Leita í fréttum mbl.is

Frjálslyndir í ríkisstjórn með Framsókn og Sjálfstæðismönnum?

Ja allt hefur maður nú heyrt en þetta slær öllu út. Á www.mannlif.is er verið að tala um fund sem Davíð, Geir, Hannes Hólmsteinn og Friðrik Sophusson  áttu í gærkvöldi niður í Landsbanka um stjórnarsamstarf. Skv. þessi stingur Davíð upp á að Frjálslyndir eða hluti þeirra  verði teknir með í samstarf B og D lista og þannig fáist hæfilegur meirihluti. Sbr:

Hugmyndin sem upp er komin nú er sú að kippa um borð í ríkisstjórnina fyrrverandi sjálfstæðismönnunum Guðjóni A. Kristjánssyni og Jóni Magnússyni úr Frjálslynda flokknum og ná þannig sögulegum sáttum. Davíð var á sínum tíma mjög andvígur meðferðinni á Guðjóni A. innan Sjálfstæðisflokksins, sem var færður niður á lista, og vill fá hann heim aftur. Þá eru kærleikar frá fornu fari á milli Jóns Magnússonar og Friðriks Sophussonar og mögulegt að byggja brú þar. En allt veltur þetta auðvitað á vilja þeirra þeirra frjálslyndu ....


mbl.is Framsóknarmenn taka afstöðu til stjórnarsamstarfs í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gott að aðstoða þig við að fylgjast með. Þú hefur sem sagt ekkert heyrt um þetta innan frjálslyndra? En ég passaði mig á að segja í blogginu skýrt að ég las þetta bara á www.mannlif.is og þeir eru nú stundum aðeins að færa í stílinn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.5.2007 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband