþjóðar úr 2,90% niður í 1,85% og Danmerkur úr 2,03% í 1,10%, en atkvæðavægi Þýzkalands eykst úr 8,41% í 16,41% eða öritlu minna, vegna tilkomu Króatíu í Brusselklúbbinn) (sjá HÉR).

PS. Jón Kristjánsson fiskifræðingur ritar (21.4. 2013): Fjarstæða að við fengjum að halda íslenskri stjórn á okkar miðum eftir inngöngu í ESB.

Guðmundur Gunnarsson (Guðmundur 2. Gunnarsson): Margstaðfest staðreynd: Engar varanlegar undanþágur eru veittar frá lögum ESB!

Jón Valur Jensson, 22.2.2014 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband