Leita í fréttum mbl.is

Bendi á ágæta grein um stöðna í Grikkalandi á mannamáli.

Eg vísa í grein af eyjan.is þar sem að rakið er í nokkrum tölusettum liðum af hverju Grikkir eru í þessum vandræðum sem þeir eru í dag.

Þarna segir m.a.

1. Skúrkarnir í málinu eru þeir stjórnmálamenn (og þau sem kusu þá) sem skuldsettu gríska ríkið svo gríðarlega sem raun ber vitni. Að hluta til var sú skuldsetning uppi á yfirborðinu og afleiðing viðvarandi fjárlagahalla, en að hluta var hún falin og „utan efnahagsreiknings“.

2. Í samningum árið 2012 náðu Grikkir, með aðstoð Íslandsvinarins Lee Buchheit, að semja um verulega afskrift (~75%) þeirra skulda sinna sem einkaaðilar áttu. Að því loknu voru lánardrottnar Grikkja nánast eingöngu AGS og sjóðir ESB.

Og svo neðar í greininni:

5. Tillögur Eurogroup um leiðir til að ná umræddum frumafgangi hljóma alls ekki frjálshyggjulega eða óskynsamlega fyrir utanaðkomandi; þar er m.a. gert ráð fyrir hækkun tekjuskatta á fyrirtæki úr 26% í 28%, framhaldi hátekjuskatts og lúxus-skatts á skemmtibáta og snekkjur, að loka ýmsum skattundanþágum, að hækka VSK á hótelgistingu (sem væri upplagt á Íslandi líka), að herða mjög skatteftirlit, og raunar að hækka eftirlaunaaldur í skrefum í 67 ár (eða 62 ár eftir 40 ár í starfi).

Sjá hér greinina í heild

Nokkur grundvallaratriði um Grikkland


mbl.is Spurningin er: evra eða drakma?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Að hækka skatta á skemmti báta og skekkjur virkar ekki vel, þessi flei verða byggð og skráð þar sem skattar eru lægri.

Þetta var reynt hér í USA, nánar til tekið í Flórída, en skattar voru lækkaðir aftur mjög fljótlega.

Það eru trilljónir dollar sem sitja utan USA vegna 36% fyrirtækja skatta í USA og fyrirtæki flytja frá USA í lægri skatta lönd.

Að hækka skatta gengur ekki upp, gamall komma slagari.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 29.6.2015 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband