Leita í fréttum mbl.is

Þetta með þingmannatölur í kjördæmum er náttúrulega ekki rétt

Mér finnst það athugavert að fjölmiðlar séu að úthluta þingmönnum skv. þessum könnunum sínum. Því að þar er ekkert getið um jöfnunarþingmenn. Eins þá fjölgar um 1 sæti í SV kjördæmi minnir mig nú í þessum kosningum. Þannig að ég held að réttara væri að horfa frekar á prósentur

Frétt af www.mbl.is 
  VG eykur við fylgi sitt í Suðvesturkjördæmi
Innlent | mbl.is | 5.5.2007 | 19:16
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking halda sínu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Framsókn tapar fylgi til Vinstrihreyfingairnnar-græns framboðs, samkvæmt skoðanakönnun, sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið.


mbl.is VG eykur við fylgi sitt í Suðvesturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú allt í lagi að úthluta kjördæmakjörnum þingmönnum en þeir þurfa að passa sig að taka það fram. Enda er það yfirleitt spurninginn sem fólk spyr sig, þ.e. hvað fær flokkurinn marga menn á þing. Hins vegar þurfa aðilar að passa sig á að taka það fram.

Kjördæmakjörnir þingmenn í Suðvestur kjördæminu eru nú 10 en voru 9 í síðustu kosningum, þannig að ekki er verið að gleyma neinum. Jöfnunarþingmenn eru svo aftur 2 þannig að kjördæmið fær nú 12 þingmenn í stað 11 síðast. Engin leið er að spá fyrir um jöfnunarmenn í kjördæmum út frá kjördæmakönnunum, það þurfa að liggja fyrir tölur fyrir landið allt til þess hægt sé að útbýtta þeim. 

Baldur (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 20:19

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sorry var náttúrulega að hugsa um alla þingmenn það er fjölgun úr 11 í 12. En finnst þetta samt ekki rétt að birta þingmannatölur þar sem að uppbótarþingmenn eru náttúruleag líka þingmenn kjördæmis og eins og þú segir þá er það ekki hægt nema að kanna stöðuna yfir landið. Eins finnst mér það skrýtið að Vg fái 2 þingmenn á 14,5% fylgi en Samfylking 3 fyrir 28,5% fylgi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.5.2007 kl. 20:48

3 identicon

Blessaður Magnús,

Þar sem að eru 10 kjördæmakjörnir þingmenn í SV- kjördæmi, þarf ca. 8 % á hvern þingmann. Ef sú þumalfingursaðferð er notuð, það er deilt með 8 í prósentutöluna sem viðkomandi flokkur fær, þá fara 9 þingmenn.  Eftir standa 6,5 % hjá Vinstri grænum upp í annan mann þeirra en 4,5 % hjá Samfylgingunni í 4 ða mann þeirra, 5,5 % að fyrsta þingmanni frjálslyndra o.s.fr.

Vona að þetta hafi útskýrt þetta aðeins,  enda eina aðferðin sem ég kann til að reikna þetta fljótt í huganum.

kveðja

Þóroddur (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 23:24

4 identicon

Atkvæði bakvið hvern þingmann er reiknað þannig að fyrsti maður fær öll atkvæði flokks, fyrir annann mann er deilt í atkvæða fjöldan með 2, fyrir þriðja mann er deilt með 3 o.s.frv.. Þannig 1. maður samfylkingar hefur 28,5 %, annar maður 14,25% 3. maður 9,5% og 4. maður 7,125%

En 1. maður hjá VG er með 14,5%, 2. maður 7,25% og 3. maður 4,83%

svo 2. maður VG er með 7,5% en 4. maður S með 7,125% 

Baldur (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 15:50

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er búið að taka mig í kennslustund í þessu og þessari reglu. Og ég fann hana inn á www.kosning.is  Þannig að nú skil ég þetta. Það er semsagt alltaf sá flokkur sem á mest eftir af atkvæðum  þegar búið er að úthluta næsta sæti fyrir ofan. Komst að því að það voru einhver hundruð atkvæða sem skildu 4 mann Samfylkngar eftir úti í þessari könnunþ En Baldur og Þóroddur takk fyrir ábendingar. Svo fann ég líka reiknivél inn á kosningavef www.ruv.is þar sem þetta er komið í reiknilíkan og maður getur sjálfur sett atkvæði eða prósentur inn og fengið út kjördæmakjörna og uppbótarþingmenn. En takk fyrir ábendingarnar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 6.5.2007 kl. 15:58

6 identicon

Atkvæði bakvið hvern þingmann er reiknað þannig að fyrsti maður fær öll atkvæði flokks, fyrir annann mann er deilt í atkvæða fjöldan með 2, fyrir þriðja mann er deilt með 3 o.s.frv.. Þannig 1. maður samfylkingar hefur 28,5 %, annar maður 14,25% 3. maður 9,5% og 4. maður 7,125%

En 1. maður hjá VG er með 14,5%, 2. maður 7,25% og 3. maður 4,83%

svo 2. maður VG er með 7,5% en 4. maður S með 7,125% 

Baldur (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 16:59

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ÉG veit þetta núna og að þetta heitir d'Hondt-regla.

Magnús Helgi Björgvinsson, 6.5.2007 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband