Leita í fréttum mbl.is

Skildu Bandaríkjamenn læra nokkuð af þessu?

Það er harmleikur að reglulega skuli Bandríkjamenn lenda í þessu. Það er nokkuð ljóst að þessi menning bandaríkjana að öll vandamál megi leysa með byssum og ofbeldi á sinn þátt í að einstaklingar sem eiga erfitt geðrænt grípa til svona aðgerða. Enda er félag byssueigenda í Bandaríkjunm eitt voldugast félag í Bandríkjunum og kaupir sér frambjóðendur og flokka til að standa vörð um nær óheftar heimildir til að eiga byssur.

Og Bush sem Texasbúi og fylgjandi þessu frjálsræði með byssur sem og mátt ofbeldis elur á þessu.

Því miður held ég að þetta breytist seint.

Frétt af mbl.is

  Bush harmi sleginn vegna fjöldamorðanna í tækniskólanum í Virginíu
Erlent | AFP | 16.4.2007 | 21:15
George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að hann væri harmi sleginn vegna skotárásarinnar í tækniskólanum í Virginíu sem varð þess valdandi að 33 létu lífið, með árásarmanninum meðtöldum, og fjölmargir særðust


mbl.is Bush harmi sleginn vegna fjöldamorðanna í tækniskólanum í Virginíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Stjórnarskrárheimildin í bandaríkjunum sem leyfir vopnaburð er að drepa 35-38000 manns á ári.

Ef þessi ósköp væru yfirfærð til Íslands þýðir þetta 35-38 manns á ári sem eru fleiri en hér farast í umferðarslysum. 

Haukur Nikulásson, 16.4.2007 kl. 21:53

2 identicon

Nú fara þeir líklega að leyfa vopnaburð barna bara sem sjálfsvörn, ha ha

 Þetta er hins vegar grafalvarlegt mál og nú reiðir á Bandaríkjamenn að taka rétt á þessu og koma í veg fyrir að svona gerist nokkurntíma aftur.

Snati (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 22:26

3 identicon

Maður bara spyr sjálfan sig að því hvers vegna svona lagað gerist. Bý í BNA. Sjónvarpið t.d., allt ofbeldlið þar. Þykir ´hræðilegt´ef glittir í konubrjóst eins og frægt er orðið. En lýsingarnar og myndirnar af morðum og ofbeldisverkum þvílíkur viðbjóður, farið nákvæmlega ofan í saumana á því hvernig hlutir gerðust og jafnvel spekúlerað í hvort fórnarlambið hafi kvalist o.fl. í þeim dúr. Örugglega spilar inn í líka að hér hafa menn þurft að standa í stríðsrekstri til fjölda ára og koma síðan heim meira og minna bilaðir á sál og sjá skrattann í öllum hornum. Hér er bara ekki borin sama virðing fyrir mannslífum, sjáið t.d. dauðadómana. Persónulega finnst mér rangt að taka annan mann af lífi, hver svo sem sökin er. Og fyrir aftan glugga á aftökuherberginu er ættingjum fórnalambsins stillt upp til að fá hefndarþorsta sínum svalað. Ofbeldi leiðir til ofbeldis.

camilla heimisdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 06:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband