Leita í fréttum mbl.is

Kæra þjóð sem telur sig ekkert þurfa að vera í nánu samstarfi við Evrópu!


Var að hlusta á Guðna Th í útvarpinu. Vissuð þið að frá því í stríðinu og fram til 1960 voru nær allar stærri framkvæmdir hér fjármagnaðar eða studdar af Bandaríkjunum því landsframleiðsla okkar stóð ekki undir lífskjörum.
  • - Semenntverksmiðjan var styrkt af Bandaríkjunum
  • - Áburðaverksmiðjan var byggð fyrir Marhall aðstoðina.
  • - Fiskiskipaflotinn var að mestu endurnýjaður með Marshall aðstoðinni
  • - Fullt af öðrum framkvæmdum voru kostaðar af Bandaríkjum að hluta eða öllu leiti. T.d. flugvöllurinn eða kannski flugvellirnir ef við tökum Reykjavíkurflugvöll sem Bretar byggðu fyrir okkur. 
  • - Auk þess þá fengum við aðstoð Bandaríkjana við að fá hagstæð lán á öllum þessum tíma.

Menn tala alltaf eins og þetta hafi allt verið gert af okkur fyrir okkar eigið fé.  En við vorum eina þjóðinn sem græddi verulega á stríðinu og komumst svona inn í nútíman. Með því að hóta Bandaríkjunum sífellt að við þyrftum að leita til Sovétríkjana ef þeir vildu ekki hjálpa okkur.


Þegar við gengum í EFTA þá fengum við fjáhagsstuðning til að geta uppfyllt skilyrði okkar til að gerast aðilar að þeim samningi og hann kom frá öðrum EFTA ríkjunum.
Þegar við gerðumst aðilar að EES þurfum við að fá ýmsar undanþágur m.a. að kostnaðarþátttöku.
Held stundum að fólk sé ekki að fatta það að staða okkar í dag eftur að Bandaríkin þurfu ekki völlinn er þannig að hér verður ekki stórkoslegar framfarir nema að við göngum í nánara samstarf við Evrópu. Og getum gert það óhrædd því við höfum alltaf getað teflt fram trompinu að við séum örþjóð og því þurfi allir aðilar að vera góðir við okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristin stjórnmálasamtök

Að láta innlimast í stórveldisbandalag gamalla evrópskra stórvelda, sem tekur af okkur æðstu löggjafarréttindi og annað sjálfsforræði --- um stjórnvald og í ráðandi dómsmálum, sem og yfir okkar tolla- og fríverzlunarmálum --- er EKKI einbert "náið samstarf við Evrópu", heldur afgerandi afsláttur af sjálfstæði landsins og uppgjöf fullveldis á mörgum sviðum, jafnvel hinu mikilvæga sjávarútvegssviði.

Þetta vilja Kristin stjórnmálasamtök alls ekki.

Jón Valur Jensson.

Kristin stjórnmálasamtök, 4.4.2014 kl. 22:02

2 identicon

Það liggur reyndar ljóst fyrir og búið að gera það lengi, að með núverandi fyrirkomulagi á búsetu höfum við engin ráð á því að vera sjálfstætt þjóðfélag af neinu tagi. Það kostar einfaldlega of mikið í formi samgöngukostnaðar, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu af öllu tagi að vera að sperrast við að halda úti mannabyggð á kostnað ríkisins á öllum þessum útnárum og það kostar alltof háa skattbyrði á þann hluta þjóðarinnar, sem heldur uppi útflutningstekjum hennar. Einn grundvallarþátturinn í að snúa þessu við er að fara að eindregnum tilmælum ÖSE og láta alla þjóðfélagsþegna með atkvæðisrétt hafa jafnt vægi atkvæða. Einfaldasta leiðin er að gera landið allt að einu kjördæmi. Það gæti komið í veg fyrir að haldið verði til dæmis áfram í jarðgangavitleysisruglinu, en láta samgöngukerfi hér á SV-horninu sífellt sæta afgangi með tilheyrandi hækkun á  slysatíðni og öðrum kostnaði. Hvað haldið þið að það mætti bæta mikið nýtingu þess fjár, sem varið er til heilbrigðisþjónustu, ef ekki væri verið að kosta til rándýrrar hátækniþjónustu við minnstu krummaskuð?

