Miðvikudagur, 15. júlí 2015
Nokkuð ljóst að við höfum ekkert inn í ESB að gera akkúrat núna!
Á meðan að evru ríkin og ESB geta ekki leyst málefni Grikklands svo vel fari höfum við ekkert að gera með að ganga inn þetta samstarf. Alveg ótrúlegt að það skuli hafa dregist í um 5 ár að finna lausn og hún sé í raun ekki enn fundin.
Hallast helst að því þessa dagana að okkur væri hollast að fara að undirbúa að taka tímabundið eða til lengri tíma t.d. Kanadadollar eða bara Dollarann sjálfan einhliða. Því að öllum er það ljóst held ég að fyrr en við skiptum um gjaldeyri þá verða hér hærri vextir og jafnvel verðtrygging þar sem að krónan er örmynnt og smá sveiflur hér geta keyrt hana upp og smá sveiflur á markaði geta fellt hana niður eins og spýtu. Ein virkjun getur skapað hér auka verðbólgu eða "verðbólguskot" í kannski 2 til 3 ár.
Vona hinsvegar að ESB sérstaklega nái að vinna sig út úr þessari ógnar krísu því ekki viljum við að Evrópa verði aftur eins og hún var. Þ.e. stöðug átök milli þjóða og stríð. Held að ESB þjóðirnar og sérstaklega evruþjóðirnar hljóti að átta sig á því að það verður að koma þessu í lag sem fyrst og tryggja að ríki í evrunni fari að þeim lögum og reglum sem gilda um evruna eins og t.d. varðandi þjóðarskuldir.
En nú er líka furðulegt að gerast eins og ég las í frétt hér á mbl.is. Ísland er búið að vera í viðræðum við ESB um m.a. tollaívilnanir á útflutning landbúnaðarvara síðustu misseri og þá væntanlega líka á innflutningi landbúnaðarvara. Og þá með EES samningi erum við komin enn lengra inn í ESB en höfum áfram engin áhrif þar.
Viðræður hafa með hléum staðið yfir á milli embættismannanefndar landbúnaðar- og utanríkisráðuneytins og samninganefndar Evrópusambandsins, undanfarin misseri og ár, um tollaívilnanir á ákveðna matvöru, eins og skyr, osta, lambakjöt, alifugla- og svínakjöt.
Að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar landbúnaðarráðherra er stefnt að því að sendinefnd ESB komi hingað til lands í september og reynt verður að ljúka samningum við ESB um gagnkvæmar tollaívilnanir, tollalækkanir og í einhverjum tilfellum niðurfellingu tolla, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Ég er forviða á því hað þú ert illa að þér á ESB. Að þú skulir ekki hafa hugmynd um samrunan sem á sér stað í ESB sem er í gangi hægt og sígandi en ákveðið.
Það á, hvað sem hver segir að yfirtaka öll valdsvið aðildarríkjanna .Núna á næstunni gerð fjárlaga. Meira að segja Bretar kvarta undan því að það sé ekkert á þá hlustað. Beiðnir frá smærri aðildaríkjum hverjar sem þær eru alltaf svo til alfarið hunsaðar. Það er alger misskilningur að það sé ekki hægt að hafa uppbyggileg, fjölbreytt,og vinsamleg samskipti við þjóðir án þess að sameinast þeim.
----------------------------------------------------------------------------------
Úr grein Gústaf Adolfs, hér blogginu:
bréf Jean Monnets til vinar 30. apríl 1952:
"Þjóðir Evrópu munu verða leiddar áfram að súperríkinu án þess að fólk þeirra skilji hvað er að gerast. Þessu er hægt að ná í árangursríkum skrefum, þar sem sérhvert þeirra verður klætt efnahagslegum markmiðum sem munu hægt og bítandi og á óafturkræfan hátt leiða til sambandsríkis."
-----------------------------------------------------------------------------
Hjá okkur hefur fjöldi fjárhagslega sterkra fyrirtækja (sem hafa skilað hagnaði árum saman) í hinum ýmsu atvinnuvegum ekki lengur þörf fyrir gengisfellingu þótt eitthvað breytist . Þau einfaldlega aðlaga sig .
En ef eitthvað stórkostlegt gengur á er það blessun sjálfstæðrar þjóðar að hafa möguleika á að hnika gengi myntar sinnar.
Snorri Hansson, 15.7.2015 kl. 02:48
Hvað er að heyra Magnús Helgi, ertu að ganga af trúnni????? Þú sem hefur verið harður ESB aðdáandi og skellt skollaeyrum við aðvörunum okkar sem eru andsnúnir ESB-aðild.
Að taka upp USD eða CAD er engu betri lausn en evran, sem nú er að kaffæra PIIGS-löndin.
Íslenska krónan, þó ófullkomin sé, hefur dugað okkur vel og verið sveigjanleg þegar vandi hefur steðjað að. En það má segja um ISK að hún er bara eins og allir aðrir gjaldmiðlar sem sveiflast til og frá eftir efnahag þeirra þjóða sem þá nota. Það á hins vegar ekki við um evruna, hún hefur verið ósveigjanleg fyrir þær þjóðir PIIGS-landana sem hafa þurft á sveigjanlegum gjaldmiðli að halda. Hefur sú staðreind verið þeim dýrkeypt og ekki séð fyrir endan á þeim áföllum sem vofir yfir hinum PIIGS-löndunum þegar Grikkland verður úr sögunni.
Tómas Ibsen Halldórsson, 15.7.2015 kl. 16:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.