E (IP-tala skráð) 4.4.2014 kl. 22:04

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Ísland er í Evrópu, og er því sjálfsagt óhjákvæmilega Evrópusinnað. Annað væri afneitun á staðreyndum.

Það er satt og rétt að Ísland var byggt upp úr örbirgðinni og fátæktinni, með erlendri aðstoð, og mest frá Bandaríkjunum. Þannig er þróun allra ríkja.

Það á ekki að hjálpa fátækum þjóðum með það að markmiði, að eiga síðan eftir hjálpina, tilveruréttindi heiðarlegs almennings/fyrirtækja í viðkomandi ríki sem var hjálpað.

Það hefur með siðferðishegðun/verklag að gera. Siðmenntuð ríki/heimsveldi geta ekki sniðgengið siðferðislegt ferli í samskiptum og verklagi. Annaðhvort eru ríki/heimsveldi með siðmenntaða stjórnsýslu eða ekki.

Raunveruleg hjálp á ekki að kosta það, að yfirburðabanka-veldi hjálparans geti seinna krafist óviðunandi og óréttláts endurgjalds fyrir hjálpina. Þannig hjálp er kölluð bjarnargreiði. Þ.e. ofurvaldið segir: "við hjálpuðum ykkur út úr fátækt, og síðan eigum við ykkar almenning, og  almennings/fyrirtækja réttindi/frelsi, þegar þið eruð komin út úr vandanum"!

Hvers virði er þannig hjálp?

"Hjálp", sem hrekur á endanum almenning/fyrirtæki í sömu fátækt og fyrir "hjálpina", sem endurgjald fyrir "hjálpina"?

Hvernig er ekki til dæmis búið að kvelja peninga-skaðabætur úr almenning í Þýskalandi eftir heimsveldistoppastýrðu (utan Þýskalands) hörmungaraftökurnar í heimsstyrjöldinni? Hvers konar villimennska er það, að láta valdalausan og saklausan almenning/fyrirtæki ríkja blæða svona, fyrir glæpi fárra múgæsingsstjórnenda heimsveldis-bankaræningja-villimanna?(Rockefeller/Rothschild-gamlingja-hvítflibba-bankaræningjaklíkurnar og co)!

Þegar ríki ákveður að hjálpa öðru ríki, þá á sú hjálp að vera raunveruleg og endurgjaldslaus. Þannig virkar raunveruleg hjálp vandaðra og siðferðislega heilbrigðra, (siðmenntaðra) ríkja.

AGS/EES/ESB-topparnir hafa engan áhuga á að hjálpa almenningi í neinu ríki Evrópu, án skilyrða sem kosta almenning/fyrirtæki afkomumöguleika og tilverurétt. Með þrælakeðjufjötra við Seðlabanka-keðjurnar í Evrópu, (gúmmítékka-kauphallar-seðlabanka-mafíuveldis)!

Þess vegna ættu ríki Evrópu sem mögulega eru aflögufær (t.d. Íslands-auðlindir), að taka sig til, hvert fyrir sig, og hjálpa verst stöddum ríkjum í heimsveldis-bankakeðjufjötra-vanda. Milliliðalaust, og án aðkomu  kúgarastjórnunar frá hernaðarglæpastjórum AGS/EES/ESB-Seðlabanka-spilavítinu.

Það er þannig friðsamleg almennings-samhjálpar-Evrópa sem ætti að fá að njóta sín. Og að sjálfsögðu ættu öll ríki að njóta sín á sama hátt. Það er ekki til neinnar siðmenningar-framþróunar fyrir neitt né neinn, að endurtaka heimsstyrjaldarhörmungar, til þess eins að þóknast örfáum hvítflibba-glæpamönnum bankaræningja-veldanna.

Það þarf að losna við spillingargosa í toppstöðvum AGS/EES/ESB úr stjórnsýslu heimsins, ef friður og réttlæti er takmarkið.

Það þarf manneskjulega og nútímalega hugarfarsuppskrift að siðferðislegri framtíðarþróun. Það eru mannanna hugsanir, orð, og verk, sem stjórna stríði og friði.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.4.2014 kl. 22:18

4 Smámynd: Elle_

Við erum í Evrópu svo blessaður hættu þessu.

Elle_, 5.4.2014 kl. 00:38

5 identicon

Góði farðu til Brussel,og vertu alsæll ....

Ragnhild (IP-tala skráð) 5.4.2014 kl. 01:28

6 Smámynd: Elle_

ESB er ekki Evrópa, bara svo Magnús Helgi viti það, það er af og frá. Og hann misþyrmir íslensku og öllu íslensku.  Hann skrifaði: En við vorum eina þjóðinn sem græddi verulega á stríðinu og komumst svona inn í nútíman.

Hurru, á íslenskri evrópsku eru 2 n í nútíminn og 1 n í þjóðin.  Kannski skýrir það skilninginn á evrópsku og íslensku?  Hví fær þessi maður annars nokkuð vægi í Moggablogginu, Moggamenn??

Elle_, 5.4.2014 kl. 01:40

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er auðvitað rétt hjá sagnfræðingnum. Þarna skipti gríðarlegu máli að fiskiflotinn var að mestu endurnýjaður með peningum frá BNA.

Fólk í dag er sennilega ekki að fatta hvernig þessi tímar voru uppúr seinna stríði. Ísland fékk þarna strategíska stöðu - og menn hikuðu ekki við að notfæra sér það með því að hóta Bandaríkjunum í sífellu að gana í Ráðstjórnarríkin. (Sem sumir vildu nú reyndar alveg endilega.)

Hlutleysi, sem sumir voru að tala fyrir á þessum tímum, var aldrei option. Það var itið þannig á af vestræna alþjóðasamfélaginu, að ótækt væri að skilja slíkar eyjar eftir opnar fyrir ásælni. Ráðstjórnarríkjanna.

Þessum peninggjöfum og peningaaðstoð BNA fylgdi svo tilheyrandi spilling ráðandi afla svo sem Sjalla- og Framsóknarflokks sem vildu taka sinn skerf eins og þeirra er von og vísa.

Sem dæmi um hve vestrænt alþjóðsamfélag leit þannig á að óásættanleg áhætta væri að skilja eyjar eftir opnar fyrir Ráðstjórnarríkjunum má nefna Færeyjadæmið.

Færeyingar samþykktu sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu 1946. Það var ekki hlustað á það! Að vísu var þessi atkvæðagreiðsla ólögleg samkvæmt Dansk/Færeyska sambandinu og framkvæmdin var nú hálf sérkennileg eins og gengur - að þetta var talið óhugsandi að Færeyjar yrðu skildar eftir opnar eða án einhvers stuðnings og tengingar við önnur vestræn lönd.

Þessvegna var þegar boðað til þingkosninga þar sem flokkar sem hlyntir voru sambandi við Danmörku fengu mikinn meirihluta.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2014 kl. 02:04

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ómar Bjarki Kristjánsson bullar, kannski í þúsundasta sinn.

Það hótaði því enginn hér, að við myndum "ganga í Ráðstjórnarríkin".

Og það var ekkert að því að þiggja Marshallaðstoðina, bara bezta mál fyrir þjóðina.

En við þurftum EKKI að gefa frá okkur neitt sjálfsforræði okkar þess vegna, hvorki til eigin viðskiptasamninga (jafnvel við Ráðstjórnarríkin) og tollasamninga né til útfærslu landhelginnar úr 3 í 4 í 12 í 50 í 200 mílur, og sízt af öllu var beðið um að við afsöluðum okkur æðsta löggjafarvaldi. Við héldum því, en myndum ekki halda því í Evrópusambandinu.

Ómar Bjarki er ekki enn kominn með tærnar þar sem Jón forseti Sigurðsson hafði hælana í skilningi, einurð og frelsisvilja árið 1858, þegar hann ritaði í Ný félagsrit (s. 209), að við Íslendingar "eigum að réttu lagi fullkomin löggjafarréttindi skilið". En Ómar Bjarki vill inntöku Íslands í stórveldabandalag sem strax í aðildarsáttmála krefst æðstu og ráðandi löggjafarréttinda yfir landinu!

Jón Valur Jensson, 5.4.2014 kl. 08:56

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þið Evrópusambandsandstæðingar flytjið mál  ykkar af svo mikilli vanþekkingu að mér sundlar.  Jón Valur reynir reyndar yfirleitt að grafa upp einhver rök og er ekki oft með persónulegar árásir. Ég ætlar að koma inn á nokkur svona standard skot frá fólki sem skrifar  athugasemdir:

  •   "Góði farðu til Brussel,og vertu alsæll ...." Af hverju í ósköpunum ætti ég að fara til Belgíu? Það er stundum eins og fólk haldi að ESB sé lítið ríki í Belgíu! ESB nær óvart örugglega yfir um 75% landa og landsvæðis sem telst vera Evrópa. Þannig t.d. er gott fyrir fólki að muna að Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru jú í ESB en eru sjálfstæðar þjóðir. Og það eru 28 þjóðir af hvað
  • Síðan langra mig að benda fólki á að menn hafa verið að tala um Grænland og Færeyjar sem dæmi um þjóðir í kring um okkur sem eru utan ESB. Úps. Báðar þessar þjóðir eru háðar og verða það áfram fjárhagsstuðningi frá Danmörku auk þess sem Danmörk fer með hluta af stjórnsýslu þeirra. Grænland var að birta skýrslu fyrir nokkrum mánuðum þar sem þeir segja að þeir verði háðir samstarfi við Danmörku næstu 25 árin.
  • Hér má sjá öll lönd sem tilheyra að fullu Evrópu. Og fólk ætti að skoða hvaða lönd það eru eru sem eru ekki í ESB og hvernig þeim vegnar.  Þau eru 44 og þar af eru 28 þegar í ESB og þó nokkur sem eru í viðræðum, hafa sótt um eða lýst áhuga að sækja um aðild að ESB.
    Miðað við þessi mörk á milli heimsálfanna tveggja eru 44 ríki alfarið í Evrópu, 
    AlbaníaÍslandRúmenía
    AndorraÍtalíaRússland
    AusturríkiKróatíaSan Marínó
    BelgíaLettlandSerbía
    Bosnía og HersegóvínaLiechtensteinSlóvakía
    BretlandLitháenSlóvenía
    BúlgaríaLúxemborgSpánn
    DanmörkLýðveldið MakedóníaSvartfjallaland
    EistlandMaltaSviss
    FinnlandMoldóvaSvíþjóð
    FrakklandMónakóTékkland
    GrikklandNoregurUngverjaland
    HollandPáfagarðurÚkraína
    Hvíta-RússlandPortúgalÞýskaland
    ÍrlandPólland

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.4.2014 kl. 10:05

10 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Í samhenginu, þá þýddi tal sumra fyrr á tímum um ,,hlutleysi" í raun aðild að Ráðstjórnarríkjum Stalíns með einum eða öðrum hætti.

Afhverju heldur fólk að BNA hafi talið nauðsynlegt að hafa aðstöðu hér? Afþvíbara? Eða af því kannski að þeir vildu heiðra frábæran kynstofn íslendinga með nærveru sinni? Og gefa þeim stofni peninga ville vekk í af því stofninn væri svo genatískt frábær?

Með talinu um ,,hlutleysi" á þessum tímum - þá var strategían að reyna að kljúfa Island frá Nató og vestrænni samvinnu - og varla er neitt launungarmál að hin mikla Pardís ,,hlutleysis" talsmanna var í Ráðstjórnarríkjum Stalíns. Hefur fólk aldrei lesið gamla þjóðviljann??

Samtímis því að ,,hlutleysis" talsmenn bölvuðu Nató í sand og ösku - þá urðu þeir bókstaflega brjálaðir ef minns var á Evrópusambandið sem þá hét Efnahagsbandalagið. Þeir bókstaflega trylltust ef minnst var á það.

Kommunistar voru á móti samvinnu við slíka aðila - vegna þess að þá gátu þeir komið á Sovét-Íslandi hér. ,,Sovét-Ísland, óskalandið, hvenær kemur þú"?!

Lærðu menn ekki skólaljóðin í gamla daga? Lesa gamla þjóðviljann og læra skólaljóðin.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2014 kl. 12:29

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Edit: ,,Kommunistar voru á móti samvinnu við slíka aðila vegna þess að með aðild að Nató og Evrópusambandinu- að þá gátu þeir síður komið á Sovét-Íslandi hér.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2014 kl. 12:31

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps. samt héldu menn áfram þessari ,,hlutleysis" mytu eða áróðri áratugum saman. Vitandi það að slíkt var ekkert option í stöðunni alþjóðafræðilega séð.

Sem Færeyjadæmið sínir afar vel. Það var einfaldlega ekki talinn möguleiki í stöðunni að einhver eyja útí ballarhafi gæti verið hlutlaus. Ástand alþjóðamála var þannig.

Þessvegna lögðu BNA menn svona mikið á sig til að halda áhrifastöðu sinni á Íslandi og halda Íslandi vestanmegin áhrifalega. Þeir litu svo á að réttlætanlegt væri að ausa peningum inní landið til uppbyggingar - auk þess sem þeir hentu beini við og við í sjalla- og framsóknartoppa.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.4.2014 kl. 12:34

13 Smámynd: Már Elíson

Góð pæling hjá þér, Magnús Helgi. - Látum ekki Jón Val og slíka pótentáta rugla umræðuna með skætingi sínum. - Löngu kominn tími á að líta til vina sinna til leiðréttingar á kjörum og bágindum ofurpínda þegna þessarar Djöflaeyju og fá

leiðréttingu á lifistandard til jafns við aðrar Evrópuþjóðir !

Már Elíson, 5.4.2014 kl. 13:08

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Már talar um "ofurpínda þegna þessarar Djöflaeyju"!!!

Þvílíkt dómadags-svartagallsraus og neikvæðni !

Ekki mun Már vera ýkja gamall. Skyldi hann vilja um og yfir 50% atvinnuleysi ungra manna hér eins og á Spáni og Grikklandi?

Og ekki fengjum við sjálfkrafa neitt lægri vexti, þótt við yrðum eftir 10-15 ár komin á evrusvæðið. Kýpur er þar, og samt eru þar hærri vextir á íbúðalánum en hér.

Og vöruverð myndi sáralítið lækka, þótt við færum í ESB.

Svo selur maður hvort sem er ekki löggjafarréttindi sín fyrir súpudisk! Og 6.000 milljónir yrðum við að greiða nettó í árgjald til ESB (að frádregnum styrkjum þaðan). Þar fyrir utan væri svo allur hinn gríðarlegi fjárhagsskaði fyrir landið af því, að útgerðir og aflaheimildir hér kæmust í eigu útgerða í ESB-löndum.

Jón Valur Jensson, 6.4.2014 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband